DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nadine

Prjónað vesti, prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni úr DROPS Muskat með gatamynstri í hliðum. Stærð S - XXXL

DROPS 145-2
DROPS Design: Mynstur nr r-628
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Vegna lögunar og teygjanleika á flíkinni kemur vestið til með að teygjast um 6 til 8 cm samanber mál á teikningu þar sem mælt er.

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
350-400-400-450-500-550 gr litur nr 08, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 19 l og 38 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum frá réttu þannig.
Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri við miðju að aftan).

MÆLING:
Öll mæling er gerð þegar stykkið liggur flatt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fram- og bakstykki eru prjónuð fram og til baka, hvert fyrir sig niður og að handveg, síðan eru allar l settar á sama hringprjón. Prjónað er fram og til baka frá miðju að framan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 l á hringprjóna nr 5 með Muskat.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 6-8-10-6-8-10 cm – LESIÐ MÆLING, aukið út um 1 l fyrir v-hálsmáli við miðju að framan með því að prjóna 2 l í fyrstu l í byrjun umf (séð frá réttu). Endurtakið útaukningu með 2½ cm millibili (þ.e.a.s. í 10. hverri umf í garðaprjóni), 9-9-9-11-11-11 sinnum til viðbótar (= alls 10-10-10-12-12-12 útaukningar).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-9-8-8-8-11 cm – MUNIÐ EFTIR MÆLING, aukið út um 1 l í hlið við handveg með því að prjóna 2 l í síðustu l á prjóni (séð frá réttu). Endurtakið útaukningu með 3-2½-2-2-1½-1 cm millibili, 2-4-6-7-10-13 sinnum til viðbótar (= alls 3-5-7-8-11-14 útaukningar).
Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm (útaukningu við handveg á að vera lokið), fitjið upp 3-3-3-4-4-5 nýjar l í lok umf í hlið (ekki við miðju að framan). Handvegurinn er nú prjónaður og aukið hefur verið út um 6-6-5-7-7-7 l fyrir v-hálsmáli við miðju að framan (þ.e.a.s. nú eru eftir 4-4-5-5-5-5 útaukningar fyrir v-hálsmáli við miðju að framan). Stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25 cm og það eru 32-36-39-43-48-54 l á prjóni. Setjið l á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, en aukið út fyrir v-hálsmáli í lok umf (séð frá réttu) og aukið út fyrir handveg í byrjun umf (séð frá réttu).

BAKSTYKKI:
Vinstri öxl:
Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 l á hringprjóna nr 5 með Muskat.
Prjónið 6 umf garðaprjón og byrjið á réttu. Klippið frá og geymið stykkið.
Hægri öxl:
Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 l á hringprjóna nr 5 með Muskat.
Prjónið 6 umf garðaprjón og byrjið frá réttu, fitjið upp 20-20-20-24-24-24 l í lok næstu umf frá röngu = 40-42-44-48-50-52 l. Prjónið inn l frá vinstri öxl á sama hringprjóna = 60-64-68-72-76-80 l. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-9-8-8-8-11 cm frá öxl er aukið út um 1 l í fyrstu og síðustu l í umf. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið með 3-2½-2-2-1½-1 cm millibili, 2-4-6-7-10-13 sinnum til viðbótar (= alls 3-5-7-8-11-14 útaukningar í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm (útaukningu á nú að vera lokið), fitjið upp 3-3-3-4-4-5 nýjar l í lok 2 næstu umf. Handvegurinn á nú að vera prjónaður, stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25 cm og það eru 72-80-88-96-106-118 l á prjóni. Klippið frá.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið inn l af hægra og vinstra framstykki á sama hringprjón og bakstykki = 136-152-166-182-202-226 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 2 prjónamerki í stykkið, í 32.- 36.- 39.- 43.- 48.- 54. l inn frá hvorri hlið (= 72-80-88-96-106-118 l á milli l með prjónamerki á bakstykki). JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki við miðju að aftan (þ.e.a.s. mitt á milli 2 prjónamerkja í hliðum svo að það verða 36-40-44-48-53-59 l hvoru megin við þetta prjónamerki). Byrjið við miðju að framan og haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka í 4-2-3-2-3-3 cm JAFNFRAMT er haldið áfram eins og áður með útaukningu í hvorri hlið við miðju að framan fyrir v-hálsmáli.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Næsta umf frá réttu er prjónuð (útaukningu fyrir v-hálsmáli heldur áfram eins og áður) þannig: Prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir á undan fyrstu l með prjónamerki (= í hlið), prjónið A.1 (= 5 l), prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki (= miðja að aftan), fellið af 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 l færri), prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki (= á hlið), prjónið A.1 (= 5 l) og prjónið síðan sl út umf.
Haldið svona áfram með mynstur (hafið í huga að aukið er út í A.1 – sjá mynstur og að útaukningarnar fyrir v-hálsmáli halda áfram þar til aukið hefur verið út alls 10-10-10-12-12-12 sinnum í hvorri hlið við miðju að framan), JAFNFRAMT er fækkað um 2 l við miðju að aftan í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 31-36-36-36-36-38 sinnum til viðbótar (= alls 32-37-37-37-37-39 úrtökur við miðju að aftan) og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 10-10-10-12-12-12 sinnum.
Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 2-3-3-2-2-2 sinnum á hæðina er prjónað A.2 í hvorri hlið (í stað A.1, aðrar l eru prjónaðar áfram eins og áður). Þegar A.2 hefur verið prjónað alls 2-2-2-3-3-2 sinnum á hæðina er prjónað A.3 í hvorri hlið (í stað A.2). Þegar A.3 hefur verið prjónað alls 2-2-2-2-2-3 sinnum á hæðina og á eftir síðustu úrtöku við miðju að aftan eru 228-254-270-290-310-338 l í umf og stykkið mælist ca 32-33-34-35-36-37 cm frá þeim stað þar sem öll stykkin voru sett saman. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er í 1. umf í A.3 prjónað í hvorri hlið svo að mynstrinu ljúki fallega, fellið nú LAUST af með sl frá röngu. Stykkið mælist nú ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt beint niður frá öxl (hliðarnar eru lengri vegna útaukninga sem gefur auka vídd og lengd).

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði af Muskat ca 100-120 cm.
Leggið 2 þræðina saman, dragið þá í gegnum síðustu l á öðru framstykkinu (nákvæmlega í skiptingunni þar sem útaukning fyrir v-hálsmáli endar). Gerið einn hnút í annan endann á báðum þráðunum. Tvinnið þá saman fast, leggið þá saman tvöfalt og látið þá tvinnast aftur saman. Gerið hnút á endann. Endurtakið eins á hinu framstykkinu. Hnýtið vestið saman við miðju að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, uppslátturinn er prjónaður slétt frá röngu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (102)

country flag Gail wrote:

I have tried this pattern twice and want to love it, but no matter how I read the pattern I end up with the back piece staying virtually the same width, so the lace pattern starts to run down the side of the back, not the sides. The many double decreases keep the back from increasing as I go down. What am I missing?

27.01.2023 - 20:39

DROPS Design answered:

Dear Gail, the stitch with the marker on the sides should be the middle stitch in diagram (the one with the double decrease) - after A.1 has been worked once, repeat A.1 the same way, the stitch with the marker should be still the middle stitch in A.1 and continue like this (remember to decrease on mid back). A.1 should stay nicely on the sides, same then when working A.2 and A.3. Happy knitting!

30.01.2023 - 08:27

country flag Maureen Maitland wrote:

How do I prevent the bulging outwards at the mid-back decrease where lightly pressing did not help?

16.09.2020 - 00:29

DROPS Design answered:

Dear Maureen, try wet-blocking the piece. Thoroughly soak it in lukewarm water, then press out as much water as you can (roll teh piece into a thick towel and press again) and then on a flat surface shape it into the form according to the drawing. Happy crafting!

17.09.2020 - 05:28

country flag Emmi wrote:

Nun habe ich aufgegeben die Weste zu stricken. Im Rücken habe ich keine Beule mehr, aber dafür einen Sack. Also wieder alles aufgeribbelt. Nochmals stricke ich nicht. Schade.

06.08.2020 - 12:24

DROPS Design answered:

Liebe Emmi, gerne können Sie Ihr DROPS Laden Ihr Strickstück zeigen (auch per Mail), sicher kann man dort weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

06.08.2020 - 16:46

country flag Emmi wrote:

Liebes Drops-Team, habe diese Weste gestrickt, aber leider ist im Rücken durch die Abnahmen in der Mitte eine Beule entstanden. Jetzt bleibt mir nur aufribbeln und nochmals versuchen. Soll ich besser in jeder 4. Reihe und dann in jeder 6. Reihe abnehmen?

13.06.2020 - 22:07

DROPS Design answered:

Liebe Emi, am besten zeigen Sie Ihr Strickstück Ihrem DROPS Laden, so kann man Ihnen am besten weiterhelfen - gerne können Sie auch in unserem DROPS Workshop auch mal andere Drops-fans/Strickerinen fragen. Viel Spaß beim stricken!

15.06.2020 - 09:11

country flag Heidrun wrote:

Hallo, ich möchte dieses seitl. Muster gerne bei einem Pullover stricken. Ist es da sinnvoll, die hinteren Abnahmen aufzuteilen und hinten und vorne mittig anfangs jede 4. Reihe und später jede 8. Reihe abzunehmen? Leider sieht man auf dem Foto nur die Seite. Ist die Weste durch die Abnahmen hinten kürzer als vorne?

20.02.2020 - 10:26

DROPS Design answered:

Liebe Heidrun, Rücken- und Vorderteile werden genauso lang, nur die Seiten werden (wegen Abnahmen) länger - siehe Maßskizze- leider können wir nicht jedes Modell nach jedem individuellen Wunsch umrechnen; wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, gerne bekommen Sie dort weitere Hilfe. Viel Spaß beim stricken!

20.02.2020 - 10:37

country flag Grosse, Uta wrote:

Kann man auch die hintere mittige Abnahme weglassen?

02.07.2016 - 17:04

DROPS Design answered:

Liebe Uta, wenn Sie die hintere Abnahme weglassen, erhalten Sie sehr viele Maschen und ich vermute, dass dies keine schöne Passform ergibt.

06.07.2016 - 08:41

country flag Vigdis wrote:

Vest: Nadine Jeg følger oppskriften, der det står at jeg skal felle 2 masker midt på ryggen annen hver omgang 32 ganger. Det blir da en bul på ryggen. Skal det være slik, eller er det feil i oppskriften?

30.06.2016 - 13:27

DROPS Design answered:

Hej Vigdis. Der burde ikke komme nogen bule paa ryggen. Jeg kan desvaerre ikke se hvad du evt gör fejl.

10.11.2016 - 16:22

country flag Sabine wrote:

Chade das die Anleitungen hier immer sehr schrwierig zu verstehen sind für mich. Die erst zunahme in den drei diagramm, sind das 2 umschläge direkt hintereinander, ohne masche dazwischen? Ich komme mit den diagramm nicht klar weil das Umschlag symbol genau immer zwischen 2 maschen sitzt. Ich verstehe bzw weiß nicht wie ich dann in den folgenden reihen stricken muss (wieviel maschen zwischen den umschläge sind. Bei reihe 3 von diagramm A.1 sind das 3 maschen zwischen den umschläge oder 1??

27.05.2016 - 13:52

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, die Umschläge sind nicht direkt hintereinaner, sondern - wie Sie auch schreiben - immer zwischen 2 Maschen. Die Umschläge werden in den folgenden Reihen wie eine Masche gestrickt (im Muster wird ja der Umschlag durch eine Abnahme ausgeglichen, wenn nicht insgesamt zugenommen werden soll).

30.05.2016 - 09:24

country flag Marta wrote:

Teneis un diccionario de abreviaturas?

09.04.2016 - 12:14

DROPS Design answered:

Hola Marta. En el apartado Tips y Ayuda (en la parte superior de la pagina) hay un glosario de las abreviaturas utilizadas en los patrones.

10.04.2016 - 17:14

country flag Marta wrote:

Me encanta el modelo. pero no entiendo absolutamente nada las explicaciones. ¿de verdad es tan complicado? me gustaría hacerlo para mi sobrina

09.04.2016 - 12:11

DROPS Design answered:

Hola Marta. ¿Puedes especificar que parte del patrón no tienes claro? Tambíen puedes acudir a la tienda de Drops para que te ayuden.

10.04.2016 - 17:19