DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Nepal yarn
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5390.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 140-40

#blissset

DROPS Design: Mynstur ne-104
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: 52/54 cm - 56/58 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 0517, milligrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR NR 5 (40 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4 (40 cm) – fyrir stroff
DROPS SILFURTALA, ANTIK, NR 533: 2 stk

HÁLSSKJÓL:
Stærð: Ein stærð
Ummál: ca 60 cm. Hæð: ca 34 cm.

Efni: DROPS NEPAL frá Garnstudio
250 gr litur nr 0517, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4 (40 cm) – fyrir stroff
DROPS TALA, SILFUR ANTIK, NR 533: 4 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5390.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fyrst fram og til baka á hringprjóna, síðan í hring.

HÚFA:
Fitjið upp 86-94 l með Nepal á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf sl frá röngu, síðan er prjónað þannig: Prjónið 6 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*, endið með 2 l sl og 6 l garðaprjón. Haldið áfram með stroff og garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Nú er prjónað þannig: 6 l garðaprjón, A.1 yfir næstu 74-82 l, endið með 6 l garðaprjón.
Þegar stykkið mælist 8 cm eru felldar af fyrstu 6 l í umf, prjónið hringinn með A.1 yfir allar l = 80-88 l. Þegar stykkið mælist 20-21 cm er prjónað GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka. Prjónið garðaprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 12 l jafnt yfir í 3. hverri umf alls 5 sinnum = 20-28 l eftir á prjóni. Prjónið þær l sem eftir eru saman 2 og 2, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Herðið að og festið vel. Öll húfan mælist ca 25-26 cm á hæðina. Saumið 2 tölur við opið neðst niðri á húfunni, saumið í gegnum bæði stykkin.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 62 l á hringprjóna nr 4 með Nepal. Prjónið 1 umf sl frá röngu, prjónið nú – frá réttu þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, 2 l sl, * 2 l br, 2 l s *, endurtakið frá *-* og endið með 6 l garðaprjón. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað áfram þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, A.1 yfir næstu 50 l, endið með 6 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 20 cm eru felldar af 6 l á hvorri hlið = 50 l. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið annað stykki á sama hátt.

Fitjið upp 6 l á hringprjóna nr 5, prjónið til baka l frá örðum hlutanum á prjóninn, prjónið til baka frá hinum hlutanum á prjóninn og fitjið upp 6 l í lok umf = 112 l. Prjónið fram og til baka þannig: Prjónið 6 l garðaprjón (kantur), A.1 yfir næstu 100 l, 6 l garðaprjón (kantur).
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 34 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið áfram – JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 2 l jafnt yfir þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, 2 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið með 6 l garðaprjón = 114 l. Prjónið 4 cm og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Leggið kantana yfir hvorn annan og saumið 4 tölur í gegnum bæði stykkin.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
Diagram for DROPS 140-40
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (95)

country flag Chris Tine skrifaði:

Bonjour, je ne comprends pas dès le 1er rand pour faire le tour de cou... Déjà, si j'ai bien compris il se fait en 3 morceaux ? Et vous dites: Tricoter 1 rand end sur l'envers, puis continuer ainsi .... cela veux-t-il dire que nous travaillons sur l'envers du tricot ???? J'aime beaucoup ce modele mais j'aimerai déjà le comprendre pour le tricoter !!! Merci pour votre reponse

13.10.2014 - 17:33

DROPS Design svaraði:

Bonjour Chris Tine, On commence ici par 1 rang end (le 1er rang = sur l'envers), pour commencer sur l'endroit au 2ème rang tricoté. Le tour de cou se réalise en 3 étapes, on tricote d'abord 2 pièces identiques (dos & devant) puis on réunit ces 2 pièces (en montant 6 m au début et à la fin du rang pour les pattes de boutonnage) pour créer le "col" du plastron. Bon tricot!

14.10.2014 - 09:30

country flag Dodo skrifaði:

Hallo,leider kann ich nicht erkennen (kein Schnittmuster), ob der Kragen nur einer Seite der Schulter oder an beiden Seiten offen ist. Bitte um Auskunft!

14.09.2014 - 13:11

DROPS Design svaraði:

Die Knopfleiste befindet sich nur an der einen Seite. Sie dient aber nur zur Zierde - die beiden Ränder werden übereinander gelegt und die Knöpfe durch beide Schichten aufgenäht. Sie können aber Knopflöcher einarbeiten, wenn Sie möchten, dass der Schal geöffnet werden kann.

14.09.2014 - 20:30

Zillah skrifaði:

The chart really is confusing! I suggest you rewrite the pattern and only offer the chart for when knitting in the round. I really had to struggle with it and had to unpick it all after several mistakes.

12.08.2014 - 01:09

country flag Beate Wewezow skrifaði:

Warum wird der Kragen nicht mit Knopflöchern gestrickt? So muss er doch über den Kopf / Frisur gezogen werden?! Hätte mir ohnehin eine Schemazeichnung für den gesamten Kragen gewünscht.

24.06.2014 - 15:38

DROPS Design svaraði:

Ja, es stimmt, der Kragen wird über den Kopf gezogen, so wie ein "normaler" Rundschal. Sie können ihn aber ganz leicht modifizieren, indem Sie beim oberen Teil, d.h. nach dem seitlichen Schlitz, an der einen Blende gleichmäßig verteilt Knopflöcher einarbeiten. Der obere Teil misst insg. 18 cm. (Der Kragen wird von unten nach oben gestrickt, der seitl. Schlitz, den Sie sehen, ist die Stelle, an der beide Teile auf eine Nadel gelegt werden und rechts und links 6 neue M angeschlagen werden.)

25.06.2014 - 11:55

country flag Lucia skrifaði:

Gostaria que vocês publicassem o gráfico deste modelo de gola 140-40. este modelo é belíssimo, parabéns.

15.02.2014 - 13:40

country flag Helen Gladgo skrifaði:

Confused on A-1 chart first row is the same a Purl row , second row a Knit and third row k,P,k,p,k,p,k,p then Fourth row k,P, k, p k,p,k,p

16.01.2014 - 18:46

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Gladgo, start reading diagram at the bottom corner on the right side towards the left on every RS row / on all rounds - from WS, read from left towards right. Rounds 1 & 2: K1,P1,K1,P1 - Round 3: K - Round 4 P (from RS i.e. in the round or as seen from RS). Happy knitting!

17.01.2014 - 09:56

country flag Shellee skrifaði:

The only oart if this pattern not confusing is the chart! Love it. Question. Can you explain the neck warmer construction? Are bothe sides of the initial 8cm disconnect? If so the instruction only allows for buttons on one side. What happens with the loose flaps on the other side? Is there a 360 view of the neck warmer????? If not how is it worn on the side not showing in the photo? Is the area connecting the two sides worn under the arm? Or on the shoulder??????

22.12.2013 - 18:56

DROPS Design svaraði:

Dear Shelly, the neck warmer is worked first in 2 identical pieces until 20 cm high, then you put both pieces tog and finish piece. Just follow instructions step by step and you'll see your neck warmer take form. Happy knitting!

27.12.2013 - 13:14

country flag Rausis Laurence skrifaði:

Après différentes tentatives, j'ai enfin compris: lorsque l'on tricote droit à l'endroit après les 6 mailles mousses on fait 1 endroit 1 envers ... et au retour (envers) on croise pour qu'il y ait une espèce de mini-côte. Puis 2 rangs tricotés à l'endroit. Quand on tricote en rond, c'est 1 end 1 env et au 2è rang pareil, puis 1 rang tout à l'endroit puis tout à l'envers. Si j'ai fait juste....

20.11.2013 - 20:29

country flag Petra skrifaði:

Ich habe Probleme mit den Abnahmen bei der Mütze. Sollen die Abnahmen immer an den gleichen Stellen (z.B. jede 6. und 7. Masche zusammenstricken, in der nächsten Reihe mit Abnahmen dann jede 5. und 6. Masche) vorgenommen werden und kann dies auch versetzt erfolgen?

20.11.2013 - 11:26

DROPS Design svaraði:

Liebe Petra, ich habe diese Mütze auch gestrickt und die Abnahmen immer an der gleichen Stelle gemacht. Es ist schön geworden, ich würde es also empfehlen.

21.11.2013 - 18:33

country flag Annet skrifaði:

Ik heb moeite met het laatste stukje van de muts, het samen breien op de rondbreinaald. Je houdt weinig steken over en ik kan moeilijk breien op de naald. Is hiervan ook een video?

03.11.2013 - 12:56

DROPS Design svaraði:

Hoi Annet. Je kan de magic loop-techniek gebruiken (zie video hieronder). Is dat te moeilijk, dan kan je wisselen naar naalden zonder knoop en hier verder mee te breien.

04.11.2013 - 20:04