DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Karisma yarn
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8540.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS Extra 0-816

#victoriasweater

DROPS Design: Mynstur nr u-653.
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
550-600-650-700-750-850 g litur nr 37, dökk blágrænn
100-100-150-150-150-150 g litur nr 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur nr 55, ljós brúnn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8540.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni og sýnir 1 mynstureiningu af mynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 204-224-242-276-296-338 lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk blágrænn DROPS Karisma.
Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því að fækka um 34-38-40-46-50-56 lykkjur jafnt yfir = 170-186-202-230-246-282 lykkjur.
Setjið 1 merki í byrjun umferðar og 1 merki eftir 85-93-101-115-123-141 lykkjur (þessi merki merkja hliðar). Haldið áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin. Endurtakið úrtöku í 3. hverjum cm alls 4 sinnum = 154-170-186-214-230-266 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-26-26 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin. Endurtakið útaukningu í 3. hverjum cm alls 4 sinnum = 170-186-202-230-246-282 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 34-36-38-40-42-44 cm setjið 1 merki í miðjulykkju að framan og að aftan. Síðan er mynsturteikning M.1 prjónuð – lykkja merkt með ör í mynsturteikningu á að passa við lykkju með merki mitt að framan / mitt að aftan – teljið út mynsturteikningu að hlið. Teljið upp á nýtt þegar komið er að merki í hlið þannig að mynstrið byrji alveg eins að framan og að aftan.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm fellið af 4-8-12-22-26-40 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 2-4-6-11-13-20 lykkjur hvoru megin við bæði merkin í hliðum).
Fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig fram og til baka.

FRAMSTYKKI:
= 81-85-89-93-97-101 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu M.1, síðan er M.2 prjónað og að lokum M.3, haldið síðan áfram með litnum ljós brúnn að loka máli (lykkja með ör í mynsturteikningu á að passa við lykkju með merki mitt að framan / mitt að aftan – teljið út að hlið).
Þegar stykkið mælist 52-54-55-57-58-60 cm, setjið miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er fellt af í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli: 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 24-26-27-29-30-32 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm.

BAKSTYKKI:
= 81-85-89-93-97-101 lykkjur. Prjónið eins og framstykki, lykkjur eru ekki felldar af fyrir hálsmáli fyrr en stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af miðju 31-31-33-33-35-35 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 24-26-27-29-30-32 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm – fellið af í sömu umferð í mynstri eins og á framstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf.
Fitjið upp 58-60-62-64-66-68 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum dökk blágrænn DROPS Karisma.
Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 5 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-9-11-11-11-13 lykkjur jafnt yfir = 49-51-51-53-55-55 lykkjur. Setjið eitt merki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og haldið áfram í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 7-8-11-7-6-8 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki. Endurtakið útaukningu með 3-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 15-17-19-20-21-23 sinnum = 79-85-89-93-97-101 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46 cm í öllum stærðum, prjónið M.1 (lykkja með ör í mynsturteikningu = mitt á ermi – teljið út að hlið. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur).
Eftir M.1 haldið áfram með litnum dökk blágrænn að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 53-52-51-49-48-45 cm (styttra máli í stærri stærðum vegna hærri ermakúpu og breiðari axla) prjónið stykkið til loka fram og til baka frá miðju mitt undir ermi. Fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið (= kantlykkja til að sauma í) og prjónið síðan þar til ermin mælist 55 cm í öllum stærðum. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið ermar í (einingin sem var prjónuð fram og til baka efst á ermi á að passa inn í affellingu fyrir handveg).

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 80 til 92 lykkjur í kringum hálsmál (meðtalin lykkja af þræði mitt að framan) á stuttan hringprjón 3 með litnum dökk blágrænn. Prjónið 1 umferð brugðið, síðan er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 100-104-108-112-116-120 lykkjur.
Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í ca 7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið stroffið tvöfalt að röngu og saumið niður í kanti í hálsmáli frá röngu með smáum lausum sporum.

Mynstur

dökk blágrænn = dökk blágrænn
natur = natur
ljós brúnn = ljós brúnn
Diagram for DROPS Extra 0-816
Diagram for DROPS Extra 0-816
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #victoriasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-816

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Sabine skrifaði:

Deze zin begrijp ik echt niet: Brei TEGELIJKERTIJD bij een hoogte van 53-52-51-49-48-45 cm (minder cm voor de grootste maten voor een grotere mouwkop en bredere schouders) het werk verder heen en weer op de nld vanaf midden onder de mouw. Zet 1 nieuwe st aan iedere kant (= kant st voor de afwerking) en brei tot de mouw 55 cm meet voor alle maten, kant alle st af. Hoe moeten de mouwen afgebreid worden???

12.10.2015 - 09:45

DROPS Design svaraði:

Hoi Sabine. Je hebt tot 53-52-51-49-48-45 cm de mouw in de rondte gebreid. Vanaf deze hoogte ga je heen en weer breien en je zet 1 nieuwe st (= kantst) op aan beide zijkanten. Brei heen en weer tot 55 cm en kant af.

12.10.2015 - 12:44

country flag Valérie skrifaði:

Pour finir la manche vous préconisez de faire en allers retours pourquoi? Est ce important pour l'assemblage ? Merci pour votre réponse

02.02.2015 - 13:53

DROPS Design svaraði:

Bonjour Valérie, on termine les derniers cm en allers et retours pour le haut de la manche qui sera ensuite assemblé à l'emmanchure (sur le dos et le devant), entre les mailles rabattues pour le dos et le devant. Bon tricot!

02.02.2015 - 15:54

country flag Suzanne Bosch skrifaði:

Waarom zou ik bij de mouwen bij 52 cm niet meer verder gaan op de rondbreinaald maar heen en weer breien? Je krijgt dan toch twee hoekjes aan de mouw, hij past dan toch niet goed op het lijfstuk? Kan ik niet gewoon verder breien op de rondbreinaald? Ik snap niet zo goed wat ik met de mouwen moet doen en kan het ook niet zo goed op de foto zien.

16.11.2014 - 16:43

DROPS Design svaraði:

Hoi Suzanne. Je moet de mouwkop maken, dat ga je heen en weer breien. Het zou geen probleem zijn om de mouwkop in het vest te passen, zo is het model ontworpen.

18.11.2014 - 15:37

country flag Nadine skrifaði:

Hi, hat jemand den Pullover bereits gestrickt? Ich habe eine Kleidergröße 36/38, aber wenn ich die Maße an mir vergleiche, passt das alles irgendwie nicht. Daher die Frage, in welcher Größe würdet ihr stricken bei Gr. 36/38? Vielen Dank für die Antwort

25.10.2014 - 09:55

DROPS Design svaraði:

Liebe Nadine, am wichtigsten ist das Brustmaß und auch das Taillenmaß sollte natürlich nicht zu eng sein. Die Länge können Sie variieren, indem Sie zwischen den Abnahmen/Zunahmen mehr oder weniger R als angegeben stricken. Welche Maße passen denn bei Ihnen nicht?

26.10.2014 - 11:00

country flag Barbara Distelkamp skrifaði:

Hallo! Würde gerne diesen Pullover stricken, bin aber schon beim Lesen der Anleitung etwas überfordert. Was bedeutet: "...in M1 stricken (der Pfeil im Diagramm markiert die Mitte - zählen sie von der Seite her)???? Wo soll ich mit dem Muster anfangen? Ab dem Pfeil, am Anfang, welche Seite? Ich hoffe, Sie können mit helfen. Herzlichen Dank Barbara Distelkamp

03.09.2014 - 16:12

DROPS Design svaraði:

Liebe Barbara, es ist wichtig, ist das die durch den Pfeil markierte Masche bei allen 3 Mustern in der Mitte sitzt. Daher wird von dieser Masche ausgehend nach aussen (zu den seitlichen Rändern bzw. den markierten Seiten) gezählt und entsprechend mit dem Muster begonnen. Wir haben zur Verdeutlichung in der Anleitung noch einen Satz ergänzt.

04.09.2014 - 09:13

country flag Siri Espe skrifaði:

Når jeg strikker genser str M og skal begynne med M.1 får jeg ikke antall masker i mønsteret til å stemme med antall masker på genseren slik at merket kommer på midten både foran å bak. Det blir fire masker til overs (ufullstendig runde på M1) som vil skape et skille på hver side under armen, skal det være slik?

19.03.2014 - 20:58

DROPS Design svaraði:

Hei Siri. Det er vigtigt at du har den markerede m i midten af genseren. For str M er det så den 47. m midtfor og midtbak. Du skal altså tælle ud herfra og det betyder rigtig nok at du ikke får hele runder på M.1 hele vejen rundt. Men skal tælle på nyt fra siden. Sæt evt også markeringer i siden så du ved når du begynder påny igen. Håber du forstår hvad jeg mener :-)

02.04.2014 - 12:03

country flag Suzanne Bosch skrifaði:

After 5cm you should start with needles 4mm and decrease 38 stitches (size M) but how do I know after how many stitches i should decrease one? Because it says you should decrease equally?

27.02.2014 - 20:18

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Bosch, in size M, you can work a dec row like this : *K3, K2 tog*, repeat from *-* a total of 38 times, end with K34 = 186 sts remain. Happy knitting!

28.02.2014 - 10:35

Esther skrifaði:

This pattern looks lovely! One tiny catch however - it says to use 40cm and 80cm double pointed needles. They don't seem to exist, neither in your store nor on any site around the 'net I've been on - any recommendations on what to use instead? Would it be sensible to just use the circular needles of the same length instead?

05.11.2013 - 18:07

DROPS Design svaraði:

Dear Esther, for this pattern, you will need regular double pointed needles (as for socks) + circular needles of 40 and 80 cm long in both sizes 3 mm and 4 mm. Double pointed needles + 40 cm circular needle are used for sleeves. Happy knitting!

05.11.2013 - 18:29