DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 154-20
DROPS Design: Mynstur nr w-521
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 gr litur nr 01, apríkósa

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 521: 3 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 5. og 6. l frá miðju að framan slétt saman.
Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l yfir þá l sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 6, 12 og 18 cm
STÆRÐ M: 6, 12 og 18 cm
STÆRÐ L: 6, 13 og 20 cm
STÆRÐ XL: 6, 13 og 20 cm
STÆRÐ XXL: 7, 14 og 21 cm
STÆRÐ XXXL: 7, 14 og 21 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í tveimur stykkjum frá neðri kanti á framstykki að miðju baki. Þessi tvö stykki eru saumuð saman við miðju að aftan í lokin.

VINSTRA FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l.
Fitjið upp 44-46-48-52-56-62 l (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 5-7-9-13-17-23 l, 2 l br, 4 l sléttprjón, A.2 (= 21 l), 4 l sléttprjón, 2 l br, endið á 2 l sl, 2 l br, 2 l sl (= kantur að framan). ATH! Kanturinn að framan er prjónaður svona til loka. Prjónið 4 umf síðan er prjónað frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 5-7-9-13-17-23 l, A.3 (= 6 l), A.2 (= 21 l), A.1 (= 6 l), endið á 2 l sl, 2 l br, 2 l sl (= kantur að framan).

Prjónið þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið nú sléttprjón yfir fyrstu 5-7-9-13-17-23 l, A.3/A.2/A.1 og kantur að framan (= 2 l sl, 2 l br, 2 l sl) eins og áður JAFNFRAMT í næstu umf frá röngu byrjar útaukning í hlið og fitjaðar eru upp nýjar l í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 1 l alls 5 sinnum og 2 l alls 3 sinnum. Nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni. Síðan í næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 5 nýjar l alls 1 sinni = 60-62-64-68-72-78 l. Þær 5 nýju l eru prjónaðar í garðaprjóni fyrir kant á ermum.

Þegar stykkið mælist 28-28-30-30-32-32 cm fitjið LAUST upp 30-30-34-34-38-38 nýjar l fyrir ermi í lok næstu umf frá röngu = 90-92-98-102-110-116 l. Þær 30-30-34-34-38-38 nýju l eru prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið 6 umf garðaprjón yfir nýju l. Afgangurinn af l eru prjónaðar eins og áður. Prjónið nú sléttprjón yfir l í garðaprjóni (l eru prjónaðar í sléttprjóni til loka). Fellið nú af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið sléttprjón þar til 2 l eru eftir á undan A.3, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 10 sinnum. JAFNFRAMT í næstu umf frá röngu byrjar útaukning í hlið og fitjaðar eru upp nýjar l í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 2 l alls 5 sinnum og 1 l alls 2 sinnum. ATH! Þær 12 nýju l eru prjónaðar í sléttprjóni. Í næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 5 nýjar l alls 1 sinni (þær 5 nýju l eru prjónaðar í garðaprjóni til loka). Eftir að úrtöku fyrir hálsmáli er lokið eru 97-99-105-109-117-123 l á prjóni. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 58-60-63-65-69-72 cm. Stillið af að næsta umf sé frá réttu. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT í síðustu umf (= ranga) eru felldar af fyrstu 39 l. Prjónið nú garðaprjón JAFNFRAMT er fellt af þannig: Prjónið sl yfir allar l (= frá réttu), snúið við og * fellið af fyrstu 5-5-5-6-5-6 l (= ranga) og prjónið aðrar l í umf, snúið við og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* alls 11-11-12-12-14-14 sinnum. Fellið af þær l sem eftir eru .

HÆGRA FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki / bakstykki nema gagnstætt. Þ.e.a.s. að fellið af og aukið út í vinstri hlið á stykki (þ.e.a.s. í lok hverrar umf frá réttu). Fellið af við hálsmál eftir A.3 (frá réttu) með því að prjóna 2 l slétt saman. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið saman bæði stykkin við miðju að aftan yst í lykkjubogann. Saumið saman A við B – sjá mynsturteikningu – saumið yst í lykkjubogann. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = 5 l slétt saman
symbols = 5 l snúnar sl saman
symbols = miðja að aftan
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (61)

country flag Dorte Harup-Hansen wrote:

Jeg strikker i str XL, slået 52 m op, og jeg har lavet udtagningerne i slutningen af vrangpinden efter de 3 cm kant og har 68 m på pinden. Jeg har strikket til mål 30 cm og slået de 34 m op i slutningen af vrangpinden og strikket de 6 pinde, hvor de nye masker strikkes retstrik. Hvornår skal jeg så starte med lukning til hals og den nye udtagning mod siden. Det har jeg svært ved at forstå. Jeg vil pille det hele op og starte forfra, når jeg har forstået det korrekt

25.08.2021 - 12:57

country flag Dorte Harup-Hansen wrote:

Skal alle de masker, der skal tages ud på vrangsiden, slåes op allesammen for enden af pinden. Jeg synes, det kommer til at se mærkeligt ud

19.08.2021 - 21:16

DROPS Design answered:

Hej Dorte, hvilken størrelse strikker du, hvor er du i opskriften, hvor mange masker har du og hvor mange skal du tage ud i din størrelse?

25.08.2021 - 10:43

country flag Lorraine Forcier wrote:

Pensez-vous qu'il serait possible de réaliser ce modèle plus en longueur? Merci

02.06.2020 - 23:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Forcier, possiblement, mais nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, merci de bien vouloir contacter votre magasin pour toute assistance individuelle, ou bien rechercher un autre modèle de veste, en filtrant les résultats si besoin. Bon tricot!

03.06.2020 - 07:09

country flag Susanne wrote:

Hej! Jättefin modell men jag har problem med "Sedan minskas det till hals så här: Sticka slätst tills det återstår 2 m före A.3, lyft 1 m, 1 rm, drag den lyfta m över, upprepa minskn på vart 4:e v totalt 10 ggr". Om man tittar på bilden ser det ut som om man har kvar de 21 maskorna som är A2. Vilka maskor är det som kommer maskas av? Är det från A2? Jag får inte ihop det. Tacksam för hjälp

20.02.2020 - 14:02

DROPS Design answered:

Hej Susanne, Du minskar i de slätstickade maskor innan du stickar A.3-A.2-A.1. Lycka till :)

21.02.2020 - 08:28

country flag Libellule wrote:

Je ne comprends pas ce passage :\r\n« Tricoter 3 côtes mousse sur les nouvelles mailles et les mailles restantes comme avant » Que veut dire « 3 côtes mousse ». Comment faire des « côtes mousse » (pour moi côte = un certain nombre de point endroits et envers alternés), surtout que juste avant il y a « Tricoter les 30-30-34-34-38-38 nouvelles m au point mousse. » Si tout est au point mousse, comment faire des côtes ? Merci.

09.08.2019 - 11:31

DROPS Design answered:

Bonjour Libellule, 1 côte mousse = 2 rangs end (cf POINT MOUSSE), donc on va tricoter ici 6 rangs au total avec 3 côtes mousse sur les mailles indiquées, et les autres mailles seront tricotées comme avant pendant ces 6 rangs. Bon tricot!

09.08.2019 - 12:06

country flag Pauline wrote:

Die Jacke finde ich toll und möchte sie in Größe M nachstricken. Dabei möchte ich die Länge der Jacke um ca. 10 cm verlängern, weil sie für mich im Original-Schnitt etwas zu kurz ist. Wo und wie muss ich den Original-Schnitt verändern, damit die Länge der Jacke um ca. 10 cm vergrößert wird?

13.11.2018 - 15:36

DROPS Design answered:

Liebe Pauline, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder individuellen Anfrage anpassen - gerne können Sie Kontakt mit Ihrem DROPS Laden aufnehmen - auch telefonisch oder per E-mail. Viel Spaß beim stricken!

13.11.2018 - 16:18

country flag Bonnie LIvely wrote:

I'm having trouble knitting 5 together. Do you have any suggestions? Tips?

14.05.2018 - 03:02

DROPS Design answered:

Dear Bonnie, there is a tutorial video, that will probably help you. You can find it here Happy Knitting!

14.05.2018 - 07:50

country flag Dianne wrote:

Love the look of this lacy little jacket, but I'd like to make it a bit longer. But if I'm understanding the diagram correctly, the front is "up and down", and the back portion goes "sideways". So I will have to add extra stitches in width to make the back longer, in addition to adding extra rows for length for the front? Correct?

04.05.2018 - 00:43

DROPS Design answered:

Dear Dianne, front piece is worked from bottom up, then you cast on new sts on the side for back piece (A & B = seam on the side in chart and opening for arm = between A & B). Happy knitting!

04.05.2018 - 09:00

country flag Hege S Borgersen wrote:

Skjønner ikke hva som skal gjøres i starten etter pinne 1. Da skal jo pinnen snus. Det står i oppskriften, strikk 4 pinner til. Menes da identisk med det som står altså at r på retten, blir r på vrangen (med unntak av A2 som forteller hva en skal gjøre) eller skal det strikkes speilvendt? Slik at forkanten 2 vr, 2 r, 2 vr, 2 r på retten blir 2 r 2 vr 2 r 2 vr på vrangen?? Og at rillene kommer over hverandre og ikke i hver sin ende når en snur?

01.04.2018 - 22:41

DROPS Design answered:

Hei Hege. Du skal lese oppskriften som "strikkes som sett fre retten". Alstå når du strikker fra vrangen blir rette masker vrange og omvendt. Med andre ord, fra vrangen strikkes det speilvendt av slik det strikkes fra retten. God fornøyelse

05.04.2018 - 08:20

country flag Mina wrote:

Hola # 154-20, no he podido descifrar las instrucciones; lo escrito, no me concuerda con el diagrama; mi talla es S; empiezo con 5 puntos en musgo, luego cómo sigo hasta llegar a 21 puntos del diagrama A2; repito todo hasta llegar al borde?\Por favor indicarme con más claridad como seguir. Otra pregunta, los 44 puntos que monto al principio, son sólo para la mitad de la chaqueta? Para la otra mitad debo montar otros 44?Gracias por la atención prestada a éste asunto.

25.02.2018 - 23:30