DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 155-23
DROPS Design: Mynstur nr ks-087
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
50-75-75-75-75-100 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 34 umf með garðaprjóni með 1 þræði verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL 4,5 – fyrir hálsmál.
DROPS PERLUTALA NR 521: 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að taka upp þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa umf snúna slétt, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við síðustu l með því að prjóna 2 næst síðustu l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Mælt frá kanti á hálsi við miðju að framan og fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 1 og 4 cm.
STÆRÐ M: 1 og 4 cm.
STÆRÐ L: 1 og 4 cm.
STÆRÐ XL: 1 og 5 cm.
STÆRÐ XXL: 1 og 5 cm.
STÆRÐ XXXL: 1 og 5 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allt stykkið er prjónað sem eitt stykki. Byrjið neðst niðri á bakstykki, aukið út fyrir ermar, fellið af fyrir hálsmáli, jafnframt er fellt af á ermum og prjónað er niður yfir framstykki. Til að fá pláss fyrir allar l er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 60-66-74-82-92-102 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5,5 með Kid-Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 3-3-3½-3½-4-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar (alls 5 sinnum) = 70-76-84-92-102-112 l.
Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm fitjið upp nýja l í lok hverrar umf í hvorri hlið: 1 l 1-1-2-2-3-4 sinnum, 2 l 2-3-2-2-1-1 sinnum, 4 l 2-1-1-1-1-0 sinnum, 6 l 1 sinni, 8 l 1 sinni og 17-18-17-14-12-12 l 1 sinni = alls 158-162-166-168-172-176 l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 37-39-41-43-45-47 cm. Fellið nú af miðju 18-18-20-20-22-24 l fyrir hálsmáli = 70-72-73-74-75-76 l eftir á hvorri öxl/ermi. Setjið l af vinstra framstykki á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 70-72-73-74-75-76 l. Prjónið 1 cm, setjið 1 prjónamerki hér = miðja ofan á öxl. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið síðan áfram fram og til baka þar til 11 cm hafa verið prjónaðir frá prjónamerki ofan á öxl. Fitjið síðan upp nýjar l í lok hverrar umf inn við hálsmál þannig: Prjónið 1 l 2 sinnum, 2 l 2 sinnum og 6-6-7-7-8-9 l 1 sinni = 82-84-86-87-89-91 l (meðtaldar 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni), JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm fellið af erma-lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT! Fellið laust af í byrjun á hverri umf neðst á ermi: 17-18-17-14-12-12 l 1 sinni, 8 l 1 sinni, 6 l 1 sinni, 4 l 2-1-1-1-1-0 sinnum, 2 l 2-3-2-2-1-1 sinnum, 1 l 1-1-2-2-3-4 sinnum = 38-41-45-49-54-59 l eftir á prjóni. Haldið áfram.
Þegar stykkið mælist 22-24-24-26-26-28 cm fækkið um 1 l í hlið – SJÁ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3-3-3½-3½-4-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar (alls 5 sinnum) – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-27-29-31-33-35 cm fækkið um 1 l í næstu umf við miðju að framan (fyrir bogalaga framstykki) – SJÁ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 4-3-3-2-2-2 sinnum, síðan í annarri hvorri umf 6-7-6-8-7-5 sinnum og að lokum í hverri umf 11-13-15-15-17-21 sinnum = 12-13-16-19-23-26 l eftir á prjóni, fellið þær af í næstu umf.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman tvöfalt við öxl = þar sem prjónamerki var sett í stykkið. Saumið hliðar- og ermasauma yst í lykkjubogann. Klippið frá og festið enda.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í kringum hálsmál með heklunál nr 4,5 þannig: Festið endann með 1 fl á hægra framstykki við miðju að framan, 2 ll hoppið fram 1,5 cm, * 1 fl, 2 ll, hoppið fram 1,5 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allan kantinn að framan og endið á 1 fl. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.02.2014
Ný teikning með máli (ekki fjölda)

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Livia wrote:

Ho un dubbio sulle maniche, vengono fatte lavorando in cerchio oppure in piano e poi cucite longitudinalmente alla fine? Grazie

23.03.2024 - 17:59

DROPS Design answered:

Buonasera Livia, il modello è lavorato in piano. Buon lavoro!

28.03.2024 - 19:24

country flag Alessandra wrote:

Buongiorno! Non mi è chiara la parte finale della spiegazione: a partire da 24 cm si parte con le 10 diminuzioni da fare sui lati del lavoro e dai 27 cm si aggiungono 24 diminuzioni sul lato interno (dove c’è l’asola)? Grazie mille, Alessandra

25.11.2023 - 14:28

DROPS Design answered:

Buonasera Alessandra, esatto, a 24 cm inizia le diminuzioni a lato e a 27 inizia le diminuzioni per formare la curva davanti. Buon lavoro!

26.11.2023 - 23:20

country flag Alessandra wrote:

Buongiorno! Sto seguendo le istruzioni per la parte davanti destra (taglia M). Ho appena finito le asole e a breve dovrò iniziare le ultime diminuzioni. Non mi è chiaro però quante ne devo fare per rimanere con 13 m alla fine. Sui lati conto una dim di 10 maglie + le maglie verso il centro per un totale di 24 maglie, quindi 41 m-34 m= 7 m ? Grazie

12.11.2023 - 18:30

DROPS Design answered:

Buonasera Alessandra, quale parte delle diminuzioni dopo le asole non le è chiara? Buon lavoro!

19.11.2023 - 19:42

country flag Martina wrote:

Hallo,ich verstehe die Maschenaufnahme der Ärmel nicht? Nach 19cm habe ich verstanden aber nach 20cm soll man alles x2 aufnehmen?und dann immer eine Maschen stricken dann wieder aufnehmer???ich stehe auf dem schlauch,die Bedeutung der Striche zwischen den Zahlen soll was bedeuten? Liebe Grüße Martina

19.05.2023 - 08:00

DROPS Design answered:

Liebe Martina, jede Zahl gilt für je die Größe, so in S schlagen Sie am Ende jeder Reihe (Hin- sowie Rückreihe) nach 19 cm: 1 Masche 1 Mal, 2 Maschen 2 Mal, 4 Maschen 2 Mal, 6 Maschen 1 Mal, 8 Maschen 1 Mal und 17 Maschen 1 Mal = (44 Maschen x 2 Seiten) + 70 Maschen = 158 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

19.05.2023 - 13:10

country flag Manuela Böttcher wrote:

Guten Tag, wie berechne ich die Größe. Bisher hatte ich bei den Anleitungen von Garnstudio immer eine M benötigt. Bei M wäre bei diesem Model aber nur die Schulterbreite passen und nicht der Brustumfang. Muss ich hier den Brustumfang nehmen? Das wäre dann aber XL. Vielen Dank

04.05.2023 - 06:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Böttcher, ja nach Schnitt können die fertigen Maßen verschieden sein, hier wird das Bolero ziemlich figurbetont, deshalb sind die Maßen schmaler. Messen Sie eine ähnliche Kleidung, die Sie gerne tragen, so finden Sie die beste passenden Größe - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

04.05.2023 - 08:21

country flag Christine wrote:

Bonjour, Je ne comprend pas quand vous dites : A 20 cm de haut monter à la fin de chaque rang de chaque côté 1 x 1 maille etc... , (Moi je le fait en point jersey) , est ce uniquement sur la face endroit ou aussi sur la face mousse ? Merci

15.03.2023 - 10:02

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, attention, un modèle tricoté au point mousse doit être adapté pour pouvoir être tricoté en jersey car la tension en hauteur est différente (il faut plus de rangs point mousse que de rangs jersey pour la même hauteur), sans ajustements, vous aurez probablement une forme plus ou moins différente. Les augmentations à 20 cm (taille M, dos) se font à la fin de chaque rang de chaque côté, ce sont les mailles des manches que l'on monte. Bon tricot!

15.03.2023 - 10:09

country flag Caroline Quidoz wrote:

J'ai une petite question technique Lorsqu'on fait une série d'augmentations ou diminution, comme ici : répéter ces diminutions 4 fois au total tous les 4 rangs, puis 6 fois tous les 2 rangs et encore 11 fois tous les rangs Je tricotte la première diminution au rang 1 ... ensuite au rangs 5 ... ma question : après le rangs ou je fais ma 4e diminution, est-ce que je tricotte encore 3 rangs avant de commencer ma série suivante de diminution ou 1 rangs ?

06.09.2022 - 15:32

DROPS Design answered:

Bonjour Caroline, voila la video sur ce sujet: regardez ICI. Bon tricot!

06.09.2022 - 16:12

country flag Rebecca Tyson wrote:

I am trying to knit the beautiful Paloma bolero. Sadly, I am completely confused by the instructions at the beginning of the right front piece. Is the 1cm in "work 1cm" measured from the sleeve edge? When I "continue back and forth", are these short rows? Also, I carefully read the earlier comments, and I am also ending up with a short-sleeved bolero, so it seems the pattern is either still incorrect or generally confusing. I really wanted a long-sleeved bolero.

08.08.2021 - 02:50

DROPS Design answered:

Dear Rebecca, the work 1 cm means that you should continue what you were doing for 1 more cm (from that row). Continue back and forth means that you are NOT knitting on the round, but back and forth on the needle. Happy Stitching!

08.08.2021 - 23:07

country flag Martin wrote:

Bonjour, je suis en train de tricoter ce modèle mais je trouve que les extrémités du bas sont pointues. En même temps, on dit de tricoter 4 cm avant de commencer les augmentations, ce qui explique l'angle droit. Toutefois sur la photo de présentation les angles ont l'air très arrondis. Ai-je loupé une info ? Merci.

14.07.2021 - 18:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martin, le boléro se tricote en une seule pièce en commençant en bas du dos (= on augmente sur les côtés du dos à 4 cm) jusqu'aux épaules, puis on rabat les mailles de l'encolure et on continue chaque devant séparément de haut en bas (en commençant par le devant droit) et vous diminuerez pour l'arrondi en fin de rang sur l'endroit (cf DIMINUTIONS)à partir de 25-35 cm (cf taille). Quand vous aurez tricoté le devant gauche en sens inverse, vous assemblerez les côtés (= augmentations du dos et diminutions des devants). Bon tricot!

15.07.2021 - 09:40

country flag MARTIN wrote:

Bonjour, la longueur des manches paraît courte par rapport à la photo ? Est-ce que le patron présente un modèle manche courte ? Merci.

06.05.2021 - 09:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martin, pour adapter la longueur des manches, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme, et comparez ces mesures à celles du schéma. La longueur des bras et la morphologie de chacune étant différente, le rendu sera différent. Bon tricot!

06.05.2021 - 09:46