Roely Hospers-Hensums skrifaði:
Model nr. ab-035, laatste zin bij de mouw, losjes afkanten enz enz.,9minder cm. voor de grootste enz.) is hier het cm. aantal vergeten?
27.01.2013 - 19:23DROPS Design svaraði:
Je moet afkanten bij een hoogte van 15-14-13-12-11-10 cm, en daarna hebben we het uitleg gegeven waarom de mouw korter korter is voor de grootste maten
28.01.2013 - 22:08
Brigitte Buscher skrifaði:
Finde ich sehr schön möchte ich gern nachstricken
13.01.2013 - 14:37
Bente Kvarsnes skrifaði:
Lurer på når denne blir lagt ut, for jeg er klar med garn til å lage den og venter og venter
11.01.2013 - 18:40
Henriëtte Post skrifaði:
Mooie trui en zou deze graag breien, leuk voor de lente als het nog wat koeler is
10.01.2013 - 15:30
MARGARET BOYLAN skrifaði:
I will try this one looks very nice for wearing with leggings.
08.01.2013 - 16:58
Chantal skrifaði:
Idéal modèle vaporeux pour se protéger d'une légère brise de printemps
04.01.2013 - 19:26
Thaeron skrifaði:
Nom proposé : sable ajouré
03.01.2013 - 15:39
Eve skrifaði:
Flott, tragbar für alle Altersklassen, allein oder mit etwas darunter
02.01.2013 - 18:24
Helga skrifaði:
Das Teil ist schön
31.12.2012 - 16:23
Olívia skrifaði:
Tambem gosto
31.12.2012 - 02:05
Breeze#breezetunic |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð tunika úr DROPS Alpaca Bouclé. Stærð S - XXXL.
DROPS 146-22 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-204-220-236-256-276 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé. Prjónið stroff þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Prjónið stroff í 6 cm. Í næstu umf er prjónað sl yfir allar l – JAFNFRAMT er fækkað um 32-32-36-36-36-40 l jafnt yfir umf = 160-172-184-200-220-236 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 80-86-92-100-110-118 l (= miðja í hlið), látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið A.1 hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 50-51-52-53-54-55 cm (endið á 8. eða 18. umf í A.1) prjónið 4 umf með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið nú A.2 hringinn. Þegar stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm fellið af 3-4-5-5-6-6 l hvoru megin við hvort prjónamerki fyrir handveg (= það eru þá 6-8-10-10-12-12 l færri í hvorri hlið), skiptið nú stykkinu og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 74-78-82-90-98-106 l. Haldið áfram með A.2 fram og til baka á prjóni – en síðasta l í hvorri hlið er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af miðju 18-20-20-22-22-24 l við háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsi = 26-27-29-32-36-39 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. FRAMSTYKKI: = 74-78-82-90-98-106 l. Haldið áfram með A.2 fram og til baka á prjóni – en síðasta l í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 61-63-65-66-68-70 cm fellið af við háls þannig: Fellið af miðju 8-8-8-10-10-10 l í næstu umf frá réttu. Fellið nú af í hverri umf frá hálsi þannig: Prjónið 2 l 2 sinnum, 1 l 3-4-4-4-4-5 sinnum = 26-27-29-32-36-39 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma innan við affellingarkantinn. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp frá réttu ca 50-60 l á hringprjóna nr 6 innan við 1 kantlykkju meðfram handveg (ekki yfir þær l sem felldar voru af). Í næstu umf frá röngu er prjónað br – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn jafnast út til 50-52-56-58-62-64 l. Prjónið A.1 (byrjið á 3. umf í mynstri) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2-3-3-3-4-4 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi (fyrir frágang). Þegar stykkið mælist 12-11-10-9-8-7 cm prjónið síðustu umf frá röngu slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 4-6-6-4-4-6 l jafnt yfir í umf = 54-58-62-62-66-70 l. Í næstu umf er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað stroff (2 l sl, 2 l br) með 1 l með garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið laust af allar l með br yfir sl og sl yfir br þegar stykkið mælist 15-14-13-12-11-10 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju - ATH: Sú eining sem prjónuð var á undan prjónamerki efst á ermi á að passa inn við úrtöku fyrir handveg. HÁLSMÁL: Stykkið er prjónað í hring. Prjónið upp frá réttu ca 90-100 l kringum hálsmál á hringprjóna nr 5 (40 cm). Í næstu umf er prjónað sl – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 84-92-92-100-108-108 l. Prjónið nú stroff (2 l sl, 2 l br) þar til kantur mælist ca 3 cm, fellið laust af allar l með br yfir sl og sl yfir br. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #breezetunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.