DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Allison

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Viscose og DROPS Kid Silk með gatamynstri og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 145-1
DROPS Design: Mynstur nr n-145
Garnflokkur A + A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 29, ljós grágrænn
Og einnig:
DROPS KID SILK frá Garnstudio
100-125-150-150-175-175 gr litur nr 06, ljós grágrænn

DROPS HRINGPRJÓNN nr 5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm (ca 18 l og 23 umf með mynstri) með 1 þræði af hvorri tegund.
DROPS HRINGPRJÓNN nr 4,5 (80 cm) – fyrir sjalkraga
DROPS PERLUTALA NR 522 (20 mm): 1 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
ATH: Allar kantlykkjur í hliðum eru prjónaðar í garðaprjóni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 - A.5, mynsturteikning sýnir allar umf í 1 mynstureiningu í mynstri séð frá réttu. Mynstrið er mismunandi í stærð S- M - XL/XXL - XXXL, eintakið á myndinni er í stærð M.

STUTTAR UMFERÐIR:
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónaðar eru stuttar umferðir með 5 cm millibili á hæðina þannig: Prjónið 18 kantlykkjur að framan frá réttu, snúið við og prjónið sl til baka. Prjónið nú yfir allar l í umf eins og áður.

STUTTAR UMFERÐIR:
VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónaðar eru stuttar umferðir með 5 cm millibili á hæðina þannig: Prjónið 18 kantlykkjur að framan frá röngu, snúið við og prjónið sl til baka. Prjónið nú yfir allar l í umf eins og áður.

HNAPPAGAT:
Fellt er af frá réttu fyrir 1 hnappagati í kanti að framan í hægra framstykki.
1 HNAPPAGAT = prjónið 5 l sl frá miðju að framan, fellið af næstu 2 l. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær sem felldar voru af.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 109-117-125-133-151-159 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 5. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm (1. umf = rétta).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 18-22-26-30-18-22 l sléttprjón, prjónið A.5A 1 sinni, * A.1, A.5 * , endurtakið frá *-* alls 2-2-2-2-4-4 sinnum, prjónið A.1 og síðan A.5B 1 sinni, 18-22-26-30-18-22 l sléttprjón, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur 18-22-26-30-18-22 l í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið A.1 alls 3 sinnum á hæðina – en í síðustu umf frá röngu (= umf 12) er lykkjum fækkað í hverri mynstureiningu A.1 þannig: Prjónið fyrstu 2 l slétt saman, 6 l sl, 1 l br, 6 l sl, prjónið síðustu 2 l slétt saman (2 færri l í hverri mynstureiningu A.1 = 15 l eftir) = 103-111-119-127-141-149 l á prjóni. Prjónið nú A.2 á milli kaðla.
Prjónið A.2 alls 3 sinnum á hæðina – en í síðustu umf frá röngu (= umf 10) er lykkjum fækkað í hverri mynstureiningu A.2 þannig: Prjónið fyrstu 2 l slétt saman, 5 l sl, 1 l br, 5 l sl, prjónið síðustu 2 l slétt saman (2 færri l í hverri mynstureiningu A.2 = 13 l eftir) = 97-105-113-121-131-139 l á prjóni. Prjónið nú A.3 á milli kaðla.
Prjónið A.3 alls 2 sinnum á hæðina – en í síðustu umf frá röngu (= umf 8) er lykkjum fækkað í hverri mynstureiningu A.3 þannig: Prjónið fyrstu 2 l slétt saman, 4 l sl, 1 l br, 4 l sl, prjónið síðustu 2 l slétt saman (2 færri l í hverri mynstureiningu A.3 = 11 l eftir) = 91-99-107-115-121-129 l á prjóni. Nú mælist stykkið ca 39 cm. Prjónið nú A.4 á milli kaðla til loka.
Þegar stykkið mælist 41-43-44-46-47-49 cm eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermi í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 16-14-12-10-10-8 l í lok næstu 2 umf = 123-127-131-135-141-145 l. Prjónið næstu umf þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 30-32-34-36-24-26 l sléttprjón, prjónið mynstur eins og áður, 30-32-34-36-24-26 l í sléttprjóni, endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið nú áfram með mynstur við miðju að aftan með 30-32-34-36-24-26 l sléttprjón og 5 l garðaprjón í hvorri hlið.
Prjónið A.4 alls 11-12-13-14-15-16 sinnum á hæðina (stykkið mælist ca 67-70-73-75-78-80 cm, endið á síðustu umf í A.4). Í næstu umf frá réttu (1. umf í A.4) fellið af miðju 15 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er fellt af 1 l = 53-55-57-59-62-64 l eftir að öxl. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni (= 6 umf) fellið laust af allar l (það verða alls 12-13-14-15-16-17 mynstureiningar A.4 á hæðina), stykkið mælist ca 70-73-75-78-80-83 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 60-64-68-72-81-85 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið) með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 5. Prjónið garðaprjón í 3 cm (1. umf = rétta).
Stærð S – XL:
Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 18 l garðaprjón (= kantlykkjur að framan), prjónið A.1 og A.5B 1 sinni, 18-22-26-30 l í sléttprjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur með 18-22-26-30 l sléttprjón í hlið og 18 kantlykkjur við miðju að framan.
Stærð XXL og XXXL:
Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 18 l garðaprjón (= kantlykkjur að framan), prjónið A.1 og A.5 1 sinni og A.5B 1 sinni, 18-22 l í sléttprjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur með 18-22 l sléttprjón í hlið og 18 kantlykkjur við miðju að framan.
Allar stærðir: Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan.
Haldið áfram að prjóna mynstur á sama hátt og á bakstykki og fækkið um 2 l í gatamynstri alveg eins og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið (= alls 6-6-6-6-12-12 l færri) verða 54-58-62-66-69-73 l á prjóni. Haldið áfram með A.4 og kaðla með styttri umf til loka.
Þegar stykkið mælist 41-43-44-46-47-49 cm eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermi þannig: Í lok næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 16-14-12-10-10-8 l = 70-72-74-76-79-81 l. Prjónið næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 30-32-34-36-24-26 l sléttprjón, prjónið mynstur eins og áður, endið með 18 kantlykkjum að framan. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm. Fellið nú af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 49-51-52-54-55-57 cm. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrstu 17 kantlykkjur að framan = 53-55-57-59-62-64 l eftir. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (hún sýnir hvar byrja á að prjóna upp kragann). Haldið áfram með mynstur eins og áður með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan.
Prjónið A.4 alls 12-13-14-15-16-17 sinnum á hæðina. Fellið laust af allar l, stykkið mælist ca 70-73-75-78-80-83 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd – þ.e.a.s. prjónið A.5A í stað A.5B – og án hnappagata.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðar- og ermasauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

SJALKRAGI:
Prjónið upp l frá réttu innan við 1 kantlykkju á hringprjóna nr 4,5 – byrjið við miðju að framan við prjónamerki á hægra framstykki þannig: Prjónið upp ca 50-60 l upp að öxl, prjónið síðan ca 20 l meðfram hálsmáli og 50-60 l niður vinstra framstykki að prjónamerki = 120-140 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn meðfram vinstra framstykki jafnaður að 45-47-49-51-53-55 l, kringum hálsmál að 22 l, meðfram hægra framstykki að 45-47-49-51-53-55 l = 112-116-120-124-128-132 l. Prjónið nú stroff í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 1 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til kraginn mælist ca 5 cm. Aukið nú út um 1 í hverja af miðju 12-12-12-14-14-14 brugðnu einingunum séð frá réttu (= aftan við hnakka) = 124-128-132-138-142-146 l. Haldið áfram með stroff þar til kraginn mælist ca 10 cm, fellið síðan laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br. Saumið kragann neðst niðri í hvorri hlið við framkantinn frá röngu (svo að saumurinn sjáist ekki frá réttu) – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Saumið tölu í vinstri kanti að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (239)

country flag Van De Wetering wrote:

Ik heb een vraag over drops allison patroon.\r\n\r\nHet is een geweldig mooi patroon alleen klopt er iets niet volgens mij.Bij de voorpanden staat bij de beschrijving van xxl eerst steken voor de ribbel dan a1 dan a5 dan a1 dan a5b dan tricot steek.Maar volgens mij word er in de voorpanden maar 1 keer gebruik gemaakt van 1x patroon a1 en een kabel patroon???hoe is dan de verhouding?\r\nvriendelijke groet gerry

03.02.2021 - 12:47

country flag Johanna wrote:

Thank you. Stu ning

28.05.2019 - 22:12

country flag Simona wrote:

Buonasera, vorrei realizzarlo con un unico filato e in lana, quale filato mi consigliereste? E come mi regolo con la quantità? Grazie Simona

20.10.2017 - 22:20

DROPS Design answered:

Buongiorno Simona, questo modello è realizzato con due capi di filati del gruppo A, quindi se lo vuole a un capo solo può utilizzare filati del gruppo C, come Nepal, Alaska o big merino. Per la quantità provi a vedere qui. Buon lavoro!

21.10.2017 - 08:59

country flag Susanne Skibelund wrote:

Jeg har købt garn til model 145 nr 1 Jeg måler fra skulder til skulder 78 cm. Har et brystmælk på 123 cm Da jeg på målskemaet ikke kan se et brystmælk er jeg itvivl om størrelsen Ønsker ikkejakken for løs/slasket men den skal også nå sammen for Kan I oplyse brystmælk på de to sidste st? På forhånd tak Susanne

27.05.2016 - 13:32

DROPS Design answered:

Hej Susanne. Nederst paa maalskitsen ser du alle maal. Brystmaalet er de nederste tal = 67 og 72 cm i de to störste str.

30.05.2016 - 13:36

country flag Adinda wrote:

Sorry, ik had een vraag gesteld over de hoeveelheid garen, maar had even niet gezien dat er op de bollen van de Kid -Silk, maar 25 gram zit.

17.02.2016 - 09:46

DROPS Design answered:

Hoi Adinda. Helemaal oké, goed om te horen dat je verder bent.

17.02.2016 - 10:46

country flag Adinda wrote:

Ik heb een vraag over de hoeveelheid garen. Ik snap niet dat als je alles dubbel breid, je dan van het ene garen (kid Silk) minder meters nodig hebt dan het andere. Klopt dit wel?

17.02.2016 - 09:44

country flag Petra Stam wrote:

Kan dit vest ook met gewone breinaalden gedaan worden. ?

06.01.2016 - 13:40

DROPS Design answered:

Hoi Petra. Ja, dat kan omdat deze heen en weer wordt gebreid op de rondbreinaalden. Zorg wel ervoor dat je alle steken kwijt kan op de naald.

06.01.2016 - 16:29

country flag Christina Vogel wrote:

Gibt es eine Möglichkeit, diese Weste auch mit langen Ärmeln zu stricken? Wie setze ich da am besten an?

24.10.2015 - 13:52

DROPS Design answered:

Leider können wir Ihnen hier keine Möglichkeit für lange Ärmel bieten, die Ärmel werden hier ja direkt angestrickt.

30.10.2015 - 09:59

Maureen wrote:

In working the back piece, it says to 'continue in pattern with 30 stitches in sticking st and 1 edge in garter stitch in each side'. Does that refer to the entire pattern I just did in the instructions above, and if so for how long? Or, aftery first pattern line do I immediately go to Working A.1 3 times?

01.09.2015 - 23:46

DROPS Design answered:

Dear Maureen, you continue working as stated before, ie with A.1 and A.5B, but work then A.2 after you have worked A.1 3 times vertically in total, then A.3 after you have worked A.3 3 times vertically in total etc.. as explained in the pattern. Happy knitting!

02.09.2015 - 09:54

France Gagnon wrote:

How do I read the charts in pattern DROPS 145-1 Allison? For example, if I refer to chart A.5B, do I read Row 1 from right to left and Row 2 from left to right? Or vice versa? Or other? If other, how? Thank you, France

14.04.2015 - 20:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gagnon, read more here about diagrams: 1 square = 1 st x 1 row, start from RS at the bottom corner on the right side and read towards the left - from WS read from the left towards the right. Happy knitting!

15.04.2015 - 08:50