DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Fabel yarn
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6138.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 151-37

#mosacardigan

DROPS Design: Mynstur nr fa-248
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
300-300-350-400-400-450 gr litur nr 674, bleikvínrauður
150-200-200-200-250-250 gr litur nr 104, fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 18 umf með mynstri verði 10 cm.
DROPS PERLUTALA MEÐ GATI, NR 521: 4 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6138.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í öllum umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Í öllum umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
UMFERÐ 1: Heklið 1 st með litnum bleikvínrauður í hverja fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl með litnum fjólublár í hvern st.
Endurtakið umf 1 og 2.
Til þess að sleppa við að klippa þráðinn á milli hverra umf er heklað þannig: Heklið 1. umf með st frá réttu með litnum bleikvínrauður, látið þráðinn liggja. Heklið 2. umf frá réttu með fl með litnum fjólublár, látið þráðinn liggja. Heklið 3. umf frá röngu með st með þræðinum frá 1. umf (bleikvínrauður). Heklið 4. umf frá röngu með fl með þræðinum frá 2. umf (fjólublár).

ÚTAUKNING:
Heklið 2 st/fl í einn st/fl.

ÚRTAKA-1 (á við laskalínu):
Heklið þar til 1 fl/st er eftir á undan prjónamerki, hoppið yfir 2 fl/st (prjónamerki er staðsett á milli þessa l) = 8 l færri í hverri umf.

ÚRTAKA-2:
Fækkið um 1 st/fl þannig: Heklið 1 st/fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st/fl, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 st/fl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 236-255-278-301-334-367 ll með litnum fjólublár með heklunál nr 3,5. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja af 3-1-3-5-3-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 202-218-238-258-286-314 fl. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram með MYNSTUR til loka – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í 53-57-62-67-74-81 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 96-104-114-124-138-152 l). Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 st/fl hvoru megin við prjónamerkin (= 4 útaukningar) – LESIÐ ÚTAUKNING! – endurtakið útaukningu með 3-3½-3½-3½-4-4 cm millibili alls 6 sinnum til viðbótar (= alls 7 útaukningar) = 230-246-266-286-314-342 l. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm er næsta umf hekluð þannig – passið uppá að þetta er umf sem hekla á frá réttu með st:
Heklið 1 st í hvern af fyrstu 56-60-65-70-77-84 fl (hægra framstykki), hoppið yfir 8 fl, heklið 1 st í hvern af næstu 102-110-120-130-144-158 fl, hoppið yfir 8 fl, heklið 1 st í hvern af síðustu 56-60-65-70-77-84 fl = 214-230-250-270-298-326 st. Geymið stykkið.

ERMI:
Ermin er hekluð fram og til baka og saumuð saman í lokin.
Heklið 59-61-66-68-70-73 ll með fjólublár og heklunál nr 3,5. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja af næstu 1-3-1-3-5-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 50-52-56-58-60-62 fl. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram með MYNSTUR til loka – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið í einni umf með st, endurtakið útaukningu í hverri umf með st 26-27-27-28-29-30 sinnum til viðbótar (= alls 27-28-28-29-30-31 sinnum = 104-108-112-116-120-124 l. Þegar stykkið mælist 47-47-46-46-45-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) heklið næstu umf þannig – passið uppá að þetta sé umf sem er hekluð með st: Heklið kl yfir fyrstu 4 fl, heklið 1 st í hverja fl þar til 4 fl eru eftir = 96-100-104-108-112-116 st, klippið frá.

LASKALÍNA:
Heklið nú stykkin saman þannig: Heklið 1 fl í hvern st frá vinstra framstykki, 1 fl í hvern st frá ermi, 1 fl í hvern st frá bakstykki, 1 fl í hvern st frá ermi, 1 fl í hvern st frá hægra framstykki = 406-430-458-486-522-558 fl. Heklið 2 umf til viðbótar með mynstri, nú byrjar úrtaka fyrir laskalínu. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Nú er lykkjum fækkað fyrir laskalínu í hverri umf, alls 39-41-43-45-47-49 sinnum – sjá ÚRTAKA-1! JAFNFRAMT þegar úrtaka fyrir laskalínu byrjar er ekki heklað yfir fyrstu og síðustu 5 st/fl í umf, nú byrjar JAFNFRAMT úrtaka fyrir hálsmáli. Heklið nú 2 fyrstu og 2 síðustu l í umf saman – LESIÐ ÚRTAKA-2, fækkið í 3. hverri umf 12-14-11-7-0-0 sinnum, í annarri hverri umf 0-0-6-13-23-20 sinnum og í hverri umf 0-0-0-0-2-10 sinnum (= 12-14-17-20-25-30 úrtökur alls). Eftir úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru 60-64-70-76-86-96 st/fl í umf. Heklið 1 umf með st þar sem fækkað er 2-4-8-12-20-27 st jafnt yfir - LESIÐ ÚRTAKA-2 = 58-60-62-64-66-69 st.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki, efsta talan er 1 cm innan við úrtöku þar sem hálsmál byrjar, neðsta talan er ca 8 cm frá neðri brún. Tölur eru hnepptar á milli 2 st á hægra framstykki.

HÁLSMÁL:
Heklið ca 164 til 200 fl með litnum bleikvínrauður í kringum allt hálsmálið. Heklið 3 umf með fl. Klippið frá og festið enda. Að lokum er hekluð ein umf í kringum allt opið á peysunni með litnum fjólublár þannig – byrjið neðst niðri á hægra framstykki, heklið upp í kringum hálsmálið og niður meðfram vinstra framstykki: * Heklið 1 fl, 1 ll, hoppið fram ca ½ cm *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl neðst niðri á vinstra framstykki. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 151-37
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mosacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (97)

country flag Tilly skrifaði:

Om te voorkomen dat na iedere toer de draad afgeknipt moet worden beschrijven jullie: haak 1e toer stk aan de goede kant, laat draad hangen. kaak 2e toer aan goede kant, laat draad hangen haak 3e toer aan verkeerde kant met garen van de 1e toer. Maar aan het eind van de toer blijft dus ook de lus over, dus na 2 toeren, 2 lussen. Hoe voorkom ik dit of is dat juist de bedoeling? Is niet handig om 2 lussen te hebben.

29.09.2015 - 11:29

country flag Pia Johnsson skrifaði:

Men jag trycker på Skriv ut mönster och får ny bild med garner och liten text uppe i högra hörnet Skriv ut mönster klickar och kommer åter till sidan med de två utskriftsvalen?Trycker jag på Bildutskrift så kommer ett bildfoto och fotot skrivs ut! Varför fungerar de då inte med mönstret tro, för allt annat kan jag skriva ut så tror inte de kan vara min dators inställning. Vill ju så gärna ha mönstret utskrivet :(

20.06.2015 - 06:14

DROPS Design svaraði:

Hej Pia. Prövede du at printe fra iPad/iPhone? Der var lidt problemer der, men det skulle vaere löst nu.

23.06.2015 - 12:33

country flag Pia skrifaði:

Men jag väljer Skriv ut mönster å så kommer en ny bild med garner och texten Skriv ut mönster uppe på högra sidan, trycker där å kommer åter till mönstersidan med de två fälten för utskrift? Väljer jag Skriv ut bild, som ligger intill Skriv ut mönster, då kommer bildfotot upp och så skrivs den bilden ut! Tycker det är väldigt konstigt att det inte går få ut mönstret när bild går skriva ut ??? Vill ju så gärna ha mönsterutskrift oxå :(

20.06.2015 - 06:02

country flag Pia Johnsson skrifaði:

Går inte skriva ut mönster.?? Bild går bra att skriva ut,MEN inte mönstret????

18.06.2015 - 09:17

DROPS Design svaraði:

Hej. Jag kan skriva ut mönstret utan problem genom att trycka på knappen "Skriv ut: mönster", kan det vara någon inställning i din dator?

18.06.2015 - 11:00

country flag Eva Louise Nilsson skrifaði:

Nu er jeg alligevel forvirret, for der er ingen farve, der hedder orange?? De hedder enten rust eller sennepsgul.

15.05.2015 - 17:07

DROPS Design svaraði:

Hej Eva Louise, 110 rust, men husk at printfarverne kan variere, så spørg i butikken om farverne passer sammen hvis du er nødt til at bestille på nettet! Held og lykke!

18.05.2015 - 09:51

country flag Eva Louise Nilsson skrifaði:

Tak, for hjælpen. Jeg skal ud at køre ret langt for at finde en butik, så jeg foretrækker at handle over nettet, men lige til denne opskrift er farverne jo vigtige :-)

15.05.2015 - 17:01

country flag Eva Louise Nilsson skrifaði:

Jeg vil gerne hækle denne i farve 162, men hvilke Uni Colour farver passer til?

14.05.2015 - 17:54

DROPS Design svaraði:

Hej Eva Louise, du kan brug både den turkise, beige, brune og orange, så det er en smags sag. Det letteste vil være hvis du kan besøge en af vore DROPS butikker. God fornøjelse!

15.05.2015 - 09:42

country flag Linda Van Verdegem skrifaði:

Ik heb de minderingen gedaan bij de raglan tot 45 toeren. Dan moet er één keer een mindering gebeuren van 13 steken aan de hals kant. Ik begrijp dan dat het af is en ik met de afwerking kan beginnen maar volgens de foto is dat niet zo. Mijn hals en voorpanden zijn nog veel te groot. Kan iemand me zeggen wat ik hier fout doe? Op de foto is het voorpand tot 1 gekomen denk ik.

18.04.2015 - 10:05

DROPS Design svaraði:

Hoi Linda. Ten eerste zou ik kijken of je haakstekenverhouding klopt. De verhouding is zeer belangrijk bij het maken van raglan omdat het dan snel verkeerd gaat de hoogte/breedte van de pas. Maar ik weet niet welke maat je maakt, en ik vind het een beetje moeilijk te duiden wat je vraag/probleem is. Wat bedoel je bijvoorbeeld met op de foto is het voorpand tot 1 gekomen?

22.04.2015 - 15:16

country flag Janet Symons skrifaði:

Cannot get correct tension,using 2.5 crochet hook. Following your guide,I get 12.5 cm x12.5,Also work too dence using a smaller hook!Using FABEL print. Any suggestions would be appreciated.

17.03.2015 - 20:09

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Symons, you can maybe try another way to hold your crochet hook, that could help you to get the correct tension - remember your DROPS store may also provide you tips & advices. Happy crocheting!

18.03.2015 - 09:43

country flag Linda Van Verdegem skrifaði:

Ik ben begonnen aan de mouwen en kom er helemaal niet uit. Na 7 cm boord wat moet ik dan juist doen? Ik had nu één toer aan beide kant 1 vaste meerderen volgende toer gewoon en dan weer één toer meerderen maar dan heb ik zeker niet het aantal cm tegen het einde van het meerderen. Pffff en hoe maak ik dan de kop van de mouw? Het is de eerste keer dat ik iets haak en ik vind dit echt wel heel moeilijk uitgelegd..... Wie kan me verder helpen

13.03.2015 - 09:19

DROPS Design svaraði:

Hoi Linda. Je haakt volgens het PATROON, tegelijkertijd meerder je vanaf 7 cm 1 stk aan ieder kant van een toer met stk (TOER 1 volgens het PATROON). Je herhaalt dit in elke toer met stk (elke tweede toer) in totaal 27, 28, 29, 30 of 31 keer. Daarna haak je door tot het aangegeven cm's voor jouw maat volgens het PATROON (het is niet zo dat je na de meerderingen op die cm bent). Het is een raglanpatroon - dus geen "echte" mouwkoppen. Haak zoals er staat in het patroon. Je haakt daarna de RAGLAN zoals beschreven.

13.03.2015 - 15:37