DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS Children 24-1
DROPS Design: Mynstur nr bs-005-bn
Garnflokkur A + A
--------------------------------------------------------
Stærð: 3/5 - 6/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/110 - 116/128 - 134/140 - 146/152
Yfirvídd: 54/58 - 60/64 - 66/70 - 72/76
Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
150-150-150-200 gr litur nr 4088, bleikfjólublár
150-150-150-150 gr litur nr 3250, ljós bleikfjólublár
100-100-150-150 gr litur nr 3125, ljós bleikur
100-100-100-100 gr litur nr 0100, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 15 st á breiddina og 8 umf á hæðina með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan.
Byrjið með 2 þráðum af lit nr 4088. Haldið áfram þannig:
3-3-4-4 umf með 2 þráðum af lit nr 4088.
3-3-4-4 umf með 1 þræði af lit nr 4088 + 1 þræði af lit nr 3250.
3-4-4-4 umf með 2 þráðum af lit nr 3250.
4-4-4-5 umf með 1 þræði af lit nr 3250 + 1 þræði af lit nr 3125.
4-4-4-5 umf með 2 þráðum af lit nr 3125.
3-4-4-4 umf með 1 þræði af lit nr 3125 + 1 þræði af lit nr 0100.
3-3-5-5 umf með 2 þráðum af lit nr 0100.

RENDUR Á ERMI:
Ermin er hekluð frá ermakúpu og niður með röndum þannig:
Byrjið á 1 þræði af lit nr 3250 + 1 þræði af lit nr 3125
Heklið 9-10-11-12 cm með þessari litasamsetningu. Haldið áfram 9-10-11-12 cm með 2 þráðum af lit nr 3250 og 10-10-11-12 cm með 1 þræði af lit nr 4088 + 1 þræði af lit nr 3250. Heklið nú ermi til loka með 2 þráðum af lit nr 4088 = ca 10-11-12-12 cm.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll. Hver umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki):
Fellið af þannig: Heklið st þar til 3 st eru eftir, * í fyrsta af þeim er heklaður 1 hst, í næsta 1 fl og þann síðasta 1 kl, snúið við með 1 ll, hoppið yfir kl, heklið 1 kl í fl, 1 fl í hst, 1 hst í fyrsta st, haldið áfram með st þar til 3 st eru eftir í lok umf *, endurtakið frá *-* þar til heklaðar hafa verið alls 6-7-7-7 umf.

ÚRTAKA-2 (á við um ermi):
Fækkið um 1 st í byrjun og lok ermi með því að hekla 2 næst síðustu st saman, það er gert þannig: Heklið 1 st í fyrsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.
--------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan með 2 þráðum og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
Heklið 5 ll með heklunál nr 5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 1: Heklið 12 st um ll-hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 1 st, * 2 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 2 ll og 1 kl í 1. st = 12 st með 2 ll á milli hverra.
UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hvern st og 2 st um hvern ll-boga umf hringinn = 36 sl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 st í hvern og einn af 2 fyrstu st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st.
UMFERÐ 5: Heklið 1 st, * 2 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn , endið á 2 ll o g1 kl í 1. st = 24 st með 2 ll á milli hverra.
UMFERÐ 6: Heklið 1 st í hvern st og 2 st um hvern ll-boga umf hringinn = 72 st.
UMFERÐ 7: Heklið 1 st í hvern st, en í 6. hvern st eru heklaðir 2 st = 84 st.
UMFERÐ 8: Heklið 1 st í hvern st, en í 7. hvern st eru heklaðir 2 st = 96 st.
UMFERÐ 9: Heklið 1 st í hvern st, en í 8. hvern st eru heklaðir 2 st = 108 st.
UMFERÐ 10: Heklið 1 st í hvern st, en í 9. hvern st eru heklaðir 2 st = 120 st.
UMFERÐ 11: Heklið 1 st í hvern st, en í 10. hvern st eru heklaðir 2 st = 132 st.
Stykkið mælist nú ca 14 cm frá miðju og út.

STÆRÐ 3/5 ÁRA:
UMFERÐ 12: Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 30 st (= við háls), heklið 22 lausar ll, hoppið yfir næstu 20 st (= handvegur), heklið nú 1 st í hvern og einn af næstu 62 st (= niður við bak), heklið 22 laustar ll, hoppið yfir næstu 20 st (= handvegur) og festið með 1 kl í fyrsta st í byrjun umf.
UMFERÐ 13: Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 30 st, en aukið út um 2 st jafnt yfir (= 32 st), heklið nú 22 st í loftlykkju umferðir yfir handveg, heklið 1 st í hvern og einn af næstu 62 st, en aukið út um 2 st jafnt yfir (= 64 st), heklið 22 st í loftlykkju umferðir yfir handveg og tengið saman með 1 kl í fyrsta st í byrjun umf = 140 st.
UMFERÐ 14 til 17: Haldið áfram með st – jafnframt er aukið út um 10 st jafnt yfir í hverri umf. Eftir umf 17 eru 180 st í umf og stykkið mælist nú ca 21 cm frá miðju og út. Klippið frá.
Heklið nú einungis yfir 60 st í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 30 st efst við hálsmál og 30 st neðst á baki. Haldið áfram eftir útskýringu á framstykki.

STÆRÐ 6/8 ÁRA:
UMFERÐ 12: Heklið 1 st í hvern st, en í 11. st eru heklaðir 2 st = 144 st.
UMFERÐ 13: Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 35 st (= við háls), heklið 23 lausar ll, hoppið yfir næstu 21 st (= handvegur), heklið nú 1 st í hvern og einn af næstu 67 st(= niður við bak), heklið 23 lausar ll, hoppið yfir næstu 21 st(= handvegur) og festið með 1 kl í fyrsta st í byrjun umf.
UMFERÐ 14: Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 35 st, aukið út um 3 st jafnt yfir (= 38 st), heklið síðan 23 st í loftlykkju umferðirnar yfir handveg, heklið 1 st í hvern og einn af næstu 67 st, en aukið út um 3 st jafnt yfir (= 70) st, heklið 23 st í loftlykkju umferðirnar yfir handveg og festið með 1 kl í fyrsta st í byrjun umf = 154 st.
UMFERÐ 15 til 19: Haldið áfram með st – jafnframt er aukið út um 10 st jafnt yfir í hverri umf. Eftir umf 19 eru 204 st í umf og stykkið mælist nú ca 23 cm frá miðju og út. Klippið frá.
Heklið nú einungis yfir 68 st í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 34 st efst við háls og 34 st neðst á baki. Haldið áfram eftir skýringu á framstykki.

STÆRÐ 9/10 ÁRA:
UMFERÐ 12: Heklið 1 st í hvern st, en í 11. hvern st eru heklaðir 2 st = 144 st.
UMFERÐ 13: Heklið 1 st í hvern st, en í 12. hvern st eru heklaðir 2 st = 156 st.
UMFERÐ 14: Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 38 st (= við háls), heklið 25 lausar ll, hoppið yfir næstu 23 st (= handvegur), heklið nú 1 st í hvern og einn af næstu 72 st (= við bak), heklið 25 lausar ll, hoppið yfir næstu 23 st (= handvegur) og festið með 1 kl í st í byrjun umf.
UMFERÐ 15: Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 38 st, en aukið út um 3 st jafnt yfir (= 41 st), heklið nú 25 st í loftlykkju umferðir yfir handveg, heklið 1 st í hvern og einn af næstu 72 st, en aukið út um 3 st jafnt yfir (= 75 st), heklið 25 st í loftlykkju umferðir yfir handveg og festið með 1 kl í fyrsta st í byrjun umf = 166 st.
UMFERÐ 16 til 21: Haldið áfram með st – jafnframt er aukið út um 10 st jafnt yfir í hverri umf. Eftir umf 21 eru 226 st í umf og stykkið mælist nú ca 26 cm frá miðju og út. Klippið frá.
Heklið nú einungis yfir 74 st á hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 39 st efst við háls og 39 st neðst á baki. Haldið áfram eftir útskýringu á framstykki.

STÆRÐ 11/12 ÁRA:
UMFERÐ 12: Heklið 1 st í hvern st, en í 11. hvern st eru heklaðir 2 st = 144 st.
UMFERÐ 13: Heklið 1 st í hvern st, en í 12. hvern st eru heklaðir 2 st = 156 st.
UMFERÐ 14: Heklið 1 st í hvern st, en í 13. hvern st eru heklaðir 2 st = 168 st.
UMFERÐ 15: Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 42 st (= við háls), heklið síðan 27 lausar ll, hoppið yfir næstu 25 st (= handvegur), heklið nú 1 st í hvern og einn af næstu 76 st (= við bak), heklið 27 lausar ll, hoppið yfir næstu 25 st (= handvegur) og festið með 1 kl í fyrsta st í byrjun umf.
UMFERÐ 16: Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 42 st, en aukið út um 4 st jafnt yfir (= 46 st), heklið nú 27 st í loftlykkju umferðir yfir handveg, heklið 1 st í hvern og einn af næstu 76 st, en aukið út um 4 st jafnt yfir (= 80 st), heklið 27 st í loftlykkju umferðir yfir handveg, heklið 1 st í hvern og einn af næstu 76 st, en aukið út um 4 l jafnt yfir (= 80 st), heklið 27 st í loftlykkju umferðir yfir handveg og festið með 1 kl í fyrsta st í byrjun umf = 180 st.
UMFERÐ 17 til 23: Haldið áfram með st – jafnframt er aukið út um 10 st jafnt yfir í hverri umf. Eftir umf 23 eru 250 st í umf og stykkið mælist nú ca 28 cm frá miðju og út. Klippið frá.
Heklið nú einungis yfir 83 st í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 42 st efst við háls og 42 st neðst á baki. Haldið áfram eftir útskýringu á framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI – ALLAR STÆRÐIR:
= 60-68-74-83 st. Setjið 1 prjónamerki eftir 18-20-22-24 l inn frá hvorri hlið (= 24-28-30-35 l á milli prjónamerkja). Heklið nú RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan og st fram og til baka JAFNFRAMT er aukið út um 1 l við hvort prjónamerki í hverri umf (þ.e.a.s. að aukið er út um 2 st í umf – aukið út í annað hvert skipti fyrir og eftir prjónamerki) þar til heklaðar hafa verið alls 6-6-8-8 umf fram og til baka.JAFNFRAMT er heklað eftir ÚRTAKA-1 þar til heklaðar hafa verið alls 6-6-8-8 umf fram og til baka. Klippið frá og festið enda.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið eins og vinstra framstykki yfir 60-68-74-83 st í hægri hlið.

ERMI:
Ermin er hekluð fram og til baka frá ermakúpu og niður – sjá RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan.
Heklið 24-27-28-34 LAUSAR ll með 1 þræði af lit nr 3250 + 1 þræði af lit 3125.
UMFERÐ 1: Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (þær 3 fyrstu ll = 1 st), síðan er heklaður 1 st í hverja ll út umf = 22-25-26-32 st. Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll + 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern st fram að síðasta st og 3 st í síðasta st = 26-29-30-36 st. Snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 3 ll + 1 st í fyrsta st, 1 st í hvern st þar til 1 st er eftir, 2 st í síðasta st. Snúið við. Heklið 1-1-2-2 umf til viðbótar eins og umf 3 = 30-33-36-42 st.
NÆSTA UMFERÐ:
Heklið 3 ll + 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern st fram að síðasta st, 3 st í síðasta st = 34-37-40-46 st. Snúið við.
Heklið nú 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 7-8-9-10 cm. Haldið áfram með st JAFNFRAMT er fækkað um 1 st í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 8.- 6. – 5. – 4. hverri umf 2-3-4-6 sinnum til viðbótar = 28-29-30-32 st.
Haldið áfram með 1 st í hvern st þar til ermin mælist 38-41-45-48 cm. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma kant í kant, svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Heklið 1 umf í kringum allt fram- og bakstykkið með 2 þráðum af lit 0100 þannig: Heklið 1 kl í fyrstu l, * 3 ll, 1 st í fyrstu ll (= 1 picot), hoppið yfir 1 st, festið með 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu kl. Saumið ermar í fram- og bakstykki og passið uppá að ermakúpan er saumuð efst í opi við handveg, þ.e.a.s. þar sem stysta bilið er á milli þeirra. Heklið kant meðfram í kringum ermar alveg eins og í kringum fram- og bakstykki, nema með 2 þráðum lit nr 4088

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.10.2014
STÆRÐ 11/12 ÁRA og UMFERÐ 14 (í 13. ekki í 12.): UMFERÐ 14 Heklið 1 st í hvern st, en í 13. hvern st eru heklaðir 2 st = 168 st.
Yfirfarið á vefsvæði: 01.10.2014
STÆRÐ 11/12 ÁRA: UMFERÐ 14: Heklið 1 st í hvern st, en í 13. hvern st eru heklaðir 2 st = 168 st.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Princess Petal

uzungala, France

Princess Petal

v1cki1956, United States

Princess Petal

Marie-Louise, Netherlands

Princess Petal

Sidi, Switzerland

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (134)

country flag Diane wrote:

When starting the Front Piece do you join the yarn with a ch3 then continue with dc?

18.12.2023 - 02:51

DROPS Design answered:

Dear Diane, you have to cut the yarn at the end of body, then join again and continue each front piece with dc increasing and decreasing as explained. Happy crocheting!

18.12.2023 - 09:34

country flag Janne Ladefoged Clausen wrote:

Er ved at hækle Princess Petal men kan slet ikke forstå hvordan det lille maske antal man starter med og så øger i rækkerne kan passe i ærme hulen? Hækler man 4 stk og syr sammen 2*2 til hvert ærmehule? Mit ærmehul er da meget større end de 24 lm jeg slog op. Forstår det ikke.

16.08.2023 - 09:21

DROPS Design answered:

Hej Janne, jo om du følger opskriften og tager ud på hver række, så får du en buet ærmekuppel som passer perfekt ind i ærmegabet :)

18.08.2023 - 10:31

country flag Annabell wrote:

Anleitung ab Virderteil schwer zu verstehen ...

25.07.2023 - 18:50

DROPS Design answered:

Liebe Annabel, gerne kann mann Ihnen weiterhelfen, bis welche Runde haben Sie jetzt gehäkelt, und welche Größe, und welches Teil verstehen Sie nicht?

28.07.2023 - 08:00

country flag Annabell wrote:

Der Rücken war easy, danach .... ich gebe auf ...

25.07.2023 - 18:37

country flag Tasneem Akhtar wrote:

Thanks a lot. I noticed my mistake. I started from down to cap. Thanks again. Your description is always clear. Need a deep analysis. Can I share pics of designs which I made from granstudio.

09.03.2023 - 07:23

country flag Tasneem Akhtar wrote:

Hello. I have completed front neck and back in one piece. I really understand your pattern very well. But now I am stuck with the sleeves. It's issue of the length. I am making size 6-8. As I already mentioned in my previous email. Hope you will guide me at Your earliest. Thanks

08.03.2023 - 04:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Akhtar, it might be a question of tension in height, after the first 5 rows on sleeve (when you get 37 sts), piece should be approx. 6,25 cm / 2.46 inches. Try with a smaller crochet hook size or try to avoid elongating your stitches in height. Happy crocheting!

08.03.2023 - 09:32

country flag Tasneem Akhtar wrote:

Hello. I am following your pattern for size 6-8. I have issue in length of sleeves.after 37 chains length is already 10 cm /4 inch. How much should I continue double chrochet in each stitches before decrease

08.03.2023 - 04:06

country flag Carmela Giammanco wrote:

Si può avere uno scemo non riesco a lavorare con le spiegazioni scritte biba anni8

17.09.2022 - 01:09

DROPS Design answered:

Buonasera Carmela, purtroppo non ci è possibile adattare le spiegazioni alle singole esigenze, ma può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

17.09.2022 - 19:22

country flag WENDY wrote:

For fronts, I'm making 6/8. Do I place the marker into the 20th stitch? It's confusing because it says "after" . Does that mean the marker goes into the 21st stitch?

06.07.2022 - 14:16

DROPS Design answered:

Dear Wendy, insert the markers between 2 stitches: after the 20th stitch at the beginning of the row and when 20 sts remain at the end of the row so that you will have: 20 sts, marker, 28 sts, marker, 20 sts (= 68 sts in total). Happy crocheting!

06.07.2022 - 14:23

country flag WENDY wrote:

I'm making size 6/8 and the front piece instructions have me completely confused about placing the markers. I have 34 stiches at the top and bottom with 68 stitches between them down the sides. I have no idea what you mean by placing markers 20 stitches in from "each side". Starting from where? I'm completely baffled.

05.07.2022 - 20:14

DROPS Design answered:

Dear Wendy, fold your circle double so that both armholes matches and insert a marker on top and bottom of circle, then unfold the circle and count 34 sts on the top towards neck (17 sts on each side of the marker you just inserted) and insert now 2 new markers to mark these 34 sts. Repeat on the bottom = there are now 4 markers with 68 sts on each side for the front pieces and 34 sts on top for neck and at the bottom of back piece - you will now work over these 68 sts separately the "oval" part in the chart. Happy crocheting!

06.07.2022 - 09:07