Haze Jacket#hazejacket |
||||
|
||||
Prjónuð peysa úr DROPS Big Delight í garðaprjóni, prjónuð frá hlið. Stærð S - XXXL.
DROPS 150-22 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægra stykki að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellt er af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 18, 28, 38 og 48 cm STÆRÐ M: 20, 30, 40 og 50 cm STÆRÐ L: 22, 32, 42 og 52 cm STÆRÐ XL: 23, 33, 43 og 53 cm STÆRÐ XXL: 25, 35, 45 og 55 cm STÆRÐ XXXL: 27, 37, 47 og 57 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Örvar í mynsturteikningu sýna prjónstefnu. Öll peysan er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA – ef prjónfestan er ekki sú saman kemur það til með að hafa áhrif á útkomu á lögun á peysunni! HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. Fitjið upp 3-3-4-4-4-4 l á hringprjóna nr 7 með Big Delight. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan ( 1. umf = rétta). JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í byrjun á hverri umf með því að prjóna 2 l í fyrstu l í öllum umf þar til 47-51-56-62-66-72 l á prjóni. Fitjið upp 8 nýjar l fyrir kant að framan í lok næstu umf frá röngu = 55-59-64-70-74-80 l. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Fækkið nú um 1 l innan við 8 kantlykkjur við miðju að framan (= frá réttu) með því að prjóna 2 l slétt saman. JAFNFRAMT er haldið áfram með útaukningu í hlið eins og áður með því að prjóna 2 l í fyrstu l í hverri umf frá röngu (lykkjufjöldinn kemur þar með að haldast stöðugur) þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm – mælt efst uppi meðfram hlið á stykki (ekki í prjónstefnu) – sjá mynsturteikningu. ÚTAUKNING VIÐ ÖXL: Setjið 1 prjónamerki í hlið. Fitjið nú upp nýjar l í lok hverrar umf frá réttu (þ.e.a.s. á hlið) fyrir öxl þannig: Fitjið upp 6 nýjar l í hlið alls 4 sinnum (= 24 l fleiri). Setjið 1 nýtt prjónamerki í hlið. ATH: munið eftir að úrtakan við miðju að framan heldur áfram eins og áður alla leið til loka = 75-79-84-90-94-100 l á prjóni. Eftir síðustu útaukningu fyrir öxl heldur útaukning áfram í hliðum eins og áður (þ.e.a.s. prjónið 2 l í fyrstu l og síðustu l í öllum umf frá réttu). Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá síðasta prjónamerki (mælt efst uppi meðfram hlið) fellið af fyrir öxl þannig: Prjónið 2 síðustu l í lok hverrar umf frá réttu slétt saman þar til 27-29-30-32-34-36 l eru eftir á prjóni (þ.e.a.s. fækkað er nú bæði í byrjun (innan við kant að framan) og í lok hverrar umf frá réttu). Fellið af fyrstu 14-16-17-19-21-23 l í umf frá réttu = 13 l eftir á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni og úrtöku yfir þessar l þar til 1 l er eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd. Öll úrtaka / útaukning sem útskýrðar voru út í byrjun umf eru nú gerðar í lok umf og öfugt. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. Fitjið upp 3-3-4-4-4-4 l á hringprjóna nr 7 með Big Delight. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan ( 1. umf = rétta). JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í byrjun á hverri umf með því að prjóna 2 l í fyrstu l í öllum umf þar til 47-51-56-62-66-72 l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið annan hluta alveg eins. Setjið bæði stykkin saman á hringprjóna nr 7 = 94-102-112-124-132-144 l. Setjið prjónamerki á milli þessa stykkja. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l, prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið þar til 1 l er eftir, prjónið 2 l í síðustu l. Haldið áfram með útaukningu og úrtöku í hverri umf frá réttu (lykkjufjöldinn kemur þar með að haldast stöðugur) þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm – mælt efst uppi meðfram hlið á stykki (ekki í prjónstefnu) – sjá mynsturteikningu. Setjið 1 prjónamerki í hlið. Fitjið nú upp nýjar l í lok hverrar umf (þ.e.a.s. í hliðum) fyrir öxl þannig: Fitjið upp 6 nýjar l í hlið alls 4 sinnum (= 24 l útauknar l í hvorri hlið). Setjið 1 nýtt prjónamerki í hlið. ATH: Munið eftir að úrtaka við miðju að aftan heldur áfram eins og áður alla leið til loka = 134-142-152-164-172-184 l á prjóni. Eftir síðustu útaukningu fyrir öxl heldur útaukning áfram í hliðum eins og áður (þ.e.a.s. prjónið 2 l í fyrstu l og síðustu l í öllum umf frá réttu). Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá síðasta prjónamerki (mælt efst uppi meðfram hlið) fellið af fyrir öxl þannig: Prjónið 2 fyrstu l í umf saman og 2 síðustu l í umf saman í öllum um frá réttu þar til eftir eru 38-42-44-48-52-56 l á prjóni (þ.e.a.s. fækkað er l bæði fyrir miðju og í hvorri hlið). Setjið fyrstu 13 l á þráð (prjónið þær fyrst), fellið af næstu 12-16-18-22-26-30 l = 13 l eftir á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni yfir þessar l, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun hverrar umf. Haldið áfram þar til 1 l er eftir, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l. Setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið alveg eins yfir þessar 13 l. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 l á hringprjóna nr 7 með Big Delight. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 6-4½-4-4-3-3 cm millibili 4-5-5-5-6-6 sinnum til viðbótar (= alls 5-6-6-6-7-7 útaukningar) = 46-50-52-54-58-60 l. Fellið af allar l þegar stykkið mælist 33-32-31-29-28-26 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið saum undir ermum og hliðasauma í eitt yst í lykkjubogann (svo að saumurinn verði ekki of þykkur). Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hazejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.