DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9416.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Skagen

Prjónuð peysa, prjónuð ofan frá og niður með laskalínu úr DROPSFabel, DROPS Kid Silk og DROPS Glitter. Stærð S - XXXL

DROPS 148-17
DROPS Design: Mynstur nr fa-228
Garnflokkur A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
200-200-250-250-300-300 gr litur nr 340, bláa lónið
Og einnig:
DROPS KID SILK frá Garnstudio
100-100-125-125-150-150 gr litur nr 01, natur
Og einnig:
DROPS GLITTER frá Garnstudio
20 gr í allar stærðir (2 rúllur) litur nr 02, silfur:

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR NR 5,5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hverri tegund.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR NR 5 (80 cm) – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9416.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Prjónað fram og til baka: Aukið út um 1 l frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br.
Prjónað í hring á hringprjóna: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 2 l sl (prjónamerkið situr á milli þessa l), prjónið næstu 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er prjónað fram og til baka þar til fitjað hefur verið upp fyrir framstykki, síðan er prjónað í hring.

LASKALÍNA:
Fitjið upp 48-50-52-52-52-58 l á hringprjóna nr 5,5 með 1 þræði af hverri tegund.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið alla l brugðið. Setjið 1 prjónamerki 8-8-8-8-6-6 l inn frá hvorri hlið (= 8-8-8-8-6-6 l fyrir ermar í hvorri hlið, 32-34-36-36-40-46 l á bakstykki á milli prjónamerkja). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 l sl, * aukið út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki, aukið út um 1 l, prjónið 4 l sl (prjónamerki situr á milli þessa l), aukið út um 1 l, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki, aukið út um 1 l, prjónið 4 l sl (prjónamerki situr á milli þessa l), aukið út um 1 l *, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, aukið út um 1 l, prjónið 2 l sl = 6 l fleiri. Fitjið nú upp 4 l á prjóninn fyrir framstykki = 58-60-62-62-62-68 l á prjóni.
UMFERÐ 3: Prjónið brugðið, í lok umf eru fitjaðar upp 4 l = 62-64-66-66-66-72 l. Setjið 1 nýtt prjónamerki við 4 l inn frá hvorri hlið (= 4 l á framstykki í hvorri hlið, alls 4 prjónamerki í stykkinu).
UMFERÐ 4: Prjónið 6 l sl, (1. prjónamerkið er staðsett eftir 4 fyrstu l), endurtakið frá *-* frá umf 2, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan síðasta prjónamerki, aukið út um 1 l, prjónið 6 l sl (síðasta prjónamerkið er staðsett á undan 4 síðustu l) = 6 l fleiri. Fitjið upp 4 l = 72-74-76-76-76-82 á prjóni.
UMFERÐ 5: Prjónið allar l brugðið, í lok umf eru fitjaðar upp 4 l = 76-78-80-80-80-86 l (= 8 l á framstykki í hvorri hlið).
UMFERÐ 6: Prjónið 10 l sl, (1. prjónamerki er staðsett eftir 8 fyrstu l), endurtakið frá *-* frá umf 2, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan síðasta prjónamerki, aukið út um 1 l, prjónið 10 l sl = 6 l fleiri (síðasta prjónamerkið er staðsett á undan 8 síðustu l). Fitjið upp 11-12-13-13-15-18 l = 93-96-99-99-101-110 l á prjóni.
UMFERÐ 7: Prjónið brugðið, í lok umf eru fitjaðar upp 11-12-13-13-15-18 l = 104-108-112-112-116-128 l á prjóni (= 19-20-21-21-23-26 l á framstykki í hvorri hlið, 38-40-42-42-46-52 á bakstykki og 14-14-14-14-12-12 l á hvorri ermi).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú stykkið í hring þannig:
UMFERÐ 1: * Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki, aukið út um 1 l, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), aukið út um 1 l *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum), prjónið þær l sem eftir eru sl = 8 l fleiri.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Aukið síðan alveg eins út um 8 l í umf – þ.e.a.s. aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki í annarri hverri umf 10-11-12-17-20-21 sinnum til viðbótar (alls 11-12-13-18-21-22 útaukningar á framstykki), síðan í 4. hverri umf alls 3-3-3-1-0-0 sinnum. Þegar útaukningu er lokið eru 216-228-240-264-284-304 l á prjóni (= 66-70-74-80-88-96 l á fram- og bakstykki, 42-44-46-52-54-56 l á hvorri ermi). ATH: Setjið 1 prjónamerki við miðju á framstykki (merkir framstykki sem hefur styttri laskalínu).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring.
Prjónið 66-70-74-80-88-96 l á framstykki, * setjið næstu 42-44-46-52-54-56 l (= ermi) á þráð.
Fitjið upp 6-8-10-12-14-16 l fyrir handveg *, prjónið næstu 66-70-74-80-88-96 l á bakstykki, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 144-156-168-184-204-224 l á prjóni.
Prjónið nú sléttprjón yfir allar l. ATH: Setjið 1 nýtt prjónamerki við miðju undir vinstri handveg, þ.e.a.s. á milli 6-8-10-12-14-16 nýju l fyrir handveg (= byrjun umf), setjið 1 nýtt prjónamerki við miðju undir hægri handveg, þ.e.a.s. á milli 6-8-10-12-14-16 nýjar l fyrir handveg (= hlið) = 72-78-84-92-102-112 l á milli prjónamerkja. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 52-54-55-57-58-60 cm alls á hæðina (mælt á bakstykki) setjið 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 22-28-28-36-38-46 l á framstykki. Prjónið nú fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið að 1. prjónamerki á undan miðju l á framstykki, setjið næstu 22-28-28-36-38-46 l á þráð, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br yfir allar l á prjóni.
UMFERÐ 3: Prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, setjið síðustu 3 l á þráð, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið br þar til 3 l eru eftir á prjóni, setjið síðustu 3 l á þráð, snúið við.
Setjið nú l í lok hverrar umf í hvorri hlið á þráð alveg eins þannig: 3 l 0-0-1-1-3-4 sinnum til viðbótar (alls 1-1-2-2-4-5 sinnum), 2 l 10-10-10-10-9-8 sinnum alls = 2 l eftir á undan hverju prjónamerki í hlið.
Setjið nú allar l af þræði á sama hringprjóninn = 144-156-168-184-204-224 l á prjóni eins og áður. Prjónið nú í hring til loka. Í næstu umf er skipt yfir á hringprjóna nr 5, prjónið sl – JAFNFRAMT er aukið út um 36-40-44-48-52-56 l jafnt yfir í umf = 180-196-212-232-256-280 l. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stroffið mælist 6 cm eru allar lykkjur felldar laust af með sl yfir sl og br yfir br, stykkið mælist ca 70-72-74-76-78-80 cm alls á bakstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna nr 5,5. Fitjið upp 3-4-5-6-7-8 l á sokkaprjóna með 1 þræði af hverri tegund, prjónið upp 42-44-46-52-54-56 l af þræði frá ermi, fitjið upp 3-4-5-6-7-8 l á sokkaprjóna = 48-52-56-64-68-72 l alls (= 6-8-10-12-14-16 l fyrir handveg). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). ATH: Stykkið er mælt héðan.
Prjónið nú sléttprjón hringinn í 3 cm. Í næstu umf er fækkað um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING – hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið úrtöku með 5½-5-4-2½-2½-2 cm millibili 6-7-8-12-13-14 sinnum til viðbótar (alls 7-8-9-13-14-15 sinnum) = 34-36-38-38-40-42 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 40-39-39-38-38-37 cm. Í næstu umf er skipt yfir á sokkaprjóna nr 5, prjónið sl – JAFNFRAMT er aukið út um 10-8-10-10-12-10 l jafnt yfir í umf = 44-44-48-48-52-52 l. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stroffið mælist 6 cm, fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br, ermin mælist ca 46-45-45-44-44-43 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).

FRÁGANGUR:
Saumið saman undir ermum.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna nr 5. Byrjið við skiptinguna á milli bakstykkis og vinstri ermi, prjónið upp frá réttu ca 90-110 l í kringum allan kantinn við hálsmál með 1 þræði af hverri tegund. Í næstu umf er prjónað sl – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út að 80-88-92-96-100-108 l. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 2 cm.

Mynstur

symbols = prjónastefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skagen

Bettina, Denmark

Skagen

Bettina, Denmark

Skagen

Dominique, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Rene Gould wrote:

I don't like knitting with dpn is there any way I can stick to two needles

13.09.2020 - 00:50

DROPS Design answered:

Dear Rene, you can convert the pattern for using straight needles. You can find our lesson that will explain how to do it HERE . I hope that helps. Happy Knitting!

13.09.2020 - 23:16

country flag Agnieszka wrote:

Dear Drops Team, I wanted to knit this model with Fabel and Brushed Alpaca Silk, but whan I work on the sample I see that the Brushed Alpaca Silk is making the project very "furry" it takes a bit over the Fabel which is less visible (almost not at all actually- the color is lost). Is my feeling correct, is Brushed Alpaca Silk, that diffrent to Kid Silk, or is it just impression that will pass when the project is bigger? Best

15.01.2020 - 09:43

DROPS Design answered:

Dear Agnieszka, Brushed Alpaca Silk belongs to yarn group C while kid-Silk belongs to yarn group A (just as Fabel), so that you won't have same tension working with Fabel and Brushed Alpaca Silk (= A+C) or when workign with Fabel and Kid-Silk (A+A) and the Fabel colour will then automatically look different. Your DROPS store can provide you any further assistance choosing the best matching yarn, even per mail or telephone. Happy knitting!

15.01.2020 - 09:57

country flag Erika wrote:

¿Como hago este patrón solo con dos agujas en vez de con agujas circulares? Muchas gracias

01.09.2019 - 03:21

DROPS Design answered:

Hola Erika! Tienes que ver la leccion DROPS Puedo adaptar un patrón para agujas circulares y tejerlo con agujas rectas? Buen trabajo!

02.09.2019 - 17:17

country flag Agnieszka wrote:

Dzień dobry Gdybym chciała zrobić ten sweter tylko z włóczki Fabel, używając 2 nici, to ile będę potrzebować na rozmiar S? Pozdrawiam

08.10.2018 - 07:35

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko! Jeśli chcesz wykonać ten sweter podwójną nitką włóczki Fabel, w rozmiarze S będziesz potrzebować 400 g tej włóczki. Miłej pracy!

08.10.2018 - 19:39

country flag Winnie wrote:

Hej, jeg vil gerne strikke denne. Jeg har en masse Baby Merino. Kan jeg bruge det? Kan jeg strikke med dobbelt garn? Har prøvet at lave en strikkeprøve med dbl. garn og p.7, det gav den brede og højde som er anbefalet på garnet. på forhånd tak :-)

24.10.2017 - 10:07

DROPS Design answered:

Hei Winnie. Garnet som er brukt i 148-17 er DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk, begge disse kvalitetene tilhører garngruppe A, den same garngruppen som DROPS Baby Merino. Så ja, du kan bruke 2 tråder DROPS Baby Merino istedenfor DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Bare husk å omregne hvor mye DROPS Baby Merino du trenger ut fra den garnmengden som er oppgitt i oppskriften. God Fornøyelse!

24.10.2017 - 13:05

country flag Åse Johansson wrote:

I slutet står det "byt till stickor 5 och öka samtidigt x maskor för att sticka resår" Varför öka? I de flesta beskrivningar brukar man minska för resåren. Kan ni förklara?

09.08.2017 - 08:49

DROPS Design answered:

Hei Åse. I tidligere/gamle oppskrifter var nok motebildet litt annerledes og man ønsket en stram vrangbord. Når man nå strikker et plagg der det økes på vrangborden, vil vrangborden trekke seg sammen naturlig og det vil bli penest, mener vi.

09.08.2017 - 10:53

country flag Frid wrote:

Oppskrift "Skagen", Modell nr fa-228: På slutten av 2. pinne står det "Nå legges det opp 4 m på p til forsk". Skal man legge det opp på slutten av pinnen? Skjønner ikke.

05.12.2016 - 20:56

DROPS Design answered:

Hej Frid. Du strikker frem og tilbage, saa naar du er faerdig med 2. p, vender du og legger de 4 m op i starten af p. Saa strikker du 3. p og naar du er faerdig med den legger du 4 m op igen, denne gang i den anden ende af p.

06.12.2016 - 15:21

country flag Anna Maria wrote:

Non riesco a capire come vanno inseriti i segnapunti nel ferro3,grazie.

07.12.2015 - 15:49

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna Maria. Quando ha finito il ferro 3, inserisce due nuovi segnapunti: uno dopo le prime 4 m, l’altro prima delle ultime 4 m. Lascia nella stessa posizione gli altri 2 segnapunti già presenti. In tutto deve avere 4 segnapunti. Buon lavoro!

07.12.2015 - 16:27

country flag Huguenet wrote:

Bonjour, pour le drops 148-17 pouvez_vous m'expliquer en détail le rang 2 et 3 pour la position des marqueurs Dans l'attente de votre reponse Salutations

30.07.2015 - 16:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Huguenet, les marqueurs sont placés au 1er rang, où on tricote à l'env sur l'envers en plaçant 1 marqueur à 8-8-8-8-6-6 m de chaque côté (on a ainsi 32-34-36-36-40-46 m entre les marqueurs pour le dos). Pour les rangs 2 et 3 voir réponse précédente ci-dessous. Bon tricot!

30.07.2015 - 16:19

country flag Huguenet wrote:

Je voudrais tricoter le pull drops design modele n fa -228 skagen mais impossible de comprendre le rang n 2 et 3 concernant comment faire les augmentations et à quel endroit du rang Dans l'attente de votre réponse . Salutations

26.07.2015 - 21:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Huguenet, tricotez le rang 2 ainsi (sur l'endroit): 2 m end, *1 jeté (= 1 augm.), tricotez à l'endroit jusqu'à ce qu'il reste 2 m avant le marqueur suivant, 1 jeté, 2 m end, marqueur, 2 m end, 1 jeté, continuez à l'endroit jusqu'à ce qu'il reste 2 m avant le marqueur suivant, 1 jeté, 2 m end, marqueur, 2 m end, 1 jeté* tricotez à l'end jusqu'à ce qu'il reste 2 m, 1 jeté, 2 m end = 6 augm. Montez 4 m. Au rang 3, tricotez toutes les mailles à l'env (les jetés torse à l'env) et montez 4 m à la fin du rang). Bon tricot!

27.07.2015 - 17:52