Passion |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Vivaldi með gatamynstri á ermum. Stærð S-XXXL.
DROPS 140-24 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* endið með 1 l sl. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið. UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman. Endurtakið umf 2 og 3. KLUKKUPRJÓNSLYKKJA: Þegar lykkjur eru taldar er uppslátturinn ekki talin sem lykkja. MYNSTUR: Prjónað er gatamynstur á ermum – sjá mynsturteikningu A.1, mynsturteikningin sýnir allar umf í 1 mynstureiningu af mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykki eru prjónuð frá hlið hvort fyrir sig og saumuð saman í lokin. HÆGRI ERMI: Prjónað er fyrst aftari hluti á hægri ermi fram og til baka á prjóna. Fitjið upp 19-21-21-23-23-25 l á hringprjóna nr 5 með Vivaldi. Prjónið KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 13-13-12-12-11-11 cm er aukið út um 1 l í síðustu umf frá röngu – LESIÐ ÚTAUKNING = 20-22-22-24-24-26 l. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónað er A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – Jafnframt er aukið út um 1 l í lok 1. umf frá réttu. Endurtakið útaukningu – í lok umf séð frá réttu – með 3-3-2½-2½-2½-2½ cm millibili 11-11-13-13-13-13 sinnum til viðbótar (= alls 12-12-14-14-14-14 sinnum) = 32-34-36-38-38-40 l. ATH: Nýju l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar stykkið mælist ca 51-50-49-48-47-46 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) prjónið 6 umf garðaprjón yfir allar l. Setjið nú allar l á þráð, stykkið mælist ca 52-51-50-49-48-47 cm. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið frá hægri hlið á fram– og bakstykki. Fitjið upp 25-26-27-27-28-29 l á hringprjóna nr 5,5. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf brugðið frá röngu – ATH: Þær 2 síðustu l í umf (séð frá réttu) eru prjónaðar í garðaprjóni til loka (= 2 kantlykkjur neðst niðri á peysu), í lok umf frá röngu eru fitjaðar upp 25-26-27-27-28-29 nýjar l. Prjónið 1 umf frá réttu og 1 umf frá röngu, í lok umf frá röngu eru fitjaðar upp 28-28-28-30-30-30 nýjar l = 78-80-82-84-86-88 l. Klippið frá. Setjið 32-34-36-38-38-40 l frá ermi til baka á sama prjón, prjónið sl frá réttu fyrstu l á ermi, síðan nýju 78-80-82-84-86-88 l frá bakstykki = 110-114-118-122-124-128 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf frá réttu – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú sléttprjón með 2 kantlykkjum neðst niðri í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 13-15-17-19-20-22 cm frá prjónamerki (= öxl) er fellt af 3 l í byrjun næstu umf frá réttu fyrir hálsmáli = 107-111-115-119-121-125 l. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 31-33-36-38-40-42 cm, fitjið upp 3 nýjar l í lok næstu umf frá röngu = 110-114-118-122-124-128 l (hálsmál = ca 18-18-19-19-20-20 cm). Þegar stykkið mælist 44-48-52-56-60-64 cm eru fyrstu 32-34-36-38-38-40 l frá réttu settar á þráð (= vinstri ermi) og prjónað er bara yfir síðustu 78-80-82-84-86-88 l. Prjónið nú frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 28-28-28-30-30-30 l á prjóni, prjónið út umf, prjónið 1 umf brugðið til baka. Fellið af fyrstu 25-26-27-27-28-29 l á prjóni, prjónið út umf, prjónið 1 umf brugðið til baka. Prjónið síðustu 25-26-27-27-28-29 l og fellið laust af allar l frá röngu. Klippið frá. VINSTRI ERMI: Setjið til baka l af þræði á hringprjóna nr 5,5 = 32-34-36-38-38-40 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf frá réttu – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!. Prjónið 6 umf garðaprjón, síðan A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 5-4-5-4-4-3 cm fellið af 1 l í byrjun næstu umf frá röngu. Endurtakið úrtöku – í byrjun umf séð frá röngu - með 3-3-2½-2½-2½-2½ cm millibili 11-11-13-13-13-13 sinnum til viðbótar (= alls 12-12-14-14-14-14 sinnum) = 20-22-22-24-24-26 l. Þegar stykkið mælist 39-38-38-37-37-36 cm fellið af 1 l í síðustu umf frá röngu = 19-21-21-23-23-25 l. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5, prjónið síðan klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið af þegar stykkið mælist 52-51-50-49-48-47 cm, alls mælist stykkið 148-150-152-154-156-158 cm frá uppfitjunarkanti að affellingarkanti. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og HÆGRI ERMI og BAKSTYKKI þar til stykkið mælist 64-65-66-67-67-68 cm (1 cm áður en fellt var af l fyrir hálsmál) = 110-114-118-122-124-128 l á prjóni. Prjónið nú 6 umf garðaprjón yfir allar l á þráð. Nú mælist stykkið alls ca 65-66-67-68-68-69 cm frá uppfitjunarkanti (ca 13-15-17-19-20-22 cm eftir 1. prjónamerki). HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið axla – og sauma ofan á ermi innan við 1 kantlykkju. Saumið sauma undir ermi og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. KANTUR AÐ FRAMAN: Setjið til baka l af hægra framstykki á hringprjóna nr 5, prjónið upp nýjar l yfir hálsmáli á bakstykki þannig: Prjónið upp 3 l yfir þær 3 l sem felldar voru af fyrir hálsmáli, 28-28-30-30-32-32 l aftan á hnakka, 3 l yfir þær 3 l sem felldar voru af, setjið til baka l af vinstra framstykki á prjóninn = 254-262-272-280-286-294 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu – JAFNFRAMT er fækkað um 33-33-35-37-37-39 l jafnt yfir = 221-229-237-243-249-255 l. Prjónið nú klukkuprjón með 2 l í garðaprjóni í hvorri hlið. Setjið 3 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1 við miðju að aftan við hnakka og 1 á hvora öxl. Prjónamerkin eru sett í l sem prjónaðar eru sem uppsláttur + laus l saman frá réttu. Haldið áfram í klukkuprjóni – JAFNFRAMT er aukið út með ca 3 cm millibili þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki (l með prjónamerki eru prjónaðar þannig: Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman). UMFERÐ 2 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, nýi uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn slétt, l með prjónamerki (= sláið 1 sinni uppá prjóninn, steypið 1 l yfir eins og prjóna eigi brugðið), nýi uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn slétt, 1 uppsláttur. UMFERÐ 3 (= rétta): Nýi uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn slétt, 1 uppsláttur, steypið næstu l yfir eins og prjóna eigi brugðið, l með prjónamerki (= prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman), sláið 1 sinni uppá prjóninn, steypið næstu l yfir, nýi uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn slétt. = 2 útauknar l hvoru megin við l með prjónamerki. Haldið nú áfram í klukkuprjóni yfir allar l. Þegar kantur að framan mælist 18-18-20-20-22-22 cm fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br. ATH: Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur! HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með nál nr 6 kant meðfram neðri kanti á peysunni (einnig kanti að framan) þannig: * Heklið 1 fl, 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-*, endið með 1 fl, klippið frá og festið enda. ATH: Passið uppá að heklaði kanturinn verði ekki of stífur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Rie Sauer skrifaði:
Enkel og klassisk.
01.06.2012 - 11:01Dagmar skrifaði:
Wunderbar !!!
31.05.2012 - 16:28