Sofie skrifaði:
Hallo. Kan het zijn dat die tweede toer niet klopt. ik krijg altijd 73 steken ipv 74 steken op het einde. Groetjes sofie
14.09.2013 - 10:33DROPS Design svaraði:
Hoi Sofie. De eerste l van de het begin van de toer (Je haakt de eerste v in de tweede l van de haak) vervangt de eerste v. Dan zou je in totaal 74 steken hebben.
26.09.2013 - 21:23
Karen skrifaði:
Bonjour, Je ne comprend pas le début de vos explications concernant le 1er rang après le montage des 81 ml. Pouvez vous m'expliquer ? Merci
13.09.2013 - 16:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Karen, on crochète volontairement une chaînette plus longue, et on saute des ml dès le 1er rang pour que le montage ne soit pas trop serré, ainsi sur la base de 81 ml, vous allez procéder ainsi : 1 ms dans la 2ème ml à partir du crochet (1ère ml = 1ère ms), 1 ms dans chacune des 2 ml suivantes, *sautez 1 ml, 1 ms dans chacune des 6 ml suivantes*, répéter de *-* tout le rang = 70 ms. Bon crochet !
13.09.2013 - 16:37
Denise Neumann skrifaði:
Ist es jetzt korregiert??
17.08.2013 - 19:44Rolf svaraði:
Jawohl
17.08.2013 - 20:22
M. Rohrmüller skrifaði:
Sehr geehrtes Team, danke für die tollen Anleitungen. Allerdings sind meiner Meinung nach die Zeichenklärungen für die Luftmaschen und die Stäbchen vertauscht. Liebe Grüße M. Rohrmüller
10.08.2013 - 10:41DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rohrmüller, vielen Dank für den Hinweis, wir werden das sofort korrigieren.
10.08.2013 - 13:40
Eva skrifaði:
Hinweis: Die Legende zum Diagramm ist für Luftmaschen und Stäbchen vertauscht ;))
09.08.2013 - 10:31
Candy Rose#candyrosedress |
||||||||||
|
||||||||||
Heklaður kjóll með gatamynstri úr DROPS Muskat. Stærð börn 3-12 ára
DROPS Children 24-29 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Í hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 l með því að hekla 2 l saman þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Til að áferðin verði alveg eins allan tíman er því heklað fram og til baka, 2 stykki og þau saumuð saman í lokin. FRAMSTYKKI: Heklið 81-85-88-93-97 ll með Muskat með heklunál nr 4. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja af næstu 2-6-9-7-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 70-74-77-81-84 fl (fyrsta ll = 1 fl). Snúið við og heklið 1 fl í hverja l til baka – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram með mynstur A.1 (umf 1 = 1 st í hverja fl). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-20-21-22-23 cm, fækkið um 4 l jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 4-4-5-5-6 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 54-58-61-65-68 fl. Þegar stykkið mælist 33-37-41-45-49 cm, fellið af fyrir handveg Í hvorri hlið. Það er gert þannig: Heklið kl yfir fyrstu 3-4-4-4-4 l, heklið nú fram þar til eftir eru 3-4-4-4-4 l, snúið við. Í næstu umf eru heklaðar 2 síðustu l í hvorri hlið saman – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf 4 sinnum til viðbótar. Eftir að úrtöku er lokið eru 38-40-43-47-50 l í umf. Þegar stykkið mælist 38-43-47-51-55 cm, fellið af fyrir hálsmáli. Það er gert með því að hekla hvora öxl fyrir sig til loka. ÖXL 1: Heklið yfir fyrstu 12-12-13-14-15 l, snúið við og heklið 4 fyrstu l saman 2 og 2, heklið nú út umf. Snúið við og heklið fram þar til 2 l eru eftir á undan hálsmáli, heklið þær saman, snúið við. Í næstu umf eru 2 fyrstu l heklaðar saman, síðan er heklað út umf. Snúið við, heklið þar til 2 l eru eftir, heklið þær saman = 7-7-8-9-10 l eftir á öxl. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 45-50-55-60-65 cm, klippið frá. ÖXL 2: Heklið eins og fyrri öxl – passið uppá að byrja frá réttri umf í mynstri og endið efst í sömu umf og öxl 1. BLÚNDA AÐ NEÐAN: Heklið nú blúndu að neðan á kjólinn þannig: Byrjið á að hekla 1 umf með fl frá réttu – aukið jafnt út þannig að það verða 79-85-85-91-97 fl. Snúið við og haldið áfram með mynstur A.2 þannig: a yfir fyrstu 7 l, síðan b þar til 6 l eru eftir, endið á c. Heklið 4 umf í A.2 einu sinni, þá mælist blúndan ca 5 cm, klippið frá og festið enda. BAKSTYKKI. Heklið á sama hátt og framstykki að úrtöku við handveg = 38-40-43-47-50 l í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 43-48-53-58-63 cm. Heklið nú hvora öxl fyrir sig til loka þannig: Heklið 1 umf yfir fyrstu 9-9-10-11-12 l, snúið við, heklið 2 fyrstu l saman, heklið út umf. Snúið við, heklið þar til 2 l eru eftir við hálsmáli, heklið þær saman. Snúið við, heklið 1 l í hverja l út umf. Klippið frá. Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni. Heklið blúndu að neðan á sama hátt og á framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur og saumið hliðarsauma kant í kant þannig að saumurinn sjáist sem minnst. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG OG HÁLSMÁL: Heklið í kringum handveg og hálsmál þannig: Heklið 1 fl, * 2 ll, hoppið yfir ca 0,5 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum opið og endið á 2 ll og 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. HEKLAÐ BLÓM: Heklið með heklunál nr 4 með Muskat. Heklið 4 ll og tengið saman í hring með því að hekla 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: * 1 fl um hringinn, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 3 ll-bogar. UMFERÐ 2: Heklið í hvern ll-boga þannig: 1 kl, 5 st og 1 kl = 3 blöð. Snúið við – næsta umferð er hekluð frá bakhlið á blómi. UMFERÐ 3: 1 ll, heklið 1 fl í kringum fyrstu fl frá umferð 1, 4 ll, heklið 1 fl neðst niðri í miðju á fyrsta blaði frá umf 2, * heklið nú 4 ll, heklið 1 fl í kringum næstu fl frá umf 1, heklið nú 4 ll, heklið 1 fl neðst niðri í miðju á næsta blaði frá umf 2 * endurtakið frá *-* þar til heklaðir hafa verið alls 5 ll-bogar, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu fl frá umf = 6 ll-bogar. Snúið við – næsta umf er hekluð frá framhlið á blómi. UMFERÐ 4: Heklið í hvern ll-boga þannig: 1 kl, 6 st og 1 kl = 6 blöð. Klippið frá og festið enda. Saumið blómið niður framan á kjólinn. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candyrosedress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.