Chrystal by DROPS Design

Prjónaðir sokkar með gatamynstri úr DROPS Karisma. Stærð 35-43.

Leitarorð: gatamynstur, pífa, sokkar
DROPS 146-38
DROPS Design: Mynstur nr u-697
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm.
Hæð á sokk: 19-20-20 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
150 gr í öllum stærðum litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Prjónfesta – Sjá hvernig mæla á prjónfestu og afhverju hér
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------


100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Karisma uni colour DROPS Karisma uni colour 616.00 kr /50g
Handverkskúnst
Panta
DROPS Karisma mix DROPS Karisma mix 616.00 kr /50g
Handverkskúnst
Panta
needles Prjónar & Heklunálar Panta
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848kr. Sjá hér.

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 8-9-9 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 8-9-9 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 7-8-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 7-8-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið úrtöku áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 10-10-12 l eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 96-96-104 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið mynstur A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 48-48-52 l á prjóni. Haldið áfram með stroff 2 l sl, 2 l br í 1 cm, í síðustu umf með stroffi er aukið út um 0-0-2 l jafnt yfir = 48-48-54 l. Prjónið nú eftir A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað er prjónuð 1 umf þar sem fækkað er um 4-0-2 l jafnt yfir = 44-48-52 l. Prjónið 2 cm sléttprjón, stykkið mælist ca 14 cm. Haldið eftir fyrstu 24-26-28 l á prjóni fyrir hæl og síðustu 20-22-24 l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan!
Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 11-12-13 l hvoru megin við hæl og 20-22-24 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 52-56-62 l. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni – JAFNFRAMT er fækkað um lykkjur í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 fyrstu l á eftir 20-22-24 l ofan á fæti slétt saman og 2 síðustu l á undan 20-22-24 l ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 3-3-4 sinnum (alls 4-4-5 úrtökur) = 44-48-52 l. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl (= ca 4-4-5 cm til loka).
Setjið nú 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 22-24-26 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni - JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerki þannig: 3 l á undan prjónamerki : Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2), 2 l snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 3-3-4 sinnum og síðan í hverri umf alls 6-7-7 sinnum = 8 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
diagram

Vantar þig hjálp með þetta mynstur?

Takk fyrir að velja DROPS Design mynstur. Við erum stolt af því að bjóða mynstur sem eru rétt og auðveld að skilja. Öll mynstrin eru þýdd frá Norsku og þú getur alltaf skoðað upprunalega mynstrið (DROPS 146-38) til viðmiðunar og útreikninga.

Áttu erfitt með að fylgja mynstri? Sjá hér að neðan til að fá lista yfir úrræði til að hjálpa þér að klára verkefnið á skömmum tíma - eða af hverju ekki, læra eitthvað nýtt.

signature-image signature

Áttu erfitt með að fylgja mynstri? Sjá hér að neðan til að fá lista yfir úrræði til að hjálpa þér að klára verkefnið á skömmum tíma - eða af hverju ekki, læra eitthvað nýtt.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Við höfum einnig skref-fyrir-skref leiðbeiningar fyrir mismunandi aðferðir sem þú finnur hér.

1) Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

efst

2) Hvað er garnflokkur?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

efst

3) Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

efst

4) Hvernig nota ég garnreiknivélina?

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

efst

5) Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

efst

6) Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

efst

7) Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

efst

8) Hvað er endurtekning?

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

efst

9) Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

efst

10) Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

efst

11) Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

efst

12) Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

efst

13) Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

efst

14) Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

efst

15) Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

efst

16) Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

efst

17) Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

efst

18) Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

efst

19) Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

efst

20) Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

efst

21) Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

efst

22) Hvar á flíkinni er lengdin mæld?

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

efst

23) Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

efst

Hefur þú keypt DROPS garn til að gera til þetta mynstur? Þá átt þú rétt á að fá hjálp frá versluninni þar sem þú keyptir garnið. Finna lista yfir DROPS verlsanir hér!
Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga. Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Marit wrote:

Kosesokker Chrystal med Karismagarn. Da lurer eg på om mønster A skal begynne med 1 vrang 6 rette og så 2 vrange. derfor eg spør er fordi eg ikkje får det til å stemme.

02.02.2022 - 14:03

DROPS Design answered:

Hei Marit, Ja, du begynner med 1 vrang og deretter 6 rett , 2 vrang og avslutter omgangen med 6 rett og 1 vrang (96/8 = 12 så du får 12 rapporter av A.1 på omgangen). God fornøyelse!

03.02.2022 kl. 07:26

country flag Ferial wrote:

Allo encore moi...désolée...les mailles relevés sur les côtés...chez moi j ai du les relever a l envers...est ce ok?

06.01.2022 - 22:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ferial, je ne suis pas certaine de ce que vous entendeze par "à l'envers", cette vidéo montre à partir du time code 6:05 environ comment on va relever les mailles à gauche du talon. En espérant que cela puisse vous aider. Bon tricot!

07.01.2022 kl. 07:24

country flag Ferial AITAMEUR wrote:

Bonjour et bonne fete..je suis bloquée sur le diag A2....car en commencant le A2..j ai 12 mailles sur chaque aiguille mais apres le 4 ieme rand du A2...il me reste 11 mailles dur chaque aiguille....et fonc en arrivant au 8 ieme rand de A2 ( le jeté puis 1m glissé ;2m ensemble ;m glissé au dessus de maille tricoté)..je tricote 3m a l end...et quand je recommence (sur la meme aiguille)..il me reste juste 2 m a la fin...(donc 11 m)....je suis perdue....merci de l aide....

28.12.2021 - 06:45

DROPS Design answered:

Bonjour Madame, dans le diagramme A.2 le nombre de mailles ne change pas. Si vous avez moin de mailles, cela signifie, que vous avez peut-etre perdu un/des jetes dans la transition entre les aiguilles double pointes. Bon tricot!

28.12.2021 kl. 09:02

country flag Linda wrote:

Tere. Mustris on viga pärast kanna kudumist (peab olema "jalapealse 20-22-24"): Koo parempidises koes ringselt, SAMAL AJAL kahanda mõlemal küljel järgmiselt: koo pr kokku esimesed 2 silmust pärast jalapealse 44-48-52 silmuseid ja koo pr keerdsilmustena kokku 2 viimast silmuse enne jalapealse 20-22-24 silmust.

28.03.2021 - 18:51

country flag IRENE LUIRO wrote:

Miksi ei silmukkaluvut täsmää, ohjeen kanssa, onko ohjeessa virhe, teen sukkaa jossa alussa 96silmukkaa

28.10.2019 - 08:02

DROPS Design answered:

Hei, tarkistin ohjeen, mutta en löytänyt virhettä. Piirroksen A.1 mallineuleen aikana työstä kavennetaan yhteensä 48 silmukkaa: 96 - 48 = 48.

17.12.2019 kl. 17:21

country flag Sophie Trahan wrote:

Do we work pattern A1 from bottom up or top down?

16.12.2015 - 22:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Trahan, diagrams are read from bottom up starting at the bottom corner on the right side towards the left on every round - read more about diagrams here. Happy knitting!

17.12.2015 kl. 10:28

country flag Kemmers Mireille wrote:

Superbe modèle, très bien explqué

16.02.2015 - 12:24

country flag Andi wrote:

Dieses Modell habe ich bereits mit 2 verschiedenen Wollsorten gestrickt (flauschige und glatte Wolle) und beide Paare sehen toll aus! Allerdings habe ich auch jeweils die Fersen nach 'meinem' Muster gestrickt ;-)

29.01.2015 - 16:28

country flag Jeanne wrote:

In the supply list it shows that it takes 50g of the uni color and 50g of the mix but when does the pattern change yarns? Also, would this yarn be a good choice for knitting them as knee length socks? Would it have enough stretch to stay up on the leg, or would a different yarn be stretchier for the leg part? Thank you. This is a lovely pattern!

29.12.2014 - 17:16

DROPS Design answered:

Dear Jeanne, these socks require 150 g one colour Karisma - was your question about another pattern or do I misunderstand your question ? Happy knitting!

30.12.2014 kl. 14:13

country flag Birgit wrote:

Ich habe diese Socken gestrickt. Die Ferse sieht nicht hübsch aus und sitzt nicht sehr gut am Fuß. Hab´s aufgemacht und nochmal gestrickt. Das Muster im Schaft sieht hübsch aus und kommt gut zur Geltung. Als Ergänzung habe ich ein Satinbänd durch das obere Lochmuster gezogen. Echte Mädchensocken.

14.12.2014 - 18:02

Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.