Marta Wilson wrote:
Hi im an accomplished knitter of 50 yrs, i cant get this pattern, do you use two strands of yarn throughout? And which two yarns if so? Black? Doesn’t tell you to change colors? Very confusing directions!
14.10.2019 - 16:43DROPS Design answered:
Dear Mrs Wilson, you are using 1 yarn each quality together from the beginning to the end, ie you will work with 1 strand Delight + 1 strand Kid-Silk held together. There are no colour changes, they are automatically coming when working DROPS Delight. Happy knitting!
15.10.2019 - 09:26Letty Hoeve wrote:
Op het patroon staat vermeld dat de garenkosten is vanaf 34.65 euro, maar klopt dit wel? Mijn berekening komt uit op ca. 53,00 euro.
20.10.2013 - 22:29DROPS Design answered:
U hebt gelijkt, het bedrag was niet correct. Per ongeluk werd ook voor de Kid-Silk in bollen van 50 gram gerekend. Het is aanbepast en het bedrag voor de kleinste maat is nu € 50,40.
21.10.2013 - 08:26Gerty Van Der Leer wrote:
Ik vroeg me af waarom je voor dit patroon een rondbreinaald moet gebruiken. Het is niet zo dat het heel erg veel steken zijn dat het niet op normale breinaalden kan. Dus vroeg ik me af waarom jullie voor rondbreinaalden gekozen hebben. Met vriendelijke groet, Gerty
21.09.2013 - 16:42DROPS Design answered:
Hoi Gerty. In Scandinavië wordt vooral met rondbreinaald gebreid en dit zijn van oorsprong Noorse patronen. Wordt er heen en weer gebreid, dan kan je vaak rechte naalden gebruiken.
24.09.2013 - 10:44Sabine wrote:
Ich habe eben dieses Modell beendet. Es ist wirklich ein Traum geworden und passt wie angegossen! Und es ist so kuschelig! Die Anleitung war sehr leicht verständlich. Tausend Dank an die kreativen Köpfe, die dieses Stück entworfen haben!
11.09.2013 - 12:29Reinhilde wrote:
Een topper !!
29.06.2013 - 23:09Barbro wrote:
Vill gärna sticka den här modellen.
19.06.2013 - 10:24Elisabeth wrote:
Kan godt lide modellen men vil lave den i anden farve ..je
13.06.2013 - 17:49Campana Esther wrote:
Sehr schick und doch sportlich,würde dieses Model sofort häkeln....;-)
02.06.2013 - 11:04Susan Barton wrote:
Love the fluidness of this and the asymmetric lines. Beautiful earthy shades too
02.06.2013 - 01:45
Meadow Brown |
|
|
|
Prjónuð peysa í garðaprjóni úr DROPS Delight og DROPS Kid-Silk með stuttum ermum. Stærð S - XXXL
DROPS 151-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið allar l (og uppsláttinn) slétt. STUTTAR UMFERÐIR-1: Prjónaðar eru stuttar umferðir til að ná fram bogalaga formi á stykkið. Stuttu umferðirnar eru prjónaðir þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 59-66-73-80-91-101 l, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka. UMFERÐ 3: Prjónið 55-62-69-76-87-97 l, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka. UMFERÐ 5: Prjónið 52-59-66-73-84-94 l, snúið við. UMFERÐ 6: Prjónið til baka. UMFERÐ 7: Prjónið 48-55-62-69-80-90 l, snúið við. UMFERÐ 8: Prjónið til baka. UMFERÐ 9: Prjónið 45-52-59-66-77-87 l, snúið við. UMFERÐ 10: Prjónið til baka. Haldið áfram með að prjóna til skiptis yfir 4 og 3 l færri í hvert skipti, þar til prjónað hefur verið 1 sinni fram og til baka yfir einungis síðustu 3 l. Prjónið nú 2 umf MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l. Nú hefur verið prjónað 36-40-44-48-54-60 umf í garðaprjóni + 2 umf mynstur yst í lykkjubogann og 2 umf mynstur innst í lykkjubogann. Endurtakið frá umf 1, 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 mynstureiningar með snúningum). Boginn mælist nú ca 60-67-73-80-90-100 cm yst og 3 cm innst. STUTTAR UMFERÐIR-2: Prjónið nú stuttar umferðir til að ná fram bogalaga formi á stykkið. Stuttu umferðirnar eru prjónaðir þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 66-72-84-90-100-102 l, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka. UMFERÐ 3: Prjónið 60-66-78-84-94-96 l, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka. UMFERÐ 5: Prjónið 54-60-72-78-88-90 l, snúið við. UMFERÐ 6: Prjónið til baka. Haldið áfram að prjóna yfir 6 l færri í hvert skipti, þar til prjónað hefur verið 1 sinni fram og til baka yfir einungis síðustu 6 l. Prjónið nú 2 umf MYNSTUR yfir allar l. Nú hefur verið prjónaðar 22-24-28-30-32-34 umf í garðaprjóni + 2 umf mynstur yst í lykkjubogann og 2 umf mynstur innst. Endurtakið frá umf 1, 1 sinni til viðbótar (= alls 2 mynstureiningar með stuttum umferðum). Boginn mælist nú ca 16-17-20-21-23-24 cm yst og 1 cm innst. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 66-72-78-86-96-106 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5,5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3-4-5-3-4-5 cm er prjónað til loka þannig: *Prjónið 2 umf MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og síðan 7-7-7-8-8-8 cm garðaprjón *, endurtakið frá *-*. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf í hvorri hlið fyrir stuttum ermum þannig: Fitjið upp 1 l alls 3 sinnum í hvorri hlið og síðan 3 l 1 sinni í hvorri hlið = 78-84-90-98-108-118 l. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm er fellt af miðju 16-18-18-20-22-24 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 30-32-35-38-42-46 l eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og fellið LAUST af. Endurtakið á sama hátt í hinni hliðinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. ÖLL MÆLING ER GERÐ Á STYSTU HLIÐINNI Á STYKKINU! Fitjið upp 62-70-78-86-94-102 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið) á hringprjóna nr 5,5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3-4-5-3-4-5 cm er prjónað þannig: * Prjónið 2 umf MYNSTUR og síðan 7-7-7-8-8-8 cm garðaprjón *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 28-29-30-31-32-33 cm (endið eftir 2 umf í mynstri). Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR-1 með byrjun frá réttu – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 5 mynstureiningar með stuttum umferðum, prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT – LESIÐ NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og 2 umf í mynstri eins og áður, en passið á að 2 umf með mynstri passi við bakstykki (þ.e.a.s. að fyrsta röndin í garðaprjóni á eftir snúningum kemur til með að mælast ca 10-10-10-11-11-11 cm). JAFNFRAMT í lok hverrar umf í hlið eftir síðasta snúning, fitjið upp nýjar l fyrir ermi eins og á bakstykki (þ.e.a.s. 1 l alls 3 sinnum og síðan 3 l 1 sinni) = 68-76-84-92-100-108 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm prjónið STUTTAR UMFERÐIR-2 með byrjun frá réttu. Í næstu umf frá röngu á eftir 2 mynstureiningum með stuttum umferðum, fellið LAUST af síðustu 30-32-35-38-42-46 l á prjóni fyrir öxl = 38-44-49-54-58-62 l eftir á prjóni. Prjónið út umf. Prjónið nú kraga þannig (1. umf = frá réttu): * Prjónið 12-14-16-18-19-20 l, snúið við og prjónið til baka, prjónið 24-28-32-36-38-40 l, snúið við og prjónið til baka, prjónið yfir allar 38-44-49-54-58-62 l, snúið við og prjónið til baka *. Endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 8-9-9-9-10-11 cm lengst við öxl (mælt þar sem er styst). Fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. stuttar umferðir-1 og 2 byrjið frá röngu og l á öxl eru felldar af frá réttu (í stað frá röngu). FRÁGANGUR: Saumið axlasauma – passið að saumurinn verði ekki of stífur. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju (saumið x á bakstykki við x á framstykki – sjá mynsturteikningu). Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Carina A wrote:
Drops delight räckte inte i stl XL , Delight 400gr, 50gr/nystan ,175m, 8 nystan blir 1400 m Kid silk 200gr, 25gr/nystan, 200m, 8 nystan blir 1600m Den var jätterolig att sticka och blev skitsnygg, ( beställde ett extra nysta när jag upptäckte att det inte skulle räcka) mvh Carina
06.02.2020 - 17:25