Claude skrifaði:
Voici mon mdèle préféré et j'aimerais beaucoup avoir les explications afin de le tricoter pendant les vacances Merci
25.06.2012 - 11:28
Lara skrifaði:
Jõuluajaks on väga ilus
18.06.2012 - 18:34
Rian skrifaði:
Supergaaf vest, leuk met die ronde pas. Ik ga alleen voor een andere kleur......
18.06.2012 - 17:08
Elli W skrifaði:
Ein ausgefallenes Stück. Toll
16.06.2012 - 18:36
Beate skrifaði:
Mag das Muster in der Farbkombination sehr
14.06.2012 - 15:17
Petra skrifaði:
Ein roter Traum, warte auf das Muster zum Stricken
11.06.2012 - 18:32
Susanne skrifaði:
Fine borter. Hvis jeg skal strikke denne trøje, vil jeg lave lange ærmer i den.
08.06.2012 - 05:07
Yvonne Ström skrifaði:
Snygg, jag gillar rött
03.06.2012 - 20:30
Minna Huttunen skrifaði:
Ihana malli, kaunis kuvio ja värit.
03.06.2012 - 09:11
Heike skrifaði:
Wunderschön
01.06.2012 - 22:59
Sweet Scarborough#sweetscarboroughcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Karisma með norrænu mynstri í berustykki. Stærð S-XXXL
DROPS 140-10 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni – 1. umf = rétta. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 184-200-220-240-268-292 l á hringprjóna nr 3 með litnum vínrauður DROPS Karisma. Prjónið stroff (1. umf = rétta) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 8 cm, er skipt yfir á hringprjóna nr 4, prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt er fækkað um 24-24-28-28-32-36 l jafnt yfir = 160-176-192-212-236-256 l. Setjið 1 prjónamerki eftir 40-44-48-53-59-64 l inn frá hvorri hlið (= 80-88-96-106-118-128 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist alls 10, aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum. Endurtakið útaukningu með 5 cm millibili alls 3 sinnum til viðbótar = 176-192-208-228-252-272 l. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 39-43-47-52-58-63 l (= hægra framstykki), fellið af 10 l fyrir handveg, 78-86-94-104-116-126 l (= bakstykki), fellið af 10 l fyrir handveg, prjónið út umf (= 39-43-47-52-58-63 l á vinstra framstykki), klippið ekki frá. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum. KANTUR Á ERMUM: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna nr 3. Fitjið upp 70-72-76-80-84-88 l með litnum vínrauður DROPS Karisma. Prjónið 5 umf slétt (1. umf = ranga), næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 5 l, prjónið 60-62-66-70-74-78 l og fellið af síðustu 5 l, klippið frá. Geymið stykkið og prjónið annan kant á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn kant á ermum á sama hringprjón nr 4 eins og fram- og bakstykki = 276-296-320-348-380-408 l (ekki prjóna inn l þegar þær eru settar á prjóninn). Prjónið 1 umf brugðið frá röngu jafnframt er fækka um 1-5-13-9-9-5 l jafnt yfir = 275-291-307-339-371-403 l. Prjónið 0-2-4-0-2-4 umf til viðbótar með litnum vínrauður og sléttprjóni. Haldið áfram með A-1 (sjá mynstur fyrir rétta stærð) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, næst síðasta l í umf er prjónuð eins og fyrsta l í A-1 og lykkjum er ekki fækkað í þessari l l. Eftir alla úrtöku eru 88-93-98-108-118-128 l á prjóni og stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm upp að öxl. Prjónið nú upphækkun að aftan með litnum vínrauður (1. umf = rétta) þannig: Prjónið 51-54-56-61-66-71 l sl, snúið, prjónið 14-15-14-14-14-14 l br til baka, snúið, prjónið 21-22-21-21-21-21 l sl, snúið, prjónið 28-29-28-28-28-28 l sl, haldið áfram með að prjóna yfir 7 l fleiri í hvert sinn áður en snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 70-71-70-84-84-84 l, snúið og prjónið út umf, klippið frá. Setjið l á þráð, kantur í hálsmáli er prjónaður á eftir kanti að framan. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 105-125 l innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 3 með litnum vínrauður DROPS Karisma. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og síðan 1 umf slétt frá réttu jafnframt er lykkjufjöldi aukin út jafnt yfir til 128-132-136-140-144-148 l. Prjónið stroff (1. umf = ranga) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stroffið mælist 3 cm, fellið laust af. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan, nema eftir 1 cm er fellt af fyrir 5-5-6-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir (fellt er af fyrir hnappagötum í brugðnu einingunum séð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = prjónið 2 l br saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – efsta hnappagatið á að vera í fyrstu brugðnu einingunni að ofan og það neðsta ca 5-6 cm frá neðri kanti. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Kantur í hálsmáli er prjónaður með litnum vínrauður á hringprjóna nr 3. Prjónið upp 6 l yfir hægri kant að framan (innan við 1 kantlykkju), prjónið inn þær 88-93-98-108-118-128 l af þræði í kringum hálsmál og prjónið upp 6 l yfir vinstri kant að framan = 100-105-110-120-130-140 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu jafnframt sem fellt er af jafnt yfir til 90-94-98-102-106-110 l. Haldið áfram með 4 umf slétt fram og til baka, fellið síðan af. FRÁGANGUR: Saumið saman kant á ermum kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið síðan saman op undir ermum og saumið tölur í. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetscarboroughcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.