Svetlana skrifaði:
Klasse! Einfach und elegant.
09.06.2013 - 13:18
Małgosia skrifaði:
Ciekawy :)
07.06.2013 - 16:17
Maria Antonietta Curcio skrifaði:
Molto elegante
06.06.2013 - 14:18
Benedetta skrifaði:
Carinissimo!
06.06.2013 - 09:44Jenny F skrifaði:
This looks quick and easy. Would recommend a closure be added to keep the edges together.
01.06.2013 - 00:23
Anna skrifaði:
Un capo all'uncinetto davvero originale
31.05.2013 - 16:58
Jacqueline Hagnere skrifaði:
Très original fait habillé
30.05.2013 - 20:17
Otus#otuscardigan |
||||||||||
|
||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Nepal með sólfjaðramynsturkanti að framan. Stærð S - XXXL
DROPS 151-26 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl er byrjað á 1 ll, síðan er 1 fl hekluð í fyrstu l áður en haldið er áfram með 1 fl í hverja l (ll er EKKI talin með sem 1 l). Hver umf endar á 1 fl í 4. ll frá byrjun fyrri umf. Í byrjun á hverri umf með tbst er byrjað á 4 ll í 1. ll, síðan er 1 tbst heklaður í hverja l (þær 4 ll JAFNGILDA 1. tbst). Hver umf endar á 1 tbst í fyrstu fl frá byrjun fyrri umf. RENDUR MEÐ ÁFERÐ: * Heklið 1 umf tbst, 1 umf fl *, endurtakið frá *-* til loka – ATH: Heklað er í hverja fl/tbst frá fyrri umf (ekki á milli). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (á við um ermi) og A.2 (á við um kant að framan). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. PEYSA: Heklið 139-151-163-179-196-213 ll með heklunál nr 5 með Nepal. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, * 1 fl í hverja af næstu 3 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 1-1-1-1-2-3 ll og endið á 1 fl í hverja af síðustu ll = 104-113-122-134-147-160 fl, snúið við. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið síðan RENDUR MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 45-46-47-48-49-50 cm skiptist stykkið upp við handveg og hvor hluti er heklaður fyrir sig þannig: FRAMSTYKKI: Haldið áfram rendur með áferð fram og til baka yfir síðustu 22-24-26-29-32-35 l í annarri hlið á stykki (framstykki). Þegar stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm – endið eftir 1 umf með fl, klippið frá. Endurtakið yfir síðustu 22-24-26-29-32-35 l í annarri hlið á stykki. BAKSTYKKI: Haldið áfram með rendur með áferð fram og til baka yfir 60-65-70-76-83-90 l á bakstykki þar til stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm – stillið af að síðasta umf sé umf með fl. Heklið nú rendur með áferð (þ.e.a.s 1 umf tbst + 1 umf fl) fram og til baka yfir síðustu 22-24-26-29-32-35 l á öxl. Klippið frá og endurtakið yfir 22-24-26-29-32-35 síðustu l í hinni hliðinni (þ.e.a.s. heklið ekki yfir miðju 16-17-18-18-19-20 l = hálsmál aftan við hnakka). Klippið frá og festið enda. ERMI: Heklið 35-37-37-40-40-43 ll með heklunál nr 5 með Nepal. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, * 1 fl í hverja af næstu 3 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til 1-3-3-2-2-1 ll er eftir og endið á 1 fl í hverja af síðustu ll = 26-28-28-30-30-32 fl, snúið við. Heklið nú rendur með áferð fram og til baka. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! JAFNFRAMT í umf 4 (þ.e.a.s. í 3. umf með tbst), setjið 1 prjónamerki í mitt stykkið. Heklið tbst eins og áður þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 yfir 4 næstu l, þ.e.a.s. að heklað er þannig: Hoppið yfir 1 l, 1 tbst í næstu l, 2 ll , 1 tbst í næstu l, hoppið yfir 1 l og haldið áfram út umf með tbst eins og áður. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.1 (ör fyrir miðju á A.1 merkir prjónamerki). JAFNFRAMT í 4.-4.-4.-4.-3.-3. umf með tbst (stykkið mælist nú ca 9-9-9-9-6-6 cm), aukið út um 1 tbst í hvorri hlið með því að hekla 2 tbst í næst síðasta tbst í hvorri hlið) og síðan í hverja umf með tbst alls 0-3-5-5-7-8 sinnum = 40-44-46-48-50-52 l. Þegar stykkið mælist 49-48-47-45-43-41 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), klippið frá. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið í ermar við handveg með smáu spori – passið að saumurinn verði ekki of stífur. KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst niðri á hægra framstykki og heklið eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu l, 5 ll (jafngildir 1 tbst + 1 ll), um fyrsta tbst eru heklaðir 2 tbst + 2 ll + 2 tbst + 2 ll, * hoppið yfir 1 tbst, í næsta tbst eru heklaðir 2 tbst + 2 ll + 2 tbst + 2 ll *, endurtakið frá *-* meðfram hægra framstykki, meðfram hálsmáli aftan við hnakka og niður meðfram vinstra framstykki. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 5 ll (jafngilda 1 tbst + 1 ll), heklið nú um hvern ll-boga mitt í hvern tbst-hóp þannig: Heklið 2 tbst + 2 ll + 2 tbst, 2 ll. Endurtakið umf 2 þar til heklað hefur verið alls 4-4-5-5-5-5 umf. Síðasta umf er hekluð þannig: Heklið 5 ll (jafngilda 1 tbst + 1 ll), heklið nú um hvern ll-boga mitt í hvern tbst-hóp þannig: Heklið 3 tbst + 2 ll + 3 tbst + 2 ll. Þegar umf er lokið er klippt frá. Festið alla enda. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #otuscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 4 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.