Amy skrifaði:
Too pretty to go back to work
02.06.2012 - 07:15
Sara skrifaði:
Måste vara färgen som gör att den känns så tråkig.
01.06.2012 - 23:00
Loredana skrifaði:
Bellissimo.Diverso dal solito. Complimenti.
01.06.2012 - 18:58
Jeanne skrifaði:
Very classy, sensual, sophisticated--very flattering"cut!"
01.06.2012 - 06:03
José Serné skrifaði:
Prachtig! Deze zou ik graag maken.
31.05.2012 - 21:56
Anke skrifaði:
Mal ein einfaches aber edles muster
31.05.2012 - 20:58
Silje skrifaði:
Min favoritt fra kolleksjonen!
31.05.2012 - 15:12
Ingrid skrifaði:
Ein Traum! Sehr edel!
31.05.2012 - 14:46
Cleo#cleosweater |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 141-18 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Vegna mismunandi gatamynstra í peysunni, sameinað í sléttprjóni verður prjónfestan mismunandi í hverjum kafla. Sjáið til þess að prjónfestan haldist í hverjum kafla. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring. LESIÐ LEIÐBEININGAR! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 258-288-312-342-372-408 l á hringprjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 4 l br). Þegar stroffið mælist 5 cm er prjónað mynstur eftir A-1. (sjáið til þess að sl l í mynstri passi yfir sl l í stroffi). Þegar stykkið mælist 15 cm er prjónuð 1 umf slétt. JAFNFRAMT er fækkað um 56-68-72-78-84-92 l jafnt yfir = 202-220-240-264-288-316 l. Prjónið A.2 . Eftir A.2 er prjónað sléttprjón. Þegar stykkið mælist 21 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 14 l jafnt yfir = 188-206-226-250-274-302 l. Prjónið aftur A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 46-52-56-64-68-76 l jafnt yfir í síðustu umf = 142-154-170-186-206-226 l. Setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerki í 1. l í umf og 1 prjónamerki í 72.-78.-86.-94.-104.-114. l í umf (70-76-84-92-102-112 l á milli 2 l með prjónamerki í). Prjónið mynstur eftir A.3, en l með prjónamerki í eru prjónaðar slétt. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið við l með prjónamerki – útauknar lykkjur eru prjónaðar slétt þar til þær ganga upp í mynstur, l sem ekki ganga upp í mynstur + l með prjónamerki, eru prjónaðar slétt í hverri umf. Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili, 2 sinnum til viðbótar = 154-166-182-198-218-238 l (takið burtu prjónamerki í hliðum). Þegar stykkið mælist 33-34-34-35-35-36 cm – stillið af eftir 1 umf með gati – prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 52-54-62-66-74-78 l jafnt yfir = 206-220-244-264-292-316 l. Prjónið A.2, JAFNFRAMT er aukið út um 58-68-74-78-86-92 l jafnt yfir í síðustu umf = 264-288-318-342-378-408 l – setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið (= 132-144-159-171-189-204 l á fram- og bakstykki). Prjónið mynstur eftir A.1. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af 12 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 120-132-147-159-177-192 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 66-72-72-72-78-78 l á prjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 4 l br). Þegar stroffið mælist 5 cm er prjónað mynstur eftir A.1 (sjáið til þess að sl l í mynstri passi yfir sl l í stroffi). Þegar stykkið mælist 15 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 10-14-12-10-16-14 l jafnt yfir = 56-58-60-62-62-64 l. Setjið 1 prjónamerki í 1. l í umf. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! MYNSTUR: Prjónið nú mynstur A.2. Eftir A.2 er prjónað sléttprjón. Þegar stykkið mælist 21 cm er aftur prjónað mynstur A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 14 l jafnt yfir í síðustu umf. Prjónið mynstur eftir A.3. Þegar stykkið mælist 41-41-39-39-37-37 cm prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 14-14-14-18-18-18 l jafnt yfir. Prjónið mynstur A.2 JAFNFRAMT er aukið út í síðustu umf 18-18-18-22-22-22 l jafnt yfir. Prjónið nú mynstur A.1 – sjáið til þess að 2 l sl verði við miðju á ermi og teljið síðan út frá hlið í mynstri hvar þú byrjar. ÚTAUKNING VIÐ MIÐJU UNDIR ERMI: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-19-16-15-19-17 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í við miðju undir ermi (= 2 l fleiri) – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur, þær l sem ekki ganga upp í mynstur eru prjónaðar slétt þar til þær ganga inn í mynstur. Endurtakið útaukningu með 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili, 13-15-17-18-21-23 sinnum til viðbótar (= 28-32-36-38-44-48 l fleiri). Þegar stykkið mælist 46-46-45-45-44-44 cm (styttir mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), mælist A.1 efst á ermi næstum eins og A.1 efst á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. 5-5-6-6-7-7 cm. Þegar öll útaukning og úrtaka er lokið eru 102-108-114-126-132-138 l á prjóni. Fellið nú af 12 l við miðju undir ermi = 90-96-102-114-120-126 l eftir á ermi. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 420-456-498-546-594-636 l. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 96-104-114-124-136-144 l jafnt yfir (prjónið ca 3. og 4. l slétt saman) = 324-352-384-422-458-492 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið mynstur A.2. Eftir A.2 er haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm frá prjónamerki er prjónuð 1 umf slétt. JAFNFRAMT er fækkað um 52-64-76-88-100-110 l jafnt yfir = 272-288-308-334-358-382 l. Prjónið A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 62-72-82-90-98-106 l jafnt yfir í síðustu umf = 210-216-226-244-260-276 l. Prjónið mynstur eftir A.3. Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá prjónamerki – stillið af eftir umf með gati – prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 42-46-50-56-62-68 l jafnt yfir = 168-170-176-188-198-208 l. Prjónið mynstur A.2 JAFNFRAMT er aukið út um 48-46-46-34-30-20 l jafnt yfir í síðustu umf = 216-216-222-222-228-228 l. Nú er prjónað mynstur eftir A.1. Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm er prjónað stroff (= 2 l sl, 4 l br – sjáið til þess að sl l í stroffi verði yfir sl l í mynstri). Eftir 1 cm með stroff er fækkað öllum 4 l br til 3 l br (prjónið 2 fyrstu l br saman) = 180-180-185-185-190-190 l. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Klippið frá og byrjið umf við miðju að aftan. Prjónið nú hækkun að aftan við hnakka (haldið áfram með stroff) þannig: Prjónið þar til 18 l eru eftir á undan prjónamerki að framan, snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka þar til 18 l eru eftir á undan prjónamerki að framan, snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka þar til 18 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 30-30-30-30-36-36 l á undan prjónamerki að framan, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 30-30-30-30-36-36 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Haldið svona áfram fram og til baka með því að snúa við 12-12-12-12-18-18 l fyrr í hvert skipti í hvorri hlið þar til prjónaðar hafa verið alls 8 umf með hækkun að aftan. Snúið við og prjónið aftur að miðju að aftan. Haldið nú áfram með stroff í hringinn yfir allar l JAFNFRAMT sem fækkað er öllum 3 l br til 2 l br í 1. umf = 144-144-148-148-152-152 l. Eftir auka 1 cm fækkið öllum 2 l br til 1 l br = 108-108-111-111-114-114 l. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá prjónamerki, mælt við miðju að framan (stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá neðri kanti og upp), fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cleosweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.