Michele skrifaði:
Is the lace supposed to meet up with the neck band on larger sizes? I am knitting the xxxl and it is not! What am I doing wrong?!
23.03.2014 - 17:13
Elsa Fediuc skrifaði:
Es gefällt mir sehr schön
05.01.2014 - 06:44
Fay skrifaði:
édelweiss
03.01.2014 - 19:16
Gerrie skrifaði:
Ab-047
03.01.2014 - 18:34
Franca skrifaði:
Fijn vestje voor koele zomeravonden
02.01.2014 - 13:50
Monique skrifaði:
Très joli Monique
28.12.2013 - 21:22
Rey Marinette skrifaði:
Superbe
10.12.2013 - 22:49Marchand Martine skrifaði:
Superbe, féminin vraiment un beau modèle
10.12.2013 - 18:06
Kirsten skrifaði:
Meget sød og meget feminin, kan anvendes til det meste
10.12.2013 - 17:25
Sofie Cardigan#sofiecardiganbolero |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS Alpaca Bouclé með gatamynstri. Stærð S - XXXL
DROPS 155-24 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á eftir 3 l garðaprjón þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l á undan 3 l garðaprjón þannig: Prjónið 2 l slétt saman. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. l frá miðju að framan. Í næsta umf er fitjuð upp 1 ný l yfir l sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 9, 16 og 22 cm STÆRÐ M: 2, 9, 16 og 24 cm STÆRÐ L: 2, 10, 18 og 25 cm STÆRÐ XL: 2, 10, 18 og 27 cm STÆRÐ XXL: 2, 11, 20 og 28 cm STÆRÐ XXXL: 2, 12, 21 og 30 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 114-122-130-142-158-174 l (meðtaldar 3 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með Alpaca Bouclé. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni með 3 l garðaprjón (= kantlykkjur að framan) í hvorri hlið á stykki. Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm (passið að næsta umf sé frá réttu) setjið tvö prjónamerki í stykkið JAFNFRAMT er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón (= kantur að framan), 18-20-22-25-29-33 l sléttprjón, A.2a (= 8 l), 1 l sléttprjón (= hægra framstykki), setjið 1 prjónamerki, 1 l sléttprjón, A.1a (= 8 l), 36-40-44-50-58-66 l sléttprjón, A.2a (= 8 l), 1 l sléttprjón (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 1 l sléttprjón, A.1a (= 8 l), 18-20-22-25-29-33 l sléttprjón, endið á 3 l garðaprjón (= kantur að framan). ATH: Mynstur A.1a/A.2a færist til um 1 l við miðju að framan og við miðju að aftan í hverri umf frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1a og A.2a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.1b prjónað í stað A.1a og A.2b í stað A.2a. Mynstur A.1b og A.2b endurtekur sig til loka, JAFNFRAMT er haldið áfram með gataumferðir sem þegar er byrjað á. Munið eftir HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm (passið uppá að næsta umf sé frá réttu) er hvor hluti prjónaður til loka fyrir sig. Nú skiptist stykkið upp við hvort prjónamerki. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 30-32-34-37-41-45 l. Munið eftir HNAPPAGAT! Fitjið upp 3 l fyrir ermi í lok næstu umf frá réttu = 33-35-37-40-44-48 l í umf. Þær 3 nýju l eru prjónaðar með garðaprjóni til loka. Haldið áfram að prjóna garðaprjón, sléttprjón og A.2 eins og áður JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-26-28-29-31 cm (passið að næsta umf sé frá réttu) prjónið 6 umf garðaprjón yfir fyrstu 12 l, sléttprjón og A.2 eins og áður. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Fellið af fyrstu 9 l, haldið áfram með garðaprjón yfir næstu 3 l (= kantur að framan), sléttprjón og A.2 eins og áður = 24-26-28-31-35-39 l eftir á prjóni. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 4-4-4-5-5-5 sinnum til viðbótar = 19-21-23-25-29-33 l eftir á prjóni. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Prjónið A.1 í stað A.2. Fellið af fyrir hálsmáli frá röngu. Ekki fella af fyrir hnappagötum. BAKSTYKKI: = 54-58-62-68-76-84 l. Prjónið A.1/A.2 og sléttprjón eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 3 l í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umf = 60-64-68-74-82-90 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 27-29-30-32-33-35 cm (stillið af að næsta umf er frá réttu) prjónið 6 umf garðaprjón yfir miðju 24-24-24-26-26-26 l (= 18-20-22-24-28-32 l í hvorri hlið, sléttprjón og A.1/A.2 eins og áður). Í næstu umf frá réttu eru felldar af miðju 18-18-18-20-20-20 l fyrir hálsmáli (= 21-23-25-27-31-35 l eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í garðaprjóni yfir 3 l við hálsmál, sléttprjón og A.1/A.2 eins og áður JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l á eftir/undan 3 l garðaprjón við hálsmál – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar (= alls 2 sinnum) = 19-21-23-25-29-33 l eftir á prjóni. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakanta. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sofiecardiganbolero eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.