DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Super Sale

Vanessa

Prjónuð stór peysa úr DROPS Alpaca, DROPS Fabel og DROPS Cotton Viscose með köðlum og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 140-23
DROPS Design: Mynstur nr fa-199
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

Efni:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 02, natur
Og einnig:
DROPS FABEL frá Garnstudio
250-300-300-350-400-400 gr litur nr 905, vartur/natur
Og einnig:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-150-150-200-200 gr litur nr 506, dökk grár
100-100-100-100-150-150 gr litur nr 100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni með 2 þráðum verða 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – fyrir stroff

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf slétt og 1 umf brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 88-88-92-92-96-96 l á stutta hringprjóna nr 5,5 með 2 þráðum af Fabel.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið nú rendur eftir A.1 og mynstur eftir A.2 þannig: Prjónið 18-18-20-20-22-22 l sl (= framstykki), A.2 (= 9 l), 8 l sl (= hægri ermi), A.2, 18-18-20-20-22-22 l sl (= bakstykki), A.2, 8 l sl (= vinstri ermi), A.2 = 104-104-108-108-112-112 l. Næsta umf er prjónuð (uppslátturinn frá A.2 er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist göt) þannig: * Prjónið 18-18-20-20-22-22 l sl, A.3 (= 13 l), 8 l sl, A.3 *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið áfram með rendur og mynstur, JAFNFRAMT er aukið út þannig:

ATH! Aukið er út mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki – LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

ÚTAUKNING Á FRAM- /BAKSTYKKI:
Á UNDAN fyrsta og þriðja A.3, Á EFTIR örðu og fjórða A.3 í umf: Sláið 1 sinni uppá prjóninn við hliðina á A.3 í hverri umf 0-0-0-0-6-4 sinnum, í annarri hverri umf 16-21-24-31-29-36 sinnum, síðan í 4. hverri umf 6-4-3-0-0-0 sinnum (= alls 22-25-27-31-35-40 útaukningar). Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf (það eiga að myndast göt).

ÚTAUKNING Á ERMI:
Á EFTIR fyrsta og þriðja A-3 í umf, Á UNDAN öðru og þriðja A.3:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn við hliðina á A-3 í annarri hverri umf 28-29-30-31-32-33 sinnum. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf (það eiga að myndast göt).
Eftir alla útaukningu eru 304-320-336-356-380-404 l í umf. Setjið 1 prjónamerki í miðju í fjórða A.3, þetta er byrjun á umf. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 75-81-87-95-105-115 l sléttprjón (= framstykki), fitjið upp 6 nýjar l, setjið 77-79-81-83-85-87 l á þráð fyrir ermi, prjónið 75-81-87-95-105-115 l sléttprjón (= bakstykki), fitjið upp 6 nýjar l, setjið 75-79-81-83-85-87 l á þráð fyrir ermi.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 162-174-186-202-222-242 l. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og rendur eftir A.1. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út 34-34-34-42-46-50 l jafnt yfir = 196-208-220-244-268-292 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið stroff með 2 þráðum af Fabel = 2 l sl, 2 l br í 6 cm. Fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl.

ERMI:
Prjónið í hring, ofan frá og niður.
Setjið l af öðru bandinu á sokkaprjóna nr 5,5 og fitjið að auki upp 6 nýjar l undir ermi= 83-85-87-89-91-93 l. Setjið 1 prjónamerki við miðju undir ermi (þ.e.a.s. mitt í þær 6 nýju l). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A-1 og sléttprjóni yfir allar l, JAFNFRAMT þegar prjónaðir hafa verið 3 cm, fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið úrtöku með 1 cm millibili 14 sinnum til viðbótar, síðan með 2 cm millibili 5 sinnum = 43-45-47-49-51-53 l. Prjónið áfram þar til ermin mælist 31-31-30-30-29-29 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT er aukið út um 1-3-1-3-1-3 l jafnt yfir = 44-48-48-52-52-56 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið stroff með 2 þráðum af Fabel = 2 l sl, 2 l br í 6 cm. Fellið nú af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.10.2012
PEYSA:...Næsta umf er prjónuð (uppslátturinn frá A.2 er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist göt) þannig: * Prjónið 18-18-20-20-22-22 l sl, A.3 (= 13 l), 8 l sl, A.3 *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum...
Yfirfarið á vefsvæði: 06.12.2012
ÚTAUKNING Á FRAM- /BAKSTYKKI: Á UNDAN fyrsta og þriðja A.3, Á EFTIR örðu og fjórða A.3 í umf: Sláið uppá prjóninn við hliðina á A.3 í hverri umf 0-0-0-0-6-4 sinnum, í annarri hverri umf 16-21-24-31-29-36 sinnum, síðan í 4. hverri umf 6-4-3-0-0-0 sinnum (= alls 22-25-27-31-35-40 útaukningar). Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf (það eiga að myndast göt).

Mynstur

symbols = 1 þráður Fabel + 1 þráður Cotton Viscose
symbols = 2 þræðir Fabel
symbols = 2 þræðir Cotton Viscose
symbols = 2 þræðir litur dökk grár Alpaca
symbols = 1 þráður litur dökk grár Alpaca + 1 þráður litur natur Alpaca
symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Kathrine Kristensen wrote:

Jeg vil rigtig gerne i gang med denne trøje i str S men garnet DROPS COTTON VISCOSE fra Garnstudio 350g f.nr 02, natur er udgået. Har I et specifikt alternativ til denne som også matcher farve? Jeg kan ikke finde ud af hvordan farve 02 så ud.

18.08.2021 - 10:17

DROPS Design answered:

Hei Kathrine. DROPS Cotton Viscose var et tynt blandingsgarn (54% Bomull, 46% Viskose), vi har dessverre ikke et lignende garn i vårt sortiment. Du kan erstatte Cotton Viscose med et annen garn fra garngruppe A. Da kan du velge mellom bomulsgarn eller ullgarn. Og velger du farge natur på en av disse kvalitetene blir det mest riktig farge. mvh DROPS design

18.08.2021 - 15:47

country flag Anita wrote:

Ich versteh nicht wann ich wie zunehmen soll

28.01.2020 - 13:01

DROPS Design answered:

Liebe Anita, die Raglanzunahmen sind nicht dieselben beim Rücken- und Vorderteil (=vor 1. +3. A.3 und nach 2. +4. A.3) und bei den Ärmeln (=nach 1. + 3. A.3 und vor 2. + 4. A.3). Dh je nach der Größe werden Sie entweder 4 Maschen (nur beim Vorder- + Rückenteil oder nur bei den Ärmeln) oder 8 Maschen (Vorder- + Rückenteil + Ärmel) zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

28.01.2020 - 13:24

country flag Anita wrote:

Hallo zusammen ich hab ein problem mit A3 das sind doch 8 runden oder versteh ich da was falsch

19.01.2020 - 15:11

DROPS Design answered:

Liebe Anita, ja genau, A.3 wird über 8 Reihen/Runden gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

20.01.2020 - 09:44

country flag Anita wrote:

Wird das rücken und vordrtteil zusammen gestrickt oder ganz normal jedes einzel

16.01.2020 - 20:43

DROPS Design answered:

Liebe Anita, das Pullover wird von oben nach unten gestrickt, also alle Teile zusammen mit Raglanzunahmen, dann verteilen Sie die Arbeit für die Ärmel und Rumpfteil und stricken jedes Teil separat in der Runde zur Ende. Viel Spaß beim stricken!

17.01.2020 - 08:53

country flag Monique Abma wrote:

Goedenavond ik heb nog een vraag. Ik ben aanbeland bij het lijf en heb 162 steken voor maat s Moet ik nu 34 steken meerderen in 1 naald? En dan verder breien tot 62cm?

08.09.2017 - 20:12

DROPS Design answered:

Hallo Monique, Ja, dat klopt, je meerder 34 steken verdeeld over 1 naald en dan brei je het lijf verder tot de gewenste lengte zonder verder meerderingen of minderingen te maken.

13.09.2017 - 15:27

country flag Monique Abma wrote:

Goeiemiddag Wanneer begin ik met de langere rondbreinaald?

22.08.2017 - 15:41

DROPS Design answered:

Hallo Monique, Je begint met de langere rondbreinaald als de steken niet meer op een korte passen en je daardoor niet meer prettig kunt breien. Het is overigens ook mogelijk om een klein aantal steken op den grote rondbreinaald te breien. Dit doe je met de zgn. magic loop

28.08.2017 - 12:10

country flag Magne Francoise wrote:

C' est mon premier pull en rond pour les augmentations je ne vois pas a quoi correspond le 1er et le 3ème A3 et après le 2ème et le 4ème A3 merci de bien vouloir m'expliquer

23.11.2015 - 09:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Magne, le 1er A.3 est le premier motif A.3 que que vous avez tricoté à partir du début du tour, le 2ème A.3 est le 2ème à partir du début du tour et ainsi de suite. Bon tricot!

23.11.2015 - 11:04

country flag Joke Boere wrote:

Ik had een vraagje over dit patroon.Hoe komt het dat je begint met de raglan met 22steken en dan de volgende naald ineens 18steken volgens mij krijg je zo nooit de schuine lijn voor een raglan.

14.12.2014 - 16:31

DROPS Design answered:

Hoi Joke. 18-18-20-20-22-22 st r zijn hoeveel steken je hebt per maat op het voor en achterpand. Door te meerderen zoals beschreven krijg je een schuine lijn

18.12.2014 - 16:19

country flag Dorthe Flammild wrote:

Skal man strikke A1 fra oven eller fra neden? Jeg kan ikke rigtig se det på billedet.

24.11.2014 - 20:07

DROPS Design answered:

Hej Dorthe. Du strikker nedefra og op. Se ogsaa her hvordan du laeser vores diagrammer. God fornöjelse

27.11.2014 - 13:54

country flag Stinr Lsrsen wrote:

På ærmet står der 93 m. Så lukker du af på hver side af mærket 14 gange. Det må blive 28 m. 93-28=65. Derefter 5 gange. Altså 10 m. Så er vi nede på 55 m, men der står jeg skal ende med 53

28.10.2014 - 21:37

DROPS Design answered:

Hej Stine, Der står at du skal tage 1 m ind i hver side og herefter 14 gange til = 15 gange ialt. Så stemmer det med at du har 53 m. God fornøjelse!

29.10.2014 - 15:30