ANNA skrifaði:
Even if it is a jacquard it shows easy. Using so many colors , but only 2 on one line. For sure I will do it.
08.06.2012 - 13:01
Ingrid Ahlgren skrifaði:
Supersygg,skulle vara snyggare med lång ärm och framförallt mer praktiskt här i kalla norden vintertid. Det blir så "tjorvigt" eller konstig känsla att ha den korta ärmen under vinter kappan. Man kan alltid förlänga ärmen om man är erfareninom stickning.
06.06.2012 - 10:14
Patricia skrifaði:
Heb al spijt dat ik dit model niet aan mijn favorieten heb toegevoegd. Ik had hem toch ook wel graag op het to-do-lijstje gezet :-)
04.06.2012 - 13:25
Elisabeth skrifaði:
Supersød model
02.06.2012 - 23:08
Daniela skrifaði:
Modello originale e interessante
01.06.2012 - 19:31
Anabella skrifaði:
Hermoso, el mas lindo de todos!!!Vivo en Argentina y estamos en pleno invierno...cuando comienzan las traducciones. Gracias.
31.05.2012 - 22:52
Pokhara#pokharacardigan |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með mynstri á berustykki úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL
DROPS 142-7 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað kemur til með að vera 1 l í lok umf sem ekki gengur upp í mynstri. Þessi l er prjónuð inn í mynstur eins og hún sé fyrsta l í næstu mynstureiningu. Þetta er gert til þess að mynstrið verði eins í báðum hliðum á framstykki. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. PEYSA: Fitjið upp 184-204-220-240-268-292 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4,5 með beige Nepal. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið nú stroff (1. umf = rétta) þannig: Prjónið 1 kantlykkju (prjónuð í garðaprjóni í öllum umf til loka), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 1 kantlykkju (prjónuð í garðaprjóni í öllum umf til loka). Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 1 umf slétt frá réttu jafnframt sem fækkað um 27-35-39-41-45-51 l jafnt yfir = 157-169-181-199-223-241 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið 40-43-46-50-56-61 l frá miðju að framan (= miðja á hliðum), bakstykki = 77-83-89-99-111-119 l. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (= 4 l færri), endurtakið úrtöku í með 3 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 141-153-165-183-207-225 l. Þegar stykkið mælist 22 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (= 4 l fleiri), endurtakið útaukningu með 3-3½-4-4½-5-5½ cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 153-165-177-195-219-237 l. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm er prjónað mynstur A.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrsta umf = frá réttu) – lesið LEIÐBEININGAR! Þegar A.1 er lokið er prjónuð 1 umf slétt frá réttu með grár/fjólublár JAFNFRAMT er fækkað um 6 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 l hvoru megin við hvert prjónamerki ) = 141-153-165-183-207-225 l. Geymið stykkið. KANTUR Á ERMUM: Stykkið er prjónað í hring. Fitjið upp 68-68-68-76-76-76 l á sokkaprjóna nr 4,5 með litnum beige Nepal og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 5, prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 8-8-8-10-10-10 l jafnt yfir = 60-60-60-66-66-66 l. Setjið prjónamerki í byrjun umf. Prjónið nú eftir A.1. Þegar A.1 er lokið er prjónuð 1 umf með grár/fjólublár, JAFNFRAMT er fækkað um 6 l við miðju undir ermi (= 3 l hvoru megin við prjónamerki) = 54-54-54-60-60-60 l. Geymið stykkið og prjónið annan kant á ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn kanta á ermum á sömu hringprjóna nr 5 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 249-261-273-303-327-345 l. Prjónið 1 umf með beige, JAFNFRAMT er fækkað um 12-6-0-12-0-0 l jafnt yfir = 237-255-273-291-327-345 l. Prjónið og fækkið lykkjum eftir mynsturteikningu A.2 (haldið áfram með 1 kantlykkju í hvorri hlið). Þegar A.2 hefur verið prjónað á hæðina eru 107-115-123-131-129-136 l á prjóni – sjá ör fyrir þína stærð. Setjið l á þráð. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið fram og til baka á hringprjóna. Prjónið upp 115-119-123-127-131-135 l meðfram vinstra framstykki innan við 1 kantlykkju á hringprjóna nr 4,5 með litnum beige. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið nú stroff (frá réttu og efst í hálsmáli) þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*, endið með 2 l sl og 4 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur – en þegar kanturinn mælist 2 cm er fellt af fyrir 6-6-6-6-7-7 hnappagötum jafnt yfir – efsta hnappagatið á að vera 1 cm fyrir neðan brún á efri kanti og það neðsta ca 3 cm frá neðri kanti. 1 HNAPPAGAT = prjónið 2 l sl saman (séð frá réttu) og fitjið upp 1 nýja l yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umf. HÁLSMÁL: Setjið til baka l af þræði á hringprjóna nr 4,5 og prjónið upp 8 l yfir kanta að framan = 123-131-139-147-145-152 l. Prjónið 4 umf garðaprjón með litnum beige, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 43-47-51-55-49-52 l jafnt yfir = 80-84-88-92-96-100 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir höndum og saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pokharacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.