Cristina skrifaði:
Me encanta este diseño. Yo tengo lana delight en color -9 (azul-violeta). ¿Con qué tonalidad de Vivaldi me recomendáis hacer la mezcla para tejer este diseño?.Gracias.
16.10.2012 - 11:57DROPS Design svaraði:
Cristina, qué te parece combinar con Vivaldi 01, negro? Cariños y que te quede espectacular!!
16.11.2012 - 04:52
Marjolein skrifaði:
Ik kom niet uit met de patentsteek op de rondbrei naald. Heb het werk inmiddels al vijf maal uit elkaar gehaald en weer opnieuw gebreid.. Het gaat met name om het begin en het eind, ik kom daar niet goed uit. Ik heb ook het instructie filmpje bekeken. Maar ik kan niet achterhalen wat ik verkeerd doe. Vergeet ik misschien een extra steek op het einde te maken?
03.10.2012 - 11:07DROPS Design svaraði:
Het patroon voor het patentsteek klopt. Maar vaak moet je 8-10 nld breien voordat het begint op patentsteek te lijken. Dus volg de instructie nauwkeurig en zie na ca 8 nld of het niet begint te werken.
14.11.2012 - 18:42Maritza skrifaði:
Precioso, me encanta la combinación de colores.
24.08.2012 - 01:21
Ilona skrifaði:
Schickes Modell!
19.07.2012 - 12:51Fiona Johnston skrifaði:
This is a beautiful jumper. I hope the pattern becomes available as I would love to knit it for my daughter.
30.06.2012 - 00:08
Kirsten skrifaði:
Rigtig skøn sweater. Klassisk. Flot farvespil og god halsåbning. Glæder mig til at få den strikket
09.06.2012 - 18:41
Nanou skrifaði:
Tres joli modele, a la fois chaud et doit etre tres agreable a porter
06.06.2012 - 09:01
Clara skrifaði:
No se abre la foto al ampliarla, por tanto no puedo apreciar su tejido y su forma
04.06.2012 - 20:36Sheila skrifaði:
I voted for this pattern despite the not being able to see an enlarged picture, please could you correct this as other may not vote. I do hope it is not Crochet
03.06.2012 - 12:19
Ale skrifaði:
It is impossible to open this style, it does not work. It's a pity, as it seems nice.
02.06.2012 - 18:36
Nicole#nicolesweater |
|
|
|
Prjónuð peysa í klukkuprjóni úr DROPS Delight og DROPS Vivaldi. Stærð S - XXXL.
DROPS 143-27 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI FRAM- OG BAKSTYKKI (prjónað í hring á hringprjón): UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið br, 1 l sl*, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið*, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 3: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman*, endurtakið frá *-*. Endurtakið umf 2 og 3. KLUKKUPRJÓNS LYKKJA: Þegar lykkjurnar eru taldar er uppslátturinn ekki talinn með sem lykkja. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI ERMI (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, *1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið umf 2. ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið er út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn, þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan. ATH: nýju lykkjurnar eru prjónaðar jafn óðum inn í klukkuprjón. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. PEYSA: Fitjið upp 112-126-140-154-168-182 l með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjón nr 5. Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 2 l br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl*, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16-18-20-22-24-26 einingar með 2 l br. Prjónið sl yfir sl og br yfir br þar til stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm. Í næstu umf er fækkað um 1 l í hverri einingu með 2 l br með því að prjóna 2 l br saman (= 16-18-20-22-24-26 l færri) = 96-108-120-132-144-156 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI FRAM- OG BAKSTYKKI- sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 39-40-41-42-43-44 cm – ATH: Endið á umf 3 í klukkuprjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykkinu þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf, 1 prjónamerki á eftir 48-54-60-66-72-78 l (umf byrjar á hlið) ATH: Uppslátturinn er ekki talin sem 1 l – LESIÐ KLUKKUPRJÓNS LYKKJA. Í næstu umf (= 2. umf í klukkuprjóni) eru felldar af 3-3-3-4-4-4 l hvoru megin við hvert prjónamerki fyrir handveg = 42-48-54-58-64-70 l á framstykki og á bakstykki. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið laust upp 28-30-30-32-32-34 l með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjón nr 5. Fyrsta umf (= ranga) er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Skiptið nú yfir á hringprjón nr 6 og prjónið klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI ERMI. Þegar stykkið mælist 12-12-11-11-8-8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu með 15-15-11-11-8-8 cm millibili alls 1-1-2-2-3-3 sinnum til viðbótar (=2-2-3-3-4-4 sinnum)= 32-34-36-38-40-42 l. Þegar stykkið mælist 42-42-41-41-40-40 cm er fellt af þannig fyrir ermakúpu frá réttu: Fellið af 3-3-2-3-4-4 l í byrjun á næstu 2 umf = 26-28-32-32-32-34 l, klippið frá. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Setjið ermarnar á sama hringprjón nr 6 eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 136-152-172-180-192-208 l. Prjónið nú í hring í klukkuprjóni. Þegar berustykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá því þar sem fram- og bakstykki og ermar voru settar saman er skipt yfir á hringprjóna nr 5, prjónið 1 umf stroff (= 1 l sl, 1 l br, uppslátturinn er prjónaður saman með l) yfir allar l. Í næstu umf er lykkjum fækkað þannig: * Prjónið 2 l snúnar sl saman (prjónið aftan í lykkjuboganna), 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 68-76-86-90-96-104 l. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stroffið mælist 21-22-23-24-25-26 cm, fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nicolesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.