DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6842.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 140-48
DROPS Design: Mynstur nr fa-215
Garnhópur A + A
--------------------------------------------------------

Stærð: Ca 140 cm á breidd efst x 68 cm á hæð.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
200 gr litur nr 822, vínrauður
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
75 gr litur nr 17, dökk bleikur

Litamöguleikar:
DROPS FABEL
200 gr litur nr 711, bleikur/brúnn
DROPS KID-SILK
75 gr litur nr 20, ljós beige

ATH: Það verður að prjóna sjalið með 2 þráðum.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) nr 5 eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) nr 4.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6842.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið er út frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í umferðinni á eftir er uppslátturinn prjónaður snúinn br til að koma í veg fyrir göt. Aukið er út í annað hvert skipti á undan báðum prjónamerkjum fyrir miðju á sjalinu og + í næsta skipti á eftir báðum prjónamerkjum. Að auki er aukið út á undan síðustu l í hvorri hlið. Þ.e.a.s. aukið er út um 4 l í hvert sinn sem aukið er út.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

SJAL:
Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Setjið 1 prjónamerki í þriðju og fimmtu lykkju. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Haldið áfram í sléttprjóni – síðasta l í hvorri hlið er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan!
JAFNFRAMT er aukið út um 1 l á undan síðustu l í hvorri hlið og 1 l við hvort prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu þar til stykkið mælist ca 30 cm (passið uppá að síðasta umf sé prjónuð frá réttu)
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
** Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú 1 umf slétt frá röngu yfir allar l. Næsta umf er prjónuð slétt frá réttu með útaukningu eins og áður, prjónið nú 1 umf slétt aftur frá röngu. Skiptið aftur yfir á hringprjóna nr 5. Klippið frá Kid-Silk þráðinn og haldið áfram einungis með 1 þræði Fabel þannig:
Skiptið öllum l í tvennt og prjónið 1 l sl í hvorn af þeim 2 þráðum í hverri l, þ.e.a.s. að lykkjufjöldinn tvöfaldast. Prjónið nú sléttprjón (með 1 l í garðaprjón í lokin í hvorri hlið) í ca 5 cm – OBS: Haldið áfram með útaukningu eins og áður. Þegar prjónaðir hafa verið 5 cm, takið Kid-Silk þráðinn aftur með, skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið næstu umf þannig frá réttu: Prjónið 1 l sl, * 2 l sl saman, 2 l sl saman, 1 l sl *, endurtakið frá *-* út umf (passið að það verði 1 eða 2 l sl í lokin sem ekki eru prjónaðar saman). Prjónið 3 umf slétt fram og til baka með útaukningu eins og áður. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu eins og áður í 8 cm **. Endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar.
Stykkið mælist nú ca 60 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið 3 umf slétt fram og til baka (1. umf = ranga), aukið út frá réttu eins og áður. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5, klippið frá Fabel þráðinn og prjónið stykkið til loka með einungis 1 þræði af Kid-Silk. Í fyrstu umf er öllum l skipt í tvennt, prjónið sl í hvern og einn af þeim 2 þráðum í hverri l. Prjónið 7 cm sléttprjón fram og til baka með 1 l í garðaprjóni í lokin í hvorri hlið – jafnframt er aukið út aðeins á undan síðustu l í hvorri hlið, ekki lengur við 2 prjónamerki, endið eftir 1 umf frá réttu. Prjónið nú 3 umf slétt fram og til baka yfir allar l. Náið aftur í Fabel þráðinn og fellið af með sl frá réttu með báðum þráðum.
Sjalið mælist ca 68 cm á hæðina og 140 cm á breiddina efst uppi.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-48

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Paola wrote:

Una domanda.. diminuendo una volta prima ed una volta dopo i due segnapunti è quindi giusto avere più maglie tra i segnapunti? Non ho mai fatto diminuzioni cosi alternate e prima di andare avanti volevo una conferma. Ad esempio dopo 4 giri mi ritrovo tre maglie fra i segnapunti Grazie

16.10.2021 - 17:09

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, le maglie tra i segnapunti aumentano durante la lavorazione. Buon lavoro!

24.10.2021 - 20:31

country flag Susanne Thomsen wrote:

Jeres opskrift er misvisende, da den afsluttende kant på billedet viser at i strikker rundt om buen, men opskriften viser at kanten strikkes på langs, så hvis man gerne vil have den rundt om buen, hvor mange masker skal der tages ud

28.06.2021 - 09:26

DROPS Design answered:

Hej Susanne, sjalet på billedet er strikket som det står i opskriften. Den sidste kant får du når du fjerne Fabeltråden og strikker med Kid-Silk i hver af de dobbelte masker hele vejen rundt om buen på sjalet. God fornøjelse!

30.06.2021 - 13:17

country flag Sofia Coelho wrote:

Hi! Could you please send me a link of the 822 Burgundy colour? I can't find it. Thanks!

17.05.2020 - 15:05

DROPS Design answered:

Dear Sofia, I am sorry, colour nr. 822 burgundy/grand canyon is discontinued. But you can choose any other from all colours in DROPS Fabel. Happy knitting!

17.05.2020 - 17:16

country flag Bente Opstad wrote:

Strikker Just Dreaming sjal og har kommet til det punktet hvor det skal strikkes en 7 cm kant med KiDSilk. Jeg vil ha kant rundt hele sjalet slik det vises på bildet. Har jeg da fått med nok garn? Hvor mye skal jeg plukke opp? Hvordan skal jeg strikke i hjørnene og i buen nederst?

30.04.2019 - 15:22

DROPS Design answered:

Hej Bente, vi har kun strikket kanten rundt om selve buen på sjalet, hvis du vil have samme kant langt med langsiden, så skal du nok bruge et nøgle mere. God fornøjelse!

03.05.2019 - 10:48

country flag Chris wrote:

Ich kann leider die angegebenen Farben 822 und 711 nicht in der Farbkarte finden. Gibt es nun andere Farbnummern?

23.08.2018 - 13:06

DROPS Design answered:

Hallo Chris, die Farben sind leider nicht mehr erhältlich. Vielleicht stöbern Sie einfach in den Farbkarten und schauen, welche Alternativ-Farbkombinationen Ihnen gefallen. Viel Spaß beim Stricken!

26.08.2018 - 10:12

country flag Lebigot wrote:

Bonjour, j'ai un problème avec le chale 140-48, il est écrit qu'il faut "diviser toutes les mailles en deux", je ne vois pas du tout ce que cela veut dire! Il faut "tricoter 1 m end dans chacun des fils de chacune des mailles", pouvez vous m'expliquer? Merci!

12.07.2018 - 11:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebigot, on tricote alternativement avec 2 fils ou 1 seul fil, quand on tricote le 1er rang avec 1 seul fil, on tricote chacune des mailles du rang précédent: les mailles sont composées des 2 fils, et on va tricoter chacun de ces 2 fils - cf vidéo ci-dessous et lien dans la réponse précédente. Bon tricot!

12.07.2018 - 13:10

country flag Lebigot wrote:

Merci pour vos explications. J'ai un autre problème plus loin, il faut "diviser toutes les mailles en deux", je ne vois pas du tout ce que cela veut dire! Il faut "tricoter 1 m end dans chacun des fils de chacune des mailles", pouvez vous m'expliquer? Merci!

11.07.2018 - 16:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebigot, on tricote avec 2 fils jusqu'à la bordure volantée qui va se tricoter avec 1 seul fil (= Kid-Silk) et au premier rang, on va tricoter chacune des mailles composées des 2 fils au rang précédent, comme dans cette vidéo. Bon tricot!

12.07.2018 - 08:48

country flag Lebigot wrote:

Bonjour, je viens de commencer le chale 140-48 et dans les réponses aux questions vous parlez d'augmenter de 4 mailles à l'endroit comme à l'envers mais moi dans les explications j'ai lu qu'il ne fallait augmenter que sur l'endroit, ce qui fait 4 mailles tous les deux rangs? Je me trompe? Je ne comprend pas les augmentations avant et après les marqueurs, sachant qu'entre les marqueurs il n'y a qu'une maille, ça revient toujours à la même chose non? Merci pour vos réponses

11.07.2018 - 15:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebigot, on augmente tous les 2 rangs (= tous les rangs sur l'endroit) 1 m de chaque côté (= 2 m) et 1 m à chaque marqueur (= 2 marqueurs) = on va donc augmenter 4 mailles tous les 2 rangs. Les augmentations aux marqueurs se font d'abord avant les 2 marqueurs, puis l'augmentation suivante se fait après les 2 marqueurs et continuer ainsi en augmentant une fois avant et une fois après les marqueurs. Bon tricot!

11.07.2018 - 15:55

country flag Depommier wrote:

Bonjour je commence le chale n°48 du catalogue °140 je ne comprends pas bien les augmentations : 8 mailles à chaque rangs endroit et envers ?

24.12.2015 - 11:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Depommier, on augmente 4 m tous les rangs, aussi bien sur l'endroit que sur l'envers = 8 m en plus après 2 rangs. Bon tricot!

04.01.2016 - 11:13

country flag Tanita wrote:

Ik heb een vraagje: wat is de reden voor de twee draden? Zou een dikker draad ook kunnen?

04.08.2014 - 15:32

DROPS Design answered:

Hoi Tanita. Er wordt hier met een dubbele draad gebreid (1 draad Fabel + 1 draad Kid-Silk) voor het uiterlijk en structuur van het model. Maar je kan ook de 2 draden vervangen door 1 draad van garencategorie C.

04.08.2014 - 15:38