Celtic#celticsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með mynstri úr 1 þræði DROPS Big Fabel eða 2 þráðum DROPS Fabel. Stærð S - XXXL.
DROPS 140-26 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, mynsturteikningin sýnir allar umf í 1 mynstureiningu séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ATH: Allar kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni þegar stykkið er prjónað fram og til baka! ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að sækja þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 164-182-196-216-240-264 l með 1 þræði Big-Fabel með litnum svartur/natur eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur/natur á hringprjóna nr 4. Prjónið stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram þar til stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm. Í næstu umf er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað er sl – JAFNFRAMT er fækkað um 28-30-32-36-40-44 l jafnt yfir = 136-152-164-180-200-220 l. Prjónið nú áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-11-12-13-14-14 cm er aukið út um 4-5-8-9-8-7 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 14-14-16-17-19-19 cm = 144-162-180-198-216-234 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm. Nú er prjónað A.1 (= 8-9-10-11-12-13 mynstureiningar á breiddina) einu sinni á hæðina, síðan er prjónað sléttprjón með litnum svartur/natur til loka. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm (nú á A.1 að vera lokið) setjið eitt prjónamerki í byrjun umf og eitt prjónamerki á eftir 72-81-90-99-108-117 l, nú skiptist stykkið við prjónamerki og hvort stykki er prjónað fyrir sig. BAKSTYKKI: = 72-81-90-99-108-117 l. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 þræði Big Fabel með litnum svartur/natur eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur/natur – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1-1-1-2-3-3 sinnum, 2 l 1-2-2-3-3-4 sinnum, 1 l 3-4-6-4-4-6 sinnum = 56-59-64-67-70-71 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Nú eru felldar af miðju 20-21-22-23-24-25 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 17-18-20-21-22-22 l eftir fyrir öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. FRAMSTYKKI: = 72-81-90-99-108-117 l. Prjónið fram og til baka með litnum svartur/natur – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki. Haldið áfram þar til stykkið mælist 47-48-49-51-52-53 cm. Fellið af miðju 8-9-8-9-10-11 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af í hverri umf frá hálsmáli þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni, 1 l 2-2-3-3-3-3 sinnum = 17-18-20-21-22-22 l eftir fyrir öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 42-44-46-50-52-54 l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði Big Fabel með litnum svartur/natur eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur/natur. Prjónið stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 8 cm. Í næstu umf er skipt yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónað er sl – JAFNFRAMT er fækkað um 7-7-7-9-9-9 l jafnt yfir = 35-37-39-41-43-45 l. Prjónið nú áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 9 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi), látið merkið fylgja með í stykkinu. Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 7-5½-4½-4-3½-3 cm millibili 5-6-7-8-9-10 sinnum til viðbótar (= alls 6-7-8-9-10-11 sinnum) = 47-51-55-59-63-67 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-25-24-23-22-22 cm er sett 1 prjónamerki í miðju-l í umf (= miðja á ermi), prjónið A.1 einu sinni á hæðina – ATH: 1. l í A.1 á að passa við l með prjónamerki í miðju á ermi. Þegar A.1 hefur verið prjónað er prjónað áfram með litnum svartur/natur til loka. Þegar stykkið mælist 48-47-46-45-44-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla, nú á A.1 að vera lokið) fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki (= 6 l færri undir ermi). Prjónið nú stykkið fram og til baka – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 3 l 0-0-0-1-1-1 sinnum, 2 l 1-2-2-2-3-3 sinnum, og 1 l 2-2-3-3-4-4 sinnum. Fellið nú af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 57 cm, fellið nú af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið allar l af, stykkið mælist ca 58 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma og saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. KRAGI: Prjónið upp frá réttu ca 100-120 l innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli á hringprjóna nr 4 (byrjið frá miðju að aftan). Í næstu umf er prjónað sl - JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 95-100-105-110-115-120 l. Prjónið stroff þannig: * Prjónið 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram með stroff 3 l sl, 2 l br þar til kraginn mælist ca 11 cm. Nú er aukið út um 1 l br í hverri br mynstureiningu = 114-120-126-132-138-144 l. Haldið áfram með stroff 3 l sl, 3 l br þar til kraginn mælist 24 cm, fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #celticsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.