DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Celtic

Prjónuð peysa með mynstri úr 1 þræði DROPS Big Fabel eða 2 þráðum DROPS Fabel. Stærð S - XXXL.

DROPS 140-26
DROPS Design: Mynstur nr bf-012
Garnflokkur C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG FABEL frá Garnstudio
500-500-600-700-700-800 gr litur nr 905, svartur/natur
Og einnig:
DROPS BIG FABEL frá Garnstudio
200-200-200-200-200-200 gr litur nr 40, svartur

Eða notið:
DROPS FABEL frá Garnstudio
400-400-450-550-550-600 gr, litur nr 905, svartur/natur
DROPS FABEL frá Garnstudio
200-200-200-200-200-200 gr litur nr 400, svartur:

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR NR 5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR NR 4 (80 cm) – fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR NR 4 (60 cm) – fyrir kraga.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, mynsturteikningin sýnir allar umf í 1 mynstureiningu séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
ATH: Allar kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni þegar stykkið er prjónað fram og til baka!

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að sækja þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 164-182-196-216-240-264 l með 1 þræði Big-Fabel með litnum svartur/natur eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur/natur á hringprjóna nr 4. Prjónið stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram þar til stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm. Í næstu umf er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað er sl – JAFNFRAMT er fækkað um 28-30-32-36-40-44 l jafnt yfir = 136-152-164-180-200-220 l. Prjónið nú áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 11-11-12-13-14-14 cm er aukið út um 4-5-8-9-8-7 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 14-14-16-17-19-19 cm = 144-162-180-198-216-234 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm. Nú er prjónað A.1 (= 8-9-10-11-12-13 mynstureiningar á breiddina) einu sinni á hæðina, síðan er prjónað sléttprjón með litnum svartur/natur til loka. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm (nú á A.1 að vera lokið) setjið eitt prjónamerki í byrjun umf og eitt prjónamerki á eftir 72-81-90-99-108-117 l, nú skiptist stykkið við prjónamerki og hvort stykki er prjónað fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 72-81-90-99-108-117 l. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 þræði Big Fabel með litnum svartur/natur eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur/natur – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1-1-1-2-3-3 sinnum, 2 l 1-2-2-3-3-4 sinnum, 1 l 3-4-6-4-4-6 sinnum = 56-59-64-67-70-71 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Nú eru felldar af miðju 20-21-22-23-24-25 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 17-18-20-21-22-22 l eftir fyrir öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

FRAMSTYKKI:
= 72-81-90-99-108-117 l. Prjónið fram og til baka með litnum svartur/natur – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki. Haldið áfram þar til stykkið mælist 47-48-49-51-52-53 cm. Fellið af miðju 8-9-8-9-10-11 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af í hverri umf frá hálsmáli þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni, 1 l 2-2-3-3-3-3 sinnum = 17-18-20-21-22-22 l eftir fyrir öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 42-44-46-50-52-54 l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði Big Fabel með litnum svartur/natur eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur/natur. Prjónið stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 8 cm. Í næstu umf er skipt yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónað er sl – JAFNFRAMT er fækkað um 7-7-7-9-9-9 l jafnt yfir = 35-37-39-41-43-45 l. Prjónið nú áfram í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 9 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi), látið merkið fylgja með í stykkinu. Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með
7-5½-4½-4-3½-3 cm millibili 5-6-7-8-9-10 sinnum til viðbótar (= alls 6-7-8-9-10-11 sinnum) = 47-51-55-59-63-67 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-25-24-23-22-22 cm er sett 1 prjónamerki í miðju-l í umf (= miðja á ermi), prjónið A.1 einu sinni á hæðina – ATH: 1. l í A.1 á að passa við l með prjónamerki í miðju á ermi. Þegar A.1 hefur verið prjónað er prjónað áfram með litnum svartur/natur til loka. Þegar stykkið mælist 48-47-46-45-44-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla, nú á A.1 að vera lokið) fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki (= 6 l færri undir ermi). Prjónið nú stykkið fram og til baka – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 3 l 0-0-0-1-1-1 sinnum, 2 l 1-2-2-2-3-3 sinnum, og 1 l 2-2-3-3-4-4 sinnum. Fellið nú af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 57 cm, fellið nú af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið allar l af, stykkið mælist ca 58 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma og saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

KRAGI:
Prjónið upp frá réttu ca 100-120 l innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli á hringprjóna nr 4 (byrjið frá miðju að aftan). Í næstu umf er prjónað sl - JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 95-100-105-110-115-120 l. Prjónið stroff þannig: * Prjónið 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram með stroff 3 l sl, 2 l br þar til kraginn mælist ca 11 cm. Nú er aukið út um 1 l br í hverri br mynstureiningu = 114-120-126-132-138-144 l. Haldið áfram með stroff 3 l sl, 3 l br þar til kraginn mælist 24 cm, fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = 1 þráður litur svartur/natur Big Fabel eða 2 þræði litur svartur/natur Fabel
symbols = 1 þráður litur svartur Big Fabel eða 2 þræði litur svartur Fabel
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Hanna Strandberg wrote:

Hej! Jag får inte ihop diagrammet tillsammans med ökningarna. Allting blir bara ojämnt. vad gör jag för fel egentligen?

09.11.2015 - 18:50

DROPS Design answered:

Hej Hanna, På fram&bakst är du färdig med ökningen när du börjar med diagrammet. På ärmen ser du till at diagrammet stämmer ovanpå ärmen. Lycka till!

20.11.2015 - 13:45

country flag Marie Faure wrote:

Merci pour votre réponse. Pour être sûre de bien comprendre : A1 doit-il faire tout le tour de la manche ? Dans ce cas, dois-je donc arrêter le diagramme à la fin du tour et reprendre le début du tour avec le motif de manière à récupérer le début du motif au milieu du dessus de la manche (avec une transition pas nette sous la manche au début/fin du tour) ? Ou bien ne dois-je faire A1 que sur une partie de la manche ? Dans ce cas, combien de fois en largeur dois-je répéter A1 (taille S) ? Merci !

11.02.2015 - 21:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Faure, vous devez centrer A.1 sur le dessus de la manche de sorte que la 1ère m du diagramme soit celle avec le marqueur au-dessus de la manche (milieu extérieur de la manche), comptez 18 m pour chaque motif avant ce marqueur, s'il reste 5 m avant le début du tour (par exemple), tricotez A.1 en commençant par les 5 dernières m du diagramme. Tricotez les augmentations de la manche en suivant le motif. Bon tricot!

12.02.2015 - 09:33

country flag Marie Faure wrote:

Bonjour, J'ai une petite question concernant ce modèle : pour les manches, je ne vois pas comment tricoter A1, alors qu'il n'y a pas un nombre de mailles égal à 18 (= largeur de A1) ou multiple de 18 (plusieurs A1) et que, surtout, il y a des augmentations durant la réalisation même du motif... Il ne peut donc pas être complet. A moins que ce motif ne fasse pas tout le tour de la manche ? Merci pour votre réponse et pour vos magnifiques modèles, ainsi que pour la qualité de vos fils !

11.02.2015 - 17:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Faure, le diagramme ne sera pas complet au niveau du début/de la fin du tour. La 1ère m de A.1 doit être celle avec le marqueur au milieu du dessus de la manche, comptez à partir du marqueur jusqu'au début du tour pour placer le motif. Bon tricot!

11.02.2015 - 18:11

country flag Linda wrote:

Er denne genseren veldig liten i størrelsen? Synes den blir veldig smal selv om jeg holder strikkefastheten.

11.02.2015 - 11:03

DROPS Design answered:

Hej Linda. Hvis din strikkefasthed passer, saa skulle maalene vaere som vist i maalskitsen nederst paa mönstret. Her ser du alle maal per störrelse i cm.

11.02.2015 - 15:48

country flag Ellen wrote:

Beste Drops Design, Hartelijk dank voor uw antwoord. Nu nog een laatste vraag en dan is de trui bijna af. Volgende zin begrijp ik niet helemaal; Kant dan 2 st af aan elke kant tot het werk 57 cm meet, kant dan 1 keer 3 st af aan elke kant. Kant alle st af, het werk meet ongeveer 58 cm voor alle maten. Blijf ik dan iedere keer 2 steken afkanten ? Of is het eenmalig 2 steken afkanten en dan 1x3 steken afkanten. Alvast hartelijk dank !

25.11.2014 - 16:10

DROPS Design answered:

Hoi Ellen. Je blijft 2 st afkanten aan elke zijkant tot 57 cm en dan kant je 1 keer 3 st af aan beide zijkanten.

27.11.2014 - 13:53

country flag Ellen wrote:

Ik ben met de mouw bezig, met het telpatroon. Nu zit ik al op 47 cm om te gaan minderen, maar ben nog niet klaar met het telpatroon. Ik moet nog 6 rijen breien en dan is het telpatroon klaar. Vraag; zal ik eerst het telpatroon afmaken en dan minderen ? Of nu al beginnen met minderen. Ik heb wel lange armen.

21.11.2014 - 09:38

DROPS Design answered:

Hoi Ellen. Als het past met de lengte van je mouwen, zou ik wachten met minderen tot het telpatroon klaar is. Als niet, dan moet je nu gaan minderen.

21.11.2014 - 13:51

country flag Ellen wrote:

Ik ben al uit mijn vraag, het is anders niet deelbaar.

27.09.2014 - 16:05

DROPS Design answered:

Hoi Ellen. Mooi zo. Veel breiplezier verder.

29.09.2014 - 12:33

country flag Ellen wrote:

Bij het voorpand staat; de middelste 8-9-8-9-10-11 steken afkanten. Moet dat niet zijn; 8-8-9-9 ?

26.09.2014 - 22:15

country flag Ingela Sandström wrote:

Jag får inte ärmarna att stämma, tycker dom är på tok för smala och de passar inte i ärmhålet. Hjälp önskas

28.10.2012 - 14:22

DROPS Design answered:

Om du håller stickfastheten så stämmer ärmarna i ärmhålet. Men maska av löst!

15.11.2012 - 15:30

country flag Jrène Stähli wrote:

Die Wolle habe ich schon - warte noch aufs Strickmuster und freue mich schon jetzt auf Winterspaziergänge!

19.06.2012 - 11:31