Rosa skrifaði:
Tengo especial interés en que colgueis este patron porque me gusta mucho.
03.03.2013 - 16:41
Anna skrifaði:
Have any idealhow soon this will be available
25.02.2013 - 00:32
Katja skrifaði:
Liebes Drops-Team, Es ist richtig, dass in einem Mustersatz A1 10 M zugenommen werden. Davon sind 5 M Zunahme für das Vorderteil und 5 M Zunahme für das Rückenteil. Gleichzeitig wird aber am Rückenteil in jeder Hinreihe an jeder Seite des Maschenmarkierers 1 M abgenommen. Das sind insgesamt 6 M je Mustersatz A1. Es stehen somit 5 M Zunahme gegenüber 6 M Abnahme. D.h. je Mustersatz A1 wird am Rückenteil 1 M abgenommen. Viele Grüße Katja
24.02.2013 - 11:52DROPS Design svaraði:
Liebe Katja, wwir haben nun eine Antwort vom Designteam erhalten: es ist richtig, dass am Rücken mehr Ab- als Aufnahmen sind. Der Grund dafür ist, dass es die Seiten etwas nach hinten ziehen soll, damit sich die Weste vorne etwas öffnet wie auf dem Foto. Wenn man einen weiteren Rücken möchte, kann man z.B. jede 4. statt jede 2. R abn und erhält dann mehr M am Rücken.
26.02.2013 - 09:22
Sanne skrifaði:
Ich habe das Muster noch einmal überprüft. Ich glaube, das im Rückenteil mehr Maschen abgenommen werden, als zugenommen! Und deshalb läuft das Muster nach hinten weg.
19.02.2013 - 12:18DROPS Design svaraði:
Liebe Sanne, wenn ich es richtig gesehen habe, werden immer mehr M zugenommen als abgenommen, aber vielleicht nähren wir uns dem Problem. Haben Sie gesehen, dass weiterhin für den v-Ausschnitt zugenommen wird – zusätzlich zu den Mustersätzen A.1 (dort werden in 12 R 10 M zugenommen) und dann Muster A.2/A.3 (auch mit Aufnahmen). Über die 32 bis 37 cm ab der Stelle, an der alle Teile auf dieselbe Nadel gelegt wurden wächst die Maschenzahl von (Beispiel Größe S) 136 auf 228 M ganz unten.
19.02.2013 - 14:51
Sanne skrifaði:
Hallo Janette, beim nachstricken ist leider ein Problem aufgetreten und ich finde den Fehler nicht! Mein Seitenmuster läuft nach hinten weg und die Zipfel sitzen mehr am Po als unter dem Arm! Was habe ich falsch gemacht? Liebe Grüße, Sanne
15.02.2013 - 11:25DROPS Design svaraði:
Liebe Sanne, bitte prüfen Sie zunächst Schritt für Schritt, ob Sie sich exakt an die Anleitung gehalten haben. Gab es an einer Stelle Zweifel bei der Umsetzung? Dann könnten wir diese Stelle nochmals prüfen ob etwas missverständlich formuliert wurde.
16.02.2013 - 19:27Jo Harris skrifaði:
Very cute, very this summer and very me. I have wool waiting for the pattern.
06.02.2013 - 22:10
Francine skrifaði:
Where's the pattern?
06.02.2013 - 01:21
Sunny skrifaði:
Einfach nur SUPERSÜÜÜÜÜÜÜÜSSSSSSSSS
04.02.2013 - 14:54
Lotta skrifaði:
SÅ snygg!!Sommarens favorit.
02.02.2013 - 19:13Chris Harris skrifaði:
I would love to have this pattern. But for some reason the pattern isn't there. Could you please help me find this pattern? Hopefully it's free.
01.02.2013 - 03:57
Nadine#nadinevest |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónað vesti, prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni úr DROPS Muskat með gatamynstri í hliðum. Stærð S - XXXL
DROPS 145-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum frá réttu þannig. Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri við miðju að aftan). MÆLING: Öll mæling er gerð þegar stykkið liggur flatt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fram- og bakstykki eru prjónuð fram og til baka, hvert fyrir sig niður og að handveg, síðan eru allar l settar á sama hringprjón. Prjónað er fram og til baka frá miðju að framan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 l á hringprjóna nr 5 með Muskat. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6-8-10-6-8-10 cm – LESIÐ MÆLING, aukið út um 1 l fyrir v-hálsmáli við miðju að framan með því að prjóna 2 l í fyrstu l í byrjun umf (séð frá réttu). Endurtakið útaukningu með 2½ cm millibili (þ.e.a.s. í 10. hverri umf í garðaprjóni), 9-9-9-11-11-11 sinnum til viðbótar (= alls 10-10-10-12-12-12 útaukningar). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-9-8-8-8-11 cm – MUNIÐ EFTIR MÆLING, aukið út um 1 l í hlið við handveg með því að prjóna 2 l í síðustu l á prjóni (séð frá réttu). Endurtakið útaukningu með 3-2½-2-2-1½-1 cm millibili, 2-4-6-7-10-13 sinnum til viðbótar (= alls 3-5-7-8-11-14 útaukningar). Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm (útaukningu við handveg á að vera lokið), fitjið upp 3-3-3-4-4-5 nýjar l í lok umf í hlið (ekki við miðju að framan). Handvegurinn er nú prjónaður og aukið hefur verið út um 6-6-5-7-7-7 l fyrir v-hálsmáli við miðju að framan (þ.e.a.s. nú eru eftir 4-4-5-5-5-5 útaukningar fyrir v-hálsmáli við miðju að framan). Stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25 cm og það eru 32-36-39-43-48-54 l á prjóni. Setjið l á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, en aukið út fyrir v-hálsmáli í lok umf (séð frá réttu) og aukið út fyrir handveg í byrjun umf (séð frá réttu). BAKSTYKKI: Vinstri öxl: Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 l á hringprjóna nr 5 með Muskat. Prjónið 6 umf garðaprjón og byrjið á réttu. Klippið frá og geymið stykkið. Hægri öxl: Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 l á hringprjóna nr 5 með Muskat. Prjónið 6 umf garðaprjón og byrjið frá réttu, fitjið upp 20-20-20-24-24-24 l í lok næstu umf frá röngu = 40-42-44-48-50-52 l. Prjónið inn l frá vinstri öxl á sama hringprjóna = 60-64-68-72-76-80 l. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-9-8-8-8-11 cm frá öxl er aukið út um 1 l í fyrstu og síðustu l í umf. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið með 3-2½-2-2-1½-1 cm millibili, 2-4-6-7-10-13 sinnum til viðbótar (= alls 3-5-7-8-11-14 útaukningar í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm (útaukningu á nú að vera lokið), fitjið upp 3-3-3-4-4-5 nýjar l í lok 2 næstu umf. Handvegurinn á nú að vera prjónaður, stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25 cm og það eru 72-80-88-96-106-118 l á prjóni. Klippið frá. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið inn l af hægra og vinstra framstykki á sama hringprjón og bakstykki = 136-152-166-182-202-226 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 2 prjónamerki í stykkið, í 32.-36.-39.-43.-48.-54. l inn frá hvorri hlið (= 72-80-88-96-106-118 l á milli l með prjónamerki á bakstykki). JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki við miðju að aftan (þ.e.a.s. mitt á milli 2 prjónamerkja í hliðum svo að það verða 36-40-44-48-53-59 l hvoru megin við þetta prjónamerki). Byrjið við miðju að framan og haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka í 4-2-3-2-3-3 cm JAFNFRAMT er haldið áfram eins og áður með útaukningu í hvorri hlið við miðju að framan fyrir v-hálsmáli. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Næsta umf frá réttu er prjónuð (útaukningu fyrir v-hálsmáli heldur áfram eins og áður) þannig: Prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir á undan fyrstu l með prjónamerki (= í hlið), prjónið A.1 (= 5 l), prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki (= miðja að aftan), fellið af 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 l færri), prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki (= á hlið), prjónið A.1 (= 5 l) og prjónið síðan sl út umf. Haldið svona áfram með mynstur (hafið í huga að aukið er út í A.1 – sjá mynstur og að útaukningarnar fyrir v-hálsmáli halda áfram þar til aukið hefur verið út alls 10-10-10-12-12-12 sinnum í hvorri hlið við miðju að framan), JAFNFRAMT er fækkað um 2 l við miðju að aftan í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 31-36-36-36-36-38 sinnum til viðbótar (= alls 32-37-37-37-37-39 úrtökur við miðju að aftan) og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 10-10-10-12-12-12 sinnum. Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 2-3-3-2-2-2 sinnum á hæðina er prjónað A.2 í hvorri hlið (í stað A.1, aðrar l eru prjónaðar áfram eins og áður). Þegar A.2 hefur verið prjónað alls 2-2-2-3-3-2 sinnum á hæðina er prjónað A.3 í hvorri hlið (í stað A.2). Þegar A.3 hefur verið prjónað alls 2-2-2-2-2-3 sinnum á hæðina og á eftir síðustu úrtöku við miðju að aftan eru 228-254-270-290-310-338 l í umf og stykkið mælist ca 32-33-34-35-36-37 cm frá þeim stað þar sem öll stykkin voru sett saman. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er í 1. umf í A.3 prjónað í hvorri hlið svo að mynstrinu ljúki fallega, fellið nú LAUST af með sl frá röngu. Stykkið mælist nú ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt beint niður frá öxl (hliðarnar eru lengri vegna útaukninga sem gefur auka vídd og lengd). FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. SNÚRA: Klippið 2 þræði af Muskat ca 100-120 cm. Leggið 2 þræðina saman, dragið þá í gegnum síðustu l á öðru framstykkinu (nákvæmlega í skiptingunni þar sem útaukning fyrir v-hálsmáli endar). Gerið einn hnút í annan endann á báðum þráðunum. Tvinnið þá saman fast, leggið þá saman tvöfalt og látið þá tvinnast aftur saman. Gerið hnút á endann. Endurtakið eins á hinu framstykkinu. Hnýtið vestið saman við miðju að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nadinevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.