DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 24-13
DROPS Design: Mynstur nr e-014-bn
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
150 gr í allar stærðir litur nr 55, kirsuberjarauður

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 st og 13 umf verði 10 x 10 cm.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. ATH: Fyrsta umf með fl í mynstri er ekki með í mynsturteikningu og er því ekki endurtekin.

ÚRTAKA:
Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, bíðið með að draga þráðinn í geng í lokin, heklið 1 st í næstu l, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.
--------------------------------------------------------

BOLERO:
Stykkið er heklað frá miðju að aftan. Fyrst er önnur hliðin hekluð og síðan niður að byrjun á ermi, hin hliðin er síðan hekluð og niður að byrjun að seinni ermi. Í lokin eru ermasaumar saumaðir og heklaður er kantur í kringum allt opið.

FYRRI HLIÐ:
Heklið 69-77-84-91-98 ll með Safran með heklunál nr 3. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, haldið áfram með 1 fl í hverja og eina af næstu 7-3-4-5-6 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 58-64-70-76-82 fl (fyrsta ll í umf er EKKI talin með sem 1 fl). Haldið áfram með mynstur A.1 – byrjið á umf 2 í mynstri við strik fyrir þá stærð sem þú heklar, þannig að mynstrið verði eins í báðum hliðum
– LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
Endurtakið mynstur til loka. Jafnframt þegar stykkið mælist 17-19-21-23-25 cm, setjið 1 prjónamerki í hliðina (þetta merkir hversu langt upp ermasaumurinn er saumaður í lokin). Í næstu umf er fækkað um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 næst síðustu st saman – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 6-7-8-8-9 sinnum til viðbótar = 44-48-52-58-62 l eftir – ATH: Þegar úrtakan er í gangi er einungis heklaðir st yfir þær l sem ekki ganga upp í mynstri. Heklið síðan mynstur þar til stykkið mælist alls ca 30-33-36-39-42 cm – endið eftir umf með bara st, klippið frá.

SEINNI HLIÐ:
Heklið 1 fl í hverja og eina af þeim 58-64-70-76-82 fl sem heklaðar voru í umf 1 á fyrri hlið (þ.e.a.s. miðja að aftan). Heklið nú mynstur eins og í fyrri hlið. Passið uppá að enda í sömu umf í mynstri neðst niðri á ermi á báðum hliðum.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman tvöfaldan á lengdina og saumið saman ermi neðst niðri og upp að prjónamerki í hvorri hlið – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

KANTUR Í KRINGUM OP:
Heklið í kringum allt opið (byrjið við miðju að aftan) þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 kl í fyrstu l, * 3 ll, 1 fl um næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 ll og 1 kl í fyrstu kl í byrjun umf – ATH: Stillið af að það ll-bogarnir verði á jafnri tölu annars kemur umf 5 ekki að ganga upp.
UMFERÐ 2: Heklið 1 kl og 1 fl um fyrsta ll-boga, * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 3 og 4: Heklið eins og umf 2.
UMFERÐ 5: Heklið 1 kl og 1 fl um fyrsta ll-boga, * 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 6: Heklið 1 ll, 1 fl um fyrsta stóra ll-boga, [* 4 ll, 1 st um fyrstu ll sem hekluð var (= 1 picot), 1 fl um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. að það eru 3 picot um stóra ll-bogann), 1 fl um litla ll-bogann (þessi sem er einungis með 1 ll er á milli stóru ll-bogana), 1 fl um næsta stóra ll-boga], endurtakið frá [-] umf hringinn í stað síðustu fl, heklið 1 kl í fyrstu fl í umf. Klippið frá og festið enda.

KANTUR NEÐST NIÐRI Á ERMUM:
Neðst niðri á ermum er heklaður minni kantur, hér er einungis hekluð umf 1, 5 og 6 af kant sem heklaður var í kringum op – ATH: Í 1. umf er hoppað yfir 1 st á milli hverra ll-boga.

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 fl
symbols = 1 st
symbols = heklstefna
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Viviane ANTONELLI wrote:

Bonjour, je ne comprends pas le diagramme pour 7/8 ans . Merci

05.04.2020 - 17:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Antonelli, vous commencez le diagramme A.1 par le repère indiqué pour votre taille, en le crochetant de droite à gauche (à partir du repère jusqu'à la fin du diagramme), puis vous répétez A.1 jusqu'à la fin du rang.; en fin de rang, crochetez les premières mailles de A.1 jusqu'à la fin du rang si besoin. Notez bien la dernière maille crochetée, sur l'envers, vous lirez le diagramme à partir de cette maille mais de droite à gauche en terminant par les dernières mailles de gauche du diagramme jusqu'au repère. cf comment lire un diagramme/. Bon crochet!

09.04.2020 - 13:56

country flag Anette Kjeldgaard wrote:

Tusind tak for fin opskrift. Jeg er kommet til flæsen og forstår ikke instruktionen: 1 fm om næste st - hvad betyder det?

04.05.2019 - 09:09

DROPS Design answered:

Hei Anette. Du skal da hekle rundt staven isteden for i staven (som man vanligvi gjør). Her er en video som viser hvordan det hekles OM en maske: . God fornøyelse

06.05.2019 - 08:33

country flag Annette wrote:

Goedemiddag, ik wil de bolero maken patroon 24-13 voor kinderen. Nu maak ik de maat 7/8 jarig dan begin ik bij het pijltje hoeveel stokjes heb ik dan voordat er een opening komt.

19.02.2019 - 16:55

DROPS Design answered:

Dag Annette,

Helaas begrijp ik je vraag niet helemaal. Bedoel je het aantal stokjes in de hoogte? Je plaatst bij een hoogte van 21 cm 1 markeerdraad welke aangeeft waar de mouwnaad begint, dus tot waar de opening is. Als 13 toeren 10 cm hoog is dan zal je ongeveer op 26 a 27 toeren zitten.

21.02.2019 - 11:15

country flag Silvia wrote:

Buongiorno sono alla quarta riga del diagramma e sto cominciando con le diminuzioni.ho lavorato la prima maglia alta poi due maglie alte chiuse insieme per fare la prima diminuzione e ora come proseguo? Nel diagramma ci sono 7 maglie alte, due catenelle ecc. Contando le 2 maglie alte chiuse insieme come fosse 1 e quindi devo fare altre 5 maglie alte e poi le due catenelle? Grazie

13.09.2018 - 16:20

DROPS Design answered:

Buongiorno Silvia. All'inizio della riga, deve: lavorare 3 cat (sostituiscono la prima maglia alta), lavora la seconda e la terza maglia alta insieme, 4 maglie alte e 2 cat. Verifichi sempre che il motivo prosegue correttamente. Per diminuire alla fine della riga, lavora insieme la terzultima e la penultima maglia alta. Buon lavoro!

13.09.2018 - 16:34

country flag Silvia wrote:

Buongiorno... sto facendo questo Bolero non capisco quando bisogna cominciare a fare le diminuzioni dopo 17 cm di lavorato dite di fare una diminuzione ogni due righe vuol dire che faccio una diminuzione per la prima riga all'inizio e alla fine riga e quella successiva la lavoro così com'è e la terza riga di nuovo faccio la diminuzione? quindi una riga si una riga no? Per un totale di 7 volte? Grazie

12.09.2018 - 15:11

DROPS Design answered:

Buongiorno Silvia. Sì esatto. Diminuisce una riga sì e una no in tutto 7 volte. Buon lavoro!

12.09.2018 - 17:10

country flag Pomme wrote:

Bonjour, arrivé a 17cm faut il réduire 6 fois par rang ou faire 6 rangs avec une réduction au début et une autre à la fin jusqu'à 30 cm de hauteur ? Si jamais il fayt faire 6 réduction, de combien de maille doit on les espacer ? Je ne comprend pas bien cette partie sur la réduction.

13.04.2017 - 10:42

DROPS Design answered:

Bonjour Pomme, à 17 cm, vous diminuez 1 B de chaque côté 7 fois au total tous les rangs: en début de rang, crochetez la 2ème et la 3ème B ensemble et en fin de rang, écoulez ensemble les 2 avant-dernières B ensemble, c'est-à-dire que vous diminuez à 1 m du bord de chaque côté. Bon crochet!

18.04.2017 - 08:33

country flag Valentina wrote:

Salve,sto seguendo le indicazioni per la taglia 9/10 anni e ho 76 punti. Iniziando il diagramma quindi da destra verso sinistra dopo 4 ripetizioni rimangono 4 punti..sbaglio qualcosa?grazie in anticipo

21.03.2017 - 22:00

DROPS Design answered:

Buongiorno Valentina. E' corretto. Lavora le 4 maglie che le rimangono come indicato per le prime 4 maglie del diagramma. In questo modo, il motivo è simmetrico rispetto all'apertura del bolero. Buon lavoro!

21.03.2017 - 23:31

country flag Helen Bottom wrote:

I've downloaded the pattern and started at the section for third size but i am unsure where the repeat begins for the rest of the row do I go to the beginning of the chart or what? ( thanks for the pattern)

16.04.2016 - 21:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bottom, start at the arrow for 3rd size and work from the right towards the left from RS, then work next repeat from 1st to last st in repeat, repeat diagram on the next sts and mark the last st worked. On next row from WS, start with the st you have just marked and read from the left towards the right. Happy crocheting!

18.04.2016 - 10:34

country flag Alessia wrote:

Salve, sto facendo questo bolerino, ma non è chiaro il suggerimento che date. Dove è scritto che le diminuzioni vanno fatte sulle m che non possono essere lavorate. Cosa significa? Come faccio a diminuire e nello stesso tempo a far portare il grafico ? Grazie

30.04.2015 - 18:48

DROPS Design answered:

Buongiorno Alessia. Quando diminuisce, continua a lavorare il diagramma. Se deve diminuire, p.es, le due m che nel diagramma sono 2 cat, al posto delle cat lavora 2 m.a insieme. Buon lavoro!

01.05.2015 - 11:01

country flag Chantal Galarneau wrote:

Pourquoi faire une chainette de 69 ml et ensuite réduire le nombre de ms a 58? quand vient le temps de faire l'autre moitié, il est indiquer de relever seulement 58 m sur le premier rang, comment faire? merci

24.04.2015 - 22:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Galarneau, la chaînette de base est bien souvent plus serrée que le 1er rang de ms réalisé ensuite, pour pallier cette différence, on monte davantage de ml que l'on aura de ms au 1er rang. Pour le 2ème côté, on crochète de l'autre côté de la chaînette de base, 1 ms dans chacune des ms du 1er côté. Bon crochet!

25.04.2015 - 10:10