Gerrie Roozeboom skrifaði:
In het hoofdstuk Schouder en hoofd, bij het minderen, de laatste alinea: gelijk na 12 st, hoeveel naalden moeten er dan nog gebreid worden? Graag uw toelichting
13.12.2012 - 16:08DROPS Design svaraði:
2 naalden: "Brei nog een nld. Minder dan als volgt: * brei 1 st, minder 1 st *, herhaal van *-* de hele nld = 8 st, knip de draad af en haal deze door de overgebleven 8 st, trek de draad aan en zet vast."
19.12.2012 - 13:34
Cécile skrifaði:
Votre modèle, le bonhomme Julius" en tricot est adorable.Pourrions nous avoir les explications au crochet?Je voudrais tant le réaliser...
08.12.2012 - 03:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Cécile, C'est peut être l'occasion de débuter le tricot avec ce modèle ? Notre vidéothèque, votre magasin Drops et le forum sont à votre disposition pour vous aider. Bon crochet !
08.12.2012 - 11:14
Julius#dropsjulius |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður jólasveinn úr DROPS BabyMerino. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-861 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á sokkaprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum stærðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf slétt, 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í næstu l þannig: Prjónið framan í og aftan í sömu l. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman. RENDUR: Prjónið * 4 umf með litnum ljós grár, 4 umf með litnum rauður *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLASVEINN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er prjónað á sokkaprjóna. Búkur, hendur og höfuð er prjónað saman og leggir og fætur er prjónað saman. BÚKUR: Stykkið er prjónað í hring í sléttprjóni á sokkaprjóna. Prjónað er neðanfrá og upp að topp á húfunni. Fitjið upp 40 l með litnum rauður á 4 sokkaprjóna nr 2,5. UMFERÐ 1: * Prjónið 4 l, aukið út um 1 l í næstu l – Lesið ÚTAUKNING að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 l (8 l fleiri). UMFERÐ 2: * Prjónið 5 l, aukið út um 1 l í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 l. UMFERÐ 3: * Prjónið 6 l, aukið út um 1 l í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 l. Í næstu umf er skipt yfir í litinn ljós grár og prjónað er áfram með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 5 rendur með litnum ljós grár er lykkjum fækkað þannig: UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn rauður, * prjónið 6 l, fækkið um 1 l – Lesið ÚRTAKA að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 l (8 l færri). UMFERÐ 2 – 4: Prjónið slétt. UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn ljós grár, * prjónið 5 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 l. UMFERÐ 6-8: Prjónið slétt. UMFERÐ 9: Skiptið yfir í litinn rauður, * prjónið 4 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 l. UMFERÐ 10 – 12: Prjónið slétt. UMFERÐ 13: Skiptið yfir í litinn ljós grár, * prjónið 3 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 l. UMFERÐ 14 – 16: Prjónið slétt. UMFERÐ 17: Skiptið yfir í litinn rauður, * prjónið 2 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l. UMFERÐ 18 – 20: Prjónið slétt. UMFERÐ 21: Skiptið yfir í litinn ljós grár, * prjónið 1 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 l. UMFERÐ 22 – 23: Prjónið slétt. UMFERÐ 24: Fellið af fyrstu 2 l (= handvegur), prjónið 5 l, fellið af næstu 2 l (= handvegur), prjónið þær 5 l sem eftir eru = 12 l eftir. Setjið allar lykkjur á þráð, geymið stykkið. HANDLEGGUR OG HÖND: Handleggurinn er prjónaður sem eitt stykki. Höndin er fyrst prjónuð fram og til baka á sokkaprjóna og síðan í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 4 l með litnum rauður á 1 sokkaprjóna. Í næstu umf er aukið út um 1 l í hverja l = 8 l. Prjónið nú í hring með 4 sokkaprjónum þannig: Aukið út um 1 l í hverja l = 16 l. Prjónið nú sl í alls 9 umf. Í næstu umf er lykkjum fækkað þannig: * Prjónið 2 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 l. Prjónið sl í 2 umf. Í næstu umf er skipt yfir í litinn ljós grár og prjónað er áfram með RENDUR. Haldið áfram með rendur þar til prjónaðar hafa verið 6 rendur í litnum ljós grár – ATH: Prjónið síðustu umf (= umf 4) með litnum ljós grár þannig: Fellið af fyrstu 2 l (= handvegur), prjónið þær l sem eftir eru í umf = 10 l eftir. Setjið allar l á þráð. Þræðið uppfitjunarþráðinn í gegnum 4 l sem fitjaðar voru upp fremst á hönd, herðið að. Fyllið höndina með vatti og fyllið handlegginn með smá vatti (fram ca 1 cm frá síðustu umf, svo að hægt sé að beygja handlegginn), geymið stykkið. Prjónið annan handlegg á sama hátt. ÖXL OG HÖFUÐ: Setjið til baka lykkjur af þræði frá búk og handleggjum á prjóninn (með úrtöku á móti hvor annarri). Prjónið nú handleggina og búkinn saman að öxl með litnum rauður þannig: Prjónið 10 l af öðrum handleggnum, 6 l frá búk, 10 l frá hinum handleggnum, 6 l frá búk = 32 l í umf. Prjónið 1 umf slétt. Í næstu umf er lykkjum fækkað þannig: * Prjónið 2 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l (8 l færri). Prjónið að auki 1 umf slétt. Í næstu umf er skipt yfir í litinn natur (fyrir höfuð) og fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 1 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 l. Prjónið nú 1 umf slétt. Aukið út þannig: * Prjónið 1 l, aukið út um 1 l í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l. Haldið áfram að prjóna sl í aðrar 11 umf. Fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 1 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 l. Prjónið sl í aðrar 3 umf. Fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 2 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 l. Prjónið nú 1 umf slétt. Fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 1 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 8 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÚFA: Húfan er prjónuð í hring í sléttprjóni. Fitjið upp 28 l með litnum rauður á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið sl í 6 umf. Fækkið lykkjum þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 5 l fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l (4 l færri). UMFERÐ 2-6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: * Prjónið 4 l fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 l UMFERÐ 8 – 12: Prjónið slétt. UMFERÐ 13: * Prjónið 3 l fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 l UMFERÐ 14 – 18: Prjónið slétt. UMFERÐ 19: * Prjónið 2 l fellið af 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 l UMFERÐ 20 – 24: Prjónið slétt. UMFERÐ 25: * Prjónið 1 l fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 8 l UMFERÐ 26 – 28: Prjónið slétt. UMFERÐ 29: * Prjónið allar l 2 og 2 saman = 4 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið. FÓTUR OG LEGGUR: Prjónað er neðan frá og upp (frá sóla) og upp. Sólinn er prjónaður fyrst fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, síðan er fóturinn prjónaður í hring í garðaprjóni og að lokum leggurinn í sléttprjóni. Fitjið upp 4 l með litnum rauður. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 l sl, aukið út um 1 l í hvora af næstu 2 l, 1 l sl = 6 l (2 l fleiri). * Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er aukið út um 1 l í 2. l og í næst síðustu l á prjóni * = 8 l. Endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 10 l. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka þar til stykkið mælist ca 3½ cm. Í næstu umf er lykkjum fækkað þannig: Fækkið um 1 l í hvorri hlið = 8 l. Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er fækkað um 1 l í hvorri hlið = 6 l. Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er fækkað um 1 l í hvorri hlið – JAFNFRAMT sem fellt er af, klippið frá. Prjónið upp nýjar l þannig: Byrjið við miðju við affellingarkantinn (= aftari hluti fótar), prjónið upp 40 l kringum sólann. Prjónið nú hringinn þannig: UMFERÐ 1: (og síðan allar odda umf): Prjónið br yfir allar l. UMFERÐ 2: Prjónið 16 l sl, fækkið um 1 l, 4 l sl, fækkið um 1 l, 16 l sl = 38 l. UMFERÐ 4: Prjónið 15 l sl, fækkið um 1 l, 4 l sl, fækkið um 1 l, 15 l sl = 36 l. UMFERÐ 6: Prjónið 14 l sl, fækkið um 1 l, 4 l sl, fækkið um 1 l, 14 l sl = 34 l. UMFERÐ 8: Prjónið 13 l sl, fækkið um 1 l, 4 l sl, fækkið um 1 l, 13 l sl = 32 l. UMFERÐ 10: Prjónið 12 l sl, fækkið um 4 l (þ.e.a.s. prjónið næstu 8 l 2 og 2 saman), 12 l sl = 28 l. UMFERÐ 12: Prjónið 10 l sl, fækkið um 4 l, 10 l sl = 24 l. UMFERÐ 14: Prjónið 4 l sl, fækkið um 8 l, 4 l sl = 16 l. Í næstu umf er skipt yfir í litinn dökk grár og prjónað sl yfir allar l. Prjónið nú sl þar til fóturinn og leggurinn mælist ca 13 cm á hæðina. Fyllið stykkið með vatti (fram að ca 1 cm frá affellingarkanti, svo að hægt sé að beygja legginn). Prjónið annan fót og legg til viðbótar á sama hátt. FRÁGANGUR: Gerið 1 dúsk ca 1½ cm að þvermáli með 1 þræði með litnum ljós grár, saumið hann fastan á húfuna, saumið húfuna fasta efst á höfuðið. Saumið út augu á höfuðið með litnum svartur. Fyllið búkinn með vatti. Saumið saman uppfitjunarkantinn á búknum. Leggið affellingarkantinn á leggnum saman og saumið hann fastan neðst niðri á búkinn. HÁLSKLÚTUR: Prjónið hálsklút fram og til baka þannig: Fitjið upp 6 l með litnum rauður, prjónið garðaprjón þar til hálsklúturinn mælist ca 26 cm (eða óskaða lengd), fellið af. Hnýtið hálsklútinn kringum hálsinn. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsjulius eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-861
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.