DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 140-35
DROPS Design: Mynstur x-391
Garnflokkur C
---------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
700-750-850-900-1000-1100 gr litur nr 53, dökk bleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 18 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – fyrir stroff og gatamynstur.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í hring frá miðju að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 7 l með Alaska og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT eru prjónaðar 2 l sl í hverja l = 14 l. Setjið 7 prjónamerki í stykkið með 2 l millibili. 1. prjónamerki = byrjun á umf = aftan í hálsmáli. Haldið áfram með sl, í næstu umf eru prjónaðar 2 l í aðra hverja l = 21 l. Í næstu umf eru prjónaðar 2 l í 3. hverja l = 28 l. Prjónið eftir A.1, prjónið 1 mynstureiningu yfir þær 4 l á milli allra prjónamerkja. Eftir A.1 er haldið áfram með mynstur með 7 útaukningum í annarri hverri umf, auknu l eru prjónaðar jafn óðum inn í mynstrið. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 þegar þess er þörf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm frá miðju eru prjónaðar 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir allar l (nú eru ca 31-33-35-37-39-41 l á milli allra prjónamerkja = 217-231-245-259-273-287 l alls). Prjónið sl fram að örðu prjónamerki. Fellið af allar l á milli annars og þriðja prjónamerkis (= ca 31-33-35-37-39-41 l). Prjónið nú fram að 6. prjónamerki. Fellið af allar l fram að 7. prjónamerki (= ca 31-33-35-37-39-41 l). Prjónið nú að fyrsta prjónamerki. Prjónið 1 umf brugðið, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp jafn margar l eins og fellt var af fyrir l fyrir handveg. Prjónið 2 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7. Prjónið nú sléttprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í annarri hverri umf er aukið út 1 l við hvert prjónamerki – aukið út hægra og vinstra megin við prjónamerki til skiptis (= 7 útaukningar í annarri hverri umf) – í næstu umf eru auknar lykkjur prjónaðar snúnar sl, svo ekki myndist gat. Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningar þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá handveg (nú eiga að vera ca 49-52-55-58-61-64 l á milli allra prjónamerkja og ca 343-364-385-406-427-448 l alls). Skiptið aftur yfir á hringprjóna nr 6, prjónið 1 umf slétt og jafnið út lykkjufjöldann svo að hann verði deilanlegur með 6. Prjónið nú stroff 3 l sl, 3 l br. Þegar stroffið mælist 3 cm er aukið út allar br einingarnar að 4 l br, þegar stroffið mælist 6 cm er aukið út allar br einingarnar til 5 l br. Haldið áfram með stroff 3 l sl, 5 l br þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist alls 57-59-61-63-65-67 cm frá miðju.

ERMI:
Prjónið upp 62-66-70-74-78-82 l kringum op við handveg á stutta hringprjóna nr 7 og prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 15 cm. Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 6, prjónið 1 umf sléttprjón og aukið út um 16-18-20-22-24-26 l jafnt yfir = 78-84-90-96-102-108 l. Haldið áfram með stroff 3 l sl, 3 l br þar til ermin mælist 30-31-32-33-34-35 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = miðja
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (61)

country flag Isabelle wrote:

Bonjour Je viens de terminer pour la deuxième fois la partie veste de ce tricot et je remarque que j'ai à nouveau une pointe qui se forme dans le dos. J'ai utilisé une mini aiguille circulaire dès le 4ème rang à la place des aiguilles doubles pointes. Honnêtement je n'ai pas envie de recommencer une troisième fois. N'y aurait-il pas une erreur dans les explications? Merci

27.03.2024 - 18:36

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, il ne doit pas y avoir de pointe, pensez à bien vérifier votre tension pour qu'elle soit la même tout du long et éviter ainsi d'éventuelles déformations, resserrez les 7 mailles du montage pour voir si vous arrivez à supprimer cette pointe, ou bien tentez un blocage, ça pourra aider aussi. Bon tricot!

02.04.2024 - 12:45

country flag Fiona Caldwell wrote:

What do the blank spaces mean in A1 diagram. Thank you

07.11.2022 - 19:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Caldwell, the first row in A.1 is worked over 4 sts but the last row over 9 sts, since you will increase sts on every other round, we need to have space after the first stitch until all increases are done, ie work 1st row as follows: *K1, YO, K2 tog, YO, K1* and repeat from *-*. Happy knitting!

08.11.2022 - 08:59

country flag Alice wrote:

I am confused about the double pointed needle size. At the top of the page where it indicates what size to use for the project, it says, "DROPS DOUBLE POINTED NEEDLES AND CIRCULAR NEEDLE (40 and 80 cm / 16'' and 32'') SIZE 7 mm/US 10.75 " But in the instructions it says, "Cast on 7 sts with Alaska and distribute them on 4 double pointed needles size 6 mm / US 10." Thank you.

06.08.2022 - 06:03

DROPS Design answered:

Dear Alice, yes, there seems to be a mistake in the pattern. You use double pointed 6mm needles for the initial lace pattern, so they should be included in the upper part of the pattern. We will correct the header as soon as possible. Thank you.

07.08.2022 - 23:05

country flag Jelena wrote:

I was adding those 7 stitches as the instruction says, but the diagram itself is adding stitches as we go (if I read it correctly, if not, maybe there is my mistake).

08.03.2022 - 22:30

DROPS Design answered:

Dear Jelena, you are working A.1 a total of 7 times in the round, and working as shown in diagram you will automatically increase 1 stitch in each A.1 = 7 sts in total on every other round.After A.1 is done in height, repeat diagram in height until there are 31-33-35-37-39-41 sts between each marker. Hope it will help, happy knitting!

09.03.2022 - 17:49

country flag Jelena wrote:

While working on diagram parts, I ended up with more than 100 stitches between markers, which is 2-3 times more than it's mentioned in instructions. Where did I go wrong?

08.03.2022 - 21:28

DROPS Design answered:

Dear Jelena, you should work diagram A.1 increasing 7 sts on every other round until there are 31-33-35-37-39-41 sts between each marker ( 27-28-29-30-31-32 cm from center of circle, if your tension is right). Can this help?

08.03.2022 - 22:21

country flag Corinna wrote:

Hallo, verstehe diesen Teil nicht, können sie mir das bitte genauer erklären?Nach Diagramm A.1 das Muster mit 7 Zunahmen in jeder 2. Rd fortsetzen, die zugenommenen M fortlaufend in das Muster einarbeiten. Vielen Dank

05.03.2021 - 10:10

DROPS Design answered:

Liebe Corinna, stricken Sie wie zuvor mit *1 M re, 1 Umschlag, Lochmuster wie zuvor in A.1* und von *bis* immer so wiederholen, dh nach jeder rechte Masche am Anfang von A.1 mit 1 Umschlag zunehmen und das Lochmuster wie zuvor weiterstricken = Es wurde 7 Mal A.1 in der Runde wiederholt und jeweils 7 Masche zugenommen, wenn Sie so weiterstricken, werden Sie jeweils 7 Masche in jede 2. Runde wie zuvor zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

05.03.2021 - 13:07

country flag Mary-Anne wrote:

I think there is a mistake where you bind off for the second sleeve. According to the diagram it should be between the 6th and 7th marker, but the pattern says to knit to 7th marker and then bind off.

01.05.2020 - 17:38

DROPS Design answered:

Dear Mary-Anne, which language are you following? The UK and US-English say both to work to 6th marker and to bind off until 7th marker (= sts between 6th and 7th will be bound off). Thank you! Happy knitting!

04.05.2020 - 10:54

country flag Cecilia wrote:

Buonasera vorrei tanto realizzare questo capo ma sono una principiante,sinceramente sto imparando grazie a voi.ma a volte non riesco a capire,il di dietro lo vedo anche complicato.i ferri a doppia punta mai usati,potrei farlo tutto a maglia rasata?grazie sempre gentili.

16.09.2017 - 16:24

DROPS Design answered:

Buonasera Cecilia. Spesso la lavorazione sembra più difficile di quanto non lo sia realmente. Nel caso di questa giacca, lavorarla a maglia rasata vorrebbe dire cambiare le caratteristiche della giacca stessa e ci risulterebbe difficile aiutarla. Per imparare può consultare la sezione dei video o rivolgersi al suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!

16.09.2017 - 19:49

country flag Sylvia wrote:

Liebes drops Team, bitte beschreiben sie mir nochmal, Diagramm A1. Wie viele Reihen hat ein Mustersatz und ab wann nehme ich die 7 Maschen zu? Vielen Dank

22.05.2015 - 22:11

DROPS Design answered:

Sie beginnen mit A.1, wenn Sie 28 M in der Rd haben. Die Lücken im Diagramm ignorieren Sie einfach. In der 1. Rd hat A.1 4 M, Sie stricken A.1 also 7x in der Rd (zwischen 2 Markierern ist 1 Rapport A.1). In der 1. Rd machen Sie 1 Umschlag mehr, als Sie zus.str (1x zus.str, 2 Umschläge in der 1. Rd), also haben Sie nach der 1. Rd pro Rapport 1 M zugenommen, = 5 M pro Rapport, = 35 M in der 2. Rd. In der 3. Rd machen Sie wieder 1 Umschlag mehr, als Sie M zus.str (2x zus.str, 3 Umschl.), haben also in der 4. Rd 6 M pro Rapport, usw. bis A.1 9 M hat. Dann setzen Sie das Muster von A.1 zwischen den Markierern genauso weiter fort, also je 1 Umschlag mehr, das sind die 7 Zun. pro Rd.

23.05.2015 - 09:47

country flag Sanna Laukkanen wrote:

Kun olen neulonut a1 kertaalleen, miten jatkan "mallineuletta"? SIlmukkamääristä riippumatta samaa kaaviota A1 uudestaan, vai?

09.04.2015 - 18:40

DROPS Design answered:

Aivan, jatkat vaan samaan tapaan tekemällä oikealla puolella kavennusten väliin langankiertoja.

13.04.2015 - 16:29