Suzanne skrifaði:
Hej! Det saknas diagram, A.1 och A.2, i mönsterbeskrivningen som ni hänvisar till. Mvh Suzanne
12.01.2013 - 09:53
Sara skrifaði:
Versatili
02.01.2013 - 13:59
Simone skrifaði:
Helt igennem skønne og sommerlige!
18.12.2012 - 20:51
Ela skrifaði:
Het model is leuk, maar ik denk dat ik ze met een dikker soort garen zou willen maken.
18.12.2012 - 00:18
Kerstin Bjornkleven skrifaði:
Dessa är ju bara MORMORSTOFFLOR fina är de
17.12.2012 - 07:42
B-M Lundkvist skrifaði:
Mkt. vackra
10.12.2012 - 16:15
Twisty#twistysocks |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með litlum köðlum úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 146-40 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 10-11-11 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 10-11-11 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 9-10-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 9-10-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið úrtöku áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 15-15-17 l eru eftir á prjóni. ÚRTAKA: Lykkjum er fækkað hvoru megin við lykkjur á fæti þannig: Byrjið 3 l á undan A.2 (eftir hæl) og prjónið 3 l snúnar slétt saman, þ.e.a.s. setjið hægri prjón í gegnum aftari hluta lykkjubogans á öllum 3 næstu l = 2 l færri. Eftir A.2 (næsta sinn sem A.2 er prjónað, þ.e.a.s. á undan hæl) prjónið 3 l slétt saman (ekki snúnar) = 2 l færri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. Byrjun umf = miðja að aftan. SOKKUR: Fitjið upp 59-59-63 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 5 l) yfir fyrstu 20 l, prjónið 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-5-6 sinnum, prjónið 2 l sl, 1 l br og endið með A.1 (= 5 l) yfir næstu 15 l. Haldið svona áfram með mynstur og stroff þar til stykkið mælist ca 2½ cm – passið uppá að síðasta umf er umf 2-4-6 eða 8 í A.1. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1: Haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 20 l, prjónið a.2 (= 7 l), prjónið sléttprjón yfir næstu 10-10-14 l JAFNFRAMT er aukið út um 2-4-4 l jafnt yfir þær, prjónið A.2 (= 7 l) og haldið áfram með A.1 yfir næstu 15 l = 61-63-67 l. UMFERÐ 2: Haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 20 l, aukið út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING, prjónið A.2, prjónið sléttprjón yfir næstu 12-14-18 l, prjónið A.2, aukið út um 1 l og haldið áfram með A.1 yfir næstu 15 l = 63-65-69 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. UMFERÐ 3: Haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 20 l, prjónið næstu 28-30-34 l eins og áður, setjið nú þessar 28-30-34 l á þráð (= ofan á fæti), haldið áfram með A.1 yfir næstu 15 l (= 35 l eftir á prjóni). Setjið 1 prjónamerki – héðan er nú mælt! Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir 35 l á prjóni fyrir hæl (allir kaðlarnir eru prjónaðir frá réttu). Þegar hællinn mælist 8-9-10 cm frá prjónamerki er lykkjufjöldinn jafnaður til í næstu umf frá röngu þannig: Stæð 35/37: Fækkið um 2 l jafnt yfir Stærð 38/40: Ekki er lykkjum fækkað/aukið út í þessari stærð Stærð 41/43: Aukið út um 2 l jafnt yfir = 33-35-37 l á hæl. Setjið 1 nýtt prjónamerki, héðan er nú mælt. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan (allar hællykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 21-23-26 l hvoru megin við hæl – prjónið upp l innan við síðustu l hvoru megin við hællykkjur og setjið 28-30-34 l til baka af þræði á prjóninn = 85-91-103 l. Haldið áfram með mynstur ofan á fæti eins og áður, lykkjur undir fæti eru prjónaðar áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT í 1. umferð eru prjónaðar 3 l á undan A.2 (þ.e.a.s. eftir hæl) saman og 3 l á eftir A.2 (þ.e.a.s. á undan hæl) eru prjónaðar saman – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umf 5-5-6 sinnum til viðbótar (= alls 6-6-7 úrtökur). Haldið nú áfram með úrtöku hvoru megin á fæti með því að prjóna 2 l á undan A.2 snúnar slétt saman og 2 l á eftir A.2 slétt saman (= 2 l færri). Endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umf 5-6-7 sinnum til viðbótar (= alls 6-7-8 úrtökur) = 49-53-59 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-23 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4 cm í öllum stærðum til loka). Prjónið slétt hringinn yfir allar l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 24-26-30 l ofan á fæti og 25-27-29 l undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa ), 2 l snúnar slétt saman – endurtakið úrtöku í hvorri hlið í annarri hverri umf, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 úrtökur) og síðan í hverri umf alls 6-7-8 sinnum = 9-9-11 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #twistysocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.