DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 152-14
DROPS Design: Mynstur nr bs-062
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
350-400-550 gr litur nr 2110, púðurgulur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
Mynsturteikning A.6 + A.7 (= 31 l) mælist 11 cm á breiddina án þess að teygja á stykkinu.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 2,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í 2 hlutum, neðst framan á ermi og að miðju aftan á baki. Síðan eru þessi 2 stykki saumuð saman við miðju aftan á baki. Að lokum er prjónaður upp kantur/stroff í kringum opið á jakkanum.

HÆGRI HLIÐ:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með byrjun neðst framan á ermi.

Fitjið upp 98-115-132 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 med Baby Alpaca Silk.
Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br, 3 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6-7 sinnum, síðan * 2 l sl, 2 l br, 3 l sl, 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 1 sinni og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 10 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * A.1 (= 11 l), A.2 (= 6 l) *, endurtakið frá *-* alls 5-6-7 sinnum, síðan A.1 (= 11 l) alls 1 sinni, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til A.1 hefur verið prjónað í 5 cm (stykkið mælist ca 15 cm). Nú er A.3 prjónað í stað A.1 (A.2 heldur áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist 50 cm er sett 1 prjónamerki í stykkið. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * A.4 (= 11 l), A.8 (= 6 l) *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3 sinnum, ** A.4 (= 11 l), A.5 (= 6 l) **, endurtakið frá **-** alls 3-3-4 sinnum og endið á A.4 1 sinni og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.4/ A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 196-237-268 l á prjóni og stykkið mælist ca 12 cm frá prjónamerki. Prjónið nú A.6 í stað A.4 og A.7 í stað A.5 (teikning A.8 heldur áfram þannig: Prjónið A.8b 1 sinni og haldið síðan áfram með A.8c). Þegar A.8b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 204-249-280 l á prjóni.

Þegar stykkið mælist 17-19-21 cm frá prjónamerki, setjið fyrstu 110-136-155 l á prjóni frá réttu á þráð (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn) = hægra framstykki. Nú eru 94-113-125 l eftir fyrir bak. Setjið 1 nýtt prjónamerki (hér á hliðarsaumurinn að vera saumaður saman) og haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir bak-l. Þegar stykkið mælist 2-2-3 cm frá prjónamerki eru settar 10 l alls 5 sinnum á þráð frá neðst niðri á baki og upp yfir hnakka í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umf frá röngu – l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráð til að þurfa ekki að klippa frá) = 44-63-75 l á prjóni.

Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og setjið til baka allar l af þræði á prjóninn JAFNFRAM er umf prjónuð frá réttu = 94-113-125 l. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir = 104-123-135 l. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Setjið fyrstu 48-59-63 l efst í hnakka á þráð (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn).
Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir 56-64-72 l á prjóni JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 56-64-72 l sl ( frá miðju á baki að kanti að neðan), snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl frá neðri kanti þar til 2 l eru eftir á prjóni (þ.e.a.s. við miðju á baki), snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 54-62-70 l sl, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl frá neðri kanti þar til 4 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 52-60-68 l sl, snúið við.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl frá neðri kanti þar til 6 l eru eftir á prjóni, snúið við.
Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón einungis yfir 2 síðustu l neðst á bakstykki = 56-64-72 umf garðaprjón.
Prjónið nú 2 umf garðaprjón yfir allar 104-123-135 l (einnig l af þræði) áður en fellt er af.
Stykkið er nú prjónað að miðju á baki, þ.e.a.s. hálfa leið.

VINSTRI HLIÐ:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri hlið, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. að þegar l á framstykki eru settar á þráð, er það gert frá röngu (í stað frá réttu) og þegar l eru settar á þráð á baki er það gert í byrjun á hverri umf frá réttu (í stað frá röngu).

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann upp að prjónamerki við 50 cm, saumið síðan hliðarsauma, þ.e.a.s. haldið áfram með ermasaum þannig að hlið á framstykki er saumað við hlið á bakstykki upp að prjónamerki. Saumið saum á baki.

STROFF:
Prjónið upp l meðfram opi á jakka – þ.e.a.s. upp með hægra framstykki, aftan við hnakka, niður meðfram vinstra framstykki og síðan meðfram hrygglínu þannig: Prjónið upp frá réttu ca 340 til 380 l (meðtaldar l af þræði) á hringprjóna nr 2,5 og prjónið í hring þannig: Prjónið 1 umf br, prjónið nú 1 umf sl JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í 390-416-468 l. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið A.3 (= 11 l), 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm er aukið út í 3. hverri br einingu í 3 l br = 420-448-504 l. Endurtakið útaukningu þegar kanturinn mælist 7 cm, en færið til útaukninguna þannig að nú eru 2 br mynstureiningar með 3 l br á milli hverra 2 l br = 450-480-540 l. Þegar kanturinn mælist 8 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br – ATH: Til þess að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja eða 12. hverja l, uppslátturinn er felldur af eins og l.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = prjónið 2 l í sömu l
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Terttu Matilainen wrote:

Kun erotetaan selkäkappaleen silmukat ja niillä jatketaan, niin etupuolelle muodostuu "porras". Miten tämä kohta pitää neuloa?

22.02.2023 - 14:39

DROPS Design answered:

Hei, silmukat neulotaan ennen kuin ne siirretään apulangalle. Eli reunasta tulee tasainen.

22.02.2023 - 16:23

country flag Terttu Matilainen wrote:

DROPS 152-14 malli 062 neulomatta Miten pitsineuleohjeissa A1 ja A3 silmukkamäärän pitäisi pysyä samana vaikka keskellä on kaksi langan kiertoa ja vain 1 silmukka vähenee kolmesta = kun nosta 1 oikein neulomatta, neulotaan kaksi yhteen ja vedetään nostettu kavennuksen yli

29.12.2022 - 20:52

DROPS Design answered:

Silmukkaluku pysyy samana, koska työstä kavennetaan 2 silmukkaa: Nosta 1 silmukka oikein neulomatta, neulo 2 silmukkaa yhteen (työstä kapenee yksi silmukka) ja vedä nostettu silmukka kavennuksen yli (nyt työstä kapenee toinen silmukka).

02.01.2023 - 17:59

country flag Anniina wrote:

Hi, I don't think I am getting this right. When I measure my wrist, the correct number of loops should be closer to 40 than to 100. If I follow the instructions, there is no way my sleeve is going be correct size. Am I misunderstanding something? Thank you! PS. Apparently comments in Finnish don't go through, please check why.

08.08.2021 - 08:59

DROPS Design answered:

Dear Anniina, please take it into consideration, that you are using a relatively thin yarn with small needles AND a kind of ribbing that pulls in the knitted fabric. However, you should always make a gauge swatch, if in doubt, knit a swatch with the pattern too, wash it, and recalculate the stitch number of necessary. Happy Stitching!

08.08.2021 - 23:11

country flag Karine Grenet wrote:

Bonjour, je suis arrivée au moment ou je dois continuer avec l\\\'aiguille circulaire 2.5 et je suis un peu perdue car j\\\'ai toujours en attente les 110 mailles qui correspondent au devant droit. A quel moment je dois les reprendre?

05.09.2018 - 16:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Grenet, les 110 mailles en attente pour le haut du dos seront ensuite assemblées aux 110 m en attente de l'autre partie, vous ne tricotez plus ces mailles, vous continuez simplement sur les 94 m du bas de l'ouvrage que vous augmentez à 104 m et tricotez ensuite des rangs raccourcis (pour créer le petit gousset que l'on voit sur la 2ème photo). Bon tricot!

06.09.2018 - 08:23

country flag Claire Daoust wrote:

Si je ne désire pas faire la partie en rangs raccourcis, où dois-je arrêter ? Quels sont les modifications que je dois y apporter. Merci beaucoup

28.07.2017 - 18:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Daoust, les rangs raccourcis font partie intégrante du modèle et permettent de donner la forme souhaitée au dos, si vous ne les faites pas, vous aurez un résultat complètement différent. Bon tricot!

31.07.2017 - 09:19

country flag Claire Daoust wrote:

Le module A.7 ne devrait-il pas avoir le même nombre de lignes que A.6. Sinon, j'ai besoin d'explications.

25.07.2017 - 23:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Daoust, ces 2 diagrammes ne se répètent pas sur le même nombre de rangs, mais quand A.7 est terminé, reprenez au 1er rang et continuez A.6 comme avant. Bon tricot!

26.07.2017 - 09:01

country flag Marion Walter wrote:

Hallo, werden die 5 x 10 stillgelegten Maschen auf der entgegengesetzten Seite gestrickt? Sprich die Seite entgegengesetzt der 136 stillgelegten Maschen?

28.03.2017 - 11:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Walter, nach 19 cm sind die 136 M (= re. Vorderteil) nicht mehr gestrickt, sonder stillgelegt. Dann werden die verkürzten Reihen am Anfang jeder Rück-R gestrickt, dann alle Maschen für den Rücken gestrickt und noch verkürzte Reihen mit kleineren Nadeln gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

28.03.2017 - 11:45

country flag Rita Pedersen wrote:

Hejsa.. jeg har fundet fejlen... og det var en fejl 40... ups

25.01.2017 - 17:44

country flag Rita Pedersen wrote:

Hovsa.. jeg laver str S

23.01.2017 - 14:16

DROPS Design answered:

Hej Rita. Godt at du er kommet videre. God fornöjelse.

26.01.2017 - 11:51

country flag Rita Pedersen wrote:

Jeg har strikket de første 50 cm og kan simpelthen ikke få næste række til at passe med både mønster og masker.. hvad gør jeg forkert? jeg strikker A4 og A8 2 gange og A4 og A5 2,5 gang så har jeg ikke flere masker altså første række af diagram...

23.01.2017 - 13:34

DROPS Design answered:

Hej Rita. Hvilken str laver du? Saa kan jeg kigge lidt hurtigere med :) Tak

23.01.2017 - 14:05