DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 5 frábærum garntegundum!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1078.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Baby 21-34

#alladinhat

DROPS Design: Mynstur nr Z-085-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: 1 - 6 - (12 - 18) mán
Höfuðmál í cm: 38/40 - 41/42 - 43/44 (45/46 - 47/48)

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) gr litur nr 607, ljós brúnn

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1078.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið er út um 1 lykkju á undan og eftir lykkju með prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki. Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki. Setjið 1 lykkju á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, lyftið 1 lykkju af prjóni (= lykkja með prjónamerki), prjónið næstu lykkju og lykkju af hjálparprjóni slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

HÚFA:
Fitjið upp 117-123-129 (135-141) lykkjur (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 8 umferðir slétt (1. umferð = rétta).
Setjið 7 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig:
1. prjónamerki í 2. lykkju í umferð,
2. prjónamerki í 24.- 25.- 26. (27.- 28.) lykkju,
3. prjónamerki í 48.- 50.- 52. (54.- 56.) lykkju,
4. prjónamerki í 59.- 62.- 65. (68.- 71.) lykkju,
5. prjónamerki í 70.- 74.- 78. (82.- 86.) lykkju,
6. prjónamerki í 94.- 99.- 104. (109.- 114.) lykkju,
7. prjónamerki í næst síðustu lykkju í umferð.
Prjónið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki – JAFNFRAMT í 1. umferð byrjar útaukning og úrtaka – Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan – í annarri hverri umf þannig:
Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. prjónamerki.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 2. prjónamerki.
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3. prjónamerki.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 4. prjónamerki.
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 5. prjónamerki.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 6. prjónamerki.
Aukið út um 1 lykkju á undan 7. prjónamerki.
Haldið áfram með útaukningu og úrtöku frá réttu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 6 sinnum.
Stykkið mælist ca 6 cm frá uppfitjunarkanti – ef prjónfestan passar ekki á hæðina er hægt að prjóna áfram með útaukningu/úrtöku.
Eftir það er lykkjum fækkað hvoru megin við 2., 4., og 6. prjónamerki þar til 15 lykkjur verða aftur á prjóni (= 17-18-19 (20-21) sinnum). Stykkið mælist ca 16-17-17 (18-19) cm frá neðsta oddi við 2. eða 6. prjónamerki = eyrnaleppur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, 9 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt = 13 lykkjur. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í hverri umferð (frá röngu eru prjónaðar 2 lykkjur á undan og á eftir kantlykkju brugðið saman) þar til 3 lykkjur eru eftir, fellið af og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar.

FRÁGANGUR:
Saumið húfuna saman við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju.
Miðju oddurinn af þeim 3 heilu við uppfitjunarkantinn liggur að enni að framan.

SNÚRA:
Fitjið upp 4 lykkjur á prjóna nr 2,5. Prjónið þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, leggið þráðinn fyrir framan stykkið (á móti þér), takið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, leggið þráðinn aftur fyrir aftan stykkið (frá þér)* , endurtakið frá *-* í öllum umferðum. Nú myndast hringprjónuð snúra.
Fellið af þegar snúran mælist ca 20-22-24 (26-28) cm.
Prjónið aðra snúru á sama hátt og festið síðan snúrurnar á hvorn eyrnalepp í hvorri hlið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.12.2020
Leiðrétting: Stærðirnar hafa verið aðlagaðar og 2 prjónamerki með úrtöku/útaukningu hafa verið flutt um lykkju
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (237)

country flag Alexandra Köbele skrifaði:

Ich habe hingebugsvoll diese wunderschöne mütze in der größten größe gestrickt, alles genau nach anleitung, maschenprobe hat auch gestimmt, aber die mütze ist viel zu klein... so schade!! muss sie verschenken und mir eine noch größere basteln. viele grüße und vielen dank für das tolle drops!!!

02.02.2014 - 23:53

country flag Renate Jenssen skrifaði:

Hei! Skal man felle og øke på hver 2. pinne inkludert vranpinngen, altså på hver pinne på retten? Eller skal man øke og felle på annenhver pinne på retten, altså på hver fjerde pinne?

01.02.2014 - 23:03

DROPS Design svaraði:

Du feller på hver p fra retten og strikker hver p fra vrangen uten fellinger. Då blir det att du feller på hver 2.p.

05.02.2014 - 23:01

country flag Krakow skrifaði:

Hej! jag är nu färdig med de 6 öknings-/minskningsvarven. Dessa har jag gjort på vartannat rätt varv. Nu när jag ska fortsätta med bara minskning vid markörerna så förstår jag inte om detta ska göras på varje eller varannat rätt varv. vore tacksam för svar på detta! (tror även att det kan vara detta många som stickat för liten mössa haft problem med, de 6 första öknings-/minskningsvarven sker ju på vart 4:e varv, dvs varannat rätt varv!)

25.01.2014 - 13:47

DROPS Design svaraði:

Hej Krakow. Du skal minske videre på vartannat v til du har 15 m kvar på st (dvs, hver st paa rätsidan)

28.01.2014 - 17:02

country flag Mette Isen skrifaði:

Den rigtig sød og jeg ønskede at lave den med det samme, jeg undre mig dog over i laver en model med sammensyning i nakken til en baby.

05.01.2014 - 17:46

country flag Kerstin skrifaði:

Har läst en del inlägg nedanför. Hur är det med storlekarna?ska man ha stickor 2,5 fast det på garnet står till 3,5..tycker det ser stort ut när jag lagt upp till 2år och gjort 6 varv. Vill inte gärna sticka och dra upp???

24.12.2013 - 01:18

DROPS Design svaraði:

Hej Kerstin. Du skal bruge de stickor som giver den rette strikkefasthed: 26 m x 34 v i slätst på 10 x 10 cm. Vi anbefaler til dette 2,5 mm - men da alle strikker forskelligt skal du strikke en pröve först og maale efter. Strikker du for stramt (har flere m/v end 26 m og 34 v) skal du have en större st, strikker du for löst (du har mindre m/v) skal du tage en mindre st.

24.01.2014 - 10:44

country flag Christina skrifaði:

Hallo, Ich bin nun soweit, dass ich insgesamt 27 Maschen auf der Nadel hab. Ich soll ja Abnehmen jeweils eine vor und eine nach der 2.,4. und 6. Markierung. Problem ist jetzt, dass ich aber zwischen der 4. und 6. Markierung keine Maschen mehr habe. Wie soll ich da zum Schluss auf 15 Maschen kommen, wenn ich keine dazwischen mehr abnehmen kann? Vielen Dank, Christina

23.12.2013 - 13:54

DROPS Design svaraði:

Liebe Christina, wenn Sie diesem Video folgen, sehen Sie wie die Zu- und Abnahmen gestrickt werden: https://www.garnstudio.com/lang/de/video.php?id=401

26.12.2013 - 10:56

country flag Louise skrifaði:

Nu har jeg strikket to djævlehuer, seneste i str. 2 år til min 7 måneder gamle datter. Den er simpelthen for lille. Kan man forsætte ind- og udtagningerne i fx 10 i stedet for 6 pinde totalt? Huen er for tophueagtig og er 3-4 cm for kort fra øreklap til top, til trods for jeg har fulgt strikkefastheden.

16.12.2013 - 07:59

DROPS Design svaraði:

Hej Louise. Tak for din reaktion. Vi har kontrolleret og prövestrikket dette mönster flere gange og vi kan ikke finde fejl i opskriften. Er du ikke tilfreds, saa kan du selvfölgelig tilpasse som du vil. Se om strikkefastheden er korrekt i höjden og om du har gjort indtagningerne korrekt - se her:

17.12.2013 - 09:57

country flag Jette Hansen skrifaði:

Jeg tager rigtig ud og ind, men når man sætter mærkerne og tæller hvor mange masker der er mellem KUN indtagningerne er der 36 og det passer jo også med 18 indtagninger (str 6-9 mdr) men når man har lavet den første indt. og udt. Er der kun 35 m og derfor bliver der kun 1 m tibage på den sidste indt.pind og jeg kan da bare selv tage de sidste 6m ind fordelt over pinden for så er der 15 m tilbage men det ser ikke så pænt ud.

22.11.2013 - 11:12

DROPS Design svaraði:

Hej Jette. Det er korrekt at ved den sidste indtagning kan du ikke tage ind "paa hver side". Du ender med 15 og "ujævnheden" (eller hvad man nu skal kalde det) bliver fint når det er syet sammen (Kan jeg fortaelle ud af egen erfaring ;-). Du er selvfölgelig velkommen til at aendre det selv hvis du synes din version er paenere.

22.11.2013 - 11:50

country flag Jette Hansen skrifaði:

Jeg har det samme problem som Trine. Der sker det når du laver de første ud/indtagningerne efter de 8 ret pinde tager du 6m ind men kun 4m, man kan jo ikke bruge de 2m der bliver taget ud i siden derfor bliver der kun 35m mellem hver indtagninger. Og derfor bliver der kun 1 m imellem indtagningerne på den sidste p og hvordan skal man lukke dem af ?Nu har jeg både strikket str1-3 mdr og str 6-9 mdr og der sker det samme. Håber i forstår hvad jeg mener. Vh Jette

21.11.2013 - 22:51

DROPS Design svaraði:

Hej Jette. Opskriften skulle vaere korrekt, saa maaske gaar der noget galt med dine ud/indtagninger? Pröv at se denne video hvordan man tager ind/ud til denne hue:

22.11.2013 - 10:50

country flag LAGACHE skrifaði:

Adorable, cela parait compliqué, mais non, c'est trés facile à faire. Merci pour ces modèles et votre travail

12.11.2013 - 16:52