Assunta skrifaði:
Bello il colore che valorizza il modello classico.
02.06.2013 - 20:54
Gea skrifaði:
Perfect.
02.06.2013 - 13:57
Nicole skrifaði:
Parfait pour donner un peu de pep à un printemps pourri...
02.06.2013 - 12:55Maritza skrifaði:
Me encanta este modelo, espero me que quede igual. Saludos
01.06.2013 - 21:37
Senn Marianne skrifaði:
Dieses Modell gefällt mir sehr gut und ich würde es sehr gerne für mich herstellen! Danke
01.06.2013 - 18:52
Sarah skrifaði:
Raffiniert
01.06.2013 - 00:16Josephine skrifaði:
I like the simple lines of this cardigan and would knit it in a plain colour.
31.05.2013 - 21:50
Eleonora skrifaði:
Modello semplice ben valorizzato dalla lana
31.05.2013 - 17:35Walkiria skrifaði:
Me encantó ver esas rayitas que lo dá la propia clase de lana, que se conjugó con el diseño de la prenda.
31.05.2013 - 15:49
Day skrifaði:
Très beau modèle
31.05.2013 - 09:41
Mosa#mosacardigan |
|
|
|
Hekluð peysa úr DROPS Fabel með laskalínu. Stærð S - XXXL
DROPS 151-37 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í öllum umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Í öllum umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR: UMFERÐ 1: Heklið 1 st með litnum bleikvínrauður í hverja fl. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl með litnum fjólublár í hvern st. Endurtakið umf 1 og 2. Til þess að sleppa við að klippa þráðinn á milli hverra umf er heklað þannig: Heklið 1. umf með st frá réttu með litnum bleikvínrauður, látið þráðinn liggja. Heklið 2. umf frá réttu með fl með litnum fjólublár, látið þráðinn liggja. Heklið 3. umf frá röngu með st með þræðinum frá 1. umf (bleikvínrauður). Heklið 4. umf frá röngu með fl með þræðinum frá 2. umf (fjólublár). ÚTAUKNING: Heklið 2 st/fl í einn st/fl. ÚRTAKA-1 (á við laskalínu): Heklið þar til 1 fl/st er eftir á undan prjónamerki, hoppið yfir 2 fl/st (prjónamerki er staðsett á milli þessa l) = 8 l færri í hverri umf. ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 st/fl þannig: Heklið 1 st/fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st/fl, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 st/fl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 236-255-278-301-334-367 ll með litnum fjólublár með heklunál nr 3,5. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja af 3-1-3-5-3-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 202-218-238-258-286-314 fl. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram með MYNSTUR til loka – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í 53-57-62-67-74-81 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 96-104-114-124-138-152 l). Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 st/fl hvoru megin við prjónamerkin (= 4 útaukningar) – LESIÐ ÚTAUKNING! – endurtakið útaukningu með 3-3½-3½-3½-4-4 cm millibili alls 6 sinnum til viðbótar (= alls 7 útaukningar) = 230-246-266-286-314-342 l. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm er næsta umf hekluð þannig – passið uppá að þetta er umf sem hekla á frá réttu með st: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 56-60-65-70-77-84 fl (hægra framstykki), hoppið yfir 8 fl, heklið 1 st í hvern af næstu 102-110-120-130-144-158 fl, hoppið yfir 8 fl, heklið 1 st í hvern af síðustu 56-60-65-70-77-84 fl = 214-230-250-270-298-326 st. Geymið stykkið. ERMI: Ermin er hekluð fram og til baka og saumuð saman í lokin. Heklið 59-61-66-68-70-73 ll með fjólublár og heklunál nr 3,5. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja af næstu 1-3-1-3-5-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 50-52-56-58-60-62 fl. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram með MYNSTUR til loka – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið í einni umf með st, endurtakið útaukningu í hverri umf með st 26-27-27-28-29-30 sinnum til viðbótar (= alls 27-28-28-29-30-31 sinnum = 104-108-112-116-120-124 l. Þegar stykkið mælist 47-47-46-46-45-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) heklið næstu umf þannig – passið uppá að þetta sé umf sem er hekluð með st: Heklið kl yfir fyrstu 4 fl, heklið 1 st í hverja fl þar til 4 fl eru eftir = 96-100-104-108-112-116 st, klippið frá. LASKALÍNA: Heklið nú stykkin saman þannig: Heklið 1 fl í hvern st frá vinstra framstykki, 1 fl í hvern st frá ermi, 1 fl í hvern st frá bakstykki, 1 fl í hvern st frá ermi, 1 fl í hvern st frá hægra framstykki = 406-430-458-486-522-558 fl. Heklið 2 umf til viðbótar með mynstri, nú byrjar úrtaka fyrir laskalínu. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Nú er lykkjum fækkað fyrir laskalínu í hverri umf, alls 39-41-43-45-47-49 sinnum – sjá ÚRTAKA-1! JAFNFRAMT þegar úrtaka fyrir laskalínu byrjar er ekki heklað yfir fyrstu og síðustu 5 st/fl í umf, nú byrjar JAFNFRAMT úrtaka fyrir hálsmáli. Heklið nú 2 fyrstu og 2 síðustu l í umf saman – LESIÐ ÚRTAKA-2, fækkið í 3. hverri umf 12-14-11-7-0-0 sinnum, í annarri hverri umf 0-0-6-13-23-20 sinnum og í hverri umf 0-0-0-0-2-10 sinnum (= 12-14-17-20-25-30 úrtökur alls). Eftir úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru 60-64-70-76-86-96 st/fl í umf. Heklið 1 umf með st þar sem fækkað er 2-4-8-12-20-27 st jafnt yfir - LESIÐ ÚRTAKA-2 = 58-60-62-64-66-69 st. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki, efsta talan er 1 cm innan við úrtöku þar sem hálsmál byrjar, neðsta talan er ca 8 cm frá neðri brún. Tölur eru hnepptar á milli 2 st á hægra framstykki. HÁLSMÁL: Heklið ca 164 til 200 fl með litnum bleikvínrauður í kringum allt hálsmálið. Heklið 3 umf með fl. Klippið frá og festið enda. Að lokum er hekluð ein umf í kringum allt opið á peysunni með litnum fjólublár þannig – byrjið neðst niðri á hægra framstykki, heklið upp í kringum hálsmálið og niður meðfram vinstra framstykki: * Heklið 1 fl, 1 ll, hoppið fram ca ½ cm *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl neðst niðri á vinstra framstykki. Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mosacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.