DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 142-15
DROPS Design: Mynstur nr ne-090
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
700-800-950 gr litur nr 7139, grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40, 60 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 25 umf með perluprjóni og 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl.
Endurtakið umf 2.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING (á við þegar mynstur A-1 hefur verið prjónað):
Aukið á út um 1 l við hvert prjónamerki fyrir hverja útaukningu (þ.e.a.s. aukið út um 12 l í hverri umf) – fyrsta útaukning er gerð á undan öllum prjónamerkjum, önnur útaukning er gerð eftir öll prjónamerkin, o.s.frv til skiptis - aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá miðju að aftan. Prjónað er á sokkaprjóna og eftir því sem l fjölgar, á lengri og lengri hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 12 l með DROPS Nepal og skiptið lykkjunum niður á 4 sokkaprjóna nr 5.
Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í umf = miðja upp við hnakka. Prjónið 1 umf slétt jafnframt sem prjónaðar eru 2 l í allar l = 24 l. Prjónið 1 umf slétt án útaukninga. Í næstu umf er prjónað þannig: * Prjónið 1 l sl, 2 l sl í næstu l *, endurtakið frá *-* = 36 l. Prjónið nú eftir A-1 (= 6 mynstureiningar hringinn).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A-1 hefur verið prjónað eru 216 l á prjóni og stykkið mælist ca 20 cm frá miðju og út. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l (= miðja upp við hnakka), og síðan 1 prjónamerki í hverja 18. l alla leiðina út (sjá örvar í mynstri til þess að sjá hvar prjónamerkin eiga að vera) = 12 prjónamerki með 17 l millibili.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l – JAFNFRAMT í umf 3 er aukið út um 1 l við öll prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í 3. hverri umf. JAFNFRAMT þegar aukið hefur verið út 1-3-5 sinnum (= 228-252-276 l í umf) er fellt af fyrir öxl og handveg í næstu umf þannig: Fellið af fyrstu 28-30-33 l fyrir háls/öxl, setjið 1 prjónamerki (notið annan lit af prjónamerkjum en þau sem eru fyrir í stykkinu til útaukninga, þessi prjónamerki eru einungis notuð þegar kraginn er saumaður við öxl), fellið af næstu 32-35-39 l fyrir handveg, prjónið 109-123-133 l (= niður á bak), fellið af næstu 32-35-39 l fyrir handveg, setjið 1 prjónamerki og fellið af síðustu 27-29-32 l fyrir öxl/hálsmáli, klippið frá.
Fitjið upp 32-35-39 l á hringprjóna nr 5, prjónið síðan þær 109-123-133 l af prjóni frá röngu og fitjið upp að lokum 32-35-39 l á hinni hliðinni = 173-193-211 l. Prjónið nú stykkið fram og til baka í sléttprjóni – setjið prjónamerki fyrir útaukningu í þær nýju l sem fitjaðar voru upp svo að það passi við þær l sem felldar voru af fyrir handveg. Haldið áfram með útaukningu við hvert prjónamerki í 3. hverri umf eins og áður – JAFNFRAMT eru settar 2 l í lok umf á þráð áður en þær eru prjónaðar. Þegar stykkið mælist ca 26-29-32 cm frá miðju og út, setjið miðju 67-71-77 l á þráð (= neðst niðri á bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Framstykkin eru prjónuð til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
Haldið áfram í sléttprjón og útaukningu eins og áður yfir þær l sem eftir eru á prjóninum – jafnframt eru 2 l settar í lok hverrar umf inn á þráðinn í hvorri hlið (við neðri kant eru l settar inn á sama þráð og þær 67-71-77 l neðst niðri á bakstykki) þar til prjónaðir hafa verið 10-15-21 cm á framstykki. Setið þær l sem eftir eru á þráð.
Prjónið hitt framstykkið á sama hátt.

KANTUR:
Prjónið allar l slétt frá réttu aftur inn á hringprjóna nr 5 – milli þeirra skipta þar sem l voru settar á þráð í hvorri hlið er þráðurinn tekinn upp og snúið áður en þráðurinn er settur á prjóninn (þ.e.a.s. milli annarri hverra l, þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í skiptingunum), að auki er aukið út jafnt yfir svo að það verða 308-356-404 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, jafnframt eru sett 17 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 2 l, setjið 1 prjónamerki, *prjónið 19-22-25 l, setjið 1 prjónamerki *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir síðasta prjónamerki, prjónið þær. Prjónið 1 umf sl frá réttu. Næsta umf er prjónuð (frá röngu) þannig: Prjónið 1 l GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan, * 2 l sl (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við prjónamerki er prjónuð slétt), 17-20-23 l perluprjón *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, ** 2 l br (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við prjónamerki er prjónuð brugðin), 17-20-23 l perluprjón **, endurtakið frá **-** 7 sinnum til viðbótar, 2 l br, *** 17-20-23 l perluprjón, 2 l sl***, endurtakið frá ***-*** 3 sinnum til viðbótar, endið með 1 l með garðaprjóni. Í næstu umf frá réttu er prjónuð 1 l hvoru megin við þau 4 fyrstu og 4 síðustu prjónamerkin brugðin og 1 l hvoru megin við þau 9 prjónamerki eru prjónuð slétt – JAFNFRAMT, í þessari umf, er aukið út um 1 l hvoru megin við þau 4 síðustu og 4 fyrstu prjónamerkin - aukið út hvoru megin við þær 2 l br með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og uppslátturinn er prjónaður snúinn inn í perluprjón í næstu umf. Haldið áfram með útaukningu í 6. hverri umf til loka. Þegar kanturinn mælist 13-15-17 cm, prjónið stuttar umferðir í annarri hliðinni við miðju að aftan fyrir kraga. Prjónið (prjónið og aukið út eins og áður í perluprjóni og sléttprjóni – byrjið við miðju að aftan) þannig: Prjónið 36-38-40 l, snúið og prjónið til baka, prjónið 34-36-38 l, snúið og prjónið til baka, prjónið 32-34-36 l, snúið og prjónið til baka, haldið svona áfram með því að prjóna yfir 2 l færri alls 10-11-12 sinnum, síðan er prjónað yfir 3 l færri alls 5 sinnum, klippið frá og prjónið á sama hátt í hinni hliðinni. Í lokin er prjónuð 1 umf slétt yfir allar l, fellið laust af með sl.

Ermi:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 42-44-48 l á sokkaprjóna nr 5 með Nepal. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl. Haldið áfram í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 12 cm, prjónið 1 umf slétt og 1 umf brugðið, haldið áfram í sléttprjóni til loka. Jafnframt þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 5-4-3 cm millibili 6-8-10 sinnum til viðbótar = 56-62-70 l. Þegar stykkið mælist 49 cm, fellið af 6 l við miðju undir ermi og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 2 l 2 sinnum og 1 l 5 sinnum, fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 58 cm, fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, ermin mælist ca 59 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið annan hluta kragans til helminga við öxl/háls að aftan og saumið hinn hluta kragans við hinn helminginn af öxl/háls – byrjið við prjónamerki sem sett var á milli handvegs og axlar og teygið aðeins á kraganum þegar hann er saumaður á, notið eins mikið og þarf af hæðinni á kraganum þar sem hlutarnir á kraganum eiga að leggjast saman við miðju að aftan, það sem eftir er af 2 hlutunum af kraganum eru saumaðri saman kant í kant á móti hvor öðrum – sjá ör í mynsturteikningu.
Saumið ermar í. Peysan er lokuð með prjóni eða nælu.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af hjálparprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 1 lykkju á hjálparprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið af hjálparprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 1 KÚLA: Prjónið 5 lykkjur í 1 lykkju með því að prjóna í annað hvert skipti framan í og aftan í lykkjubogann, prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar 5 lykkjur. Lykkjurnar eru nú á hægri prjóni, steypið annarri lykkju yfir fyrstu lykkju, þriðju lykkju yfir fyrstu lykkju, fjórðu lykkju yfir fyrstu lykkju og að lokum fimmtu lykkju yfir fyrstu lykkju = 1 lykkja eftir

diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (85)

country flag M Vasseur wrote:

Is het mogelijk om na het rugpand de rest in stukken te breien met 2 naalden in plaats van een rondbreinaald, en naderhand alles samen te naaien .ik heb de mouwen met 2 naalden gebreid.Ik heb dit patroon eerder geprobeerd maar is toen niet gelukt.gr. Marian

11.04.2024 - 21:27

DROPS Design answered:

Dag M Vasseur,

Daarvoor is dit patroon niet zo geschikt omdat je te veel steken op de naald hebt staan en dat past niet op rechte naalden.

15.04.2024 - 21:33

country flag Kerstin wrote:

Ich verstehe diesen Abschnitt der Anleitung nicht:GLEICHZEITIG nach 1-3-5 Zunahme-Rd (= 228-252-276 M) für die Schultern und die Armausschnitte wie folgt arbeiten heißt das, das ich nach der 1.Zunahmerunde die Schultern abkette, nach der 3.Zunahmerunde den Armausschnitt und dann nach 5.Runde M aufnehme??

01.02.2022 - 15:26

DROPS Design answered:

Liebe Kerstin, die Zunahmen werden in jede 3. Runde gestrickt; wenn Sie die 1. Größe stricken, werden die Armausschnitt stricken, wenn die Zunahmen 1 Mal gestrickt sind (= 228 M), für die 2. Größe wird es wenn die Zunahmen 3 Mal gestrickt sind (= 252 M) und in die 3. Größe wenn die Zunahmen 5 Mal gestrickt sind (= 276 Maschen). Viel Spaß beim stricken!

01.02.2022 - 16:37

country flag Nanette wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas d'où viennent les mailles du DEVANT. Juste avant, j'ai fini avec 60m+71m sur arrêt de mailles+60m, qui constituent le bas de la veste. Dois-je remonter des mailles ou relever des mailles? Merci

25.04.2021 - 22:39

DROPS Design answered:

Bonjour Nanette, si vous avez terminé avec 60 m pour 1 devant, 71 m en attente pour le bas du dos et 60 m pour l'autre devant, vous tricotez maintenant les 60 m d'un des devants seulement, en continuant à mettre 2 m en attente de chaque côté (en haut, côté encolure comme avant, mais maintenant, côté dos également) jusqu'à ce que vous ayez tricoté 15 cm depuis que vous avez glissé les mailles du dos (mettez un marqueur au milieu de vos 60 m et laissez ce marqueur en place pour bien pouvoir mesurer à partir de ce rang). Mettez vos mailles en attente et tricotez l'autre devant de la même façon. Bon tricot!

26.04.2021 - 09:11

country flag Nanette wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas les dimensions du patron: pour la taille S/M par exemple, au total, cela correspond à 90cm; si on ajoute les différentes parties, on obtient: 10+14+52+14+10=100cm. Ai-je fait une erreur de calcul? Et quel est la bonne dimension ? Merci

08.04.2021 - 20:19

country flag Nicole wrote:

"GLEICHZEITIG am Ende jeder R je 2 M stilllegen ohne sie zuerst zu stricken. " Bedeutet dies, ich lege die vorher neu aufgenommenen Maschen am Ende jeder Runde gleich wieder still? Dann hab ich zu beiden Seiten des Strickabschnitts stillgelegte Maschen hängen? Kommt mir komisch vor...

27.01.2020 - 17:01

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, ja genauso sollen Sie es stricken, jetzt braucht man ein oval-Form, und das bekomment man beim stillegen Maschen am Ende jeder Reihe - siehe auch Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!

28.01.2020 - 10:26

Donna wrote:

How do you twist the stitches when knitting the slipped stitches from the holder? I have done short rows before but that was by wrapping the stitch.

10.10.2016 - 16:08

DROPS Design answered:

Dear Donna, when picking up the sts, place it on the needle so that it will be twisted, ie you will be able to work it in the front loop of st whithout creating a hole on next round. Happy knitting!

10.10.2016 - 16:47

Elizabeth Fletcher wrote:

Pattern numberDrops 14215. What size is S M L XL I ware a size 14 in cardigans but a 12 in tee shirts. That is English sizing, should I knit a S M L XL. I have completed pattern A1. The length of my back neck to waist is 18 inches, or 46 cm. Thank you for your help. Elizabeth.

20.03.2016 - 16:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fletcher, you will find at the end of the pattern a measurement chart with all finished measurements for each size taken flat from side to side - in cm (convert here into inch) - Compare these to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Read more about sizing here. Happy knitting!

21.03.2016 - 10:23

Anne Turner wrote:

I am now on to the Short Rows part. I am working with the right side first - - beginning with the right side of work facing me? The pattern says break off wool then work other side whilst you have said in a previous comment work across sts to other side ??? Am I now to start left hand side from the edge - this will mean starting on the wrong side of work for the short rows ?

13.01.2016 - 16:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Turner, the short rows start on mid of back piece, 1st row = from RS, when short rows are done, cut the yarn and work short rows the same way on the other side of mid of back piece, starting now from WS, on mid on back piece. Happy knitting!

13.01.2016 - 17:11

country flag Rechenpumpe wrote:

...Das Feld reichte nicht aus... Was passiert mit diesen als erstes still gelegten Maschen (Richtung Schulter-oben)? werden diese für den Rand mit aufgefasst? Wozu ist dann diese entstandene Lücke da? Wird diese dann später beim zusammen nähen geschlossen?! vielen Dank für die Hilfe

11.11.2015 - 20:51

DROPS Design answered:

Siehe Antwort auf Ihre erste Frage.

11.03.2016 - 10:45

country flag Rechenpumpe wrote:

Guten Abend! Ich habe zu den still gelegten Maschen eine Frage... Ich habe jetzte beide Vorderteile fertig gestrickt und nehme alle Maschen wieder auf eine Nadel (mit den still gelegten Maschen und Querfädenzunahmen); wenn ich jedoch auch die Maschen auf die Nadel nehme, welche ich als erstes in Richtung Schulter still gelegt habe entsteht doch eine Lücke( bei mir ungefähr 5cm.)

11.11.2015 - 20:48

DROPS Design answered:

Hallo, wir haben Ihre Frage im Team diskutiert und hoffen, dass wir es richtig verstanden haben. Bezieht es sich auf die stillgelegten Maschen, wenn Sie die verkürzten Reihen stricken? Diese Maschen werden (siehe FERTIGSTELLEN) dann mit dem Kragen zusammengenäht, es sollte also keine Lücke entstehen. Hilft Ihnen die Schnittzeichnung unten an der Anleitung weiter?

11.03.2016 - 10:44