Tara Bisset skrifaði:
Diamond Drops.
13.12.2012 - 00:25
Annette skrifaði:
Den vil jeg rigtig gerne strikke. Super sød og fint mønster.
13.12.2012 - 00:15
Kristina skrifaði:
Tidlös, passar alla figurer - perfekt till det mesta
12.12.2012 - 11:24
Diva Foresto Brito De Almeida skrifaði:
Adorei. Peça ideal para todas as idades. Moderna.Parabéns.
11.12.2012 - 21:46
Elisabeth skrifaði:
Sød model
11.12.2012 - 17:59
Astrid Hediger skrifaði:
Primavera
11.12.2012 - 16:10
Maarit skrifaði:
Kaunis. Kuuluu ehdottomasti kudottaviin!
11.12.2012 - 13:57
MASSON skrifaði:
Serait-il possible d'avoir les explications de ce modèle que je trouve très joli pour le printemps. je vous remercie.
11.12.2012 - 11:47
Sina Wagner skrifaði:
Sehr schön
10.12.2012 - 23:19
Helga skrifaði:
Das werde ich bestimmt stricken
10.12.2012 - 20:30
Alvira#alviracardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 146-5 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S/M: 9, 16, 23, 31, 39 og 47 cm. STÆRÐ L/XL: 9, 18, 27, 35, 43 og 51 cm. STÆRÐ XXL/XXXL: 9, 16, 23, 31, 39, 47 og 55 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 241-297-353 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN yfir allar l – sjá útskýringu að ofan, prjónið nú – frá réttu þannig: Prjónið 8 l garðaprjón (= kantur að framan): A.1A (= 14 l), A.1B yfir næstu 196-252-308 l, endið á A.1C (= 15 l) og 8 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram með þetta mynstur, kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 9 cm byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 34 cm er prjónað – frá réttu þannig: Prjónið A.2A (= 14 l), A.2B yfir næstu 28-42-56 l, A.2C (= 23 l), A.3A (= 19 l), A.3B yfir næstu 70-98-126 l, A.3C (= 23 l), A.4A (= 22 l), A.4B yfir næstu 28-42-56 l, A.4C (= 14 l). Þegar fyrstu 13 umf í A.2, A.3 og A.4 hafa verið prjónaðar er stykkið lagt til hliðar. Nú hafa verið felldar af 9 l í hvorri hlið og það eru 223-279-335 l eftir á prjóni. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 87-101-115 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið nú – frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1A (= 14 l), A.1B yfir næstu 56-70-84 l, endið á A.1 C (= 15 l) og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað – frá réttu þannig: 1 kantlykkja, A.5 A (= 20 l), A.5B yfir næstu 42-56-70 l, A.5C (= 23 l), endið á 1 kantlykkju. Þegar fyrstu 13 umf í A.5 hafa verið prjónaðar er stykkið lagt til hliðar (1 kantlykkja í hvorri hlið er felld af). Nú eru 75-89-103 l á prjóni. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 3 eins og fram- og bakstykki = 373-457-541 l. Prjónið nú – byrjun á umf 14 (= frá röngu) þannig: A.4C (= 14 l), A.4B yfir næstu 28-42-56 l, A.4A (= 18 l), A.5C (= 18 l), A.5B yfir næstu 42-56-70 l, A.5 A (= 15 l), A.3C (= 18 l), A.3B yfir næstu 70-98-126 l, A.3A (= 15 l), A.5C (= 18 l), A.5B yfir næstu 42-56-70 l, A.5 A (= 15 l), A.2C (= 18 l), A.2B yfir næstu 28-42-56 l, endið á A.2A (= 14 l). Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT er prjónað og lykkjum fækkað eftir mynstri. Eftir hvert skipti sem prjónaðar hafa verið 14 umf að A.3/A.5 prjónið 1 l færri í B á milli A og C. Prjónið þar til mynstur A.2-A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Endurtakið nú efstu 28 umf í öllum mynstrum. Haldið áfram þar til prjónaðar hafa verið alls 56-70-84 umf með mynstri A.2-A.5. Haldið nú áfram með A.6 yfir lykkjur frá A.2 og A.7 yfir lykkjur frá A.4. Aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Þegar A.6 og A.7 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina eru 97-125-153 l á prjóni. Setjið til baka l af þræði á prjóninn, prjónið upp ca 14 l meðfram hlið á A.6/A.7. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í 1. umf er lykkjum fækkað jafnt yfir þannig að það verða 93-111-129 l á prjóni. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #alviracardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.