DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24
DROPS 146-6
DROPS Design: Mynstur nr bs-044
Garnflokkur A+A
-----------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
200-250-250-250-300-300 gr litur nr 1306, púðurbleikur
Og einnig:
DROPS KID-SILK frán Garnstudio
100-125-125-125-125-125 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 8 stk í allar stærðir.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir gat.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið uppá prjóninn.
ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagati þegar 2 umf eru eftir í kanti að framan á undan hálsmáli.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 11, 19, 28, 36 og 45 cm.
STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm.
STÆRÐ L: 2, 12, 21, 30, 39 og 48 cm.
STÆRÐ XL: 2, 12, 21, 31, 40 og 50 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 12, 22, 32, 42 og 51 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 13, 23, 33, 43 og 53 cm.
----------------------------------------------------------

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 64-70-78-86-96-106 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út um 1 l í hvorri hlið þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 4½-4½-4½-4½-5½-5½ cm millibili, 7-7-7-7-6-6 sinnum til viðbótar = 80-86-94-102-110-120 l. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 1 l til merkingar fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umf = 78-84-92-100-108-118 l. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 22-22-22-24-24-24 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsi = 26-29-33-36-40-45 l eftir á öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm og prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið af þegar stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 36-39-43-47-52-57 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 4 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón nr 4,5 með BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið sléttprjón, en 1 kantlykkja í hlið og 4 kantlykkjur við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka.
Aukið út um 1 l í hlið þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm. Endurtakið útaukningu með 4½-4½-4½-4½-5½-5½ cm millbili, 7-7-7-7-6-6 sinnum til viðbótar = 44-47-51-55-59-64 l. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 1 l til merkinga fyrir handveg, fellið af í byrjun næstu umf frá réttu. Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm, setjið 9-9-9-10-10-10 l á þráð fyrir hálsmáli (setjið lykkjur á þráðinn í lok umf frá réttu án þess að prjóna þær). Fellið nú af í byrjun hverrar umf frá hálsmáli (þ.e.a.s. frá röngu): Fellið af 2 l 2 sinnum, 1 l 4 sinnum = 26-29-33-36-40-45 l eftir á öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm og prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið af þegar stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 38-40-42-44-44-46 l (meðtalin er 1 kantlykkja á hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-7-7-7-7 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 7½-6-6-5-4-3½ cm millibili, 5-6-6-7-8-9 sinnum til viðbótar = 50-54-56-60-62-66 l. Þegar stykkið mælist 48-47-46-44-43-41 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið af, stykkið mælist ca 49-48-47-45-44-42 cm.

VASALOK:
Fitjið upp 18-18-18-20-20-20 l á prjóna nr 4,5 með 1 þræði af Baby Alpaca Silk og 1 þræði af Kid-Silk. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 5-5-6-6-7-7 cm, fellið af. Prjónið annað vasalok til viðbótar.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.
HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 75 til 80 l í kringum hálsmál meðtaldar l á þræði að framan með hringprjónum nr 4,5. Prjónið 4 umf slétt og fellið af með sl frá röngu.
Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Staðsetjið vasa á framstykki ca 9-10-11-12-13-14 cm frá neðri brún og 8-9-10-11-12-13 cm frá miðju að framan (mátið flíkina og staðsetjið vasa eftir eigin ósk), saumið vasalokið í efsta kantinn með lykkjuspori. Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (59)

country flag Lillian wrote:

Hei igjen, Jeg henviser til mitt forrige spørsmål da jeg ikke finner bystmålet i oppskriften. Der hvor man feller til armene er det oppgitt antall masker, men jeg lurer på cm. Har dere mulighet til å finne ut for meg (i str. M og L)? På forhånd takk! Mvh L.T.

01.02.2022 - 11:19

DROPS Design answered:

Hei Lillian, Du finner en skisse i bunnen av oppskriften, med alle målene til de forskjellige størrelsene . God fornøyelse!

02.02.2022 - 08:24

country flag Lillian Torjusson wrote:

Hei, Jeg er usikker på hvilken størrelse som passer til meg siden bystmålet ikke er oppgitt.. Er den det samme som målet helt nederst (30-43- etc.) ? Normalt bruker jeg M eller L. Hvilken størrelse har modellen på bildet? Takk! Mvh Lillian

31.01.2022 - 11:49

DROPS Design answered:

Hei Lillian. På denne modellen har det ikke blitt oppgitt brystmål, kun mål nederst og øverst. Men det øverste målet - 2 masker (som felles til ermhull) gir en fin indikasjon på brystmålet. Modellen har på seg str. S eller M. mvh DROPS Design

31.01.2022 - 14:58

country flag Raïsa wrote:

Beschrijving voorpand: "Brei tot een hoogte van 46-48-49-51-52-54 cm, zet 9-9-9-10-10-10 st op een hulpdraad voor hals (zet ze op hulpdraad aan einde van nld aan goede kant zonder ze eerst te breien). Kant dan af aan begin van elke nld langs hals (= verkeerde kant): 2 keer 2 st, 4 keer 1 st = 26-29-33-36-40-45 st over op schouder." Ik begrijp niet wat ik moet doen. Kant af aan begin van elke naald?

10.02.2021 - 15:58

DROPS Design answered:

Dag Raïsa,

Aan de kant van middenvoor (dus bij de hals) zet je 9-9-9-10-10-10 st op een hulpdraad. Je breit dan verder heen en weer en elke keer als je begint aan de kant van de hals, kant je af zoals beschreven. Dus de eerst 2 steken, dan nog een keer 2 steken , dan 1 keer 4 steken.

12.02.2021 - 13:23

country flag Provost Anita wrote:

Bonjour, pour un pull en jerzey hyper doux sur la peau, que me conseillez vous ? - KID SILK avec autre laine pour tricoter avec N° 5 -Brushed Alpaca silk seul ou avec une autre laine en N° 5 est ce que le mohair ou l'alpaca perd plus ses poils ? je ne connais pas vos laines et je me remets au tricot merci pour vos réponses BIEN CORDIALEMENT

25.10.2020 - 17:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Provost, pour toute assistance au choix d'une laine, contactez directement un de nos magasins DROPS, même par mail ou téléphone, on saura vous donner des conseils personnalisés en fonction de ce que vous recherchez. Bon tricot!

26.10.2020 - 08:50

country flag Geneviève wrote:

Bonjour, pour les épaules vous indiquez : "tricoter 1 "côte" mousse. Rabattre" je suppose que cela veux dire 1 rang mousse et rabattre ensuite, ce qui fait que l'on voit les 2 rangs mousse lorsque l'assemblage épaule est fait, ce qui n'est pas discret. est-ce exact ? Cordialement

07.10.2015 - 18:32

DROPS Design answered:

Bonjour Geneviève, le modèle a été ainsi conçu, avec 2 côtes mousse au niveau des épaules (1 pour le devant et 1 pour le dos), mais vous pouvez tout à fait ajuster à votre goût. Bon tricot!

08.10.2015 - 09:24

country flag Hanneke wrote:

Ik heb niet begrepen of alleen de boordjes en zakflapjes met dubbel garen gebreid worden of het hele vest? Staat niet duidelijk in t patroon. Verder begrijp ik niet waarom gekozen wordt voor een rondbreinaald voor de panden? Groet, Hanneke

18.11.2013 - 21:24

DROPS Design answered:

Hoi Hanneke. Het hele vest wordt met een dubbele draad gebreid. Het staat in het patroon (bijvoorbeeld ACHTERPAND): Zet 64-70-78-86-96-106 st op (incl. 1 kant st aan elke kant) met rondbreinld 4.5 mm en 1 draad BabyAlpaca Silk en 1 draad Kid-Silk (= 2 draden). . We kiezen om heen en weer te breien op een rondbreinld omdat je veel meer st kwijt kan op een rondbreinld. Maar je mag natuurlijk ook kiezen voor een rechte naald als het kan en je dat prettiger vindt.

19.11.2013 - 14:33

country flag E V Geest wrote:

Leuk model jammer van de mouwen zo laag . waarom is er geen breipatroon van een Chanel vest/jasje mis ik wel

26.01.2013 - 11:41

country flag H.Verdonkschot wrote:

Leukmodel, maar waarom die afhangende schouders?

25.01.2013 - 19:20

country flag DOUSSON wrote:

Avez-vous des modèles des années 1970 créés par Sonia RYKIEL. Merci de votre réponse et meilleurs voeux 201 3.

15.01.2013 - 12:46

country flag Karin wrote:

Coco Chanel - Name

13.01.2013 - 19:16