Lolapinso skrifaði:
On l'adore !!!
13.06.2013 - 11:59
Hanna skrifaði:
Die Musteraufteilung sieht richtig gekonnt aus. Ich werde diese Jacke stricken - allerdings etwas länger und tailliert
11.06.2013 - 16:31
DURAND skrifaði:
Beau modèle à réaliser
08.06.2013 - 10:46
Anna skrifaði:
Ovanlig krage och väldigt vackert och arbetat okparti. Helt klart en kofta som jag tycker sticker ut samtidigt som den är otrolgt användbar!
05.06.2013 - 20:38
Danuta skrifaði:
śliczny. Bardzo mi się podoba
02.06.2013 - 20:03
Yvette skrifaði:
L'empiètement en rond donne du chic à ce modèle ainsi que les points dentelle. J'ai hâte de le tricoter.
02.06.2013 - 08:01
Ragnhild Sefa skrifaði:
Elegant og vakker cardigan med feminint mønster.Passer like godt til bukser som til kjole/skjørt
01.06.2013 - 09:43
Merle Danièle skrifaði:
Magnifique! Très envie de le réaliser
31.05.2013 - 21:28
Odile skrifaði:
Elégant et raffiné, j'ai très envie de le tricoter!
30.05.2013 - 21:51
Françoise skrifaði:
Très joli, très classe
30.05.2013 - 18:40
Lady Feather Jacket#ladyfeatherjacket |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og berustykki. Stærð S-XXXL.
DROPS 149-30 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum i hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti saman slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 56 og 61 cm. STÆRÐ M: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 57 og 63 cm. STÆRÐ L: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 58 og 65 cm. STÆRÐ XL: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 59 og 67 cm. STÆRÐ XXL: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 59, 64 og 69 cm. STÆRÐ XXXL: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 59, 65 og 71 cm. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermum. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Byrjið 3 l á undan prjónamerki og fækkið lykkjum þannig. Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 235-255-285-319-349-389 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) yfir 2 stk hringprjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Dragið frá annan hringprjóninn og prjónið síðan 4 umf GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan (þetta er gert til þess að koma í veg fyrir að kanturinn dragi sig saman þegar mynstrið er prjónað). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 12-12-12-14-14-14 l), 1 l sléttprjón, prjónið A.2 þar til 17-17-17-19-19-19 l eru eftir á prjón, endið á A.1 (= 12-12-12-14-14-14 l) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 195-211-235-263-287-319 l eftir á prjóni. Prjónið nú sléttprjón en þær 17-17-17-19-19-19 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður (þ.e.a.s. 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni + A.1). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er sett 1 prjónamerki 51-55-61-68-74-83 l inn frá hvorri hlið = 93-101-113-127-139-153 l á milli prjónamerkja á bakstykki. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6-6-6-6-7-7 cm millibili, 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 útaukningar í hvorri hlið) = 215-231-255-283-307-339 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm er næsta umf prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, A.1 eins og áður, 33-37-43-47-53-62 l br (= vinstra framstykki), fellið af 12-12-12-14-14-14 l fyrir handveg (þ.e.a.s. 6-6-6-7-7-7 l hvoru megin við prjónamerki), prjónið 91-99-111-123-135-146 l br (= bakstykki), fellið af 12-12-12-14-14-14 l fyrir handveg, prjónið 33-37-43-47-53-62 l br, A.1 eins og áður og 5 kantlykkjur að framan (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stutta hringprjóna eftir þörf. Fitjið upp 70-70-70-80-80-80 l yfir 2 st hringprjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Dragið út annan hringprjóninn, skiptið l á sokkaprjóna nr 3 og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 56-56-56-64-64-64 l eftir á prjóni. Prjónið nú sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10-10-8-8-10-8 cm setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Aukið nú út um 2 l fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við prjónamerki). Endurtakið útaukningu í 6.-5.-5.-5.-4.-4. hverri umf 17-19-21-20-22-25 sinnum til viðbótar (= alls 18-20-22-21-23-26 útaukningar) = 92-96-100-106-110-116 l. Þegar stykkið mælist 44-44-43-43-42-42 cm fellið af 12-12-12-14-14-14 l fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. 6-6-6-7-7-7 l hvoru megin við prjónamerki = 80-84-88-92-96-102 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna inn l) = 351-375-407-439-471-515 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Prjónið sléttprjón, en 17-17-17-19-19-19 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður JAFNFRAMT í fyrstu umf (= rétta) er lykkjum fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 2-2-3-3-3-3 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-4-4-4-4 úrtökur = 327-351-375-407-439-483 l Í næstu umf er fækkað um 18-10-2-30-30-10 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir síðustu 17-17-17-19-19-19 l í hvorri hlið) = 309-341-373-377-409-473 l eftir á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 eins og áður (= 12-12-12-14-14-14 l), * prjónið A.3 (= 19 l), 13 l sléttprjón *, endurtakið frá *-* alls 8-9-10-10-11-13 sinnum, prjónið A.3 (= 19 l), A.1 (= 12-12-12-14-14-14 l) og endið á 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Nú hefur verið prjónað ca 1 cm með mynstur – stillið af að næsta umf er umf slétt frá réttu í A.1, fækkið um 1 l í A.1 þannig að A.1 verði minna. Fækkið um 1 l í A.1 með því að prjóna 2 síðustu l í A.1 á hægra framstykki (séð frá réttu), slétt saman, þær 2 fyrstu l í A.1 á vinstra framstykki (séð frá réttu) eru prjónaðar þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku í 8. hverri umf, 6-6-6-5-5-5 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf alls 3-3-3-6-6-6 sinnum (= alls 10-10-10-12-12-12 úrtökur í hvorri hlið við miðju að framan). JAFNFRAMT þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1 (með úrtöku) eins og áður, * prjónið A.5 (= 19 l), A.4 (= 13 l) *, endurtakið frá *-* alls 8-9-10-10-11-13 sinnum, prjónið A.5 (= 19 l), A.1 (með úrtöku) eins og áður og endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður. Þegar A.5/A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, A.1, * A.5 (= 19 l), A.6 (= 12 l) *, endurtakið frá *-* alls 8-9-10-10-11-13 sinnum, A.5, A.1 og 5 kantlykkjur að framan. Þegar A.5 hefur verið prjónað alls 2-2-2-2-3-3 sinnum á hæðina (2-2-2-2-3-3 öll mynstureiningin af A.6 + 4-4-4-4-6-6 umf til viðbótar af A.6 á hæðina), prjónið A.7 í stað fyrir A.5 og A.8 í stað A.6 (byrjið A.8 við ör neðst niðri í mynstri fyrir rétta stærð – ATH: Aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.7/A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (endið eftir umf með ör efst uppi í mynstri fyrir rétta stærð) og úrtöku í A.1 er lokið þá eru 145-160-175-175-190-220 l eftir á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt (berustykkið mælist nú ca 22-23-24-25-26-27 cm frá handveg, öll peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm neðan frá og upp og þá eru eftir 2 hnappagöt í hægri kanti). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1 (= 2 l), * 1 l sl, 2 l br saman, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, 2 l br saman, 1 l sl, A.10 (= 4 l – byrjið við ör í mynstri fyrir rétta stærð= *, endurtakið frá *-* alls 8-9-10-10-11-13 sinnum, 1 l sl, 2 l br saman, 1 l sl, takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, 2 l br saman, 1 l sl, A.1 (= 2 l) og 5 kantlykkjur að framan eins og áður = 109-120-131-131-142-164 l. Prjónið til baka frá röngu með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið nú háan kraga þannig (1. umf = rétta – munið eftir 2 síðustu hnappagötunum í kanti að framan): Prjónið 5 kantlykkjur að framan, A.1 (= 2 l), * A.9 (= 7 l), A.10 (= 4 l) *, endurtakið frá *-* alls 8-9-10-10-11-13 sinnum, prjónið A.9 (= 7 l), A.1 (= 2 l) og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist ca 6 cm frá prjónamerki (nú á að vera búið að prjóna ca 1 cm eftir síðasta hnappagat). Fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ladyfeatherjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.