Tove Østergaard skrifaði:
Kan den strikkes af dobbelt alcata/silke MVH Tove Østergaard
14.02.2014 - 19:53DROPS Design svaraði:
Hej Tove, det blir litt lösere, då alpaca silk fyller litt mere. Var noga at sjekke strikkefastheten så du får det antal m og p som står i oppskriften.
15.02.2014 - 01:46
Miranda skrifaði:
Het patroon bevat een foutje: Achterpand: "brei bij een hoogte van 51-53-55-67-59-61 cm 1 ribbel in ribbelst..." 67 cm (bij maat XL) zou 57 cm moeten zijn. Met vriendelijke groeten, Miranda
25.01.2014 - 19:06DROPS Design svaraði:
Hoi Miranda. Ja, je hebt gelijk. Wij zullen het zsm aanpassen.
28.01.2014 - 16:39Alejandra skrifaði:
Muy práctico y lindo! pero no está el archivo con el diagrama. Por favor, revisar y agregarlo, quiero hacerlo! Gracias
24.01.2014 - 22:49
Corrie Bechtold skrifaði:
Kan bijna niet wachten op het patroon. Zo mooi
14.01.2014 - 20:09
Gro Nygaard Gjerde skrifaði:
Kjempefin..
10.01.2014 - 18:15
Frances skrifaði:
I LOOOOVE this! It's so beautiful! I want the pattern! :( :)
10.01.2014 - 03:53
Clara skrifaði:
Struttura interessante con maniche alate
29.12.2013 - 12:30
Bente skrifaði:
Hvor bliver mine kommentarer af
16.12.2013 - 13:20
Bente skrifaði:
Fin
16.12.2013 - 13:19
Bente skrifaði:
Det er da så lige den eneste jeg syntes om, ALLE jeres opskrifter ligner til forveksling tidligere udgaver. Sorry
16.12.2013 - 13:18
Fan#fancardigan |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 154-21 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. ATH! Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það á að myndast gat. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum frá réttu um 1 l innan við 4 l garðaprjón. Á eftir 4 l garðaprjón er prjónað þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Á undan 4 l garðaprjón er prjónað þannig: Prjónið 2 l slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti br saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 4, 14 og 24 cm. STÆRÐ M: 4, 14 og 24 cm. STÆRÐ L: 2, 11, 20 og 28 cm. STÆRÐ XL: 2, 11, 20 og 28 cm. STÆRÐ XXL: 3, 12, 21 og 30 cm. STÆRÐ XXXL: 3, 12, 21 og 30 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni með gataumferð. BAKSTYKKI: Fitjið upp 72-76-84-88-96-104 l með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 6. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú sléttprjón þar til stykkið mælist 1-1-3-3-1-4 cm. Í næstu umf frá réttu er aukið út í hvorri hlið þannig: Aukið út um 1 l með 1-1-1-1-1½-1½ cm millibili alls 18-18-16-16-12-10 sinnum í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING að ofan = 108-112-116-120-120-124 l – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 11 cm er prjónað A.1 – sjá MYNSTUR að ofan (1. umf = ranga). Haldið áfram að prjóna sléttprjón með A.1 ca í 8. hverjum cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 19 cm eru fitjaðar upp 4 l hvoru megin á stykkinu í lokin á 2 næstu umf, þær 4 útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni = 116-120-124-128-128-132 l. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.1 eins og áður þar til stykkið mælist alls 40-41-42-43-44-45 cm. Fellið nú af 4 l garðaprjón í hvorri hlið (fellið af í byrjun á næstu 2 umf) = 108-112-116-120-120-124 l. Prjónið nú eftir A.2 til loka (1. umf = rétta) – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í byrjun hverrar umf frá hlið þannig: Fækkið um 4 l 2-2-1-0-0-0 sinnum, fækkið um 2 l 11-12-14-16-17-18 sinnum. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm eru prjónaðar 2 umf garðaprjón yfir miðju 22-22-24-24-26-26 l og síðan eru felldar af miðju 14-14-16-16-18-18 l laust af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig með 4 l við hálsinn í garðaprjóni. Í næstu umf frá réttu eftir síðustu úrtöku á öxl þá eru felldar af þær 17-17-18-20-17-17 l sem eftir eru laust af. Stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til bakaí sléttprjóni með gataumferð. Fitjið upp 40-42-46-48-52-56 l (meðtaldar 4 l í kanti að framan) með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 6. Prjónið 4 umf garðaprjón. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni með 4 l garðaprjón í vinstri hlið (séð frá réttu = kantur að framan) ATH! Þær 4 l garðaprjón eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 1-1-3-3-1-4 cm er aukið út í næstu umf frá réttu í hægri hlið á stykki þannig: Aukið út um 1 l með 1-1-1-1-1½-1½ cm millibili alls 18-18-16-16-12-10 sinnum – sjá ÚTAUKNING að ofan = 58-60-62-64-64-66 L – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 11 cm er prjónað A.1 – sjá MYNSTUR að ofan. Haldið áfram að prjóna sléttprjón með A.1 ca 8. hvern cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 19 cm eru fitjaðar upp 4 l frá réttu í hægri hlið á stykki, þær 4 útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni = 62-64-66-68-68-70 l. Prjónið áfram í sléttprjóni og A.1 eins og áður. Þegar stykkið mælist 26-26-28-28-30-30 cm fellið af fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 1 l í vinstri hlið innan við 4 l garðaprjón – SJÁ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í öðrum hvorum cm alls 11-11-12-12-13-13 sinnum JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm eru felldar af 4 l garðaprjón í hægri hlið á stykki. Prjónið nú eftir mynstri A.2 – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar laust af í hægri hlið á stykki þannig: Fellið af 4 l í hverri umf frá réttu 2-2-1-0-0-0 sinnum, fellið af 2 l í hverri umf frá réttu 11-12-14-16-17-18 sinnum, í næstu umf frá réttu eru felldar af þær 17-17-18-20-17-17 l sem eftir eru. Eftir síðustu úrtöku á öxl mælist stykkið 54-56-58-60-62-64 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma yst í lykkjubogann upp að og með 4 útauknum lykkjum í garðaprjóni. Saumið axlasauma yst í lykkjubogann frá og með 4 útauknum lykkjum í garðaprjóni og upp að úrtöku fyrir hálsmáli. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fancardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.