Barbara skrifaði:
Do I do the short rows over the band stitches on every row or just the one row
09.02.2014 - 01:31DROPS Design svaraði:
Dear Barbara, when piece measures 36-33 cm (see size), you work short rows over band sts only 1 time each side. Happy knitting!
10.02.2014 - 09:47
Stephanie skrifaði:
The pattern for short rows state K 5 band sts, turn piece, tighten yarn and knit. The tighten yarn and knit part is confusing me. Do I only knit 1 stitch. Or all 5 in the band
06.02.2014 - 04:26DROPS Design svaraði:
Dear Stephanie, "tighten yarn and turn" is to avoid holes. The video below shows you how to do - you'll find another video for short rows with wrap under the tab "video" on the right side of the picture. Happy knitting!
06.02.2014 - 08:53
Armirotto Josée skrifaði:
Beste, Blijkbaar is er een verschil in beschrijving bij het maken van nopjes/bobbels de tekst bij het model is anders dan de tekst bij de video. Graag uw toelichting welke beschrijving te volgen is ? Josee
04.02.2014 - 09:51DROPS Design svaraði:
Hoi Jose. Je moet de beschrijving in het patroon volgen. De video geeft een voorbeeld/idee van hoe je een nopje kan breien, maar het aantal st/nld voor het nopje kan verschillen per patroon.
04.02.2014 - 13:47
Stephanie skrifaði:
After working a2 in size small I have 6 stitches extra after all the required decreases. I am wondering if the pattern forgot to take the 3stockinette sts on each side of the edge stitches off in the decreases. Or have I done something wrong.because everything matches up perfectly otherwise. So I'm thinking that I should decrease 21 sts by the end of a2
27.01.2014 - 00:53DROPS Design svaraði:
Dear Stephanie, after A.1 you have 181 sts, work A.2 as follows : 5 sts in garter st, A.2 (= 12 sts) a total of 14 times (= 168 sts), 3 sts in st st, 5 sts in garter st = 181 sts. After A.2 work 4 rows st st while dec on 3rd row 15 sts evenly = 166 sts remain. Happy knitting!
27.01.2014 - 09:39
Simone skrifaði:
Was fuer ein schönes und feminines Jäckchen, das werde ich stricken
16.01.2014 - 11:53
Martha skrifaði:
Ein sehr schönes Modell, wie für mich gemacht!
13.01.2014 - 22:51
CATHERINE VALLEE skrifaði:
Jolis points et joli coupe très féminine
10.01.2014 - 20:41
Bettina skrifaði:
Frais et coquet. SUPERBE.
10.01.2014 - 15:36
SIMONETTA MESCIA skrifaði:
SUPER
08.01.2014 - 17:50
Marie France skrifaði:
Joli gilet
07.01.2014 - 11:33
Ocean Breeze#oceanbreezecardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 152-1 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 8, 15, 22, 29 og 35 cm. STÆRÐ M: 8, 15, 22, 29 og 35 cm. STÆRÐ L: 8, 15, 22, 29 og 35 cm. STÆRÐ XL: 8, 15, 22, 29 og 35 cm. STÆRÐ XXL: 8, 15, 22, 29 og 35 cm. STÆRÐ XXXL: 8, 14, 20, 26 og 32 cm. ÚRTAKA-1: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman. ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum innan við 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið svona. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum að framan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum að framan þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki í hverri laskalínu. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 293-313-353-373-413-473 l (metaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjóni mynstur eftir mynsturteikningu A.1A þar til 8 l eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 3 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar all A.1 hefur verið prjónað til loka eru 181-193-217-229-253-289 l á prjóni og stykkið mælist ca 8 cm á hæð, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.2 þar til 8 l eru eftir á prjóni, prjóni ð 3 l slétt og endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 13 cm. Prjónið 4 umf slétt (1. umf = rétta og kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) JAFNFRAMT í 3. umf (rétta) er fækkað um 15-12-15-15-9-12 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-1 (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan)= 166-181-202-214-244-277 l eftir á prjóni. Prjónið nú A.3 1 sinni á hæðina með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Eftir A.3 eru prjónaðar 4 umf slétt JAFNFRAMT í 1. umf (= rétta) er fækkað um 11-10-15-11-9-10 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 155-171-187-203-235-267 l eftir á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 þar til 6 l eru eftir á prjóni, prjónið 1 l slétt og endið á 5 kantlykkjum eins og áður. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 4 umf sléttprjón (1. umf = rétta og kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) JAFNFRAMT í 2. umf (= ranga) er aukið út um 11-13-9-14-9-4 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING (aukið ekki út yfir kant að framan) = 166-184-196-217-244-271 l á prjóni. Prjónið nú A.3 1 sinni á hæðina með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Eftir A.3 eru prjónaðar 4 umf sléttprjón JAFNFRAMT í 2. umf (= ranga) er aukið út um 13-13-10-16-7-7 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan)= 179-197-206-233-251-278 l. Stykkið mælist nú ca 31 cm á hæð í öllum stærðum. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjóni mynstur eftir mynsturteikningu A.5A (= 6 l), prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.5B þar til 15 l eru eftir á prjóni, prjónið A.5C (= 10 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í 47-52-54-61-65-72 l inn frá hvorri hlið (= 85-93-98-111-121-134 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Þegar stykkið mælist 36-36-36-36-36-33 cm (stillið af að prjónaðar séu ca 2 umf eftir síðasta hnappagati í hægri kanti að framan), prjónið nú stuttar umferðir yfir kant að framan (byrjið frá réttu) þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl stil baka, snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l, snúið við, prjónið 5 kantlykkjur að framan slétt, snúið við, herðið á þræði og prjóni sl til baka. Prjónið nú fram og til baka yfir allar l eins og áður, JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið við miðju að framan fyrir V-hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 21-24-26-30-33-38 sinnum – ATH: Þær l sem ekki ganga upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 38-39-40-41-42-42 cm – stillið af að næsta umf sé prjónuð frá röngu, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan fyrsta prjónamerki í hlið, fellið af næstu 6 l, prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af næstu 6 l og prjónið út umf. Nú eru 79-87-92-105-115-128 l á bakstykki og ca 41-45-46-51-53-57 l á hvoru framstykki (háð því hversu mörgum lykkjum hefur verið fækkað fyrir v-hálsmáli). Geymið stykkið og prjónið ermar (úrtaka fyrir v-hálsmáli heldur áfram í laskalínu). ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 71-77-79-85-87-93 l á sokkaprjóna nr 3 með Cotton Light. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-12-12-14-14 l jafnt yfir = 61-67-67-73-73-79 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið A.6A (= 3 l), prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.6B þar til 4 l eru eftir í umf og endið á A.6C (= 4 l). Haldið svona áfram með mynstur hringinn. Þegar stykkið mælist ca 14 cm í öllum stærðum – endið á 5. umf í A.6, fellið af miðju 6 l í næstu umf undir ermi = 55-61-61-67-67-73 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna inn l) = ca 271-299-306-341-355-388 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram fram og til baka eins og áður með A.5 á fram- og bakstykki, A.6 á ermum og hálsmáli í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður – ATH: Passið uppá að það slá jafn oft uppá prjóninn og þær lykkjur sem fækkað var um í sjálfu mynstri á fram- og bakstykki og ermum þannig að lykkjufjöldinn passi. Í fyrstu umf (= rétta) fækkið að auki lykkjum fyrir LASKALÍNA hvoru megin við öll prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið laskalínu í hverri umf frá réttu alls 18-20-21-23-24-26 sinnum. Eftir úrtöku fyrir laskalínu og úrtöku fyrir hálsmál eru 91-99-96-111-115-128 l eftir á prjóni. JAFNFRAMT eftir síðustu umf með úrtöku fyrir laskalínu er prjónuð 1 umf til baka frá röngu eins og áður. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, setjið þær á þráð, prjónið þar til 5 kantlykkjur eru eftir, setjið þessar 5 l á þráð = 81-89-86-101-105-118 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 18-26-21-34-36-47 l jafnt yfir = 63-63-65-67-69-71 á prjóni. Fellið af með sl frá réttu og klippið frá. KANTUR AÐ FRAMAN / HÁLSMÁL: Setjið til baka 5 kantlykkjur að framan af þræði á hægra framstykki á prjóna nr 3,5. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka eins og áður yfir þessar 5 l. Prjónið þar til hálsmálið mælist ca 15-17 cm þar sem l voru settar til baka á prjóninn (leggið kantinn á hálsmáli við opið fyrir hálsmál á stykkið við miðju að aftan, strekkið aðeins á og passið að kanturinn passi í opið), fellið síðan af. Endurtakið eins meðfram vinstra framstykki. Saumið sauminn við miðju að aftan innan við affellingarkantinn (saumurinn á að snúa inn að röngu á stykki). Saumið kant fyrir hálsmál við op fyrir hálsmál – saumið yst í lykkjubogann að kanti í garðaprjóni þannig að kanturinn liggi fallega að hálsmáli. Saumið saman op undir höndum. Saumið tölur í. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oceanbreezecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.