Tuija skrifaði:
Kerrassaan upea ... neulon heti kun ohje tulee !!!
09.01.2013 - 19:26
Eva Karoliussen skrifaði:
Kjempefin :)
09.01.2013 - 18:12
Marian skrifaði:
Super flot
09.01.2013 - 15:10
Barbara skrifaði:
Molto adatto alla mia mole. comprente nei punti giusti. dal colore sobrio ed elegante.
08.01.2013 - 18:37
Marina skrifaði:
Molto elegante!!
08.01.2013 - 18:05
Rikke Nielsen skrifaði:
Farvoritten
08.01.2013 - 15:32
Waltraud skrifaði:
"Sparziergang am Strand" ist mein Namensvorschlag.
07.01.2013 - 23:17
Waltraud skrifaði:
"Spaziergang am Meer" ist mein Namensvorschlag.
07.01.2013 - 22:52
Nicole skrifaði:
Elegancia
07.01.2013 - 21:22
Katherine Junhager skrifaði:
Urläcker den vill jag sticka
07.01.2013 - 12:27
Allison#allisoncardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Viscose og DROPS Kid Silk með gatamynstri og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 145-1 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ATH: Allar kantlykkjur í hliðum eru prjónaðar í garðaprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 - A.5, mynsturteikning sýnir allar umf í 1 mynstureiningu í mynstri séð frá réttu. Mynstrið er mismunandi í stærð S- M - XL/XXL - XXXL, eintakið á myndinni er í stærð M. STUTTAR UMFERÐIR: HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónaðar eru stuttar umferðir með 5 cm millibili á hæðina þannig: Prjónið 18 kantlykkjur að framan frá réttu, snúið við og prjónið sl til baka. Prjónið nú yfir allar l í umf eins og áður. STUTTAR UMFERÐIR: VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónaðar eru stuttar umferðir með 5 cm millibili á hæðina þannig: Prjónið 18 kantlykkjur að framan frá röngu, snúið við og prjónið sl til baka. Prjónið nú yfir allar l í umf eins og áður. HNAPPAGAT: Fellt er af frá réttu fyrir 1 hnappagati í kanti að framan í hægra framstykki. 1 HNAPPAGAT = prjónið 5 l sl frá miðju að framan, fellið af næstu 2 l. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær sem felldar voru af. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 109-117-125-133-151-159 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 5. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm (1. umf = rétta). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 18-22-26-30-18-22 l sléttprjón, prjónið A.5A 1 sinni, * A.1, A.5 * , endurtakið frá *-* alls 2-2-2-2-4-4 sinnum, prjónið A.1 og síðan A.5B 1 sinni, 18-22-26-30-18-22 l sléttprjón, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur 18-22-26-30-18-22 l í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið A.1 alls 3 sinnum á hæðina – en í síðustu umf frá röngu (= umf 12) er lykkjum fækkað í hverri mynstureiningu A.1 þannig: Prjónið fyrstu 2 l slétt saman, 6 l sl, 1 l br, 6 l sl, prjónið síðustu 2 l slétt saman (2 færri l í hverri mynstureiningu A.1 = 15 l eftir) = 103-111-119-127-141-149 l á prjóni. Prjónið nú A.2 á milli kaðla. Prjónið A.2 alls 3 sinnum á hæðina – en í síðustu umf frá röngu (= umf 10) er lykkjum fækkað í hverri mynstureiningu A.2 þannig: Prjónið fyrstu 2 l slétt saman, 5 l sl, 1 l br, 5 l sl, prjónið síðustu 2 l slétt saman (2 færri l í hverri mynstureiningu A.2 = 13 l eftir) = 97-105-113-121-131-139 l á prjóni. Prjónið nú A.3 á milli kaðla. Prjónið A.3 alls 2 sinnum á hæðina – en í síðustu umf frá röngu (= umf 8) er lykkjum fækkað í hverri mynstureiningu A.3 þannig: Prjónið fyrstu 2 l slétt saman, 4 l sl, 1 l br, 4 l sl, prjónið síðustu 2 l slétt saman (2 færri l í hverri mynstureiningu A.3 = 11 l eftir) = 91-99-107-115-121-129 l á prjóni. Nú mælist stykkið ca 39 cm. Prjónið nú A.4 á milli kaðla til loka. Þegar stykkið mælist 41-43-44-46-47-49 cm eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermi í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 16-14-12-10-10-8 l í lok næstu 2 umf = 123-127-131-135-141-145 l. Prjónið næstu umf þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 30-32-34-36-24-26 l sléttprjón, prjónið mynstur eins og áður, 30-32-34-36-24-26 l í sléttprjóni, endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið nú áfram með mynstur við miðju að aftan með 30-32-34-36-24-26 l sléttprjón og 5 l garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið A.4 alls 11-12-13-14-15-16 sinnum á hæðina (stykkið mælist ca 67-70-73-75-78-80 cm, endið á síðustu umf í A.4). Í næstu umf frá réttu (1. umf í A.4) fellið af miðju 15 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er fellt af 1 l = 53-55-57-59-62-64 l eftir að öxl. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni (= 6 umf) fellið laust af allar l (það verða alls 12-13-14-15-16-17 mynstureiningar A.4 á hæðina), stykkið mælist ca 70-73-75-78-80-83 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 60-64-68-72-81-85 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið) með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 5. Prjónið garðaprjón í 3 cm (1. umf = rétta). Stærð S – XL: Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 18 l garðaprjón (= kantlykkjur að framan), prjónið A.1 og A.5B 1 sinni, 18-22-26-30 l í sléttprjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur með 18-22-26-30 l sléttprjón í hlið og 18 kantlykkjur við miðju að framan. Stærð XXL og XXXL: Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 18 l garðaprjón (= kantlykkjur að framan), prjónið A.1 og A.5 1 sinni og A.5B 1 sinni, 18-22 l í sléttprjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur með 18-22 l sléttprjón í hlið og 18 kantlykkjur við miðju að framan. Allar stærðir: Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram að prjóna mynstur á sama hátt og á bakstykki og fækkið um 2 l í gatamynstri alveg eins og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið (= alls 6-6-6-6-12-12 l færri) verða 54-58-62-66-69-73 l á prjóni. Haldið áfram með A.4 og kaðla með styttri umf til loka. Þegar stykkið mælist 41-43-44-46-47-49 cm eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermi þannig: Í lok næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 16-14-12-10-10-8 l = 70-72-74-76-79-81 l. Prjónið næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 30-32-34-36-24-26 l sléttprjón, prjónið mynstur eins og áður, endið með 18 kantlykkjum að framan. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm. Fellið nú af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 49-51-52-54-55-57 cm. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrstu 17 kantlykkjur að framan = 53-55-57-59-62-64 l eftir. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (hún sýnir hvar byrja á að prjóna upp kragann). Haldið áfram með mynstur eins og áður með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. Prjónið A.4 alls 12-13-14-15-16-17 sinnum á hæðina. Fellið laust af allar l, stykkið mælist ca 70-73-75-78-80-83 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd – þ.e.a.s. prjónið A.5A í stað A.5B – og án hnappagata. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðar- og ermasauma í eitt innan við 1 kantlykkju. SJALKRAGI: Prjónið upp l frá réttu innan við 1 kantlykkju á hringprjóna nr 4,5 – byrjið við miðju að framan við prjónamerki á hægra framstykki þannig: Prjónið upp ca 50-60 l upp að öxl, prjónið síðan ca 20 l meðfram hálsmáli og 50-60 l niður vinstra framstykki að prjónamerki = 120-140 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn meðfram vinstra framstykki jafnaður að 45-47-49-51-53-55 l, kringum hálsmál að 22 l, meðfram hægra framstykki að 45-47-49-51-53-55 l = 112-116-120-124-128-132 l. Prjónið nú stroff í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 1 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til kraginn mælist ca 5 cm. Aukið nú út um 1 í hverja af miðju 12-12-12-14-14-14 brugðnu einingunum séð frá réttu (= aftan við hnakka) = 124-128-132-138-142-146 l. Haldið áfram með stroff þar til kraginn mælist ca 10 cm, fellið síðan laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br. Saumið kragann neðst niðri í hvorri hlið við framkantinn frá röngu (svo að saumurinn sjáist ekki frá réttu) – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölu í vinstri kanti að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #allisoncardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.