Eva skrifaði:
Hej! Jag stickar denna kofta men förstår inte hur det räknas på ärmen. Jag har 62 maskor och ska minska 18 för att sedan öka 10. Men var kommer 60 maskor ifrån? 62-18+10 får inte jag till 60! Hur många maskor ska jag ha efter minskningar och ökningarna? 54 eller 60?mvh Eva
01.06.2014 - 14:01DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Du skal have 54 m, hvis du stickar XXL. De 60 m er til str XXXL
04.06.2014 - 17:23
Nelly Koster skrifaði:
Ik wil dit patroon graag breien maar ik heb garen voor breipennen 3,5 - 4mm. Hoe zit dit met de steken die ik op moet zette, moet ik dan meer steken opzetten of juist minder?
12.02.2014 - 20:03DROPS Design svaraði:
Hoi Nelly. Je moet meer steken opzetten. Je moet het model opnieuw berekenen met hulp van de stekenverhouding van jouw garen en de afmetingen voor het model (zie tekening onderaan). Kijk ook goed uit met de pas/motief.
13.02.2014 - 10:48
Daniela skrifaði:
Molto, molto bella
13.01.2014 - 22:22Aurora Fernandez skrifaði:
Muy lindo
27.12.2013 - 22:01
K Jellrunn Vakseth skrifaði:
Denne kunne jeg ha tenkt strikke til meg selv. den ser fin ut, ikke lik som de andre.
27.12.2013 - 15:27
K Jellrunn Vakseth skrifaði:
Denne kunne jeg ha tenkt strikke til meg selv. den ser fin ut, ikke lik som de andre.
27.12.2013 - 15:26
Manuela skrifaði:
Ja, das ist es! DAS Jäckchen zum Frühsommer!
26.12.2013 - 15:04Lori Winters skrifaði:
This is very nice and Romantic. Although if I made it for myself I would make it longer.
20.12.2013 - 07:09Mandana skrifaði:
Very nice
19.12.2013 - 21:25
Jose Janssen skrifaði:
Prachtig
13.12.2013 - 12:29
Desert Rose Jacket#desertrosejacket |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris með fallegu berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 155-4 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá teikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagati í hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S/M: 6, 16, 26, 35, 44 og 54 cm STÆRÐ L/XL: 6, 14, 23, 32, 41, 50 og 58 cm STÆRÐ XXL: 6, 15, 24, 33, 42, 51 og 60 cm STÆRÐ XXXL: 6, 15, 23, 31, 39, 47, 55 og 64 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 240-272-304-336 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið eins umf br frá röngu, prjónið nú frá miðju að framan þannig: Prjónið 6 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – (=kantur að framan), stroff 4 l sl, 4 l br, endið á 4 l sl og 6 l garðaprjón. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Þegar stykkið mælist 6 cm eru allar brugðnar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 frá réttu = 184-208-232-256 l. Prjónið 1 umf br frá röngu þar sem felldar eru af 3 l jafnt yfir (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) = 181-205-229-253 l. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 48-54-60-66 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 85-97-109-121 l). Prjónið síðan sléttprjón með 6 l garðaprjón í hvorri hlið ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 ½-4-4½-5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 úrtökur) = 165-189-213-237 l. Þegar stykkið mælist 24-26-27-29 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 útaukningar) = 181-205-229-253 l. Þegar stykkið mælist 35-39-41-45 (í umf frá röngu) eru felldar af 14-16-18-20 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l á hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 71-81-91-101 l eftir á bakstykki og 41-46-51-56 l eftir á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 46-54-62-70 l á sokkaprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 1 umf slétt JAFNFRAMT eru felldar af fyrstu 14-16-18-20 l (= miðja undir ermi) og aukið er út um 10 l jafnt yfir þær l sem eftir eru = 42-48-54-60 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki = 237-269-301-333 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu * A.1 (= 14 l), A.2 (= 18 l) *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir á prjóni, endið á 1 l sléttprjón með rönguna út og 6 kantlykkjur í garðaprjóni á kant að framan (= 7-8-9-10 mynstureiningar af A.1 og A.2 á breidd). MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað eru 153-173-193-213 l á prjóni. (A.1 = 14 l, A.2 = 6 l). Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 39-53-69-85 l jafnt yfir = 114-120-124-128 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið nú upphækkun að aftan við hnakka í sléttprjóni, setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju (= miðja að aftan) og byrjið þannig: Prjónið 7 l sl fram hjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28 l br til baka. Haldið svona áfram – prjónið yfir 7 l fleiri í hvert skipti þegar snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 56-70-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf slétt fram að miðju að framan. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af með sl frá réttu. Berustykkið mælist ca 21 cm (miðja að framan) og öll peysan ca 56-60-62-66 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #desertrosejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.