DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1056
DROPS Design: Mynstur nr ee-519
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Mál: ca 36 cm að þvermáli og 36 cm á hæð

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
450 gr litur nr 01, natur
150 gr litur nr 12, ljós blár
100 gr liturnr 02, svartur
50 gr litur nr 07, appelsínugulur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 23 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 5 – fyrir nef, tölur, augu og hendur.

FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐARJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SNJÓKARL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – á hringprjóna.
Fyrst er botninn prjónaður og síðan búkur og höfuð.

SNJÓKARL:
Fitjið upp 9 l á hringprjóna nr 8 með litnum natur.
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl.
UMFERÐ 3: Prjónið sl – uppslátturinn er prjónaður áfram snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt (= 17 l).
UMFERÐ 4: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl.
UMFERÐ 5: Prjónið eins og umf 3 (= 25 l).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 6: * 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl.
Endurtakið umf 5 og 6, en í hvert skipti þegar aukið er út verður 1 l fleiri á milli útaukninga. Þegar það eru 121 l á prjóni hættir útaukningin, botninn er nú klár. Setjið 1 prjónamerki.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið nú áfram í garðaprjóni yfir allar l þar til stykkið mælist 20 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu). Í næstu umf er fækkað um 31 l jafnt yfir (þ.e.a.s. ca 4. hverri l) = 90 l. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 30 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu). Í næstu umf er fækkað um 18 l jafnt yfir (þ.e.a.s. í 5. hverri l) = 72 l. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 34 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu). Prjónið þannig: * 2 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-*= 54 l. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 12 l jafnt yfir = 42 l. Nú er búkurinn klár. Setjið 1 prjónamerki hér.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Í næstu umf frá réttu er aukið út um 24 l jafnt yfir fyrir höfuð = 66 l. Þegar stykkið mælist 15 cm frá prjónamerki (stillið af að næsta umf sé frá réttu) fækkið um 8 l jafnt yfir = 58 l.
Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 6 sinnum til viðbótar = 10 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel.

HENDI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 12 l á prjóna nr 5 með litnum svartur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 13 cm. Skiptið um lit yfir í litinn ljós blár. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 6 l jafnt yfir = 18 l. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 18 cm. Prjónið allar l 2 og 2 slétt saman = 9 l. Prjónið 1 umf. Í næstu umf eru l prjónaðar 2 og 2 slétt saman þar til 1 l er eftir, 1 l garðaprjón = 5 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru (ATH: Stillið af að þráðurinn verði nægilega langur fyrir frágang). Saumið saman höndina yst í lykkjubogann með litnum ljósblár, síðan með litnum svartur.
Prjónið aðra hendi á sama hátt.

AUGA:
Fitjið upp 1 l á prjóna nr 5 með litnum svartur. Í sömu l er prjónað: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið á 1 l í sömu l = 7 l. Í næstu umf eru allar l prjónaðar br saman. Klippið frá. Þræðið þráðinn í gegnum síðustu l. Hnýtið saman báða þræðina.
Gerið annað auga á sama hátt.

TALA:
Fitjið upp 1 l á prjóna nr 5 með litnum svartur. Í sömu l er prjónað: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið á 1 l í sömu l = 9 l. Í næstu umf eru allar l prjónaðar br. Prjónið síðan l 2 og 2 slétt saman þar til 1 l er eftir, 1 l sl = 5 l. Prjónið allar l br saman. Klippið frá. Þræðið þráðinn í gegnum síðustu l. Hnýtið saman báða þræðina.
Gerið tvær tölur til viðbótar á sama hátt.

NEF:
Stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni.
Fitjið upp 2 l á prjóna nr 5 með litnum appelsínugulur. Prjónið 1 umf br (= ranga). Síðan í næstu umf frá réttu eru prjónaðar 2 l í hvora af 2 l = 4 l. Aukið síðan út í hverri umf frá réttu með því að prjóna 2 l í síðustu l í hvorri hlið á stykki (= 2 l fleiri). Haldið áfram með útaukningu þar til 12 l eru á prjóni. Fellið af með sl frá röngu.

TREFILL:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 16 l á prjón nr 8 með litnum ljós blár. Prjónið garðaprjón. Fellið af þegar stykkið mælist 90 cm.
KÖGUR: 1 kögur = 1 þráður í litnum appelsínugulur ca 18 cm. Leggið þráðinn saman tvöfaldan, þræðið lykkjuna yst í gegnum l meðfram uppfitjunarkanti og dragið endann í gegnum lykkjuna. Setjið lykkjur í aðra hverja l meðfram uppfitjunarkanti og affellingarkanti.

HATTUR:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 9 l á prjóna nr 8 með litnum svartur.
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl.
UMFERÐ 3: Prjónið sl – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt (= 17 l).
UMFERÐ 4: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl.
UMFERÐ 5: Prjónið eins og umf 3 (= 25 l).
UMFERÐ 6: * 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl.
Endurtakið umf 5 og 6, en í hvert sinn sem aukið er út verður 1 l fleiri á milli útaukninga. Þegar það eru 57 l á prjóni endar útaukningin. Setjið 1 prjónamerki í stykkið.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú sléttprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 10 cm.
Prjónið nú stykkið áfram í garðaprjóni. JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 4 l jafnt yfir = 61 l. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 14 cm = 65 l. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 18 cm. Fellið síðan laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kraga yst í lykkjubogann. Áður en saumað er alveg saman er settur venjulegur plastdiskur í botninn svo að snjókarlinn geti staðið. Fyllið búkinn og höfuðið með vatti (notið t.d. gamlan kodda) áður en saumað er alveg saman. Dragið snjókarlinn saman í botninum. Saumið saman hattinn yst í lykkjubogann. Herðið að efst uppi á hattinum. Saumið augu og tölur. Saumið saman nef yst í lykkjubogann. Fyllið nefið með vatti og saumið við andlitið. Fyllið hendurnar með vatti og saumið þær við búkinn. Hnýtið trefilinn í kringum hálsinn og setjið hattinn á.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1056

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Jeannine Rousseau wrote:

Bonjour, merci pour la réponse, j'ai hâte de voir le résultat.

29.01.2024 - 16:29

country flag Jeannine Rousseau wrote:

PS, je le commence. 1er bonjour, je sais tricoter avec aiguilles circulaire quand il y a beaucoup de mailles, mais avec 9 mailles ,peut-on tricoter pour rejoindre les deux bouts pour tricoter en circulaire. 2er. votre assiette on le mets en dedans . 3er. pour le rembourrage, on commence par le haut?

27.01.2024 - 20:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rousseau, on tricote le bonhomme de neige en allers et retours sur aiguille circulaire, autrement dit, on va tourner à la fin de chaque rang pour tricoter alternativement sur l'endroit et sur l'envers. On met effectivement l'assiette dedans; vous pouvez au choix coudre par le haut en rembourrer par le haut ou coudre par le bas et rembourrer par le bas. Bon tricot!

29.01.2024 - 11:58

country flag Jenny Carlier wrote:

Est t'il possible d'avoir part courrierpostalles explication du bonhomme de neige au tricot

09.11.2022 - 00:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Carlier, vous pouvez imprimer directement les explications de ce modèle via notre site ou bien demander à votre magasin DROPS de vous l'imprimer. Bon tricot!

09.11.2022 - 08:27

country flag Joan Burø wrote:

Jeg har brugt 3 nøgler sort og ikke 2 som der står. Er der fejl i opskriften? Har overholdt strikkefastheden.

06.11.2022 - 09:14

DROPS Design answered:

Hei Joan Denne snømannen har blitt strikket mye de siste 6-7 årene, men vi har ingen tilbakemelding på at det er for lite sort garn. Strikkefastheten i oppskriften er oppgitt i rillestrikk, mens toppen av luen og ermene strikkes i glattstrikk (da går det litt mindre garn enn om det er blitt strikket i rillestrikk). mvh DROPS Design

07.11.2022 - 11:51

country flag Bärbel Bischoff wrote:

Gibt es auch eine Anleitung für einen Weihnachtsmann/Nikolaus in der Grösse wie der Schneemann #Drops Extra 0-1056.Das wäre super,die Anleitung für den Schneemann ist prima. Vielen Dank

01.11.2021 - 17:00

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bischoff, so groß haben wir leider keine, aber hier finden Sie einigen, vielleicht können Ihnen diese Modelle inspirieren. Viel Spaß beim stricken!

03.11.2021 - 07:42

country flag Susan wrote:

I am making the knitted Drops snowman with hat & scarf. I need to know how big a “regular” plastic plate is. Thank you in advance for providing me with the answer. Susan

23.12.2019 - 03:31

DROPS Design answered:

Dear Susan, a "regular" plastic plate is about the size of an average dinner plate, but you should just use a plate that would fit into the bottom of your snowman. Happy Knitting!

24.12.2019 - 17:49

country flag Hilde Van Durpe wrote:

Bestaat dit patroon ook in haakpatroon

03.12.2019 - 11:06

DROPS Design answered:

Dag Hilde,

Nee, hier is helaas alleen een breipatroon van.

07.12.2019 - 10:40

country flag Trine Lill Hestvik wrote:

Modell nr ee-519\r\nHei, har strikket 20 cm på snømannen som det står. (Deretter fortsettes det med riller over alle m til arb måler 20 cm (avpass at neste p er fra retten).) hvordan gjør jeg dette? Kutter jeg av tråden og beg på nytt på rettsida, eller? Da blir det jo to omg med rett over hverandre og ikke rillestrikk? Ser frem til svar

10.01.2019 - 11:25

country flag Susan wrote:

Hej. Hvordan strikker man på rundpind, når man skal starte med 9 masker?

08.11.2018 - 11:23

DROPS Design answered:

Hej Susan, du strikker frem og tilbage på rundpind ifølge opskriften.

09.11.2018 - 10:35

country flag Carla De Graaf wrote:

Goedenavond, is er ook een haak versie van deze sneeuwman ?? hier is vast belangstelling voor !! m vr gr carla de graaf

17.11.2016 - 17:34

DROPS Design answered:

Hoi Carla. Nee, op dit moment hebben wij geen gehaakte versie.

21.11.2016 - 15:16