Linnéa Grahn skrifaði:
Hej! Ang halsvärmaren. När man har stickat framstycket, står det ”Sticka tillbaka m från den ena axeln in på st, Lägg upp 28-30-32 m och sticka in m från den andra axeln på st ”, är inte tanken att bakstycket ska vara en kopia av framstycket? På framstyckets la jag upp successivt upp maskor för att få som en halvcirkel. Om jag på bakstycket ska lägga upp 32 maskor direkt, då blir ”halshålet” mer som ett D än ett O, ska det vara så, eller vad missförstår jag?
19.11.2021 - 17:18DROPS Design svaraði:
Hei Linnéa. Ja, det stemmer at "halshullet" blir som en D. Da blir det en mer "utringning foran og en "forhøyning" bak. Halsen vil da føles bedre å ha på seg. mvh DROPS Design
23.11.2021 - 08:50
Emilie skrifaði:
Skal der lukkes masker af på hver pind over skulderen, eller kun de pinde, som starter fra halsåbningen (altså hver anden pind)?
08.03.2019 - 15:24DROPS Design svaraði:
Hej Emilie, Du lukker masker af til hals på hver 2. pind, hver gang du strikker fra halsen og ud mod skulderen. God fornøjelse!
12.03.2019 - 09:11Melanie skrifaði:
In the captain jack had with skulls the pattern says to go from a stocking stich to the garder stich but leaves out the knitted riws between the stocking and garder stich.
20.11.2017 - 05:26DROPS Design svaraði:
Dear Melanie, when the hat measures 4-5 cm (see size), work 2 rounds in garter st (= 1 ridge in black), then 1 ridge in grey and 1 ridge in black, then work diagram A.1. Happy knitting!
20.11.2017 - 10:11
Mona skrifaði:
Hallo Ich abe ein frage zu den Abnahmen. Man soll 7 Makierungen setzten aber in den ersten Abnahmerunden 6x abhnehmen, muss ich die letzte Makierung ohne Abnahme lassen? und wie oft soll man in jeder 2. Runde Abnehmen bis man in jeder Runde abnimmt. Ich hoffe ich habe das verständlich rübergebracht ;) Danke
11.11.2015 - 06:37DROPS Design svaraði:
Sie machen die Abnahmen immer an allen Markierern, d.h. 7 Abnahmen pro Rd. 6x bedeutet, dass Sie 6 Abnahme-Rd haben. Sie machen dann immer eine Zwischenrunde ohne Abnahmen, das bedeutet in jeder 2. Rd. Also: 1. Rd: 7 Abnahmen. 2 Rd: keine Abnahmen. 3. Rd: 7 Abnahmen. 4. Rd: keine Abnahmen. 5. Rd: 7 Abnahmen. 6. Rd: keine Abnahmen usw., bis Sie insgesamt 6 Rd mit Abnahmen gearbeitet haben, danach nehmen Sie dann in jeder Rd ab und zwar in 7 Abnahme-Rd.
18.11.2015 - 11:21
Mai-Britt skrifaði:
Kan ikke se hvor mange masker der skal strikkes mellem hver dødningehovede. Og hvad menes der med = 7-8 rapporte. På mønstret til struberne står der man kun skal strikke ret, men på billede af huen er der vrang mønster.
03.02.2014 - 12:29DROPS Design svaraði:
Hej Mai-Britt. Du skal gentage diagrammet A-1 over alle masker (98 eller 112 m). Dvs, der kommer f.eks 2 masker graa mellem hver hoved i raekke 4, 4 m i raekke 9 osv. 7-8 rapporter er gentagelser af diagrammet (14 m per gentagelse af A-1 over 98 eller 112 m)
04.02.2014 - 14:16
Erika skrifaði:
På halsen burde det vel være noen riller til avslutning på bakstykket også?
23.01.2013 - 23:51DROPS Design svaraði:
Tak. Jeg tror du har ret. Vi kigger paa modellen og sörger for rettelse naar vi ved det.
14.02.2013 - 13:46
Captain Jack Set#captainjacksset |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð húfa fyrir börn með hauskúpumynstri og hálsskjól úr DROPS Lima stærð 3-12 ára.
DROPS Children 23-27 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1, allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón / sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp 104-120 lykkjur á hringprjón 3 með litnum grár. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 6-8 lykkjur jafnt yfir = 98-112 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-5 cm, prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – með litnum svartur, 2 umferðir garðaprjón með litnum grár og 2 umferðir garðaprjón með litnum svartur. Prjónið síðan A.-1 (= 7-8 mynstureiningar hringinn). Eftir A.-1 eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón með litnum svartur, 2 umferðir garðaprjón með litnum grár og 2 umferðir garðaprjón með litnum svartur. Haldið áfram í sléttprjóni með litnum grár til loka. Þegar stykkið mælist 14-16 cm, setjið 7 prjónamerki í stykkið með 14-16 lykkju millibili. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir öllum prjónamerkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 4-6 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umferð 7-7 sinnum = 14-14 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. Húfan mælist ca 19-22 cm á hæðina. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fitjað er upp neðst niðri á framstykki og fellt er af neðst niðri á bakstykki, kraginn er prjónaður á í lokinn. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 46-50-54 lykkjur á hringprjón 3,5 með Lima og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFEESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-9-10 cm eru felldar af miðju 16-18-20 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 lykkjur garðaprjón að hlið – jafnframt er lykkjum fækkað í hverri umferð frá hálsmáli: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 7-8-9 lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist alls 13-14-16 cm, setjið 1 prjónamerki (= mitt á öxl) – héðan er nú mælt! Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur að hálsmáli og síðan eru lykkjur settar á þráð. Prjónið hinn hlutann á sama hátt, en prjónið að auki 1 umferð til baka eftir að fitjaðar hafa verið upp 2 lykkju við hálsmál þannig að endað sé frá réttu eða frá röngu á báðum öxlum. BAKSTYKKI: Setjið til baka lykkjur af annarri öxlinni á prjóninn. Fitjið upp 28-30-32 lykkjur og prjónið inn lykkjur frá hinni öxlinni = 46-50-54 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12-13-15 cm frá prjónamerki á öxl eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón. Fellið síðan af. KRAGI: Prjónið upp ca 76 til 90 lykkjur í kringum hálsmál á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt jafnframt því sem aukið er út jafnt yfir til 88-96-104 lykkjur. Haldið áfram með stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar kraginn mælist 8-9-10 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ---------------------------------------------------------- Peysa – sjá DROPS Children 23-26 ---------------------------------------------------------- |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #captainjacksset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 23-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.