Antje skrifaði:
Schöne Wolle! Eine Jacke, so richtig schön zum einwickeln ;-)
10.06.2013 - 14:01
Kristine skrifaði:
Super!!
07.06.2013 - 23:30
Benedetta skrifaði:
Troppo bello, aspetto le spiegazioni
06.06.2013 - 09:46
Renate skrifaði:
Vakker!!! Denne MÅ jeg ha
04.06.2013 - 02:20
Brigitte skrifaði:
Unbedingt aufnehmen, sehr schön
03.06.2013 - 21:15
Sarah skrifaði:
Die will ich, kuschelig praktisch, genau mein Ding
01.06.2013 - 00:07
José skrifaði:
Mooi comfortabel vest!
31.05.2013 - 22:39
Patricia skrifaði:
La veste qu il faut faire pour l automne. Une merveille qui semble d une douceur incroyable
31.05.2013 - 20:12
Ervena skrifaði:
To prosty fason , ale jasny kolor i rodzaj włóczki powodują, że kardigan jest na wszelkie okazje, i do wszystkiego a przy tym ciepły
31.05.2013 - 14:31
Benedetta skrifaði:
Bellissimo, morbidoso.
31.05.2013 - 14:17
Frost Flower#frostflowercardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Vienna eða DROPS Fabel og DROPS Melody með sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 150-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti saman slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 34, 40 og 46 cm STÆRÐ M: 34, 40 og 46 cm STÆRÐ L: 36, 42 og 48 cm STÆRÐ XL: 36, 42 og 48 cm STÆRÐ XXL: 38, 44 og 50 cm STÆRÐ XXXL: 38, 44 og 50 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 54-58-62-68-76-80 l með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 8. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 9 og prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið, endurtakið úrtöku með 10-10-10,5-10,5-9,5-9,5 cm millibili 4-4-4-4-5-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-5-5-5-6-6 sinnum) = 44-48-52-58-64-68 l. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-68 cm eru fitjaðar upp 3-2-2-1-1-1 nýjar l í lok á næstu 2 umf = 50-52-56-60-66-70 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 74-77-80-83-86-88 cm, fellið nú af miðju 8-8-10-10-12-12 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú um 1 l í næstu umf frá hálsmáli 1 sinni = 20-21-22-24-26-28 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 76-79-82-85-88-90 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 32-34-37-40-45-47 l (meðtaldar eru 4 kantlykkjur að framan) með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 8. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 9 og prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í vinstri hlið séð frá réttu (= kantur að framan). ATH! Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l í hægri hlið séð frá réttu, endurtakið úrtöku með 10-10-10,5-10,5-9,5-9,5 cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-5-5-5-6-6 sinnum) = 27-29-32-35-39-41 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-60 cm er prjónuð inn 1 l fleiri í garðaprjóni (= vinstri hlið) með 4-4-3-3-2,5-2,5 cm millibili alls 6-6-8-8-10-10 sinnum. ATH: Ekki er aukið út um l, nú er einungis sléttar l sem eru prjónaðar inn í garðaprjón = 10-10-12-12-14-14 l garðaprjón til loka JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-68 cm eru fitjaðar upp 3-2-2-1-1-1 nýjar l í hlið í lok næstu umf frá röngu = 30-31-34-36-40-42 l. Þegar stykkið mælist 76-79-82-85-88-90 cm eru felldar af 20-21-22-24-26-28 axlar-l frá réttu og prjónað út umf. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir þær 10-10-12-12-14-14 l sem eftir eru þannig: * Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 7-7-9-9-11-11 l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 6-6-8-8-9-9 cm frá stysta hlutanum frá öxl. Setjið l á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 24-24-26-26-26-28 l með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 8. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir í hringprjóna nr 9 og prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 10-8-8-6-5-5 cm millibili 4-5-5-6-7-7 sinnum til viðbótar (= alls 5-6-6-7-8-8 sinnum) = 34-36-38-40-42-44 l. Fellið af þegar stykkið mælist 49-49-48-47-45-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið saman kraga við miðju að aftan með ósýnilegu spori. Saumið kraga við hálsmál aftan í hnakka – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið ermar í, saumið erma- og hliðarsauma yst í lykkjubogann. Saumið tölur í. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostflowercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.