Anita skrifaði:
Jammer om zo'n mooi garen te gebruiken voor dit simpele model
19.12.2012 - 07:56
Anita skrifaði:
Jammer om zo'n mooi garen te gebruiken voor dit simpele model
19.12.2012 - 07:56
Cilla skrifaði:
I like
18.12.2012 - 18:36
Mandale skrifaði:
Sehr schön
17.12.2012 - 03:00
Mariette Abramsson skrifaði:
Blue, snygg till jeans
15.12.2012 - 15:39Micha skrifaði:
Tage am Meer
14.12.2012 - 21:04
Mariette Minis skrifaði:
Prachtige kleuren voor een frisse zomeravond
14.12.2012 - 20:27
Eva skrifaði:
Name: Rapsody in blue
13.12.2012 - 20:06
Annette skrifaði:
Den MÅ jeg strikke. Skøn farve og rigtig sød.
13.12.2012 - 00:10
Eva skrifaði:
Skønne farver, god at hoppe i de lange sommeraftener
12.12.2012 - 19:17
Summer skies#summerskiessweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk og DROPS BabyAlpaca Silk með löngum lykkjum og garðaprjóni. Stærð S-XXXL
DROPS 145-11 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 80-89-98-107-116-125 l á prjóna nr 5 með 1 þræði af Kid-Silk + 1 þræði af Baby Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 3 umf slétt. Prjónið síðan 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 10-11-12-13-14-15 l jafnt yfir (prjónið 7. hverja og 8. hverja l slétt saman) = 70-78-86-94-102-110 l. Næsta umf er prjónuð (= rétta) þannig: Prjónið 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 3 l eru eftir og endið með 3 l GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er 1 prjónamerki sett í hvora hlið (merkir lengd á op/klauf). Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 53-54-55-56-57-58 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina, prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir allar l. Þegar stykkið mælist 55-56-57-58-59-60 cm er sett 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið (merkir byrjun á handveg). Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-70-72-74 cm. Setjið miðju 14-14-16-16-20-20 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af í byrjun hverrar umf frá hálsmáli: Fellið af 2 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum = 21-25-28-32-34-38 l eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm og fellið laust af. Endurtakið eins á hinni öxlinni. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki, þegar stykkið mælist 14 cm (í stað 8 cm) er sett 1 prjónamerki í hvora hlið sem merkir lengd á op/klauf (bakstykki er 6 cm lengra en framstykki). Þegar stykkið mælist 59-60-61-62-63-64 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar l. Þegar stykkið mælist 61-62-63-64-65-66 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið sem merkir byrjun á handveg. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm. Fellið nú af miðju 24-24-26-26-30-30 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í byrjun næstu umf frá hálsmáli= 21-25-28-32-34-38 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm og fellið laust af. Endurtakið eins á hinni öxlinni. ERMI: Fitjið upp 38-38-38-38-40-40 l á prjóna nr 5 með 1 þræði af Kid-Silk + 1 þræði af Baby Alpaca Silk. Prjónið 8 umf í garðaprjóni JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 4 l jafnt yfir = 34-34-34-34-36-36 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1-1-1-1-2-2 l garðaprjón, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 1-1-1-1-2-2 l eru eftir og prjónið síðustu l í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 7-7-7-7-6-6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið með 7-6-4½-4-4-3 cm millibili, 6-7-9-10-10-12 sinnum til viðbótar = 48-50-54-56-58-62 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur, en eru prjónaðar í garðaprjóni þar til þær ganga upp í mynstur. Þegar stykkið mælist 53-51-50-49-48-46 cm er fellt laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermar í á milli prjónamerkja á fram-og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði sléttur – saumið niður að prjónamerki sem merkir lengd á opi/klauf (þ.e.a.s. bakstykkið er lengra en framstykki). HÁLSMÁL: Byrjið fyrir miðju að aftan og prjónið upp ca 70 til 90 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af Kid-Silk + 1 þræði af Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umf brugðið, 1 umf slétt og 1 umf brugðið, fellið nú laust af með sl. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerskiessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.