Regina skrifaði:
Witam co to znaczy marker z każdej strony? z obu stron przodu?
21.01.2014 - 15:48DROPS Design svaraði:
Umieszczamy 2 markery, które "oddzielają" przód od tyłu tak, że jest po tyle samo oczek na przód i na tył. Powodzenia!
22.01.2014 - 22:59
Therese skrifaði:
Hei, Strikker denne i str 7/8, men får ikke lengden på bolen og ermene fra vrangbord til armhule til å stemme. I oppskriften står det at armhulen starter ved 27 cm på bolen og 43 cm på erme, mens målene på diagrammet sier 46 og 44. Leser jeg oppskriften feil eller en det noen trykkfeil her?
16.10.2013 - 15:14DROPS Design svaraði:
Hej Therese. Du lukker af for ermhull ved 27 cm paa bolen. Du strikker ermene til 43 cm og lukker af for ermhul. Herefter strikker du baerestykket. Paa diagrammet er den totale höjde af genseren 43 cm og den totale laengte paa ermet (maalt fra midt bag) 57 cm.
17.10.2013 - 13:52
Margo skrifaði:
Fout in beschrijving: MEERDER bij een hoogte van 7 cm 1 st aan elke kant van de markeerder aan elke zijkant; MINDER zo elke 7 cm in totaal 3 keer = 108-114-126-138-144 st.
12.10.2013 - 00:40DROPS Design svaraði:
Hoi Margo. Je hebt gelijk, we hebben het patroon aangepast. Bedankt voor het melden.
15.10.2013 - 14:44
Ida skrifaði:
Striker str 3/4 i denne genseren. Har strikket bolen og ett erme, men syns ermet virker altfor langt. Er det riktig at det skal måle 36 cm, når bolen opp til ermene skal festes kun er 23 cm?
19.09.2013 - 15:46DROPS Design svaraði:
Ja det stemmer, se også målene på måleskitsen og mål gerne efter en bluse som passer så du har valgt den rigtige størrelse.
02.10.2013 - 14:39
Fredrik |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS ♥ YOU #4 eða DROPS Nepal með laskalínu. Stærð 3- 12 ára
DROPS Extra 0-940 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um laskalínu): Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið á 3 lykkjum á undan merkiþræði) þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, (merkiþráður), 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast verður laskalínan of stutt og op fyrir handveg of lítið. Hægt er að stilla þetta af með því að prjóna 1 auka umferð án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtaka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 100-104-116-129-136 l á hringprjóna 5 með blár, prjónið stroff með 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist ca 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir 4-2-2-2-4 l í fyrstu umf = 96-102-114-126-132 l. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við merkiþráðinn í hvorri hlið með 7 cm millibili alls 3 sinnum = 108-114-126-138-144 l. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar stykkið mælist 26-29-32-35-38 cm eru felldar af 6-6-6-6-8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3-3-3-3-4 l hvoru megin við merkiþráðinn) = 48-51-57-63-64 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið laust upp 36-36-40-40-44 l á sokkaprjóna 5 með blár og prjónið stroff 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist ca 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 8-6-8-8-10 l jafnt yfir í umf = 28-30-32-32-34 l. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l fyrir miðju undir ermi, endurtakið með 7-6-7-6-6 cm millibili 3-4-4-5-6 sinnum til viðbótar = 36-40-42-44-48 l. Þegar ermin mælist 30-34-37-41-45 cm eru felldar af 6-6-6-6-8 l fyrir miðju undir ermi = 30-34-36-38-40 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 156-170-186-202-208 l. Setjið 1 merkiþráð í allar skiptingar á milli fram- og bakstykki og erma (= 4 merkiþræðir). Prjónið 3-1-1-1-1 umf áður en úrtaka byrjar. LESIÐ 2 NÆSTU KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM. LASKALÍNA: LESIÐ LEIÐBEININGAR PRJÓN! Fækkið um 1 l hvoru megin við hvern merkiþráð, fækkið lykkjum í hvorri hlið 2 l (merkiþráðurinn er staðsettur á milli þessa l (= 8 l í umf). Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum í annarri hverri umf um 1 lykkju alls 9-11-12-13-14 sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35-39-43-45-49 cm eru miðju 16-17-17-17-18 lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið nú áfram fram og til baka, jafnframt því sem lykkjum er fækkað í byrjun á hverri umferð við hálsmál í hvorri hlið þannig: 2 l 2-2-2-1-1 sinnum og 1 lykkja 0-0-0-3-3 sinnum. Eftir að úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli er lokið eru 60-57-65-71-68 lykkjur eftir á prjóni. HÁLSMÁL: Prjónið upp með sokkaprjónum 5 með blár ca 22 til 30 lykkjur við hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði) = ca 80 til 100 lykkjur. Prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir að 60-64-64-68-72 lykkjum. Prjónið stroff með 2 l sl, 2 l br í 3 cm og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-940
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.