Charlotte skrifaði:
Hade man kunnat sticka tröjan utan att göra knapphål?
29.10.2023 - 15:03DROPS Design svaraði:
Hei Charlotte. Det kan man fint gjøre. Les godt igjennom oppskriften og tilpass bakstykket uten stolper. mvh DROPS Design
30.10.2023 - 13:20Margaret Sapir skrifaði:
I tried the Long Beach sweater and it is too difficult for me at the moment. I am thinking of making w-456 without the sleeves. Do you have any suggestions? Thank you.
16.01.2017 - 15:42DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Sapir, read the whole written pattern before and look at the related videos (you'll find them at the bottom of the page + under tab "videos"). Should you need any personnal assistance, you are welcome to contact your DROPS store even per mail or telephone. Happy knitting!
16.01.2017 - 16:55
Renee De Ronde skrifaði:
Waarom wordt de voorbies en de kantsteek ook niet even uitgelegd ? Dit is wel het geval met de eenvoudige ribbelsteek.
29.04.2016 - 13:26DROPS Design svaraði:
Hoi Renee. Er staat in het patroon: brei 1 kant st aan zijkant en 4 voorbies st richting middenachter in ribbelst tot het werk klaar is. Bovenaan het patroon staat hoe je ribbelsteek moet breien.
02.05.2016 - 11:08
Laura skrifaði:
Sind die Mengenangaben zu diesem Modell denn mittlerweile korrigiert oder bestelle ich alles so wie es für die Größe M angegeben ist plus ein Knäuel "Paris" obendrauf? Ich würde ungern nachbestellen müssen. Lieben Dank im Voraus für eine Antwort!:)
07.12.2015 - 23:24DROPS Design svaraði:
Die Mengenangaben wurden bislang nicht geändert, bestellen Sie daher eher ein Knäuel mehr. Wenn die Maschenprobe leicht abweicht, kann es sein, dass Sie etwas mehr Garn brauchen.
22.12.2015 - 09:55Ximena Cortez skrifaði:
Las franjas en que punto som. Todo es derecho?
30.03.2015 - 00:47Ximena Cortez skrifaði:
Las franjas en que punto som. Todo es derecho?
30.03.2015 - 00:33DROPS Design svaraði:
Hola Ximena, se trabaja en pt jersey: una fila de derecho, una fila de revés
04.04.2015 - 21:06
Anne skrifaði:
Auch ich musste ein Knäuel "Paris" nachbestellen. Es wäre schön, wenn die Angabe berichtigt würde. Ansonsten macht die Verarbeitung Freude.
29.03.2015 - 18:49
Margarete Krüger skrifaði:
Die Wolle für dieses Modell läßt sich toll verarbeiten, aber die Mengenangabe der Wolle stimmt bei mir nicht. Ich mußte mir ein Knäuel Garn für einen Preis von 2€ für 4,90€ Versand dazu bestellen. Aergerlich.
15.03.2014 - 13:17
Margarete Krüger skrifaði:
Laut Anleitung soll mit "1 Faden Paris" angeschlagen werden. Heisst das im Umkehrschluss dass das Garn Cotton Viscose mit 2 Fäden gestrickt wird, zumal die Maschenprobe bei diesem Garn anders ausfällt als bei Paris
20.02.2014 - 19:33DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Krüger, Sie stricken beide Qualitäten nur mit 1 Faden, beide Qualitäten mit derselben Nadelstärke. Cotton Viscose fällt also einfach etwas lockerer als mit der auf der Banderole empfohlenen Nadelstärke. Viel Spaß beim Stricken!
20.02.2014 - 20:46
CNH skrifaði:
Der wird genial! Schönes Designerteil. Endlich mal!!!
01.02.2013 - 20:40
Johanna#johannasweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Paris og DROPS Cotton Viscose. Stærð S - XXXL.
DROPS 147-37 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: Prjónið * 2 umf Cotton Viscose, 2 umf Paris *. Endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum á vinstra bakstykki. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti sléttar saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. ATH: Fellt er af fyrir síðast hnappagatinu þegar 2 umf eru eftir af kanti. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 4, 12, 20, 28 og 36 cm. STÆRÐ M: 4, 13, 21, 30 og 38 cm. STÆRÐ L: 4, 13, 22, 31 og 39 cm. STÆRÐ XL: 4, 14, 23, 32 og 41 cm. STÆRÐ XXL: 4, 14, 23, 33 og 42 cm. STÆRÐ XXXL: 4, 14, 24, 34 og 44 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. HÆGRA BAKSTYKKI: Fitjið upp 47-50-53-57-62-67 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið og 4 kantlykkjur við miðju að aftan) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið sléttprjón, en 1 kantlykkja í hlið og 4 kantlykkjur við miðju að aftan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka, JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af 1 l sem merkir handveg, fellið af í byrjun næstu umf frá réttu. Þegar stykkið mælist 37-39-40-42-43-45 cm, fellið af 9-9-9-10-10-10 l við miðju aftan við hálsmál. Nú er fellt af í byrjun hverrar umf frá röngu fyrir hálsmáli: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum, 1 l 1 sinni = 29-32-35-38-43-48 l eftir á öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 þegar stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm (passið uppá að síðasta rönd er Cotton Viscose) og prjónið 2 umf garðaprjón með Paris. Fellið af þegar stykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm. VINSTRA BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra bakstykki, nema spegilmynd. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT í kanti við miðju að aftan – sjá útskýringu að ofan. FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 86-92-98-106-116-126 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið með garðaprjóni – jafnframt eru prjónaðar rendur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35-36 cm, fellið af 1 l sem merkir handveg í byrjun á 2 næstu umf = 84-90-96-104-114-124 l. Þegar stykkið mælist 37-39-40-42-43-45 cm, fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af í byrjun hverrar umf frá hálsi: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum, 1 l 1 sinni = 29-32-35-38-43-48 l eftir á öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 þegar stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm (passið uppá að síðasta röndin sé Cotton Viscose) og prjónið 2 umf garðaprjón með Paris. Fellið af þegar stykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 36-38-40-42-42-44 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af Paris. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið í garðaprjóni – jafnframt eru prjónaðar rendur. Þegar stykkið mælist 8-8-8-7-7-7 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 6½-5½-5-4½-3½-3 cm millibili, 5-6-6-7-8-9 sinnum til viðbótar = 48-52-54-58-60-64 l. Þegar stykkið mælist ca 45-44-43-42-40-37 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – passið uppá að síðasta röndin sé Cotton Viscose, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 2 umf í garðaprjóni með Paris. Fellið af þegar stykkið mælist ca 46-45-44-43-41-38 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 95-105 l með hringprjón nr 4,5. Prjónið 4 umf slétt með Paris og fellið af með sl frá röngu. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í . |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #johannasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.