DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Forest Princess

Prjónuð peysa úr DROPS Big Delight í garðaprjóni og domino-ferningum. Stærð S - XXXL

DROPS 149-35
DROPS Design: Mynstur nr db-020
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
500-500-600-600-700-800 gr litur nr 03, myntusúkkulaði

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA MEÐ GATI, NR 522: 5-5-6-6-7-7 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 1:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 fyrstu l í Domino-ferningnum slétt saman, síðan er prjónað sl út umf.
Endurtakið umf 1 og 2 þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l.

HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 2:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á Domino-ferningnum, prjónið 2 l slétt saman. Endurtakið umf 1 og 2 þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar l. Stykkið er prjónað ofan frá og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
A.1 sýnir hægra framstykki – örvar sýna prjónstefnu.
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 6 með Big Delight. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í byrjun hverrar umf með því að prjóna 2 l í fyrstu l í öllum umf þar til
43-47-49-55-61-67 l eru eftir á prjóni. Í lok síðustu umf frá röngu eru fitjaðar upp 22 nýjar l á prjóninn = 65-69-71-77-83-89 l. Prjónið nú garðaprjón yfir fyrstu 22 l (= ermi) og HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 1 yfir síðustu 43-47-49-55-61-67 l séð frá réttu – sjá útskýringu að ofan, byrjið á 2. umf á Domino-ferningi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-22-24-26-29-32 cm (mælt beint upp á ermi) fellið af fyrstu 22 l, haldið áfram með HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 1. Prjónið upp 43-47-49-55-61-67 l meðfram vinstri hlið frá fyrsta ferningi, prjónið HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 2 – sjá útskýringu að ofan. Prjónið upp 43-47-49-55-61-67 l meðfram hægri hlið á fyrri ferningi. Prjónið nú garðaprjón, JAFNFRAMT eru prjónaðar síðustu 2 l í öllum umf slétt saman þar til 1 l er eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
A.2 sýnir vinstra framstykki – örvar sýna prjónstefnu.
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 6 með Big Delight. Prjónið garðaprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í byrjun hverrar umf með því að prjóna 2 l í fyrstu l í öllum umf þar til 43-47-49-55-61-67 l á prjóni. Í lok síðustu umf frá réttu eru fitjaðar upp 22 nýjar l á prjóninn = 65-69-71-77-83-89 l.
Prjónið nú garðaprjón yfir fyrstu 22 l (= ermi) og HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 2 yfir síðustu 43-47-49-55-61-67 l – frá röngu. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-22-24-26-29-32 cm – í einni umf frá röngu (mælt beint upp á ermi) fellið af fyrstu 22 l, haldið áfram með HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 2. Prjónið upp 43-47-49-55-61-67 l meðfram hægri hlið á fyrsta ferningi, prjónið HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR-1. Prjónið upp 43-47-49-55-61-67 l meðfram vinstri hlið á fyrri ferningi. Prjónið nú garðaprjón, JAFNFRAMT eru síðustu 2 l í öllum umf prjónaðar slétt saman þar til 1 l er eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 78-84-90-98-106-116 l á hringprjóna nr 6 með Big Delight. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 40-44-47-52-57-63 cm eru fitjaðar upp 22 nýjar l í lok 2 næstu umf = 122-128-134-142-150-160 l. Þegar stykkið mælist 58-64-69-76-84-93 cm eru felldar af miðju 18-18-20-20-22-22 l fyrir hálsmáli = 52-55-57-61-64-69 l eftir á hvorri öxl. Prjónið hvora hlið til loka fyrir sig. Fellið af þegar stykkið mælist 60-66-71-78-86-95 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið sauma undir ermi og hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp ca 198-216-232-254-280-306 l á hringprjóna nr 6 með Big Delight, upp meðfram hægra framstykki, í kringum hálsmál og niður meðfram vinstra framstykki. Prjónið garðaprjón. Þegar kantur að framan mælist 4-4-5-5-6-6 cm fellið af fyrir 5-5-6-6-7-7 hnappagötum janft yfir hægri kant að framan, síðasta hnappagatið mælist ca 18 cm frá neðri brún, efsta hnappagatið er ca 30 cm frá öxl. Fellið af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 l saman, sláið síðan uppá prjóninn. Haldið áfram í garðaprjóni þar til kantur að framan mælist 6-6-7-7-8-8 cm, fellið af. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements
diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Marina wrote:

Molto bello! É possibile eseguirlo con le maniche lunghe?

27.11.2020 - 23:53

DROPS Design answered:

Buonasera Marina, per un'assistenza così personalizzata si può rivolgere al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

28.11.2020 - 21:14

country flag Nicole wrote:

Hallo nochmal, ich beziehe mich immer noch auf meine Frage vom 9.3.18. Möchten Sie mir diese nicht beantworten bzw. helfen. Bin etwas verwirrt denn normalerweise kommt immer recht schnell eine Antwort. Viele Grüße

03.04.2018 - 21:24

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, Ihre Frage wurde 23.03.18 beanwortet, dazu haben wir keine Videos, einfach Teile zusammennähen, bzw Krausrippe mit Randmaschen, passen Sie mal auf, daß die Naht nicht zu eng wird, Stecknadel können dazu helfen. Viel Spaß beim zusammennähen!

04.04.2018 - 08:57

country flag Nicole wrote:

Siehe bitte meine Frage vom 9.3.18

23.03.2018 - 16:48

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, wir haben dazu keine Video, die beiden Teilen können Sie zuerst mit Stecknadeln zusammen legen, dann einfach nähen. Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden noch weiterhelfen, auch telefonisch oder per Mail. Viel Spaß beim zusammennähen!

26.03.2018 - 10:33

country flag Nicole wrote:

Hallo, schon wieder ich. Existiert ein Video über das Zusammennähen der Seiten. Ich habe hier Probleme da die Vorderseite ja schräge Reihen hat und die Rückseite gerade. Dankeschön!

09.03.2018 - 22:02

country flag Nicole wrote:

Hallo, Dankeschön für die letzte Antwort. Nun brauche ich leider schon wieder Hilfe. Ich bin immer noch beim rechten Vorderteil und zwar habe ich das 3.DQ fertig und bei mir endet das nicht waagrecht sondern als Zipfel. Hätte ich da beim letzten DQ auf beiden Seite die letzten Maschen zusammenstricken müssen? Ich habe die Anleitung 5 Mal gelesen und finde meinen Fehler einfach nicht. Danke für die Hilfe und die Geduld. Viele Grüße, Nicole

09.02.2018 - 20:04

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, die 2 letzten M sollen rechts in jeder Reihe rechts zusammengestrickt werden bis noch 1 M auf der Nadel ist, dh am Ende der Hin- sowie der Rückreihen nehmen Sie 1 M. Viel Spaß beim stricken!

12.02.2018 - 08:28

country flag Nicole wrote:

Hallo nochmal. Schon wieder ich. Meine Frage wurde irgendwie nicht so beantwortet. Sie haben mich, glaube ich, falsch verstanden. Ich habe DQ1 abgekettet und weiß nicht wie ich mit DQ 2 beginnen soll. Soll ich mir die Maschen dann seitlich von DQ 1 in jeder Reihe dazu holen. Oder komplett 47 Maschen seitlich von DQ 1 aufnehmen. Bekomme das mit der Logik gerade nicht so auf die anreihe. Tut mir leid. Viele Grüße, Nicole

05.02.2018 - 21:40

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, bei dem linken Vorderteil, nach DQ1, schneiden Sie den Faden ab, dann von der Vorderseite, die 47 M seitlich von DQ1 auffassen und das DQ-2 stricken. Viel Spaß beim stricken!

06.02.2018 - 08:52

country flag Nicole wrote:

Hallo, ich bin beim rechten Vorderteil und habe schon den Ärmel abgekettet und auch das halbe Domino Quadrat A1 fertig gestrickt und den Faden durchgezogen. Wann hätte ich den auf der linken Seite die neuen 47 Maschen für Dominoquadrat A2 aufnehmen müssen? Steht nicht da. Oder werden die halben Dominoquadrate separat gestrickt und später zusammen genäht? Vielen lieben Dank und liebe Grüße Nicole

04.02.2018 - 19:06

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, bei A.2 (= linkes Vorderteil), stricken Sie das halbe Dominoquadrat-2 bis zur Ende (= bis 1 M übrig ist, dh wie beim A.1), dann Faden abschneiden und die 47 M von der rechten Seite auffassen und das halbe Dominoquadrat-1 stricken. und dann das letzte Dominoquadrat stricken. Viel Spaß beims tricken!

05.02.2018 - 09:56

country flag Lisa wrote:

Bonjour, J'ai du mal avec l'échantillon. Avec l'aiguille 6mm je n'ai que 9cm de large avec 15 mailles. Par contre avec une aiguille de 7mm j'ai bien 10cm de large, mais trop de rangs. Quelle aiguille utilisée? Dois-je rester avec 6mm et faire une taille plus grande un M au lieu de S? merci de vos conseils.

31.07.2017 - 20:54

DROPS Design answered:

Bonjour Lisa, pensez bien à laver et faire sécher votre échantillon comme vous laverez le gilet par la suite afin de vérifier les mesures finales. Si vous avez toujours une différence, essayez de tricoter un peu plus souplement pour avoir le bon échantillon. Votre magasin DROPS aura probablement quelques astuces pour vous, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

01.08.2017 - 09:02

country flag Svenja wrote:

Danke für die schnell antwort. Genau das war mein Fehler ich habe das wort "JEDER" tasächlich überlesen. Güß Svenja

23.10.2014 - 16:16

country flag Svenja wrote:

Hallo, vorweg Maschenprobe stimmt. Ich habe jetzt das erste Halbe Dominoquadrat mit Ärmel gestrickt. Jetzt weiß ich nicht genau wo ich die Maschen aufnehmen soll. Und da mein Strickstück von der Zeichnung abweicht bin ich irritiert. Die Seite die ich nehmen würde ist zu lang für nur 55 M. Gruß Svenja

21.10.2014 - 07:53

DROPS Design answered:

Haben Sie zu Beginn, d.h. beim Stück vor dem Anschlagen der neuen M für den Ärmel, am Anfang JEDER R, d.h. beidseitig, zugenommen? Dann müsste sich ein Dreieck ergeben. Dann folgt der Ärmelanschlag (22 M), dann stricken Sie für das halbe Dominoquadrat in der Hin-R jeweils die ersten beiden M nach den Ärmel-M zusammen. Dieses halbe Quadrat müsste aus 55 Krausrippen (= 110 R) bestehen, aus jeder Krausrippe (d.h. aus jedem "Knötchen" am Rand) fassen Sie dann 1 M auf = 55 M.

22.10.2014 - 12:25