DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Calista

Prjónuð ermalaus peysa úr DROPS Cotton Light eða DROPS Belle með gatamynstri. Stærð S - XXXL

DROPS 148-14
DROPS Design: Mynstur nr cl-011
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
500-550-600-650-700-800 gr litur nr 23, ljós bleikfjólublár

Eða notið:
DROPS BELLE frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 gr litur nr 12, kirsuber

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með gatamynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) og SOKKAPRJÓNAR (2 stk) NR 3 – fyrir stroff og belti.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum innan við 11 síðustu l í hvorri hlið (= framkantur + 1 l). Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 11 l þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan 11 l þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 316-316-368-368-436-436 l (meðtaldar eru 10 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig:
STÆRÐ S + M:
Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br (= kantur að framan), prjónið A.1 (= 14 l), prjónið A.2 (= 30 l) alls 2 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 (= 30 l) alls 2 sinnum, prjónið A.1 alls 2 sinnum, A.2 alls 2 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 alls 2 sinnum, A.1 einu sinni og endið með 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl og 2 l GARÐAPRJÓN (= kantur að framan).
STÆRÐ L + XL:
Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br (= kantur að framan), prjónið A.1 (= 14 l) alls 2 sinnum, prjónið A.2 (= 30 l) alls 2 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 (= 30 l) alls 2 sinnum, prjónið A.4 (= 52 l), A.2 alls 2 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 alls 2 sinnum, A.1 alls 2 sinnum og endið með 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl og 2 l GARÐAPRJÓN (= kantur að framan).
STÆRÐ XXL + XXXL:
Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br (= kantur að framan), prjónið A.1 (= 14 l), prjónið A.2 (= 30 l) alls 3 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 (= 30 l) alls 3 sinnum, prjónið A.1 alls 2 sinnum, A.2 alls 3 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 alls 3 sinnum, A.1 (= 14 l) og endið með 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl og 2 l GARÐAPRJÓN (= kantur að framan).
ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með stroff þar til mynstrið hefur verið prjónað á hæðina (látið prjónamerki fylgja með í stykkinu), stykkið mælist ca 4 cm og nú eru 228-228-267-267-312-312 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf frá röngu með sl yfir sl og br yfir br. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig:
STÆRÐ S + M:
Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, A.5 (= 10 l), prjónið A.6 (= 21 l) alls 2 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 (= 21 l) alls 2 sinnum, prjónið A.5 alls 2 sinnum, prjónið A.6 alls 2 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 alls 2 sinnum, prjónið A.5 (= 10 l) og endið með 10 kantlykkjum að framan eins og áður.
STÆRÐ L + XL:
Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, A.5 (= 10 l) alls 2 sinnum, prjónið A.6 (= 21 l) alls 2 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 (= 21 l) alls 2 sinnum, prjónið A.8 (= 39 l), prjónið A.6 alls 2 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 alls 2 sinnum, prjónið A.5 alls 2 sinnum og endið með 10 kantlykkjum að framan eins og áður.
STÆRÐ XXL + XXXL:
Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, A.5 (= 10 l), prjónið A.6 (= 21 l) alls 3 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 (= 21 l) alls 3 sinnum, prjónið A.5 alls 2 sinnum, prjónið A.6 alls 3 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 alls 3 sinnum, prjónið A.5 (= 10 l) og endið með 10 kantlykkjum að framan eins og áður.
ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm eru prjónaðar 2 umf fram og til baka einungis yfir síðustu 10 l í annarri hliðinni á stykkinu (þ.e.a.s. einungis yfir kantlykkjur að framan, aðrar l eru ekki prjónaðar), snúið við, prjónið 1 umf mynstur eins og áður yfir allar l og endurtakið þetta síðan yfir síðustu 10 l í hinni hliðinni (þetta er gert til þess að hálsmálið leggist betur að). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið við miðju að framan fyrir hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku fyrir hálsmáli í hvorri hlið í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu), 4-4-14-13-12-12 sinnum til viðbótar og síðan í 6. hverri umf alls 6-6-1-2-3-3 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm skiptist stykkið við prjónamerki og fram- og bakstykki er nú prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 104-104-123-123-146-146 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermar í lok hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 5 l alls 3 sinnum og síðan 8-10-8-10-8-10 l 1 sinni = 150-154-169-173-192-196 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.6/A.7. Þegar búið er að auka út allar l er haldið áfram með mynstur eins og áður en síðustu 4 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (í stærðum S + L + XXL endar mynstrið á 2 l br innan við 4 l í garðaprjóni í hvorri hlið og í stærðum M + XL + XXXL endar mynstrið með 2 l sl innan við 4 l í garðaprjóni í hvorri hlið).
Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm eru felldar af miðju 20-20-29-29-30-30 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 64-66-69-71-80-82 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur með 1 l garðaprjón við hálsmál og 4 l garðaprjón við ermi (þær l sem ekki ganga upp í mynstur við hálsmál eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm er fellt laust af. Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram með mynstur og úrtöku fyrir hálsmáli eins og áður. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf í hlið eins og á bakstykki. Eftir að úrtöku er lokið fyrir hálsmáli eru 74-76-79-81-90-92 l eftir á prjóni (þær l sem ekki ganga upp í mynstur við hálsmál eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm eru felldar af síðustu 64-66-69-71-80-82 l á öxl = 10 l eftir á prjóni fyrir hálsmáli. Haldið áfram með stroff eins og áður en síðustu l við hálsmál eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar hálsmálið mælist ca 7-7-9-9-10-10 cm frá öxl eru l settar á þráð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið saman kant við hálsmál við miðju að aftan – saumið l fyrir l með lykkjuspori og saumið kantinn við hálsmál að aftan við hnakka.

BELTI:
Fitjið upp 4 l á sokkaprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle. Prjónið 1 umf slétt, * færið l til hægri á prjóninum án þess að snúa við, herðið á þræðinum á bakhlið og prjónið 1 umf slétt frá sömu hlið eins og fyrri umf *, endurtakið frá *-* (með þessu er hægt að prjóna hringlaga snúru í sléttprjóni án þess að prjóna br lykkjur). ATH: Til þess að snúran verði jöfn er nauðsynlegt að herða vel á þræðinum á bakhlið í hverri umf sem er prjónuð. Þegar snúran mælist ca 150-200 cm klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær 4 l sem eftir eru, herðið að og festið vel.
Þræðið beltið upp og niður í gegnum götin í mynstrinu – mátið peysuna til þess að ná fram réttri staðsetningu.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l br saman
symbols = engin l, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = prjónið 3 l sl, steypið fyrstu l sem prjónuð var yfir hinar tvær svo að hún lyggi utanum tvær síðustu l á hægri prjóni (= 1 l færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Calista

@magdalena.muller.716

Calista

Adrien, Hungary

Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (46)

country flag Lies wrote:

Moet ik eerst met 228 steken boordsteek breien en dan het patroon van 148-14 ?

14.04.2016 - 17:12

DROPS Design answered:

Hoi Lies. Je breit eerst 1 nld av aan de verkeerde kant en dan brei je volgens de beschrijving voor je gekozen maat (bijvoorbeeld maat S of M): 2 st in RIBBELST – zie uitleg boven, 2 st r, 2 st av, 2 st r, 2 st av (= voorbies), brei A.1 (= 14 st), brei A.2 (= 30 st) 2 keer in totaal, plaats 1 markeerder (= zijkant), brei A.3 (= 30 st) 2 keer in totaal, brei A.1 2 keer in totaal, A.2 2 keer in totaal, plaats 1 markeerder (= zijkant), brei A.3 2 keer in totaal, A.1 een keer en eindig met 2 st av, 2 st r, 2 st av, 2 st r en 2 st in RIBBELST (= voorbies).

15.04.2016 - 10:01

country flag Kirsten wrote:

Bei den Abnahmen für den Halsausschnitt steht, dass die Abnahmen 4-4-14-13-12-12 x wiederholt werden sollen. Das erscheint mir für die Größen L-XXXL extrem viel.

19.01.2016 - 10:14

DROPS Design answered:

Es ist richtig, wie es dort steht. Denn dafür nehmen Sie in den kleineren Größen anschließend etwas öfter in jeder 6. R ab als in den größeren Größen, so relativiert sich das wieder.

24.01.2016 - 20:50

country flag Debbie wrote:

In the graphs for 148-14 Calista, it shows a black box - translated to no stitch, skip this square..... Do you just slip that stitch or just ignore that box in the pattern and continue with the next stitch. Example 7a k2, p2, k1, yo, p2, black box here ??????

20.06.2015 - 15:16

DROPS Design answered:

Dear Debbie, on previous row you have dec 1 st, so that this st doesn't inc anymore on this row, make a YO as shown in diagram and work the sts as in diagram, on next row, the st is "back" there, then will be dec again etc... ie on row 1 in A.7 work: K2, P2, K1, YO, K1, P2, (skip the black box), K5, ... Happy knitting!

22.06.2015 - 10:23

country flag Sissi Hark wrote:

Hallo, welches Lochmuster wird für die Maschenprobe benötigt? Vielen Dank vorab.

13.06.2015 - 09:43

DROPS Design answered:

Die machen Sie am besten im Muster A.6 oder A.7.

15.06.2015 - 21:17

Mervat wrote:

Hi ... what should i do if i want to make long sleeve?? thank you

14.04.2015 - 16:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mervat, you can cast on more sts for the sleeves (figure out how many extra sts depening on how long you like the sleeves - remember to make sure you will have enough yarn) - you can get help from a similar pattern with long sleeves or contact your DROPS store for any individual assistance. Happy knitting!

15.04.2015 - 08:42

country flag Zahide wrote:

Ik zou deze vest met Drops Safran en met lange mouwen willen breien. Hoe doe ik dit?

08.10.2014 - 00:05

DROPS Design answered:

Hoi Zahide. DROPS Safran is dunner dan de Cotton Light, dus je zou waarschijnlijk het patroon opnieuw moeten berekenen voor de juiste afmetingen. Verder moet je meer steken opzetten voor de mouwen. Je kan het doen met hulp van de stekenverhouding, maar heb je hier weinig ervaring mee zou ik aanraden om dit niet te doen of hulp te krijgen van iemand die het wel kan. Succes.

09.10.2014 - 13:51

country flag ANNA wrote:

Continuare a coste in questo modo fino a quando il diagramma è stato lavorato in verticale, il lavoro misura circa 4 cm e ci sono 228-228-267-267-312-312 m. sul f.: COME E' POSSIBILE CHE LE MAGLIE SIANO MENO DI QUELLE DELL'AVVIO? NON SONO STATE FATTE DIMINUZIONI! PER LA TAGLIA XL AVEVO MONTATO 368 MAGLIE ORA DOVREBBERO ESSERE 267..... IL SITO E' BELLISSIMO, GRAZIE. ANNA

09.05.2014 - 10:59

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna. Il numero delle maglie passa da 368 a 267 quando lavora l'ultima riga dei diagrammi A1, A2, A3 e A4. In quest'ultima riga infatti, in corrispondenza dei triangolini neri, deve lavorare 2 m insieme a dir. In questo modo si riduce il numero complessivo delle m. Ci riscriva se ancora in difficoltà. Buon lavoro!

09.05.2014 - 12:37

country flag Winnie Søgaard Thomsen wrote:

Hej. jeg kan godt forstå et en side som jeres har reklamer, men jeg bliver lidt irriteret over hver gang jeg vil printe en opskrift ud , printes der automatisk en reklame for sokkelicious ud. det koster en krig i blæk til ingen verdens nytte.Jeg er ellers meget glad for jeres sider, som jeg har brugt rigtig meget. venlig hilsen winnie

27.02.2014 - 12:17

DROPS Design answered:

Hej Winnie. Du kan altid vaelge det antal sider du vil printe ud naar din printmenu kommer frem. Paa den maade behöver du ikke at printe reklamerne ud.

27.02.2014 - 16:10

country flag Marga Franke wrote:

Heel hartelijk dank! Ik maak gewoon een denkfout! Het vestje wordt super! Gr. Marga

05.10.2013 - 22:56

country flag Marga Franke wrote:

Bij het minderen van de hals staat in het patroon het volgende: "herhaal dit minderen voor de hals aan elke kant elke 4e nld ( dus om de nld aan de goede kant ) nog 13 keer (maat xl.)" Dit spreekt elkaar tegen, elke 4 e nld is echt niet OM de nld. Kunt u mij vertellen wat het moet zijn??? Maakt voor de lengte en de vorm van de hals nog wel wat uit! Met vr.gr., Marga.

02.10.2013 - 20:18

DROPS Design answered:

Hoi Marga. Het patroon is correct. Om de naald aan de goede kant is elke 4e nld (als je de naalden op de verkeerde kant meetelt).

03.10.2013 - 10:53