DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Romantic

Prjónaður bolero úr DROPS BabyAlpaca Silk prjónaður frá hlið með gatamynstri. Stærð S - XXXL

DROPS 146-3
DROPS Design: Mynstur nr bs-034
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
250-250-250-300-350-350 gr litur nr 1760, ljós gráfjólublár

DROPS PRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l og 32 umf með gatamynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í 2 hlutum og er saumað saman við miðju að aftan. Síðan er prjónaður upp kantur með stroffprjóni í kringum op á bolero.

HÆGRI HLIÐ:
Fitjið upp 110-110-110-119-119-119 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk – prjónið fram og til baka. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið nú stroff (= 1 l sl, 2 l br) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓNI – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm er fækkað í næstu umf frá réttu, allar 2 l br verða 1 l br = 74-74-74-80-80-80 l. Skiptið yfir á prjóna nr 3 og prjónið 1 umf brugðið frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 24-24-22-26-23-23 l jafnt yfir = 50-50-52-54-57-57 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 2-2-3-4-0-0 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir A.1 þar til eftir eru 3-3-4-5-1-1 l, endið á 2-2-3-4-0-0 l sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-8-8-9-9-11 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 9-7-7-6-6-5 umf millibili, 12-14-15-16-16-18 sinnum til viðbótar = 76-80-84-88-91-95 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inni í mynstur, þær l sem ekki ganga upp í mynstur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 43 cm í öllum stærðum er sett 1 prjónamerki í hvorri hlið – héðan er nú mælt!
Fellið nú af í annarri hliðinni á stykkinu (= framstykki) JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í hinni hliðinni á stykkinu (= við bakstykki) þannig:

FRAMSTYKKI:
Fellið af í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í byrjun hverrar umf frá réttu): Fellið af 4 l 3 sinnum, 3 l 2 sinnum, 2 l 4-4-5-6-7-8 sinnum og 1 l 6-8-8-9-7-7 sinnum, fellið nú af í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í byrjun á annarri hverri umf frá réttu): Fellið af 1 l 6-6-6-5-7-7 sinnum.
BAKSTYKKI:
Fitjið upp nýjar l í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í lok hverrar umf frá réttu): Fellið af 2 l 4-5-6-6-7-7 sinnum og 1 l 8-8-8-10-11-13 sinnum, síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í lok annarrar hverrar umf frá réttu): Fellið af 1 l 2 sinnum.

Eftir úrtöku og útaukningu eru 56-60-64-68-72-76 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm eru settar 9 l alls 5 sinnum á þráð neðst niðri á bakstykki og upp við hnakka í annarri hverri umf (þ.e.a.s í byrjun hverrar umf frá röngu – l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráð) = 11-15-19-23-27-31 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og setjið til baka allar l frá þræði á prjóninn jafnframt er umf prjónuðu út frá réttu = 56-60-64-68-72-76 l. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 12-12-12-14-14-16 l jafnt yfir = 68-72-76-82-86-92 l. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l og fellið af. Jakkinn hefur nú verið prjónaður að miðju baki, þ.e.a.s. hálfa leið.

VINSTRI HLIÐ:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri hlið, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. að fellt er af á framstykki í byrjun umf frá röngu (í stað frá réttu). Fitjaðar eru upp nýjar l við bakstykki í lok umf frá röngu (í stað frá réttu) og lykkjur eru settar á þráð á bakstykki í byrjun hverrar umf frá réttu (í stað frá röngu).

FRÁGANGUR:
Saumið stykkin tvö saman fyrir miðju að aftan.
Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju upp að prjónamerki.
Prjónið upp l meðfram opi á jakkanum – þ.e.a.s. upp meðfram hægra framstykki, aftan við hnakka, niður meðfram vinstra framstykki og síðan meðfram bakstykki þannig: Prjónið upp frá réttu ca 250-330 l á hringprjóna nr 2,5 og prjónið í hring þannig: Prjónið 1 umf brugðið, prjónið nú 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir að 279-288-297-315-333-351 l. Prjónið nú stroff (= 1 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 2 cm er aukið út þriðja hver br mynstureining að 3 l br = 310-320-330-350-370-390 l. Endurtakið útaukningu þegar kanturinn mælist 6 og 9 cm, en færið til útaukninguna þannig að næsta br mynstureining eykst í 3 l br = 372-384-396-420-444-468 l. Eftir síðustu umf með útaukningu er 1 l sl, 3 l br allan hringinn. Fellið nú laust af með sl yfir sl og br yfir br – ATH: Til þess að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja eða 12. hverja lykkju, uppslátturinn er felldur af eins og lykkja.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.03.2014
FRÁGANGUR: Saumið stykkin tvö saman fyrir miðju að aftan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = uppsláttur á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Chet Woods wrote:

I can't find a size chart for this pattern (146-3). Something to equate a S M or L to something measurable?

30.12.2020 - 20:00

DROPS Design answered:

Dear Chat Woods! Please look at the measurements drawing at the end of the pattern. Helpful video "How to read a schematic drawing" here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=17

31.12.2020 - 01:37

country flag Combes wrote:

Bonjour, Je suis en train de faire le col. Combien de cm dois je tricoter après les augmentations à 9 cm ? Combien de cm d'épaisseur en tout le col doit il faire à la fin ? Merci

28.06.2020 - 20:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Combes, après la dernière augmentation, vous tricotez encore 1 tour en côtes 1 maille endroit/3 mailles envers et rabattez au tour suivant. Bon tricot!

29.06.2020 - 08:41

country flag Elvira wrote:

Hallo ich brauche Hilfe, ich fertige gerade Ärmel für Bolero an und komme bei weitem nicht nach 13 Zunahmen auf 43 cm . Warum LG Elvira

09.05.2020 - 21:16

DROPS Design answered:

Liebe Elvira, stimmt Ihre Maschenprobe in der Höhe? Wenn nur noch einpaaar cm fehlt, stricken Sie einfach weiter wie zuvor über alle Maschen. Viel Spaß beim stricken!

11.05.2020 - 09:38

country flag Combes wrote:

Merci pour votre réponse. Je suis à 43 cm de hauteur totale mais je n'ai pas encore atteint mon épaule, je n'ai pas finis les augmentations, j'en suis à 8 sur 15. Est ce que c'est normal ? Si je dois rabattre je ne peux plus faire les augmentations sur le devant mais uniquement derrière c'est ça ?

26.04.2020 - 00:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Combes, vous devez augmenter 15 fois tous les 7 rangs (= soit environ tous les 2 cm environ), à 43 cm vos augmentations doivent être terminées. Vérifiez bien votre tension en hauteur (sur la base de 32 rangs = 10 cm). Bon tricot!

27.04.2020 - 08:52

country flag Combes wrote:

Je ne suis pas sur de bien comprendre. D'après le schéma on commence par l'extrémité de la manche avec des côtes mais il faut monter 110 mailles pour une taille M ce qui représente 55 cm. C'est beaucoup trop pour une manche alors je dois me tromper quelque part. Avec les aiguilles de 2,5 combien de cm représente 110 mailles ? Merci

09.04.2020 - 19:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Combes, les 110 m tricotées en côtes seront moins large car il faut plus de mailles en côtes qu'en jersey pour la même largeur, les côtes du bas des manches sont un peu évasées (cf 2ème photo par ex). Après les côtes, on va diminuer en 2 temps et on continuera la manche sur 50 mailles seulement. Vérifiez bien votre échantillon jersey, si vous avez bien 20 m x 32 rangs avec les aiguilles les plus grosses, votre tension devrait être bonne avec des aiguilles d'1/2 numéro plus fines. Bon tricot!

14.04.2020 - 09:05

country flag Emily Rasely wrote:

Hi, I'm excited to knit this, but I can't figure out the sizing? I understand that the diagram numbers are written in cm, but I'm not clear on what parts of the garment the various numbers measure. Thanks for your help!

27.03.2020 - 21:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rasely, the chart shows the half of piece, ie from bottom of sleeve to mid back/front (= 65 to 70 cm, depending on the size). Measure a similar garment you have and like the size to find the matchign size. Read more here about sizing. Happy knitting!

30.03.2020 - 08:53

country flag Anja wrote:

Hei Lurer på hvordan man beregner størrelsen på denne? Mvh Anja

15.11.2019 - 18:00

DROPS Design answered:

Hej Anja, Nederst i opskriften finder du måleskitsen fra midten af ryggen og ud over ærmet, med alle aktuelle mål. God fornøjelse!

19.11.2019 - 13:34

country flag Sanni Taalikka wrote:

Miksi hiha neulotaan kaikissa koissa yhtä pitkäksi? Neuloin boleron itselleni ja haastavien kavennusten ja hihojen yhteenompelun jälkeen totesin, että boleron hihat ovat minulle aivan liian lyhyet! Ne ovat vain 3/4 hihat nyt, ja joudun purkamaan suurimman osan työstä jos haluan ne pidemmiksi. Malli näyttää erilaiselta pitkä- ja lyhytkätisille. :(

26.04.2017 - 15:51

DROPS Design answered:

Hei! Ennen neulomisen aloittamista on aina hyvä tarkistaa neuleen valmiit mitat mittapiirroksesta ja verrata omiin mittoihin. Olethan tarkistanut, että neuletiheytesi täsmää? Tässä mallissa esim. hihojen joustinneuletta voisi pidentää.

04.05.2017 - 16:44

country flag Barbara wrote:

Hallo liebes Garnstudio-Team! Ich würde dieses zauberhafte Modell gerne mit DROPS Alpaca doppelfädig stricken, da so das Muster besser zur Geltung kommt. Könnt ihr mir sagen, wieviel Mehrverbrauch an Wolle ich dadurch etwa haben werde? (Größe M) Herzlichen Dank

27.01.2016 - 10:29

DROPS Design answered:

Bei diesem Modell können Sie den Faden nicht einfach doppelt nehmen, dann wird die Maschenprobe nicht mehr passen und außerdem würde das Strickbild dann sehr fest. Baby Alpaca Silk und Alpaca gehören in dieselbe Garngruppe, Sie können also Alpaca statt Baby Alpaca Silk verwenden, aber dann auch nur einfädig. Beide Garne haben die gleiche Lauflänge, daher können Sie einfach die gleiche Menge Garn nehmen.

02.02.2016 - 12:48

country flag Marina wrote:

In der Anleitung steht bei der Zunahme Muster anpassen. Wie mache ich dies am besten? Danke für die Hilfe.

05.10.2015 - 09:11

DROPS Design answered:

Sie stricken die zugenommenen M so weit es geht folgerichtig im Muster, aber die M, die nicht im Muster aufgehen, stricken Sie glatt rechts. Sobald dann genug M für das Muster vorhanden sind, stricken Sie diese wieder im Muster.

07.10.2015 - 10:31